Morgunblaðið - 22.03.2002, Page 10
FRÉTTIR
10 FÖSTUDAGUR 22. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VALGERÐUR Sverrisdóttir iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra ítrekaði á
Alþingi í gær að það kæmi að henn-
ar mati vel til greina að Íslendingar
gengju í Evrópusambandið og
tækju upp evruna. Þetta sagði hún í
umræðum í upphafi þingfundar sem
efnt var til vegna skrifa Valgerðar
um evruna og íslensku krónuna á
heimasíðu hennar www.valgerdur.-
is. Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, hóf umræðuna
með því að vekja athygli á ummæl-
um Valgerðar á heimasíðu hennar.
Steingrímur vitnaði í skrif Valgerð-
ar þar sem segir: „...Það sem ég ótt-
ast er að við getum fyrr en nokkurn
grunar staðið frammi fyrir því að
Bretland, Danmörk og Svíþjóð taki
evruna upp og þá eigum við eftir að
vinna heimavinnuna okkar.“ Stein-
grímur vakti einnig athygli á skrif-
um Valgerðar þar sem hún segir:
„Ég hef haldið því fram að vextir á
Íslandi séu að sliga atvinnulífið og
skuldsett heimili.“ Þá vitnaði Stein-
grímur í orð Valgerðar þar sem hún
segir: „...Það sem auk þess gerir
það að verkum að hér séu hærri
vextir en almennt gerist er að gjald-
miðill okkar krónan er ekki nægj-
anlega sterk. Gjaldmiðill sem not-
aður er á stóru markaðssvæði er
sterkari og hefur meiri tiltrú en
gjaldmiðill sem notaður er á litlu
markaðssvæði.“ Steingrími fannst
athyglisvert að Valgerður skyldi
taka svona til orða á sinni heimasíðu
í ljósi þess að hún væri ráðherra
bankamála. Síðan sagði hann: „Ég
spyr því hæstvirtan ráðherra iðn-
aðar- og viðskiptamála hvort hann
telji skynsamlegt að vega svona að
stöðu íslensku krónunnar?“ Sagði
Steingrímur ennfremur síðar í um-
ræðunni að honum fyndist það sér-
kennilegt að iðnaðarráðherra skyldi
með yfirlýsingum af þessu tagi
veikja tiltrú manna á íslensku krón-
unni. Hann sagði einnig að Valgerð-
ur væri með skrifum sínum um ís-
lensku krónuna að dæma hana í
„aðra ef ekki þriðju deild“, eins og
hann orðaði það. Jafnframt væri
Valgerður í pistli sínum á heimasíð-
unni að gefa íslenskum bönkum fall-
einkunn.
Valgerður Sverrisdóttir tók fram
í svari sínu að hún teldi að ekkert
hefði verið ofsagt í skrifum sínum á
heimasíðu sinni, hún væri einfald-
lega að fara þar yfir staðreyndir
eins og þær blöstu við sér. „Og það
sem ég segi um upptöku Bretlands,
Svíþjóðar og Danmerkur á evrunni
er engin speki...þetta er bara það
sem er umtalað...allir gera sér grein
fyrir að það myndi hafa mikil áhrif á
íslensku krónuna og okkar atvinnu-
líf og hagkerfi ef það færi svo að
fyrrgreindar þjóðir tækju innan tíð-
ar upp evruna.“ Síðar í umræðunni
tók Valgerður aftur til máls og
sagði hún að umræða um þessi mál
væri mikilvæg. „Mér finnst þetta
vera mál sem þarf að ræða...þ.e.
