Morgunblaðið - 14.03.2002, Síða 40

Morgunblaðið - 14.03.2002, Síða 40
UMRÆÐAN 40 FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ BÆNDUR þeir sem hafa áhuga á kynbótum íslensku kýrinnar með NRF-kyninu norska hafa stofnað Naut- griparæktarfélag Ís- lands til að geta hafið eigið kynbótastarf. Nota á sæði úr gripum sem koma til með að vaxa upp af fósturvís- um á einangrunarstöð, svo kýr með mun betri nyt verði komnar í þeirra fjós eftir tvö til þrjú ár. Sótt var um leyfi til innflutnings fósturvísa í lok nóvem- ber sl. en landbúnaðar- ráðuneytið hefur enn ekki sagt til um hvenær tekin verður afstaða til þeirrar umsóknar. Fram hefur þó komið nýverið að umsókn félagsins hafi verið send til umsagnar hjá fjöl- mörgum opinberum stofnunum og ráðum og þessum umsagnaraðilum hafi ekki verið sett nein tímamörk. Þetta þýðir væntanlega að Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, telur sig hafa nokkuð frjálsar hend- ur með að þæfa málið þar til það dettur upp fyrir af sjálfu sér. Á með- an getur hann haldið áfram að svara fyrirspurnum fréttamanna og ann- arra með samhengislausum yfirlýs- ingum sem stangast á líkt og lamb- hrútar í kró. Umræða um íslensk landbúnaðarmál hefur því miður ein- kennst af fádæma þjóðrembu und- anfarið, og marklausu orðagjálfri um íslenskar afurðir, allar götur síðan þessi ágæti framsóknarþing- maður tók við embætti landbúnaðarráðherra. Menn geta spurt sig þeirrar spurningar, hvort hér hafi haft sín áhrif meint aðild ráð- herrans að sunnlensku þjóðernissamtökunum, „Norrænt mannkyn“, sem hann þó sór fyrir, aðspurður af fjölmiðl- um á sínum tíma. Vís- indaleg rök mæla eng- an veginn gegn því að íslenskar mjólkurkýr verði kynbættar með afurðameira kyni, þótt þar hafi vissulega verið reynt að slá ryki í augu almennings. Hér hlýtur annað að koma til, og hafa tilfinningaleg rök enda verið fyrirferðarmest í allri umræðu um íslensku kúna. Íslenskar kýr eru þannig sagðar vera af „afburða“ kyni, miðað við er- lend kyn, „blíðar bæði og greindar“, ef marka má áróður talsmanna þess drjúga meirihluta kúabænda sem hafnaði 15 ára tilraunaferli um inn- flutning norskra fósturvísa til kyn- bóta á íslenskum mjólkurkúm, sem kosið var um í kosningum Lands- samtaka kúabænda í nóvember sl. Einhvers staðar hafði það þó komið fram í umræðunni, að íslenska kýrin væri upphaflega talin koma frá Nor- egi, og að norski NRF-kúastofninn, sem til hefur staðið að fósturvísar yrðu fluttir úr hingað til lands, væri blanda af gömlum kynjum þar í landi. Að meginuppistöðu væri þar þó um skoskar Ayrshire-kýr að ræða sem kenndar væru við sam- nefnt hérað í Skotlandi, sem að sögn þeirra sem gerst þekkja var þekkt- asta mjólkurkúakyn í Evrópu norð- anverðri fyrir eins og einni öld. Það skyldi þó ekki vera að fylg- ismenn samtakanna „Norrænt mannkyn“ og aðrir hreintrúarmenn í kynþáttamálum hafi skyndilega áttað sig á hversu vitavonlaus hann er, málstaður þeirra sem aðhyllst hafa hreinræktun Íslendinga, eink- um eftir að fjölmenningarlegt yfir- bragð hefur náð að festa rætur í ís- lensku samfélagi. Þeir sem aðhyllast slíkar skoðanir eiga líka við ramman reip að draga, þar sem eru eigendur og forstjórar fyrirtækja, sem á hinn bóginn hafa áttað sig á að innflutn- ingur fólks á fæti sé eina leiðin til að sporna gegn viðvarandi skorti á mannafla í láglaunastörfum hérlend- is. En það er önnur saga og miður fögur. Burtséð frá þessu hefur held- ur aldrei verið um að ræða hreinan kynstofn á Íslandi. Þegar á land- námsöld var orðið