Morgunblaðið - 14.03.2002, Side 28
LISTIR
28 FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LIBERA 20
mjaðmasokkabuxur
með glærum tám.
Þegar mikið
stendur til.
Kynning
í dag kl. 14-18
í Lyf og heilsu,
Austurveri.
20% afsláttur
af öllum
sokkabuxum.
sokkar, sokkabuxur, undirföt
oroblu@islensk-erlenda.is
Austurveri
HAMRAHLÍÐARKÓRINN syngur
í Listasafni Íslands í kvöld kl. 20.30.
Stjórnandi kórsins er Þorgerður
Ingólfsdóttir, en píanóleikari með
kórnum að þessu sinni er Árni
Heimir Ingólfsson. Það er þjóðlegur
tónn í efnisskránni og meðal efnis ís-
lensk og erlend þjóðlög og þjóðleg
söngverk. Tvö verk verða frumflutt
á tónleikunum, Tobbavísur eftir
Snorra Sigfús Birgisson. Vísurnar
eru eftir Æra-Tobba, en Snorri Sig-
fús samdi verkið í haust og tileinkaði
bróðursyni sínum. Hins vegar verð-
ur frumflutt verkið Hugsa jeg um
það hvern einn dag, eftir Huga Guð-
mundsson, en lagið og ljóðið eru úr
Hymnódíu, handriti sr. Guðmundar
Högnasonar, prests í Vestmanna-
eyjum, frá 1742. Hugi útsetti lagið
sumarið 2001 og tileinkaði Þorgerði
Ingólfsdóttur.
Vængjatök heitir nýlegt verk eftir
Atla Heimi Sveinsson sem flutt
verður á tónleikunum, en Atli samdi
það í Flatey á Breiðafirði sumarið
1998. Hamrahlíðarkórinn syngur þá
Ólafsrímu Grænlendings eftir Jór-
unni Viðar, en Jórunn samdi verkið
um 1950 fyrir kór og strengjasveit.
Þjóðleikhúskórinn frumflutti verkið
á sínum tíma undir stjórn Victors
Urbancic, en síðar umbreytti Jórunn
verkinu í þá mynd sem hér heyrist,
fyrir kór og píanó. Ljóðið er úr
Ólafsrímu Grænlendings eftir Einar
Benediktsson.
Eftir hlé hljóma þjóðlög frá Slóv-
akíu, Ungverjalandi, Póllandi og
Úkraínu. Béla Bartók útsetti Fjórar
slóvakískar þjóðvísur fyrir kór og pí-
anó. Lagaflokkurinn hefst á trega-
fullum brúðkaupssöng frá smábæn-
um Poniky, en síðan tekur við
sláttusöngur frá þorpinu Hiadel.
Honum fylgja tveir dansar, annar
frá Medzibrod en hinn frá Poniky.
Þorsteinn Valdimarsson þýddi ljóðin
og gaf kórnum árið 1971. Annar
þekktur þjóðlagasafnari, Zoltán Ko-
dály, útsetti Myndir úr Matrafjöll-
um. Matrafjöll eru í norðausturhluta
Ungverjalands. Í fyrri hluta verks-
ins er fléttað saman lögum þar sem
sagt er frá þjóðsagnaribbaldanum
Vidrócki sem þýðandi ljóðanna,
Heimir Pálsson, kallar Skuggavalda.
Í síðari hluta verksins kveður við
léttari tón með brúðkaupi, drykkju
og hænsnafjöld eins og segir í efnis-
skrá tónleikanna. Einsöngvarar í
verki Kodálys eru þau Guðmundur
Arnlaugsson og Hrafnhildur Ólafs-
dóttir. Síðasta verkið á efnisskránni
eru svo Þrír gyðingasöngvar Hasída
sem upprunnir eru í Póllandi og
Úkraínu. Gil Aldema raddsetti lögin.
Textar þeirra eru ólíkir en allir eiga
þeir rætur í gyðingdómi hasída. Ein-
söngvari þar er Karl Sigurðsson.
Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri
segir að í gegnum tíðina hafi verið
vandað til efnisskrár tónleika kórs-
ins, og reynt að byggja hana upp
hverju sinni í kringum ákveðið þema
sem skapar ákveðna heild eða yf-
irsýn. „Ég get nefnt madrigalatón-
leika kórsins í gegnum tíðina, og
tónleika með íslenskri tónlist frá
ákveðnum tímabilum, þjóðlagatón-
leika, Maríuþema og því um líkt.
