Morgunblaðið - 14.03.2002, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 14.03.2002, Qupperneq 54
FRÉTTIR 54 FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLENSKU keppendurnir á Reykjavíkurskákmótinu hafa staðið sig frábærlega á mótinu og sjötta umferðin var engin undantekning. Þeir Helgi Áss Grétarsson (2.520) og Hannes Hlífar Stefánsson (2.604) eru nú í efsta sæti á mótinu ásamt Jaan Ehlvest (2.589), en þeir eru allir með 5 vinninga af 6. Helgi Áss mætti hinum unga og efnilega Stefáni Kristjánssyni (2.389) og lauk skákinni með jafntefli. Hannes Hlífar sigraði hins vegar Braga Þorfinnsson (2.360) og Jaan Ehlvest sigraði Valeriy Neverov (2.578). Af öðrum úrslitum má nefna, að Arnar Gunnarsson (2.322) gerði jafntefli við þýska stórmeist- arann Eric Lobron (2.517). Þá unnu Helgi Ólafsson og Þröstur Þórhalls- son sínar skákir. Hins vegar tapaði Jón Viktor Gunnarsson nokkuð óvænt gegn Tómasi Björnssyni. Nú er þriðjungur mótsins eftir og það er margt spennandi fram- undan í síðustu umferðunum. Það er ekki óraunhæft að reikna með ís- lenskum sigri á mótinu, þótt ljóst sé að Ehlvest og fleiri muni ekki leggja árar í bát í þeirri baráttu. Þá eiga nokkrir skákmenn góða mögu- leika á að ná lokaáfanga sínum að AM-titli. Stefán Kristjánsson stendur þar best að vígi, en Bragi Þorfinnsson og Arnar Gunnarsson eiga einnig góða möguleika. Úrslit á efstu borðum í sjöttu umferð: Stefán Kristjánss. – Helgi Áss ½-½ Bragi Þorfinnss. – Hannes Hlífar 0-1 Jaan Ehlvest – Valeriy Neverov 1-0 Oleg Korneev – Jan Votava ½-½ Ferenc Berkes – Emanuel Berg ½-½ Röð efstu manna þegar þrjár umferðir eru til loka mótsins: 1.-3. Jaan Ehlvest, Hannes Hlíf- ar, Helgi Áss 5 v. 4.-8. Oleg Korneev, Stefán Krist- jánsson, Jonathan Rowson, Emanu- el Berg, Jan Votava 4½ v. 9.-20. Michail Brodsky, Henrik Danielsen, Valeriy Neverov, Þröst- ur Þórhallsson, Bragi Þorfinnsson, Aleksei Holmsten, Helgi Ólafsson, Heikki Westerinen, Tiger Hillarp-Persson, Fe- renc Berkes, Mikhail Ivanov, Antoaneta Stefanova 4 v. Í 21.-28. sæti eru síðan m.a. Arnar Gunnarsson, Ingvar Ásmundsson, Tómas Björnsson og Lenka Ptacnikova með 3½ v. Þýski stórmeistar- inn Eric Lobron hefur ekki riðið feitum hesti frá viðureignum sín- um við ungu íslensku skákmennina á þessu móti. Hér er hann tekinn í kennslu- stund hjá Braga Þorfinnssyni. Hvítt: Eric Lobron Svart: Bragi Þorfinnsson Drottningarindversk