til hér á landi fjöl- menningarlegt samfélag fólks af ólíkum uppruna, þannig að allt tal um einsleitan uppruna Íslendinga er blekking ein. Hvað gera menn þegar málstaður þeirra virðist glataður? Oftar en ekki freista menn þess að grípa síð- asta hálmstráið, sem í tilviki land- búnaðarráðherra og hans nóta virð- ist vera þjóðsagan um Búkollu. Íslenska kýrin hefur verið lýst heil- ög og nú skal enginn fá að spilla þeim góða stofni. Auðvelt er að spila á sömu ungmennafélagsnótur og áð- ur dilluðu mönnum sem aðhyllast „Norrænt mannkyn“. Nú skal ís- lensku kúnni einfaldlega sunginn dýrðaróðurinn í stað mannfólksins. Að auki virðist víða grunnt á van- metakennd eða úlfúð jafnvel í garð Norðmanna, sem hefur gert þeim búkollum auðveldara fyrir en ella að efna til samblásturs gegn norskum kúm. Á þessari stundu er því ekki að vita hvernig málinu lyktar og er illt til þess að vita að athafnamönnum í röðum bænda sem hafa að markmiði að auka hagkvæmni og bæta rekstur búa sinna skuli vera settur stóllinn fyrir dyrnar af misvitrum stjórn- völdum. Heilagar kýr Rúnar Ármann Arthúrsson Kúakyn Íslenska kýrin hefur verið lýst heilög, segir Rúnar Ármann Arthúrsson, og nú skal enginn fá að spilla þeim góða stofni. Höfundur er blaðamaður. HARALDUR Jo- hannessen ritaði at- hyglisverða Viðhorfs- grein í Morgunblaðið hinn 22. febrúar sl. Þar setti hann spurn- ingarmerki við auglýs- ingaherferð ríkisins um aukna þátttöku kvenna í stjórnmálum, fullyrti að konur væru niðurlægðar með þessari herferð og undraðist þögn þeirra yfir lítilsvirðingunni. Ég er ein af þeim fjöl- mörgu konum sem býð mig fram í væntanleg- um sveitarstjórna- kosningum og vil gjarnan svara Haraldi. Rýr hlutur kvenna Í skýrslu forseta Alþingis um endurskoðun á kjördæmaskipan 1998 eru nefnd nokkur grundvall- aratriði aukinnar þátttöku kvenna í stjórnmálum: Menning og félagsleg staða kvenna, hugmyndafræði stjórnmálasamtaka, hvort raun- verulegur vilji sé til að auka hlut kvenna, fyrirkomulag kosninga o.fl. Í kjölfar skýrslunnar var sett á laggirnar þverpólitísk nefnd um aukinn hlut kvenna í stjórnmálum og það er hún sem stendur að tíma- bundnu átaki í þessum efnum og þar með auglýsingaherferðinni. Full þörf var á þessu átaki, þar sem hlutur kvenna í sveitarstjórn- um og á Alþingi var ákaflega rýr. Hlutur kvenna í sveitarstjórnum nú er aðeins 28% og árið 1998 var hann aðeins 22% í opinberum nefndum og ráðum. Markmið að- gerðanna var m.a. að hlutur kvenna yrði 30% í nefndum á vegum rík- isins. Hér er átt við heildarþátttöku í nefndum á vegum hvers ráðuneyt- is en ekki miðað við 30% í hverri nefnd, sem út af fyrir sig er at- hyglivert. Hið svokallaða ,,glerþak“ sem oft er talað um í pólitík er gjarnan miðað við 30% hlut kvenna. Svar við kalli tímans Þessa dagana eru niðurstöður prófkjöra og uppstillinganefnda óð- um að birtast og við fyrstu sýn virðist hlutur kvenna vera nokkuð góður. Konur skipa yfirleitt 2.–3. sæti á listum sjálfstæðisfólks. Hveragerði sker sig að vísu úr með konur í bæði 1. og 2. sæti og Ak- ureyri sker sig einnig úr því hér var sú leið valin af Sjálfstæðis- flokknum að stilla upp svokölluðum fléttulista. Það þýðir að listann skipa 11 konur og 11 karlar – og fullkomið kynjajafnvægi ríkir í sætaskipan hans. Þessi listi markar að mínu mati tímamót í sögu Sjálf- stæðisflokksins og þótt víðar væri leitað á vettvangi íslenskra stjórn- mála. En það skal tekið fram að sjálfstæðisfólk á Akureyri raðaði ekki svona á listann sinn vegna áð- urnefndra auglýsinga; listinn er einfaldlega svar við kalli tímans. Jafnari hlutur kynjanna Í fyrrnefndri Viðhorfsgrein Har- aldar segir m.a.: „Ef auglýsingar ráðherraskipaðrar nefndar um aukinn hlut kvenna í stjórnmálum verða til þess að fjölga konum í kjörnum embættum verða þær um leið til að fækka körlum.