Morgunblaðið - 14.03.2002, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 14.03.2002, Blaðsíða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 29 Húð þín á skilið betri heim Origins kynnir A Perfect World Húðvernd með hvítu tei Ef heimurinn væri eins og við helst vildum, myndi húðin ekki eldast hrað- ar en við sjálf. En nú hefur Origins fundið lykilinn að lengri æskudögum húðarinnar, ljósa teið, sem er leyndar- mál þessa betri heims, Silver Tip White Tea. Það rekur skaðvaldana á brott löngu áður en þeir geta beitt vopnum sínum. Húðin getur einbeitt sér að heilsuræktinni. Mýktin kemur undir eins. Sjáanleg merki öldrunar hverfa eins og dögg fyrir sólu. Húðin hefur fundið sitt Shangri-La. Origins ráðgjafar verða í Hagkaupi Smáralind, fimmtu- dag, föstudag og laugardag 14.-16. febrúar og veita ráð- gjöf um húðhirðu. BBB, Bátar, beib og bíbar er yf- irskrift sýningar Daða Guðbjörnsson- ar í Fold. Titillinn gefur hvorki fyr- irheit um að á sýningunni séu átakamikil verk í samræðu við sam- tíma sinn né að um sé að ræða nær- göngul verk þar sem listamaðurinn glímir við sinn innri mann. Þvert á móti bendir BBB til þess að hér sé léttmeti á ferðinni. Það kemur líka á daginn þegar inn í sýningarsalinn er komið, Daði er ekki að reyna að vera djúpvitur né drama- tískur og verkin eru nákvæmlega það sem titillinn segir til um, þ.e. bátar, beib (kvenverur) og bíbar (fuglar), en að auki koma við sögu sjávardýr, segl, klassískar súlur og krúsídúllur, Kona í grænu landi eftir Daða Guðbjörnsson. Hefðbundið snið MYNDLIST Gallerí Fold Opið daglega frá kl. 10–18, laugardaga kl. 10–17 og sunnudaga kl. 14–17. Til 24. mars. MÁLVERK DAÐI GUÐBJÖRNSSON Þóroddur Bjarnason helsta einkennið í verkum Daða. Sjórinn er meginþema sýningar- innar sem hefur yfir sér bláleitan blæ. Verk nr. 18 er þar þó undanskilið, Kona í grænu landi, ein besta mynd sýningarinnar. Það sem mér þótti athyglivert á sýningunni var t.d. að í mynd nr. 1, Við öldunnar hljómfall, sýnist mér Daði mála ofan á skrautlegt sængur- ver, en verkið sýnir hval sitjandi á öldutoppi. Jafnframt voru raunsæis- lega máluð kvenmannsandlit mitt í mynsturlandslaginu nýtt stílbrigði miðað við það sem ég þekki til fyrri verka Daða en andlitið kemur end- urtekið fyrir í sömu mannverunni í nokkrum myndum. Þeirra best er Ský, og bendi ég fólki á að gefa því gaum hvernig listamaðurinn leysir undirskriftina inni í miðri mynd. Hér er sem sagt allt með nokkuð hefðbundnu sniði hvað yfirbragð verk- anna varðar en Daða hefur oft verið meira niðri fyrir en á þessari sýningu. Approaches to Vínland er hið fjórða í flokki rita Stofnunar Sigurðar Nor- dals. Bókin er á ensku og hefur að geyma geyma sautján greinar sem eru afrakstur af alþjóðlegri ráð- stefnu í Norræna húsinu dagana 9. til 11. ágúst 1999. Fjallaði ráð- stefnan um heim- ildir fyrir landa- fundum og landnámi norrænna manna við Norð- ur-Atlantshaf á miðöldum. Fræðimennirnir, sem eiga greinar í bókinni, eru frá Bandaríkjunum, Bret- landi, Danmörku, Írlandi og Kanada, auk Íslands. Þeir eru: Bo Almquist, Jette Arneborg, Árni Björnsson, Birg- itta Wallace Ferguson, Guðmundur Ólafsson, Helgi Þorláksson, Inga Dóra Björnsdóttir, Jenny Jochens, Ro- bert Kellogg, Thomas McGovern, Ast- rid E. J. Ogilvie, Ólafur Halldórsson, Sverrir Jakobsson, Benjamin J. Vail, Andrew Wawn, Kirsten Wolf og Þor- steinn Vilhjálmsson. Viðfangsefni greina þeirra eru fornleifar, veðurfars- heimildir og ritheimildir um siglingar norrænna manna, landafundi þeirra og veru fyrir vestan haf, og hvernig þessar heimildir hafa verið túlkaðar á 19. og 20. öld. Ritstjórar bókarinnar er prófessor Andrew Wawn og Þórunn Sigurðardóttir M.A. og rita þau inn- gang að greinunum. Háskólaútgáfan annast dreifingu. Skerpla ehf. sá um umbrot og hann- aði kápu. Bókin er 238 bls., prentuð í Gutenberg ehf. Verð: 3.800 kr. Fræðirit Þumalína Pósthússtræti/Skólavörðustíg Allt fyrir mömmu og litla krílið Póstsendum – sími 551 2136 alltaf á föstudögum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.