Morgunblaðið - 14.03.2002, Page 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 25
Landsbyggðin: Borgarlyf Borgarnesi Apótek Ólafsvíkur Stykkishólms Apótek Apótek Ísafjarðar Apótek Blönduóss
Siglufjarðar Apótek Dalvíkur Apótek Apótek Austurlands Seyðisfirði Hafnar Apótek Apótek Vestmannaeyja Apótek Keflavíkur
Höfuðborgarsvæðið: Árbæjarapótek Borgarapótek Garðs Apótek Grafarvogs Apótek
Hringbrautar apótek Laugarnes Apótek Nesapótek Seltjarnarnesi Rima Apótek
Andoxi
- Antioxidant
Líkaminn er sam-
settur úr ótal
frumum, andox-
unarefni verja þær
fyrir skemmdum af
völdum sindurefna.
Bein
- Bone
Ólífuolían auðveld-
ar upptöku líkam-
ans á kalki. Olía,
fólinsýra og kalk.
Heilbrigðari bein.
Orka
- Energy
Ginseng og ólífu-
olía, eykur orku
og almenna vel-
líðan.Kona
- Femme
Stuðlar að heil-
brigðu hormóna-
jafnvægi, styrkir liði
og húð. Láttu þér
líða vel, þú átt það
skilið.
Hugur
- Mind
Ginkgo Biloba er
gott fyrir minnið,
einbeitinguna og
viðbrögðin.
Ólífuolía
- Pharmaceutical
Grade olive oil
Góð áhrif á
meltinguna.
Inniheldur náttúruleg
andoxunarefni.
Húð, bein og
liðamót.
Frá Miðjarðarhafinu
í apótekið þitt
Aðeins í Plúsapótekunum
OleoMed vörurnar innihalda „Pharmaceutical Grade“ ólífuolíu í gelhylkjum, hún er álitin best allra
ólífuolía vegna hreinleika og framleiðsluaðferða sem viðhalda heilsusamlegum eiginleikum ólífunnar.
Olían í OleoMed hefur jákvæð áhrif á meltingarkerfi, húð og bein
og stuðlar að aukinni vellíðan.
1. vinningur: ferð fyrir tvo til Mallorca með Heimsferðum að verðmæti 120.000. kr.
2. vinningur: 4 5000 kr. gjafabréf í plúsapótekunum
3. vinningur: 5 mánaðarskammtar af OleoMed að eigin vali.
Þú skilar inn þátttökuseðli og greiðslukvittun á næsta útsölustað Plúsapóteka
Heilsuleikur
Hugsaðu um heilsuna og þú gætir fengið vinning að auki
Nú geturðu léð augnhárunum dramatíska sveigju og lyftingu
sem er sjónhverfingu lík. Illusionist Mascara er spánýtt og
loftnýtið gel sem borið er á augnhárin með frábærlega liprum
og sveigjanlegum trefjabursta.
Maskari sem tekur öllu öðru fram.
Einstakt tilboð í Lyf & heilsu, Austurstræti
Hreinasta sjónhverfing
Estée Lauder kynnir
ILLUSIONIST Maximum Curling Mascara
Þú greiðir fyrir maskarann og færð að auki:
Augnfarðahreinsi, Gentle Eye Makeup Remover 30 ml.
Augnmaska, Stress Relief Eye Mask.
Augnblýant, Eye Defining Pencil.
Allt þetta á aðeins kr. 2.084.
Austurstræti,
sími 562 9020
Ráðgjafi frá Estée Lauder
verður í Lyf & heilsu,
Austurstræti, í dag kl. 11-16 og á
morgun, föstudag, kl. 11-16.
YFIRVÖLD í Zimbabve sögðu í gær
að Robert Mugabe forseti hefði verið
endurkjörinn í kosningunum um
helgina en andstæðingur hans, Morg-
an Tsvangirai, hafnaði úrslitunum.
Nokkrar eftirlitsnefndir, sem fylgd-
ust með kosningunum, sögðu að þær
hefðu ekki verið frjálsar og lýðræð-
islegar.
Samkvæmt kjörtölum yfirvalda
fékk Mugabe 56,2% atkvæðanna og
Tsvangirai 41,9%.
„Þetta eru mestu kosningasvik sem
ég hef nokkru sinni orðið vitni að á
ævinni,“ sagði Tsvangirai. „Þjóðin
þarf að ákveða hvað eigi að gera. Það
er hún sem hefur verið svikin.“
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði að Mugabe
gæti lýst yfir sigri en kjör hans væri
ekki lýðræðislegt. Hann gaf til kynna
að gripið yrði til hertra refsiaðgerða
gegn stjórn Mugabes. Bandaríkja-
stjórn hefur þegar sett ferðahömlur á
Mugabe og fleiri hátt setta embætt-
ismenn Zimbabve.