“ Og þá spyr ég: Er eitthvað að því? Við konur höfum verið færri hingað til í þessum embættum. Er það ekki einmitt kjarni málsins að fá til starfa manneskjur, konur jafnt sem karla, sem taka fullt tillit til beggja kynja? Viljum við ekki að reynsla og þekking kvenna nýtist í póli- tísku starfi til góðs fyrir okkur öll? Haraldur telur að með þessum auglýsingum sé ríkið að vinna sér- staklega gegn körlum og gera á hlut þeirra. Ég tel svo alls ekki vera, það er einungis verið að reyna að jafna hlut kynjanna. Markmiðið var meira segja ekki sett hærra en 30%, sem þýðir þá að karlar hafa 70% á sínum snærum. Er verið að gera sérstaklega á hlut þeirra með því? Haraldur nefnir einnig að með baráttu af þessu tagi sé verið að gera lítið úr þeim konum sem hugsan- lega komist áfram á eigin verðleikum en ekki vegna kynferðis, eins og hann orðar það. Þetta tel ég vera dæmigerða lítilsvirð- ingu í garð kvenna því konur gefa einfaldlega ekki kost á sér í harða baráttu stjórnmálanna ef þær efast um eigin verðleika – þær eru ekki að gefa kost á sér ein- göngu vegna kynferðis. Réttlátara samfélag Haraldur nefnir einnig þriðju ástæðuna fyrir því að óeðlilegt sé að hið opinbera ýti með auglýsinga- herferð undir fjölgun kvenna í kjörnum embættum. Hún er sú að með því eru kjörnir fulltrúar að nota fjármuni almennings í því skyni að hlutast til um hverjir nái kosningu sem kjörnir fulltrúar. En takmarkið hjá stjórnmálamönnum af báðum kynjum getur ekki ein- ungis verið það að ná völdum. Að- almarkmiðið hlýtur að vera að skapa réttlátara samfélag. Mark- mið allrar kvennabaráttu hlýtur að vera aukið frelsi kvenna til að hafa áhrif á það samfélag sem við lifum í. Hlutverk stjórnmálamanna, af hvoru kyninu sem þeir eru, hlýtur að felast í því að vera fulltrúar íbú- anna í landinu; fulltrúar sem end- urspegla áherslur og sjónarmið samfélagsins alls. Því verður að gera áherslum kvenna jafn hátt undir höfði og áherslum karla; gera „mjúku“ og „hörðu“ málin jafngild, því að á endanum snúast þau um það sama – að byggja upp mann- eskjulegt samfélag. Fyrrnefndar auglýsingar miðast fyrst og fremst að því að vekja fólk til umhugsunar um hverja það vill velja til forystu og hvort að fólk telji vænlegra til árangurs að bæði kynin vinni saman að stjórnun sveitarfélagsins eður ei. Auglýsing- arnar miðast ekki að því að létta okkur konunum lífið eða auðvelda okkur baráttuna. Ólíkt höfumst við að… Til gamans vil ég að lokum nefna tvö fræg dæmi sem sýna málið í hnotskurn. Eitt besta dæmið um áhrifaríka „jákvæða mismunun“ var önnur ríkisstjórn Gro Harlem Brundtland. Sú stjórn var mynduð eftir kosningarnar í Noregi árið 1986 og reglunni um kynjakvóta beitt. Af 18 ráðherrum ríkisstjórn- arinnar voru 8 konur eða 44%. Ann- að dæmi, í þveröfuga átt, var fyrsta ríkisstjórn Margaret Thatchers eftir að Íhaldsflokkurinn í Bret- landi sigraði í kosningunum 1979. Frú Thatcher varð þá forsætisráð- herra í stjórn þar sem hún var eina konan en karlarnir 22 talsins! Svar við kalli tímans Sigrún Björk Jakobsdóttir Jafnrétti Auglýsingarnar, segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, miðast fyrst og fremst að því að vekja fólk til umhugsunar. Höfundur er hótelrekstrarfræðingur og skipar 4. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins til bæjarstjórn- arkosninganna á Akureyri. SAMKEPPNI í fjarskiptum hófst fyrir tæpum fjórum árum með stofnun Tals hf. Landssíma Íslands hf., og þó einkum stjórn- endum hans, hefur reynst erfitt að fóta sig í breyttu rekstrar- umhverfi. Mér þykir hins vegar margt benda til breyttrar af- stöðu samgönguráð- herra, þess aðila sem fer með hlutabréf rík- isins. Tal hf. hefur allt- af lagt áherslu á, eins og ráðherrann gerir nú, að hlutabréf Landssíma Íslands hf. væru best varðveitt hjá fjármálaráðherra en ekki hjá fagráðherra fjarskipta. Samgönguráðherra á að vera fag- ráðherra allra fyrirtækja í fjar- skiptarekstri en ekki ráðherra Landssíma Íslands hf. Þetta hefur mörgum ekki verið ljóst. Jafnlítið hefur farið fyrir áherslu á meg- inmarkmið núgildandi laga um fjar- skipti frá 28. desember 1999, en þar segir: „Markmið laganna er að tryggja hagkvæm og örugg fjar- skipti hér á landi og efla samkeppni á fjarskiptamarkaði.“ Það er því sjálfsagt að leysa samgönguráð- herra undan þeirri kvöð að fara með æðsta vald og eignarhlut rík- isins í Landssíma Íslands hf., þar til hluturinn verður seldur. Tal hefur ávallt verið fylgjandi sölu Landssíma Íslands hf. og að ríkið dragi sig þannig úr samkeppnisrekstri. Nauðsynlegt er að Landssími Íslands hf. eignist erlenda teng- ingu með eignaraðild erlends símafyrirtæk- is. Ég þekki af feng- inni reynslu við að stýra Tali hf. í tæp fjögur ár að slík er- lend samvinna er mjög mikilvæg. Þaðan kem- ur fagleg þekking, þjónustuframboð, al- þjóðleg bankahugsun og reynsla. Hugsan- lega hefur reynsluleysi og skortur á arðsemiskröfu einmitt háð stjórnendum Landssíma Ís- lands hf., m.t.t. fjárfestinga þeirra í öðrum fyrirtækjum að undanförnu. Það er rétt sem komið hefur fram hjá samgönguráðherra að þau fyrirtæki sem fengið hafa rekstr- arleyfi, til samkeppnisrekstrar á fjarskiptamarkaði, hafa gengið út frá því sem vísu að Landssími Ís- lands hf. verði seldur og geti ekki haldið áfram starfsemi í skjóli rík- isins til lengri tíma. Það er einnig ljóst að fjárfestar vilja sjá þess merki að Landssíma Íslands hf. takist að sýna viðunandi arðsemi í samkeppnisumhverfi, með um 60– 65% markaðshlutdeild, en þurfi ekki að treysta á markaðshlutdeild um og yfir 90% eins og nú er á flestum rekstrarsviðum þess. Unnið verði faglega Samgönguráðherra segir, milli þess að hann mærir hið sterka fyr- irtæki Landssíma Íslands hf., sem hefur yfirburðastöðu á fjarskipta- markaði, að „styrkja þurfi Lands- símann“. Ég segi: Það er sam- keppnin sem styrkir Landssímann og ekkert annað. Samkeppnisaðilar Landssíma Íslands hf. gera líka kröfu um að arðsemissjónarmið gildi á markaðnum en ekki sértæk- ar aðgerðir stjórnmálamanna, án langtímamarkmiða. Markaðsráð- andi aðili á síðan að vera undir eft- irliti Póst- og fjarskiptastofnunar og Samkeppnisstofnunar og sam- keppnisaðilar Landssíma Íslands hf. treysta betur einkaaðilum til að fara með hlut í slíku fyrirtæki en ríkinu. Það er ekki auðvelt verk sem bíð- ur nýrrar stjórnar Landssíma Ís- lands hf. Verk hennar verða metin af því hve vel henni tekst að vinna faglega að málum Landssíma Ís- lands hf. í samkeppnisrekstri og brjótast frá afskiptum ríkisins. Ef það tekst þá verða þáttaskil. Þáttaskil í samkeppni? Þórólfur Árnason Fjarskipti Það er samkeppnin sem styrkir Landssímann, segir Þórólfur Árnason, og ekkert annað. Höfundur er forstjóri Tals hf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.