Morgunblaðið - 14.03.2002, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 61
DAGBÓK
Árnað heilla
Ljósmyndastofa Erlings
BRÚÐKAUP.
Gefin voru saman
2. febrúar sl. í
Seljakirkju af sr.
Valgeir Ástráðs-
syni Kristín Ösp
Þorleifsdóttir og
Frank M. Michel-
sen. Heimili
þeirra er í Gull-
engi 11.
LJÓÐABROT
STÖKUR
Af Eyjasandi út í Vog
– er það mældur vegur –
átján þúsund áratog
áttatíu og fjegur.
Ókunnur höfundur
Einn er eg róinn Engey frá
út á sjóinn kalda
borðamjóum báti á
burðarsljóum karli hjá.
Ókunnur höfundur
Ekki fer eg út á sjó,
ótta ber í hyggjuþró,
þar sem eru um stökkuls stó
steinar sker og sundin mjó.
Jónas Gíslason
Skógstrendingaskáld
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bc4 e6
7. Bb3 Rc6 8. f4 Dc7 9. f5
Rxd4 10. Dxd4 Be7 11. fxe6
fxe6 12. Bg5 O-O 13. O-O-O
Bd7 14. Bf4 Re8 15. Hhe1
Hxf4
Staðan kom upp í síðustu
umferð á Íslandsmóti skák-
félaga sem lauk fyrir
skemmstu í húsakynnum
Brimborgar. Kristján Guð-
mundsson (2235) hafði hvítt
gegn Gunnari
Gunnarssyni
(2140). 16. Rd5!
Dd8 Ekki gekk
upp að leika 16.
exd5 vegna 17.
Dxd5+ Kh8 18.
Dg8#. Í fram-
haldinu verður
svartur skipta-
muni undir án
bóta. 17. Rxf4 Bg5
18. e5 d5 19. Kb1
Rc7 20. c4 Bxf4
21. Dxf4 Bc6 22.
Hf1 De7 23. Hd2
dxc4 24. Bxc4
Rd5 25. Bxd5 Bxd5
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
26. Hdf2 Hc8 27. g3 h6 28.
Hc1 Hxc1+ 29. Dxc1 Db4 30.
De3 a5 31. Hf4 Db5 32. b3
Da6 33. Kb2 b5 34. Dc5 b4
35. Hf8+ Kh7 36. Dc2+ g6
37. Dc7#. Þessi sigur dugði
ekki Taflfélagi Garðabæjar
til að vinna 2. deildina en
lokastaða hennar varð þessi:
1. SA-b 26 vinningar af 42
mögulegum 2.–3. TG og TA
25½ 4. Hellir-c 22½ 5. TR-c
21½ 6. TV 17½ 7. SR 16 v. 8.
TR-d 13½ 8. umferð Reykja-
víkurskákmótsins hefst kl.
17.00 í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Áhorfendur eru velkomnir.
HÓTEL Borgarnes var
miðstöð mikillar brids-
veislu um síðustu helgi, en
þá fór þar fram undan-
keppni Íslandsmótsins í
sveitakeppni þar sem
fjörutíu sveitir kepptu um
réttinn til að spila í úrslit-
unum um páskana. Í valn-
um liggja 168 spil, flest
hver endanlega dauð, en
sum munu upp rísa og lifa
framhaldslífi á síðum dag-
blaðanna. Hér er eitt, sem
verðskuldar langa lífdaga:
Norður
♠ ÁK1087
♥ Á104
♦ 1042
♣G3
Vestur Austur
♠ D ♠ G532
♥ DG8 ♥ 52
♦ K753 ♦ D98
♣K9642 ♣D1087
Suður
♠ 964
♥ K9763
♦ ÁG6
♣Á5
Margir spiluðu fjögur
hjörtu í suður og fóru nið-
ur eftir útspil vesturs í
tígli eða laufi. Vörnin fær
bersýnilega slag á spaða
og annan á tromp, og svo
virðist sem nægur tími sé
til að sækja tvo slagi til
viðbótar á láglitina.
Matthías Þorvaldsson í
sveit Subaru var einn
margra sagnhafa í fjórum
hjörtum og honum tókst
að finna vinningsleið þrátt
fyrir útkomu vesturs í
tígli. Hann drap tígul-
drottningu austurs með ás,
spilaði spaða á ásinn og
hjarta heim á kóng. Síðan
spaða að blindum. Vestur
græðir greinilega ekkert á
því að trompa og hann
valdi að henda laufi.
Matthías tók slaginn á
kóng og spilaði enn spaða
að níunni.
Nú er það austur sem
þarf að taka ákvörðun. Ef
hann tekur á gosann og
spilar laufi, drepur sagn-
hafi, spilar hjarta á ásinn
og hendir laufi niður í
fríspaða. Og ef austur læt-
ur lítinn spaða, neyðist
vestur til að trompa frá
DG. Þar með er tromp-
slagur varnarinnar farinn
og sagnhafi á tvær inn-
komur í borð á Á10 í
hjarta til að fría spaðaslag
og njóta hans.