Mugabe hefur verið við völd í 22 ár,
eða frá því að Zimbabve fékk sjálf-
stæði frá Bretlandi. Jack Straw, utan-
ríkisráðherra Bretlands, sagði að
Mugabe hefði beitt „skipulögðu of-
beldi og hótunum“ til að halda völd-
unum. „Hann hafði aðeins eitt mark-
mið – að halda embættinu hvað sem
það kostaði. Það kemur ekki á óvart
að þetta markmið skuli hafa náðst.“
Kjörsóknin var um 66%, mest í
sveitahéruðum þar sem fylgi Mugab-
es er mest. Þar var kjörsóknin 69%,
en aðeins rúm 40% í Harare og fleiri
borgum þar sem stuðningurinn við
Tsvangirai er mestur.
Langar biðraðir mynduðust við
kjörstaðina í Harare vegna þess að
þeir voru alltof fáir. Lögreglan hrakti
þúsundir kjósenda frá kjörstöðunum
og beitti meðal annars táragasi.
Óttast óeirðir
Öryggissveitir Zimbabve voru í við-
bragðsstöðu í gær þar sem óttast er
að óeirðir blossi upp vegna niðurstöðu
kosninganna. Herlögreglumenn settu
upp tálma á helstu vegi að Harare og
um hundrað vopnaðir lögreglumenn
umkringdu höfuðstöðvar flokks
Tsvangirais í Bulawayao, næst-
stærstu borg landsins.
Kare Vollan, formaður 25 manna
eftirlitsnefndar frá Noregi, sagði að
hún hefði orðið vör við alvarlega galla
á öllum stigum kosningaferlisins, allt
frá skráningu kjósenda til kosning-
anna sjálfra. Óháðar eftirlitsnefndir
kirkna og borgaralegra samtaka í
Zimbabve tóku í sama streng.
Eftirlitsnefnd Einingarsamtaka
Afríku, OAU, sagði hins vegar að
kosningarnar hefðu verið „trúverðug-
ar, frjálsar og sanngjarnar“. Fimmtíu
manna eftirlitsnefnd frá Suður-Afr-
íku sagði að líta ætti svo á að kosning-
arnar væru „gildar“, en gekk ekki svo
langt að segja að þær hefðu verið lýð-
ræðislegar. Stjórn Suður-Afríku hef-
ur reynt að draga úr gagnrýninni á
stjórn Mugabe og lagst gegn því að
Samveldislöndin grípi til refsiaðgerða
gegn Zimbabve.
Andstæðingur Mugabe
hafnar úrslitunum
Harare. AFP, AP.
Reuters
Liðsmenn Mugabe með pappakassa sem á að tákna líkkistu Tsvangirais.
AFGANSKIR og bandarískir hermenn leituðu í
gær liðsmanna al-Qaeda og talibana í Shah-e-
Kot-dal, sem þeir lögðu undir sig í fyrradag. Svo
virðist sem öll mótstaða hafi verið brotin á bak
aftur þótt talið sé, að um 100 manns leynist enn í
fjöllunum.
Afganskir hermenn lögðu undir sig dalinn og
þrjú þorp í honum eftir harðar loftárásir Banda-
ríkjamanna og ráða nú einnig mikilvægum fjalls-
hrygg yfir honum. Hafa liðsmenn hryðjuverka-
samtakanna verið upprættir eða hraktir úr 40
hellum og þar og í þorpunum hefur fundist mikið
af skjölum og búnaði til sprengjugerðar. Áætlað
er, að í þorpunum þremur hafi verið allt að 250 al-
Qaeda-liðar þegar átökin hófust, en í gær fundust
þar lík 25 manna. Töldu Afganir, að þeir væru
Tsjetsjenar, eftir hörunds- og augnalit að dæma.
Naeem, einn afgönsku foringjanna, segist hafa
talað við einn fanga, afganskan talibana, sem hafi
sagt, að í upphafi átakanna hafi verið á svæðinu
14 arabískir foringjar og 250 Tsjetsjenar. Þar
fyrir utan hafi verið ótiltekinn fjöldi talibana, sem
hafi hlaupist undan merkjum þegar átökin hófust
vegna ágreinings við al-Qaeda-foringjana.
Viðurkenna mistök
Bandarískir embættismenn sögðu í gær, að
konur og börn hefðu verið í hópi 14 manna, sem
féllu er bandarísk orrustuvél réðst á bifreið í
austurhluta landsins. Sögðu þeir, að bíllinn hefði
verið álitinn „lögmætt“ skotmark vegna þess, að
hann hefði virst stefna burt frá stað þar sem al-
Qaeda-liðar hefðu haldið sig.
Mótspyrna al-Qaeda og talib-
ana sögð brotin á bak aftur
Shah-e-Kot. AP, AFP.