Þessir tónleikar eru með tónlist sem
byggist að miklu leyti upp á þjóð-
legum arfi, en er samt gegnsamin,
þar sem tónskáldin nota þjóðlegan
efnivið í sköpun sína. Erlendu tón-
bálkarnir þrír eru dæmi um þetta,
og á vissan hátt má segja að við svip-
aðan tón kveði einnig í verki Jór-
unnar Viðar, þar sem hún nýtir sér
ýmis þjóðleg element í tónlistinni.
Við vildum gjarnan koma nýjum
verkum á framfæri líka, verkum sem
fylgja þessu þema. Þar er fallega
unnin kórgerð á þjóðlagi úr Hymn-
ódíu og svo lag Snorra Sigfúsar þar
sem hann fæst við eins konar rapp
texta 17. aldarinnar, texta sem virð-
ist vera marklaus leikur með orð og
hljóð orða. Atli Heimir hefur komist
í góða laglínustemmningu þegar
hann samdi Vængjatök. Hann sagði
á æfingu um daginn að þetta væri
eins konar aría fyrir altrödd, en hún
er aðalröddin meðan hinar eru í bak-
grunni. Atli kom með þetta til mín
fyrir nokkrum vikum og sagðist hafa
fundið þetta í fórum sínum; það
hefði lent milli pappíra hjá honum.
Þetta lag Atla hefur ekki verið
kynnt.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Hamrahlíðarkórinn ásamt stjórnanda sínum, Þorgerði Ingólfsdóttur.
Hamrahlíðarkórinn á tónleikum í Listasafni Íslands
Úr þjóðlegum efnivið
Sjóminjasafn Íslands, Vesturgötu
8, Hafnarfirði Aðalsteinn Ingólfs-
son listfræðingur heldur fyrirlestur
um ímynd sjómannsins í í verkum ís-
lenskra myndlistarmanna kl. 20.30.
Í fyrirlestrinum fjallar Aðalsteinn,
sem er forstöðumaður Hönn-
unarsafns Íslands, um ímynd sjó-
mannsins í verkum myndlist-
armanna frá Muggi og Kristínu
Jónsdóttur til Tolla, ýmsar breyt-
ingar á þessari ímynd í tímans rás
og hugsanlegar ástæður þeirra, ekki
síst þróunina frá sjómanninum sem
leiksoppi náttúruaflanna til þeirrar
,,hetju hafsins“ sem birtist í verkum
Kjarvals, Gunnlaugs Scheving og
Þorvalds Skúlasonar. Ennfremur
verða kynnt nokkur tilbrigði um sjó-
mannsstefið í verkum yngri lista-
manna og verkum sem fjalla um
sjávarháska og manntjón á hafi.
Fyrirlesturinn er í boði Rannsókn-
arseturs í sjávarútvegssögu og Sjó-
minjasafns Íslands.
Múlinn, Kaffileikhúsinu Kvartett
Kára Árnasonar leikur kl. 21. Tón-
leikadagskráin samanstendur af lög-
um eftir Wayne Shorter frá Blue
Note-tímabilinu. Kvartettinn er
skipaður þeim Kára Árnasyni
trommuleikara, Sigurði Flosasyni
saxófónleikara, Ómari Guðjónssyni
gítarleikara og Þorgrími Jónssyni
bassaleikara.
Í DAG
Kvartett Kára Árnasonar: Þorgrímur
Jónsson, Sigurður Flosason, Kári Árna-
son og Ómar Guðjónsson.
MEÐAL þess sem gert verður
til að minnast aldarafmælis
Halldórs Laxness 23. apríl
næstkomandi
er að Rithöf-
undasamband
Íslands mun í
samstarfi við
Borgarbóka-
safn Reykja-
víkur merkja
fæðingarstað
Nóbels-
skáldsins á
Laugavegi 32
– merki verður sett á gang-
stéttina – að morgni afmælis-
dagsins. Þetta verður fyrsta
merking á fæðingarstað rithöf-
undar í Reykjavík. Þennan
sama morgun hefst svo boð-
hlaup rithöfunda að Gljúfra-
steini.
Þetta kemur fram í yfirliti yf-
ir viðburði í tilefni aldarafmæl-
isins sem Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra kynnti á
fundi ríkisstjórnar á þriðjudag.