vörn 1.Rf3 Rf6 2.c4 e6 3.d4 b6 4.Rc3 Bb4 5.Bg5 Bb7 6.e3 h6 7.Bh4 g5 Önnur leið er 7...c5, t.d. 8.Bd3 cxd4 9.exd4 Bxf3 10.Dxf3 Rc6 11.De3 Be7 12.Bg3 d5 13.0–0 Rb4 14.cxd5 Rxd3 15.Dxd3 Rxd5 16.Db5+ Dd7 17.Rxd5 exd5 18.a4 Dxb5 19.axb5 Kd7 20.Hfc1 Hhc8 21.Hxc8 Kxc8 22.He1 Kd7 23.He5 f6 24.Hxd5+ Ke6 25.Hh5 Hd8 26.Kf1 Hxd4 og svartur vann (Schweber-Keres, ólympíuskák- mótinu í Tel Aviv 1964). Svartur getur einnig leikið 7...Bxc3+ 8.bxc3 d6, t.d. 9.Be2 Rbd7 10.Bxf6 Rxf6 11.0–0 0–0 12.Bd3 He8 13.Rd2 e5 14.Dc2 e4 15.Be2 De7 16.a4 a5 17.Hae1 Rh7 18.f3 Rf6 19.f4 Ba6 20.f5 d5 21.Db3 Dd7 22.cxd5 Bxe2 23.Hxe2 Dxd5 24.c4 Dd6 25.Hf4 c6 26.Dxb6 Heb8 27.Dc5 Dxc5 28.dxc5 Hb2 29.Kf1 He8 30.g4 Ha2 31.h4 Hxa4 32.g5 Rh5 33.Hg4 Kf8 34.f6 g6 35.Heg2 hxg5 36.hxg5 Hb4 37.Hxe4 Hxe4 38.Rxe4 Hxc4 39.Rd6 Hc1+ 40.Ke2 Hxc5 41.Hg1 Kg8 42.Hb1 Hf5 43.e4 Rg3+ 44.Ke3 Rf1+ 45.Kd3 Hxg5 46.Hb8+ Kh7 47.Rxf7 Hg3+ 48.Ke2 g5 49.Rxg5+ Hxg5 50.f7 Rg3+ 51.Kf3 og svart- ur gafst upp (Korts- noj-Matanovic, Len- ingrad 1957). 8.Bg3 Re4 9.Dc2 Bxc3+ 10.bxc3 d6 11.Bd3 f5 Eða 11...Rxg3 12.hxg3 Rd7 13.a4 a5 14.Hb1 g4 15.Rh4 Rf6 16.d5 De7 17.0–0 Rd7 18.dxe6 Dxe6 19.Bf5 Dxc4 20.Hfd1 Rf6 21.Hd4 Dc6 22.Be6 Hg8 23.Bc4 Kf8 24.Bb5 Dc5 25.Hc4 De5 26.Hxc7 og hvítur vann (Tal- Gligoric, áskorendamóti í Bled/Zagreb/Belgrad 1959). 12.d5 exd5 13.Rd4 Df6 14.cxd5 – Önnur leið er 14.f3 Rc5 15.Bxf5, t.d. 15. – dxc4 16.Bg6+ Kd8 17.0– 0–0 Bc6 18.Rxc6+ Rxc6 19.h4 Re7 20.Be4 Hb8 21.hxg5 hxg5 22.Hhf1 b5 23.Hd4 Re6 24.Hd2 b4 25.Hfd1 bxc3 26.Hxd6+ cxd6 27.Bxd6 Rd4 28.Bxb8 Kc8 29.Hxd4 Kxb8 30.Db1+ Db6 31.Dxb6+ og svartur gafst upp (Hasek-Vecsey, Prag 1928). 14...Bxd5 15.f3 – Eftir 15.Rxf5 Rc5! 16.Bb5+ Rbd7 17.f3 0–0–0 18.0–0 h5 er stað- an nokkuð jöfn (Szilagyi-Barcza, skákþingi Ungverjalands 1950). 15...Rxg3 16.hxg3 Rd7 Eða 16...Be6 17.Bxf5 Bxf5 18.Dxf5 Dxf5 19.Rxf5 Kf7 20.Hxh6 Hxh6 21.Rxh6+ Kg6 22.Rg4 og hvítur vann (Efimov-Gozzoli, Toul- on 1996). 17.Bxf5 0–0–0 Eftir 17...Rc5 18.0–0–0 a6 19.e4 Bf7 20.f4 Kf8 21.e5 dxe5 22.fxe5 Dxe5 23.Hhf1 Kg7 24.Hde1 Dd6 25.Be4 átti hvítur vinningsstöðu í skákinni, Spasskij-Gonzalez, Hav- ana 1962). 18.Kf2 Kb8!? Nýr leikur. 18...Df7 reyndist ekki vel í skákinni, Lys-Choleva, Tékk- landi 1997: 18...Df7 19.c4 Bb7 20.Be6 De7 21.Dg6 Dh7 22.Dxh7 Hxh7 23.Hh5 Hdh8 24.Hah1 Ba6 25.Bf5 Hg7 26.Rb5 c6 27.Rxd6+ Kc7 28.Hxh6 Hd8 29.He6 Rc5 30.Re8+ Hxe8 31.Hxe8 Bxc4 32.a3 a5 33.Hh6 b5 34.Hc8+ og svartur gafst upp. 19.a4 a5 20.Be4 De5 21.Bxd5 Dxd5 22.Hab1 Hde8! 