Morgunblaðið - 14.03.2002, Page 59

Morgunblaðið - 14.03.2002, Page 59
HVERNIG á að lesa Passíusálm- ana? Hvað á að ráða, innihaldið eða formið, þegar sálmarnir eru lesnir upphátt? Hvaða sálmar hafa verið mest lesnir af gengnum kynslóðum? Þessar spurningar og margar fleiri verða ræddar á umræðudegi eldri borgara í Árnessýslu núna á föstudaginn, 15. mars, í Skálholti undir leiðsögn Karls Guðmunds- sonar leikara, sem mikið hefur fjallað um Passíusálmana og lesið þá nýverið inn á geisladisk. Þessar umræður hefjast kl. 10.00 og ná fram að hádegisverði. Að honum loknum verða umræður um ímynd eldri borgara í fjölmiðlum og hversu megi bregðast við því hvernig fjölmiðlar umgangast eldri borgara. Rektor Skálholtsskóla, sr. Bernharður Guðmundsson, leiðir þær umræður. Að loknum umræðunum verður drukkið síðdegiskaffi og þegin far- arblessun í Skálholtskirkju áður en haldið er heimleiðis. Árnesprófastsdæmi gengst fyrir umræðudeginum í samvinnu við Skálholtsskóla sem verður sem fyrr segir núna á föstudaginn, 15. mars. Eru allir eldri borgarar prófasts- dæmisins hjartanlega velkomnir til þess að eiga skemmtilegan og upp- byggilegan dag í Skálholti. Að- gangur er ókeypis en veitingar eru á kostnað þátttakenda. Íslenskar eldstöðvar og eldstöðvakerfin á Reykjanesskaga KEFLAVÍKURKIRKJA og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum boða til fundar með Ara Trausta Guð- mundssyni jarðfræðingi í Kirkju- lundi, Keflavík, kl. 20 fimmtudag- inn 14. mars. Ari Trausti mun fjalla í máli og myndum um nýútkomna bók sína, Íslenskar eldstöðvar, sem var til- nefnd til íslensku bókmenntaverð- launanna 2001 og m.a. ræða um eld- stöðvakerfin á Reykjanesskaga. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Krossinn með samkomu á Selfossi KROSSINN verður með samkomu í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi föstudaginn 15. mars kl. 20.30. Gunnar Þorsteinsson mun predika. Sönghópur Krossins mun syngja og Thomas og Sheila Sloan frá Bandaríkjunum munu flytja tónlist. Allir eru velkomnir. Að- gangur er ókeypis. Skálholt – umræðudagur eldri borgara Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Keflavíkurkirkja BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 59 KIRKJUSTARF Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 14-17 í neðri safnaðarsal. Sönghópur undir stjórn organista. Fræðslukvöld kl. 20 í safnaðarheimilinu. Fjallað um bók Esekíel spámanns og upphaf gyðing- dóms. Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10- 12. Dómkirkjan. Opið hús í safnaðarheimilinu kl. 14-16. Kaffi og með því á vægu verði. Ýmsar uppákomur. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Létt- ur málsverður í safnaðarheimili eftir stundina. Háteigskirkja. Foreldramorgunn kl. 10. Stúlknakór kl. 16.30 fyrir stúlkur fæddar 1989 og eldri. Stjórnandi Birna Björns- dóttir. Íhugun kl. 19. Taizé-messa kl. 20. Langholtskirkja. Foreldra- og barnamorg- unn kl. 10-12. Upplestur, söngstund, kaffispjall. Endurminningafundur í Guð- brandsstofu kl. 14-15.30. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45- 7.05. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Org- eltónlist í kirkjunni kl. 12-12.10. Að stund- inni lokinni er málsverður í safnaðarheim- ili. Samvera eldri borgara kl. 14. Sóknarprestur flytur guðs orð og bæn. Guðbergur Auðunsson rifjar upp gamla slagara sem hann söng í óskalagaþáttum útvarpsins á sínum sokkabandsárum við undirleik Gunnars Gunnarssonar. Með honum í för verður gamall skólabróðir og vinur, Jörundur Ingi allsherjargoði, sem segir frá lífi sínu og starfi. Umsjón í hönd- um þjónustuhóps Laugarneskirkju, kirkju- varðar og sóknarprests. Alfanámskeið kl. 19-22. Kennarar Ragnar Snær