Morgunblaðið - 14.03.2002, Qupperneq 64
64 FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ó.H.T Rás2 HK DV
Ekkert er hættulegra
en einhver sem hefur
engu að tapa!
Frá leikstjóra
The Fugitive
SCHWARZENGGER
Sýnd kl. 3.50, 5.55, 8 og 10.10. Vit 349.
Regína
Harry Potter
Úr sólinni
í slabbið!
Sýnd kl. 5.35, 8 og 10.30.
B.i. 12. Vit nr. 341.
Sýnd kl. 8 og 10.15.
Vit 348. B.i. 16.
Sýnd kl. 8 og 10.30.
B.i. 12. Vit nr. 351.
Sýnd kl. 3.45. E. tal. Vit 294
Sýnd kl. 3.50 og 5.55 Ísl. tal. Vit 338
Sýnd kl. 4 íslenskt tal. Vit 325
8 Tilnefningar til Óskarsverðlauna
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Vit nr 335. B.i. 12.
Sýnd í Lúxus VIP kl. 5.30, 8 og 10.40. B.i. 16.
m.a. fyrir
besta mynd,
besta aðalhlut-
verk,
besta aukahlut-
verk,
besta leikstjórn,
og besta handrit.
Hlaut að auki
4 Golden Globe
verðlaun og
2 Bafta verðlaun.
kvikmyndir.is
SG DV
kvikmyndir.com
8
Sýnd kl. 3.45. Vit 328
m.a. fyrir bestu mynd, besta aðalhlutverk,
Strik.is
RAdioX
Ó.H.T Rás2
Tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin
HK DV
8 Tilnefningar til
Óskarsverðlauna
m.a. fyrir
besta mynd,
besta aðalhlutverk,
besta aukahlutverk,
bestu leikstjórn,
og besta handrit.
Hlaut að auki
4 Golden Globe
verðlaun og
2 Bafta verðlaun.
8
Sýnd kl. 7 og 9.30. B.i. 12. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.30 og 8. B. i. 16.
ÞÞ Strik.is
ÓHT Rás 2
HL Mbl
SG DV
Sýnd kl.5.
4 Tilnefningar til Óskarsverðlauna
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 9.15. B.i. 14.
kvikmyndir.is
SG DV
½kvikmyndir.com
HJ Mbl
ÓHT Rás 2
Ó.H.T Rás2
Strik.isSG. DV
tilnefningar til
Óskarsverðlauna5
Tilnefningar til frönsku
Cesar - verðlaunanna13
Sýnd kl. 7. Sýnd kl. 10.30.
Sýnd kl.5. Íslenskt tal.
„ . . . ég fór af henni með verk
í maganum af hlátri.
Mörg tónlistaratriðineru líka
vel útfærð . . . . „
Kvikmyndir.is
DV
Menningarkvöld í Norræna húsinu
fyrir menntaskólanema
á vegum sendikennara í norrænum tungumálum við
Háskóla Íslands og Kennsluráðgjafans í Norræna húsinu.
Í Norræna húsinu 14. mars kl. 20.
• Kynning á námi í norrænum tungumálum við HÍ .
• Fjölbreytt menningardagskrá.
• Veitingar.
Styrktaraðilar eru Norræna ráðherranefndin og
sendiráð Svíþjóðar, Noregs og Finnlands á Íslandi.
ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Félagar í
Harmonikufélagi Reykjavíkur leika
fyrir dansi laugardagskvöld kl. 22:00.
Söngvari Ragnheiður Hauksdóttir.
Allir velkomnir.
Á EYRINNI Ísafirði:Gabríel á stór-
dansleik laugardagskvöld frá kl. 23:00
til kl. 03.:00.
BÚÐARKLETTUR, Borgarnesi:
Dj Finnur Jónsson föstudagskvöld.
Hljómsveitin Undir fölsku flaggi
laugardagskvöld.
