Morgunblaðið - 14.03.2002, Side 50

Morgunblaðið - 14.03.2002, Side 50
MINNINGAR 50 FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Bríet Theódórs-dóttir var fædd í Ólafsfirði 21. ágúst 1927. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 22. febr- úar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Friðgerður Guð- mundsdóttir frá Dvergasteini í Álfta- firði við Ísafjarðar- djúp og Theódór Jónsson, skipstjóri frá Ingvörum í Svarf- aðardal. Bróðir Bríetar er Barði, kvæntur Elínu Gissurardóttur. Hinn 30. apríl 1949 giftist Bríet eftirlifandi eiginmanni sínum, Þorsteini Jóakimssyni, bifreiða- stjóra frá Hnífsdal. Börn þeirra eru: 1) Sigurbjörg, gift Páli Krist- mundssyni, þau eiga 4 börn og 5 barnabörn. 2) Rósa, gift Árna Að- albjarnarsyni, þau eiga 2 börn. 3) Gunn- ar Theódór, kona hans er Elín Huld Halldórsdóttir, þau eiga 3 börn og 4) Friðgerður, gift Hjálmari S. Björns- syni, þau eiga 2 börn. Foreldrar Bríetar fluttu til Ísafjarðar 1943. Að lokinni skólagöngu starfaði Bríet hjá Landsíma- num, síðan hjá Út- vegsbanka Íslands og loks hjá Pósti og síma til ársins 1996. Árið 2000 fluttu Bríet og Þorsteinn að Dalbraut 20 í Reykjavík. Kveðjuathöfn um Bríeti var í Fossvogskapellu 26. febrúar og fórútför hennar fram frá Ísafjarð- arkirkju 1. mars. Kveðja frá vinnufélögum hjá Pósti og síma á Ísafirði Húsið Aðalstræti 18 á Ísafirði, í daglegu tali einfaldlega kallað Póst- húsið eða jafnvel Símstöðin, býr yfir mikilli sögu. Þar var upphaflega einhver glæsilegasta verzlun lands- ins, Ásgeirsverzlun, um tíma var þar bókasafn bæjarins og til margra áratuga aðsetur Pósts og síma og jafnframt heimili stöðvarstjóra og fleiri starfsmanna tengdum starf- semi hússins. Það var einmitt í þessu sögu- fræga húsi, sem leiðir okkar Bríetar Theodórsdóttur lágu fyrst saman. Bríet hóf kornung störf við Lands- símann á Ólafsfirði, en flutti síðan ásamt foreldrum sínum og bróður til Ísafjarðar og byrjaði þá að vinna hjá Landssímanum á Ísafirði. Hér kynntist hún manninum sínum, Þor- steini Jóakimssyni og eignuðust þau fjögur börn. Helgaði hún sig þá um hríð heimilis- og uppeldisstörfum, en kom aftur til starfa hjá Lands- símanum, þar sem hún síðan vann lengst af starfsævinnar. Og það var eftir að hún kom aftur til starfa sem við kynntumst. Póstur og sími var þá stór vinnustaður með margt starfsfólk í mörgum deildum. Við unnum við talsímaafgreiðslu, sem skiptist í afgreiðslu á bæjarsíma- num sem þá var handvirk og af- greiðslu á langlínunum. Þarna var mikið líf og fjör, alltaf mikið að gera og álagið oft ótrúlega mikið. Bríet var frábær félagi, kappsöm og vandvirk í starfi, það var stutt í hláturinn og glettnina og þrátt fyrir annríkið á vinnustaðnum var oft slegið á létta strengi og mikið hleg- ið. Á þessum tíma voru börnin hennar Bríetar eitt af öðru að flytj- ast að heiman og stofna eigin heim- ili og svo komu barnabörnin þeirra Steina eitt af öðru. Við, þessar yngri, tókum þátt í gleði hennar yfir barnabörnunum og var jafnvel ekki laust við að okkur þætti við eiga svolítið í þeim líka! Við nutum góðs af þegar hún var að prjóna á þau, fengum hjá henni uppskriftir og góð ráð. Skiptzt