23.Hb5?! – Leiðangur hróksins skilar hvíti litlu. Betra virðist 23.e4 Dc4 24.Db3 Dxb3 25.Rxb3 He5 26.Kg1 h5 27.Hb2 Hh6 og það er ekki einfalt fyrir svart að komast áfram, 23...Dc4 24.Hhb1 Re5 25.Kg1 – Enn virðist 25.e4 vera betri leik- ur, t.d. 25...Ka8 26.Kg1 g4 27.Hd1 Hhf8 28.f4 Rc6 29.Hbb1 Rxd4 30.Hxd4 Dc6 o.s.frv. 25...g4! 26.Hxa5?! – Eðlilegra virðist að leika 26.f4 Rd7 27.Rf5 De6 28.Hxa5 Rc5 o.s.frv. 26...gxf3 27.gxf3 Hhg8 28.Dh7 – Eftir 28.Kg2 Rd3 29.e4 Re1+ 30.Hxe1 bxa5 á svartur skiptamun yfir og unnið tafl. 28...Rc6! 29.Hab5 Rxd4 30.cxd4 De2! – Hér komi stöðumynd 2 31.g4 Dxf3 32.Hxb6+ cxb6 33.Hxb6+ Kc8 34.Dc2+ Kd7 og hvítur gafst upp. Lokin hefðu getað orðið: 35.Dh7+ He7 36.Hb7+ (36.Dxg8 Dxe3+ 37.Kh1 Df3+ 38.Kg1 He1+ 39.Kh2 Hh1+ mát) 36...Kc6 37.Hc7+ Hxc7 38.Dxg8 Kb7 39.Db3+ Ka7 40.Db2 Dxg4+ og svartur vinnur létt. Áttunda og næstsíðasta umferð verður tefld í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag og hefst taflið klukkan 17. Lokaumferðin verður síðan tefld á morgun, föstudag, en hún hefst fyrr an aðrar umferðir eða klukkan 13. Skákþing Íslands 2002 Keppni í áskorendaflokki og opn- um flokki á Skákþingi Íslands 2002 verður haldin dagana 23. til 31. mars n.k. Mótið verður með sama sniði og síðastliðið ár, þ.e. fyrsta daginn verða tefldar 3 atskákir og síðan kappskákir hina dagana. Teflt verður eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími í kappskákunum verður 2 klst. á 40 leiki og 1 klst. til að ljúka skákinni. Þátttökurétt í áskorendaflokki eiga tveir efstu menn úr opnum flokki 2001, ung- lingameistari Íslands 2001, Íslands- meistari kvenna 2001, skákmenn með a.m.k. 1.800 skákstig og efstu 6 menn svæðamóta sem skilgreind eru af stjórn S.Í. enda berist um- sóknir þar að lútandi til stjórnar S.Í. fyrir 20. mars n.k. ásamt mót- stöflu. Teflt verður hjá Taflfélagi Reykjavíkur, Faxafeni 12. Skráning í áskorenda- og opinn flokk hefst á mótsstað klukkustund áður en fyrsta umferð hefst. Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson SKÁK Ráðhús Reykjavíkur XX REYKJAVÍKURSKÁKMÓTIÐ 7.