Morgunblaðið - 14.03.2002, Page 43
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 43
Aðalfundur SÍF hf. verður haldinn föstudaginn
22. mars 2002, í Súlnasal Hótel Sögu og hefst
fundurinn kl. 14.00.
Á dagskrá fundarins verða:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykktum félagsins, gr. 4.03.
2. Tillaga um breytingu á 2. gr. samþykkta félagsins, um heimild
til handa stjórnar að skrá hlutafé félagsins í erlendri mynt (evrum).
3. Tillaga um heimild til kaupa á eigin bréfum skv. 55. grein
hlutafélagalaga.
4. Önnur mál.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundinum, skulu
vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir
aðalfundinn.
Dagskrá aðalfundarins, ársreikningur félagsins og endanlegar
tillögur munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til
sýnis sjö dögum fyrir aðalfundinn.
Fundargögn og atkvæðaseðlar verða afhentir á skrifstofu félagsins
að Fornubúðum 5, Hafnarfirði, fimmtudaginn 21. mars og fyrir
hádegi fundardag.
Um kvöldið verður haldið aðalfundarhóf fyrir hluthafa, gesti þeirra,
framleiðendur og starfsmenn SÍF hf. á Hótel Sögu og hefst hófið
kl. 20.00. Húsið verður opnað kl. 19.30. Miðar á hófið verða seldir á
Hótel Sögu í tengslum við aðalfund.
Hafnarfjörður, 28. febrúar 2002
Stjórn SÍF hf.
SÍF HF.
AÐALFUNDUR
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
IY
D
D
A
•
N
M
0
5
6
4
9
/s
ia
.is
debenhams
S M Á R A L I N D
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
1
71
36
03
/2
00
2
hunang...
*Á meðan birgðir endast.
Nú þarft þú ekki lengur að liggja á sólarströnd til þess að húðin fái fallegan og hraustlegan
lit. Með því að bera á þig HONEY GLOW SELF TANNING öðlast húðin einstaklega
jafnan og fallegan hunangsgullin lit sem endist.
Sérfræðingur Kanebo kynnir þessa nýjung ásamt fleiri spennandi nýjungum í Debenhams
fimmtudag, föstudag og laugardag.
Spennandi kynningartilboð í Debenhams hjá Kanebo.
ÉG sé í Morgun-
blaðinu hinn 21. febr-
úar að nýkjörinn for-
maður Sambandsins
hefur undirritað sam-
starfssamning við
(Viðskipta) Sam-
vinnuháskólann á Bif-
röst, og er það gert í
tilefni af 100 ára af-
mæli Sambandsins
þann dag.
Mikil andstaða hef-
ur verið meðal eldri
nemenda út af nafn-
breytingu skólans
sem gerð var án
nokkurs samráðs við
gefendur skólans,
Samband ísl. samvinnufélaga, Ol-
íufélagið h.f. og Samvinnutrygg-
ingar g.t.
Á aðalfundi Sambandsins sem
haldinn var á Sauðaárkróki sl. vor
var samþykkt eftirfarandi tillaga
um þetta mál með öllum greiddum
atkvæðum:
„Fundurinn krefst þess að fallið
verði frá tillögu um breytingu á
nafni Samvinnuháskólans og felur
formanni stjórnar Sambandsins að
vinna að framkvæmd þess. Fund-
urinn telur að ranglega hafi verið
staðið að tillögu um nafnbreyt-
inguna þar sem ekki hefur verið
leitað álits gefenda, sem hlýtur að
vera eðlilegt við þessar aðstæður.
Fundurinn hafnar þeim rök-
semdum sem forsvarsmenn skól-
ans settu fram í tillögu sinni um
nafnbreytinguna. Alla tíð hefur
verið mikil aðsókn að skólanum og
hann notið virðingar sem góð
menntastofnun. Nem-
endur Samvinnuskól-
ans og síðar Sam-
vinnuháskólans hafa
ætíð verið eftirsóttir
til vinnu og getið skól-
anum góðan orðstír.
Nafnbreyting af
þessu tagi, þar sem
gerð er tilraun til að
fela söguna og afneita
uppruna sínum, verð-
ur aldrei til góðs. Orð-
spor skólans á Bifröst
er orðspor Samvinnu-
skólans og síðar Sam-
vinnuháskólans og
þess starfs sem þar
hefur verið unnið frá
upphafi.“
Eins og fram kemur í þessari
samþykkt aðalfundar Sambandsins
er hún mjög afdráttarlaus og mót-
mælir einnig þeirri skoðun rektors
að hið 80 ára gamla nafn skólans
hafi verið farið að „hefta hann á
vissan hátt því fólk tengdi það við
ákveðna stefnu“.
Því miður virðist það vera skoð-
un margra og þar á meðal sumra
skoðanabræðra Heimdallarstráka,
samanber Kastljósþátt í sjónvarp-
inu á afmælisdaginn, að þegar
rætt er um samvinnu sé verið að
tala um kaupfélög, Sambandið eða
Framsóknarflokkinn en ekki um
samvinnu á víðari grundvelli. En
samvinna á að baki sér miklu víð-
tækari hugsun. Án samvinnu innan
fjölskyldu og þjóðlífs á mörgum
sviðum væri lífið harla lítils virði.
Það væri mjög ánægjulegt ef
samvinna og samstarf tækist á
milli Sambandsins og Samvinnu-
skólans eins og verið hefur frá
upphafi skólans en slík samvinna
verður að eiga sér stað með fullri
virðingu fyrir starfi og gildum
skólans gegnum tíðina, þar á með-
al nafni hans. Gamlir nemendur
skólans gætu þá heimsótt skólann
sinn á ýmsum tímamótum í starfi
hans, en þyrftu ekki að aka
framhjá.
Af fréttum Morgunblaðsins að
ráða verður málið tekið fyrir á að-
alfundi Sambandsins í vor og reyn-
ir þá á hvort samvinna tekst á
grundvelli gagnkvæmrar virðingar
og sú undirskrift að samstarfs-
samningi er undirrituð var á 100
ára afmæli Sambandsins verður
einhvers virði.
Umboðslaus undir-
ritun á Bifröst
Gunnar
Sveinsson
Samvinna
Án samvinnu innan fjöl-
skyldu og þjóðlífs á
mörgum sviðum, segir
Gunnar Sveinsson, væri
lífið harla lítils virði.
Höfundur er fyrrverandi kaup-
félagsstjóri í Keflavík.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111