Morgunblaðið - 14.03.2002, Page 52
MINNINGAR
52 FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Það var árið 1953
þegar ég í fyrsta sinn
hitti Stefán Júlíusson.
Hann var þá settur
skólastjóri við Barna-
skóla Hafnarfjarðar í
forföllum Guðjóns Guðjónssonar sem
var í orlofi að kynna sér rekstur og
fyrirkomulag fræðslumyndasafna er-
lendis. Ég hafði sótt um kennara-
stöðu í Hafnarfirði en ég hafði þá
kennt úti á landi í tvö ár. Ekki fékk
ég stöðuna en skömmu fyrir skóla-
byrjun losnaði önnur staða og ég
hafði álitið að mín fyrri umsókn gilti
áfram og fór til að forvitnast um mína
möguleika. En þegar ég kom til
Hafnarfjarðar þá var búið að ráð-
stafa stöðunni. Stefán bauð mér þá
hálft starf og aðstöðu í skólanum ef
ég vildi vera með kennslu 6 ára barna
á eigin vegum, tímakennslu eins og
það var þá kallað. Ég tók þessu
starfi.
Ég þekkti Stefán af afspurn eins
og flest ungmenni á Íslandi á þessum
tíma. Kárabækurnar urðu strax
mjög vinsælar og öll börn á landinu
kepptust um að ná í þær til lestrar.
Svo var það nú ekki verra að aðalper-
sónan skyldi vera nafni minn. Upp-
haf þessara bóka var það að Stefán,
sem var afar vinsæll kennari fór að
segja nemendum sínum söguna af
STEFÁN
JÚLÍUSSON
✝ Stefán Júlíussonfæddist í Þúfu-
koti í Kjós 25. sept-
ember 1915. Hann
lést á Sólvangi í
Hafnarfirði 20. febr-
úar síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Hafnarfjarðar-
kirkju 1. mars.
Kára og skapaði hana
jafnharðan. Þetta var
upphaf að merkum rit-
höfundarferli sem ég
þykist vita að aðrir sem
Stefáns minnast geri
góð skil. En ég ætla
fyrst og fremst minnast
Stefáns sem skóla-
manns og mikils vinar
um áratuga skeið.
Þegar ákveðið hafði
verið að ég færi að
kenna við barnaskól-
ann, sem nú er Lækja-
skóli þá þurfti að ganga
í það að útvega húsnæði
fyrir fjölskylduna. Það stóð ekki á
Stefáni og Birni Jóhannssyni sem þá
var yfirkennari við skólann að að-
stoða mig við þetta og áður en langt
leið voru þeir búnir að útvega mér
húsnæði hjá ágætu fólki, stofu og að-
gang að eldhúsi. Meiri kröfur gerði
ungt fólk sem var að byrja að búa
ekki í þá daga.
Ég var strax boðinn heim til Stef-
áns og Huldu enda hafði Björg Þórð-
ardóttir frá Svartárkoti tengdamóðir
Stefáns mikinn áhuga á að sjá þenn-
an þingeying sem nú væri að flytja í
Fjörðinn. Við hjónin urðum síðan
miklir heimagangar á heimili þeirra í
Brekkugötunni. Okkur er afar minni-
stætt fyrsta gamlaárskvöldið sem við
vorum ein fjarri fjölskyldum okkar
þegar þau Stefán og Hulda buðu okk-
ur til sín. Frá þessu tíma eða tæpa
hálfa öld hefur haldist góður vinskap-
ur og það var alltaf mikið tilhlakk að
fá um hver jól lítinn ritling sem Stef-
án sendi vinum sínum sem jóla-
kveðju. Þar var skrifað um ýmis efni
en þó mest minningar frá yngri árum
og stuttir ferðaþættir. Þetta er nú
dýrmæt eign. En það er skólastjórinn
Stefán sem ég á þó einna mest að
þakka. Ég hef unnið með fjölmörgum
skólamönnum þau 50 ár sem ég hef
verið við skólastarf riðinn en af engu
hef ég lært meira í skólastjórn en að
vera undir handarjaðri Stefáns. Hann
var einstaklega vökull í starfi sínu og
fylgdist gríðarlega vel með sínum
kennurum ekki síst þeim sem voru að
byrja í starfi. Hann hafði einstakt lag
á því að vera nærstaddur þegar eitt-
hvað bjátaði á. Með því móti var hann
að passa að byrjandinn missti ekki
sjálfstraustið þegar erfiðleikar steðj-
uðu að. Mér fannst þetta mjög eft-
irtektarvert og lærdómsríkt þessi
næmi skilningur hans á þörfum sam-
starfsmanna sinna. Ég hef hugsað um
það síðar hve oft hefur vantað slíkan
stuðning og eins hitt hve þetta er góð
aðferð við að kennarinn finni að hann
sé einn af heildinni og einhvern varði
um það hvernig honum gengur. Stef-
áni var líka mjög lagið að segja mönn-
um til við það sem betur mætti fara og
skerpa þær grundvallarreglur sem
allir yrðu að sameinast um að fylgja.
