Morgunblaðið - 14.03.2002, Side 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 29
Húð þín á skilið
betri heim
Origins kynnir
A Perfect World
Húðvernd með hvítu tei
Ef heimurinn væri eins og við helst
vildum, myndi húðin ekki eldast hrað-
ar en við sjálf. En nú hefur Origins
fundið lykilinn að lengri æskudögum
húðarinnar, ljósa teið, sem er leyndar-
mál þessa betri heims, Silver Tip
White Tea. Það rekur skaðvaldana á
brott löngu áður en þeir geta beitt
vopnum sínum. Húðin getur einbeitt
sér að heilsuræktinni. Mýktin kemur
undir eins. Sjáanleg merki öldrunar
hverfa eins og dögg fyrir sólu. Húðin
hefur fundið sitt Shangri-La.
Origins ráðgjafar verða í
Hagkaupi Smáralind, fimmtu-
dag, föstudag og laugardag
14.-16. febrúar og veita ráð-
gjöf um húðhirðu.
BBB, Bátar, beib og bíbar er yf-
irskrift sýningar Daða Guðbjörnsson-
ar í Fold. Titillinn gefur hvorki fyr-
irheit um að á sýningunni séu
átakamikil verk í samræðu við sam-
tíma sinn né að um sé að ræða nær-
göngul verk þar sem listamaðurinn
glímir við sinn innri mann. Þvert á
móti bendir BBB til þess að hér sé
léttmeti á ferðinni.
Það kemur líka á daginn þegar inn í
sýningarsalinn er komið, Daði er ekki
að reyna að vera djúpvitur né drama-
tískur og verkin eru nákvæmlega það
sem titillinn segir til um, þ.e. bátar,
beib (kvenverur) og bíbar (fuglar), en
að auki koma við sögu sjávardýr, segl,
klassískar súlur og krúsídúllur,
Kona í grænu landi eftir Daða Guðbjörnsson.
Hefðbundið snið
MYNDLIST
Gallerí Fold
Opið daglega frá kl. 10–18, laugardaga
kl. 10–17 og sunnudaga kl. 14–17. Til
24. mars.
MÁLVERK
DAÐI GUÐBJÖRNSSON
Þóroddur Bjarnason
helsta einkennið í verkum Daða.
Sjórinn er meginþema sýningar-
innar sem hefur yfir sér bláleitan blæ.
Verk nr. 18 er þar þó undanskilið,
Kona í grænu landi, ein besta mynd
sýningarinnar.
Það sem mér þótti athyglivert á
sýningunni var t.d. að í mynd nr. 1,
Við öldunnar hljómfall, sýnist mér
Daði mála ofan á skrautlegt sængur-
ver, en verkið sýnir hval sitjandi á
öldutoppi. Jafnframt voru raunsæis-
lega máluð kvenmannsandlit mitt í
mynsturlandslaginu nýtt stílbrigði
miðað við það sem ég þekki til fyrri
verka Daða en andlitið kemur end-
urtekið fyrir í sömu mannverunni í
nokkrum myndum. Þeirra best er
Ský, og bendi ég fólki á að gefa því
gaum hvernig listamaðurinn leysir
undirskriftina inni í miðri mynd.
Hér er sem sagt allt með nokkuð
hefðbundnu sniði hvað yfirbragð verk-
anna varðar en Daða hefur oft verið
meira niðri fyrir en á þessari sýningu.
Approaches to Vínland er hið fjórða í
flokki rita Stofnunar Sigurðar Nor-
dals. Bókin er á ensku og hefur að
geyma geyma
sautján greinar
sem eru afrakstur
af alþjóðlegri ráð-
stefnu í Norræna
húsinu dagana 9.
til 11. ágúst
1999. Fjallaði ráð-
stefnan um heim-
ildir fyrir landa-
fundum og
landnámi norrænna manna við Norð-
ur-Atlantshaf á miðöldum.
Fræðimennirnir, sem eiga greinar í
bókinni, eru frá Bandaríkjunum, Bret-
landi, Danmörku, Írlandi og Kanada,
auk Íslands. Þeir eru: Bo Almquist,
Jette Arneborg, Árni Björnsson, Birg-
itta Wallace Ferguson, Guðmundur
Ólafsson, Helgi Þorláksson, Inga
Dóra Björnsdóttir, Jenny Jochens, Ro-
bert Kellogg, Thomas McGovern, Ast-
rid E. J. Ogilvie, Ólafur Halldórsson,
Sverrir Jakobsson, Benjamin J. Vail,
Andrew Wawn, Kirsten Wolf og Þor-
steinn Vilhjálmsson. Viðfangsefni
greina þeirra eru fornleifar, veðurfars-
heimildir og ritheimildir um siglingar
norrænna manna, landafundi þeirra
og veru fyrir vestan haf, og hvernig
þessar heimildir hafa verið túlkaðar á
19. og 20. öld. Ritstjórar bókarinnar
er prófessor Andrew Wawn og Þórunn
Sigurðardóttir M.A. og rita þau inn-
gang að greinunum.
Háskólaútgáfan annast dreifingu.
Skerpla ehf. sá um umbrot og hann-
aði kápu. Bókin er 238 bls., prentuð í
Gutenberg ehf. Verð: 3.800 kr.
Fræðirit
Þumalína
Pósthússtræti/Skólavörðustíg
Allt fyrir mömmu og litla krílið
Póstsendum – sími 551 2136
alltaf á föstudögum