Karlsson, Nína Dóra Pétursdóttir og sr. Bjarni Karls- son. Neskirkja. Nedó kl. 17. Unglingaklúbbur fyrir Dómkirkju og Neskirkju fyrir 8. bekk. Nedó kl. 20 fyrir 9. bekk og eldri. Umsjón Sveinn og Þorvaldur. Félagsstarf aldraðra laugardaginn 16. mars kl. 14. Þorsteinn Haukur og hundurinn Bassi kynna starf Bassa. Borinn verður fram léttur hádeg- isverður. Þeir sem ætla að neyta matarins þurfa að tilkynna þátttöku í síma 511- 1560. Allir velkomnir. Sr. Frank M. Hall- dórsson. Árbæjarkirkja. Barnakóraæfing kl. 17-18. Breiðholtskirkja. Biblíulestrar kl. 20-22. Námskeið á vegum Reykjavíkurprófasts- dæmis og leikmannaskóla þjóðkirkjunnar. Á námskeiðinu verður leitast við að draga fram nokkra áhersluþætti í siðfræðiboð- skap Jesú sem þessar hugmyndir höfða bæði réttilega til og annað sem er rang- túlkað. Farið verður í valda texta úr Nt. og m.a. tekin fyrir stef úr fjallræðunni og dæmisögum Jesú. Fyrirlesari er dr. Sig- urjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Á eftir fyrirlestrinum er boðið upp á umræður yfir kaffibolla. Mömmumorgunn föstudag kl. 10-12. Páskaföndur. Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra. Leik- fimi ÍAK kl. 11.15. Bænastund kl. 12.10. Fyrirbænaefnum má koma til kirkjuvarða. Léttur hádegisverður eftir stundina. Alfa- námskeið kl. 19. Kvöldverður, fræðsla, umræðuhópur. Fræðsluefni: Hvernig get ég talað við aðra um trú mína? Kennari sr. Magnús B. Björnsson. Fella- og Hólakirkja. Helgistund og bibl- íulestur í Gerðubergi kl. 10.30-12 í um- sjón Lilju djákna. Starf fyrir 9-10 ára stúlk- ur kl. 17. Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl. 10- 12. Fræðandi og skemmtilegar samveru- stundir og ýmiss konar fyrirlestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börn- in. Kirkjukrakkar í Húsaskóla fyrir 7-9 ára börn kl. 17.30-18.30. Æskulýðsfélag í Grafarvogskirkju fyrir 8.-9. bekk kl. 20-22. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30. Alfanámskeið kl. 20. Kópavogskirkja. Starf með eldri borgur- um í dag kl. 14.30-16.30 í safnaðarheim- ilinu Borgum. Kyrrðar- og bænastund kl. 17. Fyrirbænaefnum má koma til sókn- arprests eða kirkjuvarðar. Seljakirkja. KFUM fundur fyrir stráka á aldrinum 9-12 ára kl. 16.30. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl. 21. Tónlist, ritningarlestur, hugleiðing og bæn. Bænarefnum má koma til presta kirkjunnar og djákna. Hressing í safnaðar- heimilinu eftir stundina. Biblíulestrarnir sem verið hafa kl. 20 falla niður en bent er á Alfanámskeiðið á miðvikudögum. Prestarnir. Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10- 12 ára kl. 17-18.30. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn- aðarheimili Strandbergs, kl. 10-12. Opið hús fyrir 8-9 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17-18.30. Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 10-12 ára börn (TTT) í dag kl 17:00. Foreldra- stund kl. 13-15. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi foreldra með ung börn að koma saman og eiga skemmtilega sam- veru í safnaðarheimili kirkjunnar. Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl. 20. Landakirkja: Kl. 10 foreldramorgunn með þriggja mínútna pistli móður. Keflavíkurkirkja. Lokaæfing fyrir ferming- arbörn 17. mars. Þau sem fermast kl. 10.30 (hópur 3, 8.ST) mæti kl. 16. Þau sem fermast kl. 14 (hópur 4, 8.IM) mæti kl. 17. Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel- komnir. KFUM, Holtavegi 28. Fundur í kvöld kl. 20. Að breyta heiminum byrjar heima. Efni: Guðrún Agnarsdóttir, læknir og fyrr- verandi alþingismaður. Upphafsorð: Guð- mundur K. Sigurgeirsson. Hugleiðing: Helgi Gíslason kennari. Allir karlmenn vel- komnir. Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund kl. 12. Bænaefnum má koma til prestanna. Eftir stundina er hægt að kaupa léttan hádegisverð í safnaðarheim- ili. Glerárkirkja. Opið hús fyrir foreldra og börn kl. 10-12. Heitt á könnunni og safi fyrir börnin. Æfing barnakórsins kl. 17.30. Hjálpræðisherinn, Akureyri. Kl. 17 KK fyr- ir 8 og 9 ára, kl. 19.30 söngæfing ung- linga, kl. 20.30 unglingasamvera. Allir vel- komnir. Egilsstaðakirkja. Föstumessa í kvöld kl. 20. Sóknarprestur. Safnaðarstarf VINSTRIHREYFINGIN – grænt framboð í Reykjavík afgreiddi á fundi sínum í Rúgbrauðsgerðinni þriðju- daginn 5. mars sl. framboðslista sinn sem hluta af framboði R-listans til komandi borgarstjórnarkosninga. Við stofnun VG, á landsfundum og flestum samkomum hreyfingarinnar, hefur stöðugt verið hamrað á því að hér hafi komið nýtt afl til sögunnar í íslenskum stjórnmálum. Undirritað- ur, gamall félagshyggju-, samvinnu- og framsóknarmaður, fagnaði mjög enda lentur á pólitískum vergangi undan hægrisinnaðri stjórn Halldórs Ásgrímssonar. Gekk ég því fagnandi til liðs við þetta nýja afl. Fljótt varð ég þess þó var á fundum þessa nýja afls að mikinn kala báru margir þar til framsóknarmanna og höfðu um þá mörg ljót orð. Vissu þeir greinilega ekki að grundvallarhug- sjónir Framsóknarflokksins höfðu verið félagshyggja og samvinna og að taka manngildið fram fyrir auðgildið. Framsóknarflokkurinn var á hraðri leið frá þessum hugsjónum og hefði því verið sæmileg kurteisi að taka vel við flóttafólki úr þeirri átt inn í nýtt afl. Að nýju afli vinstrigrænna laðað- ist einnig gott fólk sem m.a. lýsti því yfir að innan gömlu flokkanna hefði það ekki fundið sér samastað en fagn- aði þessu nýja og ferska afli. Á framboðsfundinum í Rúgbrauðs- gerðinni kom hinsvegar endanlega í ljós að Vinstri hreyfingin – grænt framboð er afturganga Alþýðubanda- lagsins og sem verra er, svo kraftlaus afturganga að afl sitt kýs hún að sækja í auðsveipa þjónkun undir pils- falda Ingibjargar Sólrúnar og Sam- fylkingarinnar. Uppstillingarnefnd hafði tilnefnt 8 fulltrúa inn á R-listann en fundarmenn stungu uppá nokkr- um öðrum en endanlega voru átta kosnir svo sem ætlast var til. Frambjóðendur kynntu sig og kom í ljós að flestir höfðu unnið að fé- lagsstörfum og auk þess verið fæddir inn í Alþýðubandalagið. Einn átti auk þess það tromp uppi í erminni að fyrstu orðin sem hann skrifaði voru „Ísland úr NATO – herinn burt“. Tals- vert var deilt um hvort einhver fram- bjóðendanna væri grænni en aðrir. Niðurstaðan var sú að það væri ekki fyrr en í sjötta sætinu sem slíkur væri. Enginn frambjóðenda ræddi borgar- málin undir stjórn núverandi meiri- hluta og því kom engin gagnrýni fram á stefnu R-listans sl. kjörtímabil nema frá undirrituðum. Uppstillingarnefnd hafði sett Árna Þór Sigurðsson í fyrsta sæti listans og Kolbein Proppé í hið þriðja. Þessir menn höfðu gegnt trún- aðarstörfum fyrir R-listann allt sl. kjörtímabil en reyndar skotist undan pilsfaldi Ingibjargar Sólrúnar svona rétt mátulega til þess að tengja VG við Samfylkinguna. Létu fundarmenn svo vel að þessum hlaupastrákum að þeir áttu fylgi um 75% fundarmanna. Varð úr þessum fundi þvílík hallel- újasamkoma til stuðnings gjörðum R- listans að ég varð aftur og aftur að klípa mig í handlegginn til að sann- færast um að ég væri vakandi en ekki staddur í martröð á kröftugum bar- áttufundi Samfylkingarinnar. Mér varð þarna ljóst að VG er ekki nýtt afl í íslenskum stjórnmálum heldur aðeins undirgefin afturganga Samfylkingarinnar. Ég baðst því af- sökunar á að hafa eytt tíma samkom- unnar og yfirgaf þetta gamla lúna lið endanlega. KRISTINN SNÆLAND, Engjaseli 65, 109 Reykjavík. VG nýtt afl? – Nei Frá Kristni Snæland leigu- bifreiðastjóra: MEÐ nýjum mönnum koma oft ný málefni, með nýrri forystu breytist forgangsröðun. Þetta er fullkom- lega eðlilegt og heilbrigt. En nýjum mönnum ber samt skylda til að haga störfum sínum með hliðsjón af verkum forvera sinna. Breytingar eru nauðsynlegar en vissar skuld- bindingar verður að standa við, lof- orð má ekki svíkja. Forveri þinn í embætti, Björn Bjarnason, hafði lengi eitt málefni á dagskrá sem hann barðist fyrir þó að aldrei hafi málið komist í gegn. Þetta málefni er bygging íþróttahúss við Mennta- skólann við Hamrahlíð. Allt frá stofnun skólans, árið 1966, hafa stjórnendur hans barist fyrir byggingu íþróttahússins sem þeir töldu, og telja, að sé nauðsyn- legur hluti af skólanum. Fyrsti rektor skólans, Guðmundur Arn- laugsson, þurfti að horfa aftur og aftur upp á baráttu sína verða fyrir barðinu á djúpum skúffum skrif- ræðisins. Þóttist hann hafa unnið vissan sigur þegar þingsályktunar- tillaga um byggingu íþróttahússins var samþykkt á áttunda áratugn- um, takið eftir; þá voru núverandi nemendur skólans ekki einu sinni komnir undir. En þessi þingsálykt- un „týndist“ því miður og hefur ekki sést síðan diskóið var og hét. Málið hefur semsagt alltaf horfið á einhvern hátt af borði stjórnvalda og ofan í skúffu, inn í skáp, undir teppi. Það er sama hvernig nem- endur skólans og stjórnendur hans hafa reynt að vekja athygli á mál- inu, enn þurfum við að horfa á grjót, sinu og for á lóðinni austan við skólann þar sem íþróttahúsinu hefur ávallt verið ætlaður sama- staður. Nokkuð birti til þegar Björn Bjarnason fór að berjast fyrir mál- inu niðri á þingi og tókst honum að fá alls 60 milljónir brennimerktar til verkefnisins á árunum 1998 og ’99. En Björn taldi sér aldrei fært að standa í þessum framkvæmdum nema borgaryfirvöld kæmu til móts við ríkið og það sem meira var, hann taldi það lagalega skyldu borgarinnar. Borgarstjóri taldi hins vegar að þar sem ríkið á MH að öllu leyti og stóð eitt að stofnun og byggingu hans þá ætti ríkið að standa eitt að öllum viðbótarfram- kvæmdum s.s. íþróttahúsi. Þessi lagalega deila hefur hingað til verið hinn óyfirstíganlegi þrándur í götu íþróttahússins. En nú er betri tíð. Þessi deila var að mestu leyti leyst á fundi með nemendum og kennurum MH nú á dögunum þar sem menntamálaráð- herra og borgarstjóri útkljáðu sín mál. Afraksturinn af þeim fundi varð sá að borgarráð samþykkti að veita fjármunum til verkefnisins. Hvort sem henni ber lagaleg skylda til þess eða ekki hefur Reykjavík- urborg ákveðið að standa með rík- inu í þessu máli. Nú biðlum við MH-ingar til þín. Við erum þreytt á aðgerðarleysi og sviknum loforðum. Við erum þreytt á því að málið týnist í kerfinu. Við erum þreytt á því að vera eilíft bit- bein stjórnvalda sem virðast ekki hafa áhuga á kjörum okkar sem kannski er skiljanlegt, bara helm- ingur skólans með kosningarétt. Tómas Ingi, ekki láta íþróttahúsið sem okkur hefur nú enn einu sinni verið lofað enda sem týnt skjal á botni einhverrar skúffu. Þú hefur axlað þessa miklu ábyrgð og við treystum á þig og gerum þá sjálf- sögðu kröfu að þú berjist fyrir þá sem þú hefur tekið undir þinn væng. Það er við hæfi að enda á orðum Guðmundar Arnlaugssonar fyrsta rektors MH: ,,Ég hygg að aldrei hafi jafn stór skóli þurft að bíða jafn lengi eftir jafn sjálfsögð- um hlut.“ KÁRI HÓLMAR RAGNARSSON, nemandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Opið bréf til mennta- málaráðherra Frá Kára Hólmari Ragnarssyni: Fimmtudagstilboð Herrakuldaskór OPIÐ MÁNUDAGA-FÖSTUDAGA FRÁ KL. 12-18 LAUGARDAGA FRÁ KL. 10-16 Suðurlandsbraut, sími 533 3109 EURTK80556 o.fl. Litur: Svartur Stærðir: 39-46 Verð áður 6.995 Verð nú 3.995

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.