Stefán hafði þegar hér var komið sögu
aflað sér framhaldsmenntunar á sviði
skólamála og vel skein í gengum sú
sýn sem hann hafði um skólann og
hlutverk hans. Það var smitandi. Að
þessu leyti voru þeir svipaðir Stefán
og Jónas B. Jónsson fyrrv. fræðslu-
stjóri að vera alltaf feti framar í hugs-
unum sínum og gerðum en almennt
var. Þetta eru mínir mestu lærifeður í
skólamálum og mótuðu mjög mín við-
horf á þessu sviði.
En því miður þá naut ég ekki Stef-
áns sem skólastjóra nema eitt ár
vegna þess að af pólitískum ástæðum
fékk Stefán ekki starfið áfram þegar
Guðjón sagði því lausu og hvarf til
annarra starfa. Pólitíkin í Hafnarfirði
á þessum árum var mjög hörð og
kaldastríðið í hámarki. Stefán var
vinstri sinnaður alþýðuflokksmaður
en sjálfstæðismenn áttu mennta-
málaráðherrann og þeir kröfðust
þess að fá sinn flokksmann í þessa
stöðu. Það var afar sárt að sjá að jafn
frábærum manni sem naut mikillar
virðingar allra skólamanna skyldi
vera hafnað sem forystumanni síns
sveitarfélags í skólamálum. Sá sem
við tók var aðeins eitt ár við skólann
og Stefán var áfram yfirkennari eins
og hann hafði verið áður en hann
leysti Guðjón af. Þegar starfið var
svo auglýst aftur og Stefáni enn
hafnað þá hvarf hann á braut frá
Barnaskólanum og gerðist kennari
við Flensborgarskóla og síðar yfir-
kennari þar. En svona getur pólitísk
blinda á stundum orðið þess valdandi
að þjóðin fær ekki að njóta krafta
sinna bestu manna á réttum vett-
vangi.
En ég átti eftir að vinna lengur
með Stefáni því árið eftir flutti ég
mig yfir í Flensborg og vann þar með
honum í þrjú ár. Þar kenndi hann
mér góða lexíu. Flensborg var á
þessum árum gagnfræðaskóli. Ég
hafði ekki áður kennt á unglingastigi
og mér fannst viðbrigðin nokkur. Þó
Stefán væri fylginn sér sem stjórn-
andi og reglufastur þá var hann mjög
næmur og átti auðvelt með að setja
sig í spor unglinganna. Hann brýndi
það mjög fyrir okkur sem vorum að
hefja kennslu á unglingastigi hve
umbrotin væru oft mikil á gelgju-
skeiðinu og oft þyrfti maður að líta í
gegnum fingur sér varðandi ýmsar
uppákomur hjá unglingum vegna
þess breytingaskeiðs sem þeir væru
að ganga í gegnum.
Ég er forsjóninni þakklátur fyrir
að hafa fengið að starfa með jafn
hæfileikaríkum manni og Stefán var
og ekki síður fyrir að eignast hann og
fjölskyldu hans að vinum í næstum
hálfa öld.
Stefán ól næstum allan sinn aldur í
Hafnarfirði og hefur gefið byggð
sinni mikið. Hann ólst upp við kröpp
kjör en braust ungur til mennta á
krepputímum. Hann var lánsamur í
einkalífi sínu en þau hjón Stefán og
Hulda voru mjög samrýmd. Stefán
vann sínu sveitarfélagi vel og eins og
ritverk hans bera með sér þá þótti
honum vænt um Fjörðinn sinn enda
naut hann mikillar virðingar sem
borgari.
Við hjónin færum Huldu innilegar
samúðarkveðjur svo og Sigurði Birgi
syni þeirra og hans fjölskyldu.
Kári Arnórsson.
6
*
))
#(1
+ "
8
% '8 4 >I
7& ' &,'
<
0 '
4
1 )
5
<
9 "
-
"' ' -& % 0
# + ' ( $
'
' 5
'
4 4. 4 4 4 !
)(!(((
8+J &0
'' 8'>H
)&,0 -0
'
& ' $!(& 8
(& 8 &+"2"
(& 8 7%
$ 8!(& 8 3!%.
4 4. 4 4 4 !
,
' , 2
# /
#
/
'
'
<(
(%)
'" '&
" & -&KF
7& ' &,'!
$
,
-'
$
/ 4 7
-
1 )
(+
4& % , +
&+"
4 4. 4 4 4 !
/
)7
" 1 L 4 IM
&+ -0
?
?
0 '
>
'
<
)
"'
&" "
4 " !
@
,
2
#"2"
'
*)
)$#
#)
+ J>M4
0 &, !
A ' &
4. & 4. 4 4.
.''4. !
(#
,
/
' ,
2
#"2"
# '
/
!
' ' )
)<$#
#)
4 FI
-0!
$
,
-
9 )
,
9 ) )
' "2
N- A0 5 $
) $
N- 5 N-
N-
4 4 4 , 0!
. /
))#)#
)#)
'
9 "
-
A"
#
B% (&
3% . 0
% . 5 + &
4 4. 4 4 4. !
%())$#
G 0&
= - 4 K;
= -
%
>
7
'
*
74 !
%
%
4. %
' %
% %
%
5 ' %
%
1 0%
# + %
& 4. 4 4. 4 4 4. !