Morgunblaðið - 22.03.2002, Page 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 FÖSTUDAGUR 22. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HAGNAÐUR Granda hf. og dótt-
urfyrirtækis þess, Faxamjöls hf.
nam 410 milljónum í fyrra, en árið
2000 nam tapið 96 milljónum króna.
Skip Granda náðu að veiða um 8.400
tonn af úthafskarfa, eða nær alla út-
hlutun sína, en með meiri kostnaði,
þar sem verkfall sjómanna stóð yfir
á besta veiðitíma á úthafskarfa.
Hagnaður af sölu hlutabréfa í
Bakkavör Group hf. nam 558 millj-
ónum króna og kemur hann til frá-
dráttar fjármagnsgjöldum. Gengis-
tap samstæðunnar af erlendum
skuldum nam 1.034 milljónum króna
á árinu en var 573 milljónir króna
árið áður. Gengislækkun krónunnar
mun hafa jákvæð áhrif á útflutn-
ingstekjur Granda í framtíðinni.
Hlutdeildarfélögin eru fjögur. Þor-
móður rammi – Sæberg hf. var rekið
með tapi og hafði hækkun gengis-
vísitölunnar þar mikil áhrif. Hjá fyr-
irtækjunum í Mexíkó gekk rekst-
urinn illa, en hjá Deris í Chile var
hagnaður á árinu. Grandi eignaðist
31% hlut í Stofnfiski hf. á árinu og
er það nú talið með hlutdeildarfélög-
um. Fyrirtækið var rekið með hagn-
aði á árinu. Alls var hlutdeild
Granda í hlutdeildarfélögum nei-
kvæð um 85 milljónir króna, að því
er segir í tilkynningu til Verðbréfa-
þings Íslands.
Í mars 2001 gerði Grandi samning
um sölu á öllu hlutafé sínu í Bakka-
vör Group hf. og nam söluverðið um
911 milljónum króna. Salan fór fram
í áföngum og verður að fullu um
garð gengin á árinu 2002. Í apríl á
síðasta ári keypti Grandi hlutabréf í
Haraldi Böðvarssyni hf. fyrir um
480 milljónir króna og er eignarhlut-
urinn nú 19,6%.
Tillaga stjórnar að
greiddur verði 11% arður
Gerður var samningur um kaup
félagsins á frystitogaranum Venusi
HF 519 ásamt aflaheimildum sem
nema um 3.000 þorskígildistonnum.
Kaupverð skips og aflaheimilda nam
samtals 1.621 milljón króna. Einnig
var gerður samningur um sölu á
Snorra Sturlusyni RE 219 ásamt
veiðarfærum og aflaheimildum sem
nema 1.045 þorskígildistonnum.
Söluverð skips, veiðarfæra og afla-
heimilda nam samtals 878 milljónum
króna og er það greitt með hlutafé í
Ísfélagi Vestmannaeyja hf. Yfirtaka
eigna samkvæmt samningnum mið-
ast við janúarbyrjun 2002 og er því
ekki tekið tillit til þessara viðskipta í
ársreikningi 2001. Hagnaður af sölu
Snorra Sturlusonar nam um 85
milljónum króna.
Samstæðan mun ekki greiða
tekjuskatt vegna ársins 2001, þrátt
fyrir hagnað, vegna nýtingar skatta-
legs taps. Reiknaður tekjuskattur
miðað við 30% skatta nam 137 millj-
ónum króna og er hann lækkaður
um 60 milljónir króna vegna lækk-
unar tekjuskattshlutfalls úr 30% í
18%. Hreinn reiknaður tekjuskattur
er því 77 milljónir króna.
Stjórn Granda leggur til að
greiddur verði 11% arður á árinu
2002.
Staða Granda sterk
í sameiningarferli
Guðmundur Ragnarsson hjá
greiningardeild Búnaðarbankans
Verðbréfum segir uppgjör Granda
mjög í samræmi við spá greining-
ardeildar um afkomu. „Rekstur 4.
ársfjórðungs skilaði 446 m.kr. hagn-
aði fyrir afskriftir og fjármagnsliði
sem er 250 m.kr. meira en árið áður.
Framlegð eykst gríðarlega á 4. árs-
fjórðungi, sérstaklega í landvinnslu
þar sem hún fer úr 21% í tæp 37% á
milli ára. Þetta er með því hæsta
sem sést í greininni. Fjármuna-
myndun í félaginu er góð og veltufé
frá rekstri nær tvöfaldast á milli
ára.