CAFÉ AMSTERDAM: Sænsk/ís-
lenska dúóið Broad spilar laugar-
dagskvöld.
CAFÉ RIIS, Hólmavík: Kvart-
ettinn BAAB laugardagskvöld kl.
21:00. BAAB skipa söngkonurnar:
Áslaug (Kalk) og Heiða (Url) ásamt
þeim Matta (Url, Englar)
á Rhodes og Þresti(Url,
Moonboots) á Gtr.
CATALINA, Hamra-
borg: Gammel Dansk
spila föstudags- og laug-
ardagskvöld.
CHAMPIONS CAFÉ,
Stórhöfða 17. Hljóm-
sveitin Vax spilar föstu-
dagskvöld og einnig á
Austfirðingaballi laugar-
dagskvöld frá kl. 23:00.
CELTIC CROSS: Blús-
sveitin Blúsþrjótarnir
fimmtudagskvöld. Spila-
fíklarnir föstudags- og
laugardagskvöld.
DUBLINER: Hjóm-
sveitin Penta skemmtir
föstudags- og laugardagskvöld.
EGILSBÚÐ, Neskaupstað: Stúkan
opin laugardagskvöld til 03:00.
GAUKUR Á STÖNG: G+ Hip Hop
fimmtudagskvöld kl. 21:00. Afkvæmi
guðanna hita upp miðaverð 750 kr.
Páll Óskar heldur opið partí á Gaukn-
um frá miðnætti föstudagskvöld,
1.000 kr. inn. Tónleikar með lögum
James Taylor þriðjudags- og mið-
vikudagskvöld kl. 21:00, miðaverð kr.
500.
GRANDROKK: Tónleikar með
hljómsveitinni MÍR föstudagskvöld
kl. 23:00, frítt inn.
GULLÖLDIN: Hinir sívinsælu
Svensen og Hallfunkel föstudags-
kvöld. Frítt inn.
HAFURBJÖRNINN,Grindavík:
XXX Rottweiler með tvenna tónleika
föstudagskvöld.
HITT HÚSIÐ : Í Fimmtudagsfor-
leiknum fimmtudagskvöld kl. 20:00 til
22:30 verður boðið upp á þrjár rokk-
sveitir D.U.S.T., Case og Noise. Tón-
leikarnir eru haldnir á Loftinu í nýju
húsnæði Hins hússins að Pósthús-
stræti 3–5. Aðgangur ókeypis. 16 ára
aldurstakmark og skylda að sýna skil-
ríki.
HÖLLIN, Vestmannaeyjum: Stór-
sýningin Af lífi og sál föstudagskvöld.
INGHÓLL, Selfossi: Í svörtum föt-
um laugardagskvöld.
KAFFI REYKJAVÍK: Papar föstu-
dags- og laugardagskvöld. Djasstón-
leikar með Tríói Robins Nolans leikur
laugardag.
KAFFI-LÆKUR, Hafnargötu 30,
Hafn.: Njalli í Holti og Össi saxofónn
spila föstudags- og laugardagskvöld.
KRINGLUKRÁIN: Janis Joplin
tónleikar föstudagskvöld kl. 21:00.
Hljómsveitin SÍN leikur fyrir dansi
frá kl. 23:00. Bíó Tríó söngskemmtun
með Erni Árnasyni laugardagskvöld
kl. 21:00. Örn sýnir hér á sér nýja hlið
sem djass- og dægurlagasöngvari á
kómískum nótum ásamt Birni Thor-
oddsen og Jóni Rafnssyni. Hljóm-
sveitin SÍN leikur fyrir dansi frá kl.
23:00.
KRISTJÁN IX, Grundarfirði: Dj
SkuggaBaldur laugardagskvöld.
Miðaverð 500 kr. Svensen og Hallf-
unkel laugardagskvöld. Frítt inn.
N1-BAR, Keflavík: Á móti sól laug-
ardagskvöld.
