Morgunblaðið - 14.03.2002, Page 26

Morgunblaðið - 14.03.2002, Page 26
SJÓNMENNTAVETTVANGUR 26 FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ Þ AÐ er margt á hjara ver- aldar, sem vísar óþyrmi- lega til þess hve ein- angrun þjóðarinnar er mikil, þrátt fyrir alla við- leitni við að draga dám af stærri menningarheildum, rembing og strembing. Helst kemur þetta fram í fáfræði á mikilsverðum huglægum athöfnum sem menn ytra eru sér vel meðvitandi um og gæddir ríkri ábyrgðartilfinningu. Íslendingar hins vegar iðulega yfirmáta fáfróðir og andvaralausir. En af og til vakna menn við vondan draum þannig að úr verður mikill hávaði um stund, en svo fyrnist fyrir hlutina, umræðan logn- ast útaf, ábyrgðin fyrnist. Þetta á einkum við um verðmæti sem skara sköpunargáfuna, en hér hafa Íslend- ingar verið seinir til að skilja og með- taka þýðingu hennar jafnt fyrir lífs- hamingjuna, vitundarstöðvarnar og þjóðarbúið. Tekur steininn úr varð- andi gildi forvörslu, en hér hefur þekkingarskorturinn til skamms tíma verið landlægur. Hús með minjagildi jafnt og listaverk látin drabbast niður, á stundum í frum- eindir sínar. Er fyrst á síðari árum að skilningur á viðhaldi og varðveislu eldri húsa er orðinn nokkuð almenn- ur, á þó bersýnilega ennþá töluvert í land um listaverk og verður hér vikið að nokkrum nærtækum dæmum. Eyðing Margir hrukku við þegar málið um niðurbrot veggmyndar Veturliða Gunnarssonar listmálara í Árbæj- arskóla kom upp á yfirborðið, lista- menn dasaðir yfir þessum hremm- ingum. Þó er atvikið ekki einsdæmi eins og síðar verður vikið að, en nú virtist mælirinn fullur ef marka má harkalegar umræður sem urðu á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur einn fimmtudag fyrir skömmu. Vísar vonandi á betri daga, að augu manna séu loks að opnast og því mikilvægt fyrir alla þá sem hagsmuna hafa að gæta að fylgja umræðunni eftir þeg- ar hún loksins kemst upp á yfirborð- ið, þótt helst væri fyrir pólitískar kárínur. Rétt að víkja aðeins að listamann- inum Veturliða Gunnarssyni frá Suð- ureyri við Súgandafjörð, listmálara í Reykjavík. Flestum mun gleymdur, í öllu falli sé litið til athafnasemi lista- safna og listastofnana á höfuðborg- arsvæðinu. Veturliði samt einn litrík- asti málari sinnar kynslóðar á sjötta og sjöunda áratugnum, þótt lítið væri hann leiðitamur undir nýviðhorf strangflatalistar frá París. Að auki undir verndarvæng málarans, grafík- listamannsins og orðháksins Jóns Engilberts, eins af höfuðandstæð- ingum þessara viðhorfa á tímaskeið- inu. Varð landsfrægur þegar hið sér- stæða atvik kom upp fyrir réttri hálfri öld, að hann vék listrýni Þjóð- viljans út af sýningu sinni í Lista- mannaskálanum gamla við Kirkju- stræti. Atvikið í þeim mæli stór og feitur biti fyrir fjölmiðla, að þekktur listsögufræðingur átti í hlut, og hug- takið, að Veturliða, sem margur í list- heiminum kannast við, þ.e. víkja list- rýni út af sýningu, festist í tungunni. En þetta og vægi listar Veturliða ber að láta liggja milli hluta, eyðilegging- arferlið höfuðmálið. Þó rétt að fram komi að vinnubrögð listamannsins voru ekki óskyld sumu því sem löngu seinna komst á oddinn undir heitinu; nýja málverkið. Þáttur hans í ís- lenzkri listasögu því væntanlega rannsóknarefni hinum mörgu fræð- ingum sem