var á kökuuppskriftum eins og gengur á vinnustöðum og sennilega er „Skúffukaka Bríetar“ sú kakan sem trónað hefur efst á vinsældalistanum í fjölskyldu þeirr- ar sem þetta skrifar í mörg, mörg ár. Eftir því sem tækninni fleygði fram á fjarskiptasviðinu urðu breyt- ingar óhjákvæmilegar á vinnustaðn- um okkar. Bæjarsíminn lagðist af er síminn varð sjálfvirkur og fækkaði þá mjög í hópi símastúlkna. Síðustu ár starfsævinnar vann Bríet á skrif- stofu Pósts og síma. Alltaf hélzt hið góða samband okkar af gamla vinnustaðnum þótt við störfuðum hvert á sínu sviði hin síðari ár. Vegna veikinda Bríetar fluttu þau Steini suður fyrir nokkrum árum en vörðu sumrinu hér fyrir vestan, þar sem þau áttu sína sumarparadís, Dalakofann á Dagverðardal. Alltaf kom Bríet til okkar í heimsókn í vesturferðunum, breytti það engu að við sem enn störfum hjá Síman- um værum nú fluttar á annan stað og að hún þyrfti meira að segja að hafa töluvert fyrir því að finna okk- ur þar eða í Sindragötunni, sem mikið var grínast með. Síðast kom hún til okkar í ágúst síðastliðinn og komum við þá saman fleiri úr gamla hópnum og áttum saman skemmti- lega kvöldstund og bundumst fast- mælum um að endurtaka þegar þau Steini kæmu vestur nú í vor. Það verður nú með öðrum hætti, Bríet hefur verið kölluð á brott. Eftir lifir minningin um góða konu, frábæran vinnufélaga og vin, sem við minnumst með virðingu og þökk. Þorsteini manni hennar biðj- um við styrks og vottum honum, börnunum þeirra og ástvinum öllum einlæga samúð. Guð blessi minn- ingu Bríetar Theodórsdóttur. Auður H. Hagalín. BRÍET THEÓDÓRSDÓTTIR Gömul velgerðar- kona Þjóðminjasafns- ins, Elín Kristjáns- dóttir fyrrum húsfreyja í Hvítár- holti í Hrunamannahreppi, var jarðsungin frá Skálholtskirkju laugardaginn 16. febrúar og jarð- sett í Haukadal, þar sem hún var fædd. Svo tókst til, að ég gat ekki fylgt henni, því að góðar minn- ingar á ég frá Hvítárholti og margt gott heimili hennar þar upp að inna, frá því ég dvaldist þar sumurin 1962–1967. Ég hefi áður skýrt frá, hvernig það bar til að þar heima við bæinn fundust merkilegar fornbæjarrúst- ir, sem enginn hafið þekkt til og rannsakaðar voru þessi árin. Það ELÍN KRISTJÁNSDÓTTIR ✝ Elín Kristjáns-dóttir fæddist í Haukadal í Biskups- tungum 7. septem- ber 1917. Hún lést á Sjúkrahúsi Suður- lands 2. febrúar síð- astliðinn og fór úför hennar fram frá Skálholtskirkju 16. febrúar. var ekki sízt að þakka þeim góða skilningi og fyrirgreiðslu fólksins þar í Hvítárholti, að tókst að rannsaka þær svo vel sem kost- ur var. Mér er minnist- stætt þegar við fórum þangað austur þrír saman, Kristján Eld- járn, Gísli Gestsson og ég og lögðum á ráð um rannsókn, að rætt var um, hvort hægt væri að leggja á heim- ilið í Hvítárholti, sem var fjölmennt fyrir og mörg börn ung, að taka við aukamönnum í fæði. Þá sagði Gísli, sem þekkti vel til þar í sveitum austur, að þeim yrði varla skotaskuld úr því Fells- systrum, að bæta við svo sem ein- um eða tveimur mönnum í heimili. Enda reyndist svo. Þarna áttum við, starfsmenn Þjóðminjasafnsins og aðrir, sem fengnir voru um stundarsakir til starfa, hið bezta atlæti, og varð ekki á betra