O’BRIENS, Laugavegi 73: Trúba-
dorinn James Hickman fimmtudags-
kvöld kl. 11:00. Blúsbrjótarnir föstu-
dagskvöld.
PAKKHÚSIÐ, Selfossi: Gunnar
Ólason, Ingvar Valgeirsson og fé-
lagar föstudags- og laugardagskvöld.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópa-
vogi: Línudanleikur föstudagskvöld
kl. 20:30. Jóhann Örn Ólafsson stjórn-
ar tónlistinni og leiðir dansinn. Dans-
gjald kr. 1000. Eftir línudansinn
dansleikur með Hálft í hvoru, sem og
laugardag.
PRIKIÐ: Dj Rampage og DJ Shal-
em B með hip hop veislu laugardags-
kvöld frá miðnætti fram eftir morgni.
RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR: Harm-
onikufélag Reykjavíkur heldur tón-
leika sunnudag kl. 15:00. Fram koma
m a. hljómsveitir félagsins, Stormur-
inn og Léttsveitin og nemendur
Fanneyjar Karlsdóttur, harmoniku-
kennara. Aðgangur ókeypis.
RÁIN, Keflavík: Bingó frá Borgar-
nesi leikur föstudags- og laugardags-
kvöld.
SJALLINN, Akureyri: SSSól laug-
ardagskvöld.
SJÁVARPERLAN, Grindavík:
Karma laugardagskvöld.
TÓNABÆR: Annað músiktilrauna-
kvöld Tónabæjar fimmtudagskvöld
kl. 20:00.
VIÐ POLLINN, Akureyri: Pétur
Kristjánsson og hljómsveit föstu-
dags- og laugardagskvöld.
VÍDALÍN: Sænsk/íslenska
BROAD fimmtudagskvöld. Dj Ólafur
Páll Gunnarsson föstudagskvöld.
Miðnes laugardagskvöld.
VÍKIN, Höfn: Írafár laugardags-
kvöld.
FráAtilÖ
Hljómsveitin Sín.
TIL landsins er kominn Sage nokk-
ur Francis, fjölhæfur rapp-
listamaður sem farinn er að gægjast
upp úr moldinni í rappheimum vest-
anhafs. Mun hann spila á Gauknum í
kvöld ásamt Dj Shalem B.
Sage þessi er búinn að vera lengi
að í rappinu en eins og áður segir
hefur hann undanfarið verið að
vekja á sér talsverða athygli. Þann-
ig var hann valinn besti rapparinn á
heimasíðunni www.hiphop-
infinity.com, hvar hann var mærður
mikið fyrir fjölhæfni sína og færni í
rímnalistinni – hann rappi hratt og
hægt, tali, syngji, hvísli og öskri eft-
ir því sem henta þykir.
Svo kemur fyrsta „eiginlega“
breiðskífa kappans Personal Journ-
als út 15. apríl, á hinu framsækna
rappmerki Anticon sem er heima-
garður listamanna eins og Odd Nos-
dam, Dose One og Why? (sem saman
skipa hina umtöluðu sveit cLOUD-
DEAD).
Sage gerir nú lítið úr þessu
heimasíðumáli, er alveg á jörðinni
hvað það varðar.
„Þetta er bara vefsíða – þetta hef-
ur ekki mikla merkingu fyrir mig.
Það er vissulega gott að vita til þess
að einhver er að fylgjast með manni.
Þar sem ég er ekki nærri því eins
þekktur og margir þarna á listanum
gæti þetta vakið einhverja til um-
hugsunar. En aðrir gætu orðið pirr-
aðir yfir því að einhver óþekktur sé
að komast svona hátt.“
Sage segir að þetta verði fyrsta
platan sem fái almenna dreifingu, til
þessa hafi hann gert plötur sem
hann hafi eingöngu selt á tónleikum
og þess háttar.
En hvað segir Sage um hipp-
hopp-heiminn í dag. Er til „alvöru“
rapp á móti „krapp-rappi“?