Þetta er vönduð af-
greiðsla hjá Matthíasi í
lúmsku spili.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir umburðar-
lyndi, átt auðvelt með að
sætta þig við hlutina og
skilur hver þú ert.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Leiðir þínar og heldur óvenju-
legrar manneskju gætu legið
saman í dag. Stjórnmála-,
hugmyndir þessarar mann-
eskju ganga fram af fólki en
þú hefur bæði gagn og gaman
af þeim.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú verður hissa þegar þú
kemst að því að einhver mik-
ilvægur – annað hvort yfir-
maður eða foreldri – er efnaðri
en þú gerðir þér í hugarlund.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Samræður við einhvern
ókunnugan sem verður á vegi
þínum munu færa þér áhuga-
verðar fregnir. Það er alltaf
spennandi að vita eitthvað
sem maður vissi ekki fyrir.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er þér léttir að komast að
því að nú eru peningar og
bjargir til staðar og því unnt
að gera úrbætur á vinnustað.
Hafðu hraðar hendur því að
tækifærið staldrar stutt við.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Óvænt daður verður til þess
að efla sjálfsvirðingu þína í
dag. Það kann að vera minni-
háttar en það er mikilvægt að
komast að því að einhver dáir
þig og þráir.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einhver á vinnustað gæti sagt
eitthvað sem fyrir þér varpar
ljósi á fjölskylduleyndarmál
eða einhverja nýja sögu. Þú
verður furðu lostin(n) við
þessar fregnir en jafnframt
fer um þig ánægjuhrollur.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Alveg upp úr þurru færð þú
óvenjulega hugmynd um
hvernig þú getir skemmt þér
og öðrum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það veldur þér ánægju að
kaupa einhvern óvenjulegan
hlut fyrir heimilið í dag. Þú
getur vart beðið að heyra hvað
hinum finnst um það sem þú
fannst.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert ákaflega upprifin(n) af
stórkostlegum ráðleggingum
sem þú færð í dag. Þessi nýja
leið mun líklega bæta bæði út-
lit þitt og heilsu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ábending frá leynilegum aðila
gæti bætt tekjurnar. Hafðu
hugrekki til að fylgja þessum
ráðleggingum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Ráðleggingar frá vini gera þig
margs vísari í dag. Þetta vek-
ur með þér mikla hrifningu og
þú getur vart beðið eftir því að
deila þessu með öðrum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ummæli manneskju í valda-
stöðu opna fyrir þér alveg
nýja möguleika. Þú sérð að
hægt er að fara nýja leiðir að
ákveðnu máli – hvílíkur léttir.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Með morgunkaffinu
... og hugsiði ykkur. Þegar við komum heim fór
hann Óli að vera nærgöngull.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar
um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og
fleira lesendum sín-
um að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrir-
vara virka daga og
þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudags-
blað.
Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja
afmælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgð-
armanns og síma-
númer.
Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í
bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Fyrir fermingarnar
Sumarlegur
sparifatnaður
A›eins 3 ver›
kr. 990 - 1.990 - 2.990
opi› fim-fös-mán 10-18
laugardag 10-14
Lok
útsölumarka›ar
Þakka hlýhug, gjafir og vinarkveðjur allra þeirra
er glöddu okkur hjónin á 90 ára afmæli mínu.
Lifið heil.
Jóhann og Margrét,
Sveinskoti.
EIGNIR ÓSKAST
Raðhús við Vesturbrún óskast -
Fjársterkur kaupandi óskar eftir raðhúsi við
Vesturbrún.
Raðhús í Fossvogi óskast -
Traustur kaupandi óskar eftir raðhúsi í
Fossvogi.
Raðhús við Hvassaleiti óskast -
Höfum verið beðnir að útvega gott raðhús
við Hvassaleiti.
Raðhús við Vesturbrún óskast -
Fjársterkur kaupandi óskar eftir raðhúsi við
Vesturbrún.
Raðhús í Fossvogi óskast -
Traustur kaupandi óskar eftir raðhúsi
í Fossvogi.
Raðhús við Hvassaleiti óskast -
Höfum verið beðnir að útvega gott raðhús
við Hvassaleiti.
Eignamiðlun • Sími 588 9090 • Síðumúla 21 • www.eignamidlun.is
ÍBÚÐIR FYRIR FÓLK Á
VIRÐULEGUM ALDRI ÓSKAST
Raðhús við Vesturbrún óskast -
Fjársterkur kaupandi óskar eftir raðhúsi við
Vesturbrún.
Raðhús í Fossvogi óskast -
Traustur kaupandi óskar eftir raðhúsi í
Fossvogi.
Raðhús við Hvassaleiti óskast -
Höfum verið beðnir að útvega gott raðhús
Óskum eftir 100-130 fm íbúðum
Æskileg staðsetning: Gimliblokkin eða Þorragata. Einnig
120-170 fm íbúð á einni hæð við Skúlagötu eða Klapparstíg.
Einbýlishús eða raðhús á Seltjarnarnesi óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 150-200 fm einbýli,
raðhúsi eða parhúsi, gjarnan austan Lindarbrautar.
Eignamiðlun • Sími 588 9090 • Síðumúla 21 • www.eignamidlun.is