-15. mars 2002 Helgi Áss og Hannes efst- ir á Reykjavíkurmótinu Hannes Hlífar Stefánsson GRUNNSKÓLI Ólafsvíkur hélt nýverið árshátíð með glæsibrag í félagsheim- ilinu Klifi. Húsfyllir var á hátíðinni. Voru nemendur ásamt kennurum með heimatilbúin skemmtiatriði þar sem þema kvöldins var sjómannslífið, sungu nemendur nær allra bekkja gömul og sígild sjómannalög, við und- irleik kennara. Einnig komu fram tvær efnilegar hljómsveitir, en önnur þeirra var eingöngu skipuð stelpum úr 8. bekk. Einnig sýndu nemendur dansa og leikþætti við miklar og góðar und- irtektir viðstaddra. Í lokaatriði kvöldsins komu kenn- arar og starfsfólk skólans fram á svið- ið, með Svein Þór Elinbergsson skóla- stjóra fremstan í flokki og sungu kennararnir og starfsfólkið tvö vinsæl popplög. Morgunblaðið/Alfons Lokaatriði kvöldsins þar sem kennarar og starfsfólk grunnskóla komu fram. Árshátíð Grunnskóla Ólafsvíkur Nemendur 10. bekkjar sýndu glæsileg tilþrif. STOFNAÐ hefur verið félag um Lagarfljótsorminn og ber það nafnið Ormsskrín. Félagið mun þróa fjöl- breyttar hugmyndir um nýtingu ormsins og m.a. byggja starf sitt á nýlegri úttekt Sögusmiðjunnar um möguleika hér að lútandi og fræði- rannsóknum Helga Hallgrímssonar náttúrufræðings. Meginmarkmið félagsins er að stuðla að uppbyggingu starfsemi sem grundvallast á sögu, menningu og náttúrufari Fljótsdalshéraðs, ekki síst með áherslu á söfnun og miðlun upplýsinga um Lagarfljót- sorminn. Markmiðum sínum hyggst félagið ná með því að koma Lagar- fljótsorminum á ný á heimskort skrímslafræðinnar, að auka þekk- ingu á lífríki, náttúrufari og um- hverfi Lagarfljótsins með því að stuðla að þverfaglegum rannsóknum og vinna að uppbyggingu á fræða- og rannsóknasetri. Þá hyggst félagið koma á fót viðvarandi sýningu um orminn langa og efla útgáfu og fræðastarf í tengslum við menning- arlandslag og sögu Héraðsins. Meðal fyrstu verkefna Orms- skrínsins er að koma upp upplýs- ingaskiltum við þá staði Fljótsins þar sem Lagarfljótsormurinn hefur sést og útgáfa korts í því samhengi. Þá munu upplýsingar um verkefnið verða settar út á Netið undir slóðinni ormur.is. Formaður félagsins er Skúli B. Gunnarsson, en aðrir stjórnarmenn Gunnlaugur Jónasson og Ólöf B. Bragadóttir. Varamenn í stjórn eru Benedikt Vilhjálmsson og Steinunn Ásmundsdóttir. Lagarfljótsormur- inn vakinn til dáða Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Stjórnarmenn Ormsskríns, sem mun vinna að endurreisn Lagarfljóts- ormsins. F.v. Gunnlaugur Jónasson, Benedikt Vilhjálmsson, Skúli B. Gunnarsson, Steinunn Ásmundsdóttir og Ólöf B. Bragadóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.