kosið. Vel og rausnarlega var gert við okkur í mat og hvergi til sparað að okkur mætti líða sem bezt. Þarna var menningarheimili, en þó var auðvitað búskapurinn það sem allt valt á. Húsbóndinn, Sig- urður Sigurmundsson, var fræða- hugsuður, sem stundum hvarflaði huganum í annan heim fjarri sviði búskaparins, en var þó hinn trausti bústólpi. Hann unni bók- menntum og skáldskap, og þangað fór hugur hans löngum, til sagna Jóns Trausta og Njálu og annarra góðra bókmennta, eða fjarlægra tungumála. Þetta var hugðarefni hans í tómstundum. – Elín sinnti og stýrði heim- ilisverkum af miklum dugnaði, en hennar yndi var hestarnir, og einskis naut hún betur en að fara á hestbak þegar næði gafst til frá daglegum störfum. Henni var reið- mennska í blóð borin, eins og fleir- um þar á heimili, og virtist hesta- mennska meira fylgja kvenleggnum. Mikið var talað um hesta og mikla ánægju hafði Elín af heim- sóknum hestamanna. Þá víkkaði umræðusviðið. Oft var minnzt á gæðahryssuna Stjörnu, sem átti sér marga af- komendur þar á bæ. Elín sagði söguna af því þegar hún sá þessa ungu og fallegu hryssu og langaði mjög til að eignast hana, en efni voru ekki til þess. Tengdafaðir hennar, Sigur- mundur læknir, hafði veður af því og sagði þá, að það væri sárt ef mann langaði í hlut en gæti ekki látið eftir sér, að þurfa að sjá eftir honum. Hann keypti þá Stjörnu og gaf Elínu. – Þegar ég kom að Hvítárholti var Stjarna orðin göm- ul, enda kölluð „Gamla Stjarna“, og í það eina skipti, sem ég lét hafa mig í að fara á bak þar á bæ, setti Elín mig á Gömlu Stjörnu. Hún var slíkt þægðarhross, að henni var treystandi til að fara varlega með viðvaninginn. – Þessi síðdegisstund er ein þeirra, sem geymast í minni. Fróðlegt var einnig að ræða við Elínu um ýmis áhugamál og fyrri búskaparár þeirra í Hvítárholti. Það týnist nú flest, enda margar svipaðar frásagnir kunnar af fólki, sem vann hörðum höndum og komst frá fátækt til bjargálna. En þarna í Hvítárholti mótuðust að nokkru tilfinningar mínar fyrir því gamla þjóðlífi, sem nú er horfið. Allt er þetta nú breytt, hin hrað- fleyga ör tímans setur mark sitt þar sem annars staðar. Nú býr ekkert þessa fólks lengur í Hvít- árholti. En minningin frá sumr- unum þar eru ánægjusjóður, sem gott er að mega grípa til. Þór Magnússon. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.                                                                      !  "    "     #   $"       %! &   $  '   !           !    (#  )*  +, -! &  '   &, ./ 0 &,      "#   "   $    %  &  '     ( )   '     **  +          ,    ,       "  - "#   "  $   (&   0 (&  -&  (&        (&   %.   "  1 &,(&   "    2"(&  &  23   4  4.   + 4.      + 4 ! . /         )    !      )  ) #)      *      0 ' "    ) ,) 1 ,'  2  #   " ,'      ,'   5    -  !6 & , %!7    7       !5    1 %!5    &+ !    ,'  1!5    8&  "   &5!5   4  4  4. !            !      (9*)%): $#(1 +, -! 0   & -&/; 7& '  &,'    -     1  ),   3   0 ' "     4    5   *    '   4. & 4.  4  4. 4  4  4. ! 6       $# < (< + "& &,  = - 4 >%     4 7     -   ,  !  3    )       '  + )    '     )    &5 -  !

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.