Ýmsar stofnanir og samtök
hafa í hyggju að minnast þess
að öld verður liðin frá fæðingu
skáldsins.
Fæðingar-
staður
Laxness
merktur
Halldór
Laxness
GÁLGAHÚMOR er óaðskiljan-
legur hluti finnskrar listmenningar,
fáránlegur, stórkarlalegur og grág-
lettinn. Þeir Juha Metso og Timo
Hannes Sebastian Mähönen – sem
saman kalla sig
Art Marines, eða
Listlandgönguliða
– eiga sér fjöl-
marga fyrirrenn-
ara. Fyrir áratug
voru brandara-
karlarnir Olli
Jaatinen og Kare
Lampinen til
dæmis mjög fyrir-
ferðarmiklir í
finnsku listalífi.
Eins og Metso og
Mähönen, sem eru
frá hafnarborgun-
um Karhula og
Kotka, voru þeir
einnig frá suð-
austanverðu
Finnlandi.
Myndirnar á
sýningu tvímenn-
inganna eru flest-
ar af þeim sjálfum
við hinar ýmsu,
kynlegu kringum-
stæður. Óneitan-
lega minna þeir á Estragon og Vlad-
imir, hina umkomulausu fóstbræður
Samuels heitins Beckett, enda eru
þeir í senn trúðar og flækingar,
hlægilegir og aumkunarverðir.
Þetta afkáralega inntak er í
merkilegu ósamræmi við fegurð
myndatökunnar, sem er í flestum til-
vikum skörp og haganleg. Þetta eru
hvorki stórar ljósmyndir né ágeng-
ar. Það þarf að dvelja yfir þeim
nokkra stund til að átta sig á vel út-
færðum atriðunum þar sem tví-
menningarnir fara á kostum í vit-
leysunni og galsanum.
Reyndar fylgja þeir galskapnum
eftir með nokkurs konar yfirlýsing-
um í formi stefnuskrár. Þar kemur
fram að þeir félagar stofnuðu Art
Marines í Karhula árið 1998, í því
augnamiði að breyta heiminum eins
fljótt og auðið yrði með fagurfræði-
legum og félagslegum aðferðum.
Kjarninn í þeim aðferðum er gam-
ansemin, æðsta form heimspekinn-
ar, sem samkvæmt Metso og Mähön-
en opinberar okkur afstæði
hlutanna. Þessari gamansemi er þó
öðru fremur stefnt gegn því sem þeir
félagarnir telja sótthreinsaða stofn-
analist. Þeir strengja þess heit að
falla aldrei í þá gryfju, heldur halda
list sinni á stigi sóðaskapar sem
tryggi henni lifandi framtíð.
Það er augljóst hve rækilega tví-
menningarnir byggja verk sín á
klassískri arfleifð alþýðlegrar gam-
anlistar sem rekja má til niður-
lenskrar heimsádeilu málara á borð
við Bruegel og Brouwer, á sextándu
og sautjándu öld.
Haltur leiðir
blindan
MYNDLIST
Gallerí Skuggi
Til 30. mars. Opið þriðjudaga til
sunnudaga frá kl. 13–17.
LJÓSMYNDIR
TIMO MÄHÖNEN & JUHA METSO
Halldór Björn Runólfsson
Frá sýningu Art Marines – Juha Metso og Timo
Mähönen – í Galleríi Skugga, Hverfisgötu.
Bókin Fjöl-
greindir í
skólastofunni
er eftir kenn-
arann og sál-
fræðinginn
Thomas Arm-
strong. Erla
Kristjánsdóttir,
lektor við Kenn-
araháskóla Íslands, þýddi og stað-
færði bókina.
Í kynningu segir m.a.: Bandaríski
prófessorinn Howard Gardner kom ár-
ið 1983 fram með nýja kenningu, fjöl-
greindakenninguna, sem valdið hefur
byltingu í allri umræðu og viðhorfi til
kennslu og uppeldis. Gardner taldi að
skilgreiningin á greind væri of þröng
og setti fram þá kenningu að mað-
urinn byggi yfir að minnsta kosti sjö
grunngreindum en bætti síðar þeirri
áttundu við. Í þessari bók útskýrir höf-
undurinn kenningar Gardners og
bendir á hvernig uppalendur og kenn-
arar geta nýtt sér kenninguna.“
Útgefandi er JPV útgáfa.
Bókin 168 bls. í stóru brot.
Kennsla