hvernig verður okkar hagsmunum
best borgið til lengri tíma litið, okk-
ar Íslendinga, og þá kemur alveg til
greina að mínu mati að ganga í Evr-
ópusambandið og taka upp evruna,
við útilokum það ekki fyrirfram, það
þarf bara að fara í þessa vinnu og
átta okkar á því hvernig okkar
hagsmunum er best borgið.“
Vextirnir ekki alltaf þeir sömu
Fleiri þingmenn blönduðu sér inn
í umræðuna og sagði Halldór Blön-
dal, þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, og forseti Alþingis, að vextir
væru alls ekki hinir sömu á öllu
evrusvæðinu. T.d. væru hærri vext-
ir í ýmsum litlum samfélögum en í
hinum stærri ríkjum eins og Ír-
landi. „Ég vil jafnframt vekja at-
hygli á því,“ sagði hann, „að þegar
horft er til langtímalána, t.d. hús-
næðislána í Frakklandi, þá eru þau
helst ekki nema til fimmtán ára og
með sjö og hálft prósent vöxtum en
ef við horfum á verðtryggð íslensk
lán þá eru þau t.d. húsbréf með
5,1% vöxtum. Og ef við tökum tillit
til affalla verða vextir rétt um 6%.
En verðbólgumarkmið Evrópusam-
bandsins eru 1,5% þannig að vext-
irnir yrðu þá hinir sömu nema sá er
munurinn að hægt er að fá lán til
miklu lengri tíma hér á landi til hús-
næðiskaupa heldur en t.d. í Frakk-
landi, þessu höfuðríki Evrópusam-
bandsins.“
Jóhanna Sigurðardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, hvatti
viðskiptaráðherra til að skrifa sem
mest á heimasíðu sína því þar
kæmu fram ýmis sannleikskorn.
„Ég hjó t.d. eftir því að þar kom
fram að ráðherranum lýst ekkert á
vaxtaokrið í þjóðfélaginu, sem hún
telur að sé að sliga heimili og at-
vinnulíf.“ Sagðist Jóhanna þarna
vera hjartanlega sammála Valgerði
Sverrisdóttur. „Og við sjáum það
bara núna hvað er að gerast þessa
dagana...bankarnir eru loksins að
druslast til að lækka þessa vexti um
0,25% bæði á innlánum og útlánum,
þannig að vaxtamunurinn er sá hinn
sami. Og þeir elta hverjir annan,
þannig að það er um 0,25% lækkun
að ræða hjá öllum bönkunum. Ég
spyr því hæstvirtan viðskiptaráð-
herra: telur hún nú ekki að það
þurfi að fara að láta Samkeppnis-
stofnun skoða betur bankakerfið og
fákeppnina sem þar ríkir vegna
þess að vaxtaokrið bitnar fyrst og
fremst á heimilunum og smærri fyr-
irtækjum en stóru fyrirtækin og
fyrirtækjablokkirnar geta leitað
með sínar lántökur erlendis?“
Össur Skarphéðinsson, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, benti á að
eftir að Valgerður hefði skrifað um
það á heimasíðu sinni að vextirnir
væru að sliga heimili landsins og at-
vinnulífið hefðu bankar lækkað
vextina. „Ég segi því: hæstvirtur
ráðherra á að skrifa sem oftast á
þessa heimasíðu sína.“ Össur sagði
síðan að staðreyndin væru sú að
„við værum stödd á sérkennilegu
skeiði“, eins og hann orðaði það,
„þar sem við þyrftum að vega það
og meta til frambúðar hvort okkur
takist með hagsmuni fólksins í land-
inu að leiðarljósi að halda krónunni.
En það er hreint ekki víst“. Síðan
sagði hann: „Sú umræða sem geisar
í landinu núna, innan Framsókn-
arflokksins, innan Vinstri grænna, á
flestum stöðum nema í Sjálfstæð-
isflokknum, hún brýst auðvitað
fram með réttmætum hætti á
heimasíðu hæstvirts ráðherra. Og
spurningin sem ráðherra viðskipta-
mála er að velta fyrir sér er einfald-
lega þessi: Ber okkur að taka upp
evruna og er það jákvætt fyrir ís-
lenskt viðskiptalíf? Og mér sýnist
að partur af hennar flokki hafi kom-
ist að þeirri niðurstöðu að svarið sé
já. Og þá verða þau líka einhvern
tíma að komast að niðurstöðu um
það sem því fylgir; flokkurinn verð-
ur þá að taka upp stefnu um að
ganga í Evrópusambandið, því ann-
ars getur draumur viðskiptaráð-
herra ekki orðið að veruleika.“
Sökuð um að veikja tiltrú
manna á íslensku krónunni
Morgunblaðið/Jim Smart
Þingmennirnir Lúðvík Bergvinsson og Einar Már Sigurðarson stinga saman nefjum í þingsal Alþingis.