úrskrifast hafa á síðari árum. Fram hjá hlut hans verður trauðla gengið þá hlutlægni og skil- virkni skulu ráða för… Í stuttu máli: Veggmynd Veturliða Gunnarssonar í Árbæjarskóla í stærðarhlutföllunum 2.50 x 8.00 m var fullgerð 1973 en rústuð árið 2000. Innibar meðal annars þúsundir ís- lenzkra (glit)steina, sem fengnir voru úr flestum sýslum landsins. Reykja- víkurborg, sem á skólahúsið, réð listamanninn til að útfæra verkið og greiddi umsamin laun. Í skjóli eign- arréttar á verkinu var það brotið nið- ur með stórvirkum vinnuvélum, bara sisona, án þess að Veturliði eða nán- ustu ættingjar væru látnir vita, höf- undur ásamt sæmdarrétti troðinn í svaðið, sjúkur listamaðurinn lítils- virtur. Hér helstir nefndir til ábyrgð- ar: Borgarlögmaður, sem gaf grænt ljós á niðurbrotsferlið. Yfirmaður byggingardeildar Reykjavíkur- borgar, sem stjórnaði húsbrots- framkvæmdunum. Skólastjóri Ár- bæjarskóla, sem óskaði ekki eftir að verkinu yrði bjargað. Forstöðumað- ur Listasafns Reykjavíkur, sem lyfti ekki litlafingri til að hindra verk- fræðing byggingardeildar í fyrirhug- aðri eyðileggingu verksins. Ráðlagði aðeins myndatökur af því. Arkitekt nýbyggingarinnar, sem hannaði nýtt húsrými án tillits til veggmynd- arinnar, hún ekki merkt inn í fram- lagðar fagteikningar. Til að kóróna þetta var verkið ekki á skrá yfir lista- verkaeign Listasafns Reykjavík- urborgar (!), sem raunar mun, að sögn, prýdd grófum hnökrum og van- rækslusyndum. Samkvæmt orðum borgarstjóra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, bar ofannefndum aðilum skylda til að leggja málið fyrir menningar- málanefnd borgarinnar sem og borg- aráð til umræðu áður en fram- kvæmdir hófust, en var ekki gert! Flest þetta punktar sem skrifari fékk hjá Benedikt Gunnarssyni list- málara, yngri bróður listamannsins, til skamms tíma lektor við listabraut Kennaraháskóla Íslands. Hann var einnig einn af ásunum meðal at- kvæðamikilla og framsækinna ungra listamanna á tímaskeiðinu en hallari undir núviðhorfum Parísarskólans. Benedikt, sem alla tíð hafði mikinn áhuga á að miðla nemendum sínum fróðleik úr samanlagðri listasögunni, uppgötvaði niðurbrotið fyrst þegar hann var að fiska eftir kynningarefni og ljósmynda veggskreytingar í op- inberum byggingum í borgarlandinu, kom að sjálfsögðu af fjöllunum. Það er fyrir hans tillstilli að niðurbrotið varð opinbert, er hann leitaði svara og ábyrgðar hjá flestum sem nefndir voru hér fyrir ofan. Vegna óska Benedikts um að Samband íslenzkra myndlistarmanna léti málið til sín taka var það tekið upp á fundi menn- ingamálanefndar Reykjavíkurborgar 20. febrúar með athugasemd frá SÍM og þá sprakk blaðran. Fjölmargir listamenn og aðrir hafa hringt til Benedikts vegna þessa máls, sumir bitrir aðrir öskureiðir. Þetta allt vek- ur ósjálfrátt einnig upp upp spurn- ingu um örlög hins stóra vegg- málverks lærimeistarans Jóns Engilberts, sem var í fundarsal borg- arstjórnar í Skúlatúni 2, en fjarlægt 1993 og mun í geymslu einhvers stað- ar. Handvömm sem þessa er ekki hægt að bæta að fullu, hvorki með peningum né afsökunum, en verður vonandi til að menn hugsi sig tvisvar áður en þeir endurtaka viðlíka ósóma. Brýn nauðsyn á samningu ótvíræðrar reglugerðar að viðlagðri fullri ábyrgð ef út af bregður, og eðli- legast