„Eins og með alla tónlist er hipp-
hopp búið að kvíslast í allar áttir. Og
það þrífst drasl innan þeirra allra.
Ég held þó að skilgreiningin á hipp-
hoppi sé orðin hriplek; ég veit t.d.
ekki hvað mín list verður kölluð eft-
ir 100 ár.“
Kvöldið er liður í hipp-hopp-
kvöldum Gauksins, Kroniks og Bud-
weiser. Afkvæmi guðanna og Dj
Paranoia hita upp.
Morgunblaðið/Golli
Rapparinn Sage Francis.
Sage
rappar
arnart@mbl.is
HINN 7. ágúst árið 2000 fórust fimm
farþegar einshreyfilsflugvélarinnar
TF-GTI í Skerjafirðinum ásamt
flugmanni. Þau sem fórust voru
Mohamed Jósef Daghlas, Karl Frí-
mann Ólafsson, Gunnar Viðar Árna-
son og Heiða Björk Viðarsdóttir.
Sturla Þór Friðriksson andaðist svo
1. janúar 2001 og Jón Börkur Jóns-
son hinn 16. júní 2001.
Eftirmálar þessa slyss urðu þó
nokkrir og aðstandendur hafa í kjöl-
farið bent á ýmsar brotalamir hvað
varðar búnað vélarinnar, flugum-
ferðarstjórnina kvöldið sem vélin
fórst og svo björgun hennar. Ekki
verður farið nánar út í þessi mál hér
en tilefni þessarar greinar eru stór-
tónleikar sem haldnir verða í Há-
skólabíói, til minningar um alla þá
sem létust. Einnig verða þetta
styrktartónleikar, en öll innkoma
kvöldsins fer í minningarsjóð sem
notaður er til að greiða rannsókn
óháðra, erlendra rannsóknarsér-
fræðinga á slysinu. Með það að
markmiði gefa allir sem að tónleik-
unum koma vinnu sína.
Þeir sem fram koma eru GusGus,
Ný Dönsk, KK, Þórunn Antónía og
hljómsveit, Gerpla, Páll Rósinkrans
og XXX Rottweilerhundar. Þá fer
Vilborg Halldórsdóttir með ljóð og
eitthvað verður um óauglýst atriði.
Kynnir er Óskar Jónasson.
Í samtali sögðu þau Katla Gunn-
arsdóttir og Jakob Þór S. Jakobsson,
sem eru á meðal skipuleggjenda, að
allt hafi verið á fullu síðustu tvær
vikur hjá þeim.
„Það er búið að vera mjög mikið að
gera. Við höfum aldrei staðið í neinu
svona áður,“ sagði Katla, og and-
varpar feginlega, enda loksins farin
að sjá fyrir endann á þessu.
„Allir sem taka þátt í þessu,
styrktaraðilar, auglýsendur, tónlist-
armenn o.fl. gera þetta frítt og við
erum ótrúlega þakklát fyrir það. All-
ir hafa og tekið mjög vel í þetta og
allir eru af vilja gerðir.“
Katla segir að sérfræðingunum sé
ekki ætlað að finna einhverja blóra-
böggla.
„Okkar von er einfaldlega sú að
þetta mál komist á hreint svo að
þetta þurfi ekki að koma fyrir aftur,“
segir hún.
Katla og Jakob vilja að lokum
koma kærum þökkum til allra sem
hafa verið að standa í þessu með
þeim undanfarnar vikur.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og er
miðaverð 2000 kr.
Tónleikar til minningar
um fórnarlömb flug-
slyssins í Skerjafirði
Morgunblaðið/Jim Smart
XXX Rottweilerhundar ætla að
láta að sér kveða í kvöld.
Morgunblaðið/Golli
Jakob Þór S. Jakobsson og Katla
Gunnarsdóttir eru á meðal
skipuleggjenda tónleikanna.