ÖNNUR umræða um frumvarp
iðnaðarráðherra, Valgerðar
Sverrisdóttur, um virkjun Jök-
ulsár á Brú og Jökulsár í Fljóts-
dal og stækkun Kröfluvirkjunar
fór fram á Alþingi í gær. Frum-
varpinu er m.a. ætlað að afla
lagaheimilda fyrir Kárahnjúka-
virkjun og stækkun Kröfluvirkj-
unar vegna byggingar álvers á
Austurlandi. Áður en umræðan
hófst fóru þingmenn Vinstri-
hreyfingarinnar – græns fram-
boðs, fram á að umræðunni yrði
frestað a.m.k. þar til boðuð yf-
irlýsing iðnaðarráðherra og for-
svarsmanna Norsk Hydro yrði
kynnt en eins og fram hefur
komið í máli iðnaðarráðherra,
verður í yfirlýsingunni, leitast
við að eyða óvissu um byggingu
álvers í Reyðarfirði. Ekki var þó
orðið við þessari beiðni og hófst
umræðan um frumvarpið. Til
stóð að hún yrðu fram eftir degi
í gær og fram á kvöld en þar sem
Valgerður Sverrisdóttir iðnað-
arráðherra var ekki viðstödd
umræðuna um daginn fór Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður
VG, fram á að umræðunni yrði
frestað þar til ráðherra sæi sér
fært að vera við hana. Fór því
svo að umræðunni var frestað
síðdegis í gær en henni var fram
haldið um kvöldið. Stóð umræð-
an til kl. tíu en henni verður
fram haldið í dag enda margir
þingmenn á mælendaskrá.
Hjálmar Árnason, formaður
iðnaðarnefndar Alþingis, mælti
fyrir áliti meirihluta nefndarinn-
ar í gær en eins og fram hefur
komið í Morgunblaðinu mælist
meirihlutinn til þess að frum-
varpið verið samþykkt.
Bryndís Hlöðversdóttir og
Svanfríður Jónasdóttir, fulltrú-
ar Samfylkingarinnar í nefnd-
inni, rita þó undir meirihlutaálit
nefndarinnar með fyrirvara.
„Fulltrúar Samfylkingarinnar í
nefndinni styðja framkvæmdina
í trausti þess að áætlanir um
arðsemi framkvæmdarinnar
standist og að gripið verði til við-
eigandi ráðstafana til að tryggja
stöðugleika í efnahagslífinu...“
segja þingmennirnir í skriflegu
áliti iðnaðarnefndar. „Fyrirvar-
ar fulltrúa Samfylkingarinnar
lúta auk þess að verndun lands
norðan Vatnajökuls þannig að í
kjölfar virkjunar við Kára-
hnjúka verði ekki ráðist í frekari
framkvæmdir sem skaðað geti
dýrmætar náttúruperlur...“
Frumvarpi verði vísað frá
Árni Steinar Jóhannsson,
þingmaður Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs, stend-
ur einn að minnihlutaáliti iðnað-
arnefndar. Mælti hann fyrir því
áliti í umræðunni í gær. Leggur
hann til að frumvarpinu verði
vísað frá í ljósi þess að „allt er í
óvissu með framvindu Noral-
verkefnisins“, eins og segir í áliti
hans. Síðan segir í álitinu:
„...stórfelld umhverfisspjöll sem
af Kárahnjúkavirkjun hljótast
eru óverjandi, mikið skortir á að
arðsemi verkefnisins sé full-
nægjandi, deildar meiningar eru
um hvort verkefnið yrði jákvætt
fyrir byggðaþróun á Austur-
landi í heild þegar til lengri tíma
er litið og ólokið er gerð
rammaáætlunar um forgangs-
röðun virkjunarkosta...“ Fer
Árni Steinar því fram á að Al-
þingi samþykki að vísa málinu
frá og taka fyrir næsta mál á
dagskrá.