að víta alla opinberlega sem hér komu að máli, ekki síður en brot- þega með opinbera fjármuni. Hér var nefnilega um sameign borgarbúa að ræða, hvorki einkamál skólastjóra, arkitekts né annarra aðila er komu að niðurbrotinu. Loks er mál að upplýsa, að Vet- urliði Gunnarsson hefur alið með sér þann draum mörg undanfarin ár að sýna á Kjarvalsstöðum, eins og hann gerði á upphafsárum þeirra, en verið hafnað, þarnæst hefur fyrirkomulag- inu verið breytt til að auka völd for- stöðumanns, fræðinga og hús- stjórnar – eftir öðru á kostnað þeirra sem húsið var byggt fyrir í upphafi! Talan 15. október 2001, var í þess- um efnum orðin að þráhyggju hjá listamanninum, til að mynda í þá veru að í hvert skipti sem leið okkar lá saman á förnum vegi bauð hann mér á fyrirhugða sýningu á þessum degi og þessu ári. Í fórum mínum er miði sem hann skrifaði á í almenn- ingsvagni svo fyrntist síður fyrir til- mælin, hvar á stendur orðrétt: „Vel- kominn á sýningu mína með allar þínar ástkonur. Kjarvalsstaðir 15. október 2001. Veturliði Gunnarsson. Gamall sjómaður á Hrafnistu, herb.326.“ Húmorinn átti hann til ennþá. Listamaðurinn sá fram til þessa mikla dags í hillingum er hann yrði 75 ára, en ekki undu menn á staðnum honum þess að sjá draum- inn rætast, brugðu frekar fæti fyrir hinn vonbjarta ásetning. Dregið saman í hnotskurn og í ljósi þeirra grófu ávirðinga sem Veturliði Gunnarsson hefur orðið fyrir og hvorki afsakanir né peningar fá bætt, sé ég ekki aðra lausn haldbærri í sjónmáli en að borgin standi fyrir marktækri yfirlitssýningu á verkum hans að Kjarvalsstöðum. Henni fylgi jafnframt vegleg sýningarskrá /bók er taki fyrir ævi hans og listferil. Falsanir Áður en lengra er haldið er ekki úr vegi að víkja í framhjáhlaupi rétt að- eins að svonefndu fölsunarmáli sem nú virðist vera að fyrnast yfir, þrátt fyrir að vera eitt umfangsmesta og kostnaðarmesta sakamál sem um getur í réttarsögu þjóðarinnar. Til- mælin koma í ljósi fimm ára afmæli rannsóknarferilsins, sem verður 27. mars. Hef vikið að því í tvígang, án þess að taka ótvíræða afstöðu þar sem ég virði þá reglu að menn eru saklausir þar til sekt er sönnuð. Mér er þó ljóst að það sem helst er eins- dæmi í þessu máli er hið undarlega og langa rannsóknarferli, sér- staklega vegna þess að sum verkana eru svo augljósar falsanir að sá sem er ber skynbragð á hugsanir pensils- ins í höndum höfunda þeirra, greinir hjáleit vinnubrögðin samstundis úr langri fjarlægð. Þá eru falsanir í stórum mæli ekkert einsdæmi ef marka má sýningu á Listiðn- aðarsafninu í Kaupmannahöfn, sem ég skoðaði um miðjan nóvember. Að vísu var um að ræða falsanir á list- hönnun, en alstaðar í heiminum þekkjast listaverkafalsanir. Eft- irgerðir og falsanir jafngamlar list- inni. Þó skilur á milli meistaralegra falsana og viðvaningslegra, eins og Veggmynd Veturliða Gunnarssonar. Eyðing/falsan- ir/vandalismi Ferlið varðandi niðurbrot veggmyndar Veturliða Gunnarssonar í Árbæjarskóla hefur vakið mikla athygli og reiði listamanna því hér er um gróft brot á undirstöðureglu að ræða. Varð Braga Ásgeirssyni tilefni til nærtækra hugleiðinga í víðu samhengi um framgöngu við listaverk almennt. Bragi Ásgeirsson: Málverkið Madame sans Gene, Frúin ófeimna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.