Frumvarp um
Kárahnjúkavirkjun
VG vill
vísa frum-
varpinu
frá
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði á Alþingi í gær að forsendur
dóms Hæstaréttar Íslands, um að
forsætisráðuneytinu bæri að veita
Öryrkjabandalagi Íslands aðgang að
minnisblaði sem fylgdi skipunarbréfi
starfshóps sem var skipaður í kjölfar
öryrkjadómsins svokallaða, væru
óljósar og mótsagnakenndar. Jafn-
framt sagði hann að stundum væri í
dómnum ekki rétt farið með stað-
reyndir. Kom þetta fram í máli for-
sætisráðherra í umræðu utandag-
skrár á Alþingi um fyrrgreindan
dóm Hæstaréttar en málshefjandi
umræðunnar var Ögmundur Jónas-
son, þingmaður Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs.
Eins og greint hefur verið frá í
Morgunblaðinu felldi umræddur
dómur Hæstaréttur úr gildi niður-
stöðu úrskurðarnefndar upplýsinga-
mála og sneri við dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur.
Í umræðunum í gær fögnuðu
stjórnarandstæðingar niðurstöðu
Hæstaréttar og Ögmundur Jónas-
son, spurðir forsætisráðherra m.a að
því hvaða lærdóm hann drægi af
dómnum. Davíð Oddsson tók fram í
svari sínu að umrætt minnisblað
hefði verið tekið saman fyrir ríkis-
stjórnina til að undirbúa umfjöllun
hennar um dóm Hæstaréttar Íslands
í öryrkjamálinu svonefnda. Sagði
forsætisráðherra að minnisblaðið
hefði þar með talist til þeirra gagna
sem nytu undanþágna, skv. upplýs-
ingalögum, þ.e. þyrfti ekki að birta
opinberlega þar sem um gögn rík-
isstjórnarinnar væri að ræða. „Rík-
isstjórnin hafði hins vegar á grund-
velli þessa minnisblaðs tekið
ákvörðun um að skipa starfshóp eða
nefnd til að fjalla um málið sem gera
ætti tillögu um það til sín hvernig
mæta ætti dómnum.“ Starfshópnum
hefði því verið sent minnisblaðið sem
hluta af stefnumörkun ríkisstjórnar-
innar. „Í máli því sem hér er til um-
ræðu var síðan deilt um það hvort
umrædd undanþága hefði við þessa
framsendingu minnisblaðsins fallið
niður eða hætt að eiga við.“ For-
sætisráðherra sagði að skv. viðtekn-
um skilningi á upplýsingalögunum,
bæði hér á landi og á hinum Norð-
urlöndunum, ætti undanþágan ein-
ungis að falla niður ef ríkisstjórnin
sjálf tæki um það ákvörðun eða falla
niður að tilteknum tíma liðnum.
„Hvorug þessara aðstæðna var hins
vegar fyrir hendi í þessu máli,“ sagði
hann. Hann sagði síðan að Hæsti-
réttur hefði á hinn bóginn „búið til
nýjar reglur“ í þessu máli eftir
„miklum krókaleiðum“. Nýju reglur
Hæstaréttar væru fólgnar í því að
undanþágan félli jafnframt niður ef
ekki væri sérstaklega tekið fram að
undanþágureglurnar ættu við um
mál sem ríkisstjórnin sendi áfram til
frekari meðferðar. Sagði hann að
Hæstiréttur hefðu jafnframt eytt
miklu púðri í að komast að þeirri nið-
urstöðu að verkefni nefndarinnar
hefði ekki verið liður í stefnumörkun
ríkisstjórnarinnar og að nefndin
teldist til aðila utan stjórnarráðsins
en væri ekki hluti af stjórnsýslu rík-
isins sjálfs. „Þetta er í grófum drátt-
um sú ályktun sem af dóminum verð-
ur dregin þótt ekki sé gott að átta sig
á umfangi hennar í öllum atriðum
vegna þess að forsendur dómsins eru
óljósar, mótsagnakenndar og stund-
um ekki rétt farið með staðreyndir,“
sagði ráðherra.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
Ekki farið rétt með staðreyndir