Stór hluti aflaheimilda Granda er
karfi og kemur aukning heildarafla-
marks um 8 þús. tonn eða 14% á
fiskveiðiárinu því til góða fyrir fé-
lagið. Grandi skilar nú 63 kr. í veltu-
fé frá rekstri, á hvert kíló þorsk-
ígildis sem félagið hefur til ráð-
stöfunar, sem er 10% yfir meðallagi
fimm stærstu sjávarútvegsfyrir-
tækja á VÞÍ.
Við höfum verið að skoða stöðu
Granda í tengslum við sameiningar í
sjávarútvegi og sýnist að staða fé-
lagsins sé sterk í því ferli sem fram-
undan er, verði frumvarp sjávarút-
vegsráðherra um rýmkun á há-
marksaflahlutdeild samþykkt. Lík-
legt er að þrjár blokkir muni leiða
sameiningarferlið, Samherji, Eim-
skip og Grandi og félög tengd þeim.
Grandi á stóra eignarhluti í HB,
Þormóði ramma, Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar og Hraðfrystihúsinu
Gunnvöru og verður því væntanlega
í lykilstöðu.
Þá hefur félagið treyst rekstrar-
grundvöll sinn enn frekar með kaup-
um á togaranum Venusi ásamt veru-
legum aflaheimildum,“ sagði Guð-
mundur.
Veruleg umskipti
hjá Granda
2
1
$%%
+
./0
1
$,(""
+#%)*
+#(($
!
$"!
&!
*)+
&+
'
%&
'#("&
+#))!
"*!
++*
+",(-
(,)'
!,$-
!%*
$
$
"$
%$
!$
'#$
$
$
"$
$
%$
&$
'$
(
)*
*
)*
*
)*
*
(
% %%
(
SÁ ÁFANGI náðist í rekstri Íslands-
síma frá og með desember sl. að fast-
línustarfsemi fyrirtækisins skilaði
hagnaði fyrir afskriftir og fjármagns-
liði. Lykilmarkmið félagsins á yfir-
standandi ári er að skila hagnaði fyrir
afskriftir og fjármagnsliði af heildar-
starfseminni. Þetta kom fram á aðal-
fundi Íslandssíma í gær en það var sá
fyrsti sem haldinn var eftir að félagið
var opinberlega skráð.
Á fundinum kom einnig fram að
tæknilegri uppbyggingu Íslandssíma
hafi í aðalatriðum verið lokið á síðast-
liðnu ári og nú hafi markaðsuppbygg-
ing tekið við þar sem öll áhersla hvílir
á sölu og öflun meiri umferðar um
fjarskiptakerfi félagsins.
Páll Kr. Pálsson, stjórnarformaður
Íslandssíma, sagði sölustarf félagsins
hafa gengið vel á síðasta ári. Sagði
hann hlutdeild Íslandssíma í veltu á
fjarskiptamarkaði hafa vaxið úr 4%
árið 2000 í um 6,5% árið 2001 en ætla
megi að heildarveltan á fjarskipta-
markaðinum á síðasta ári hafi verið
ríflega 22 milljarðar og aukningin frá
árinu áður nemi rúmlega 2 milljörð-
um króna.
Páll sagði að í áætlunum Íslands-
síma fyrir árið 2002 væri gert ráð fyr-
ir 40–60% aukningu rekstrartekna
frá fyrra ári og að afkoma félagsins
fyrir afskriftir og fjármagnsliði 2002
verði um 10% af veltu ársins. „Þess er
því að vænta að verulegur viðsnún-
ingur verði í afkomu félagsins á þessu
ári frá því sem verið hefur og ríkir
mikill sóknarhugur og bjartsýni með-
al starfsmanna og stjórnar Íslands-
síma um framtíð félagsins.“
Fram kom í máli Páls að hann væri
enn sömu skoðunar og á síðasta aðal-
fundi félagsins að samruna væri að
vænta á íslenskum fjarskiptamark-
aði. Telur hann fjarskiptafyrirtæki
enn of mörg og að frekari samruni sé
æskilegur á yfirstandandi ári. Sagði
hann talsverð samlegðaráhrif hafa
orðið af sameiningum Íslandssíma við
Íslandssíma GSM og Títan og vonir
standi til þess að áhrifin verði enn
meiri á þessu ári.
Önnur leið í einkavæðingu Símans
Í umfjöllun um Landssímann,
helsta keppinaut Íslandssíma, sagði
Páll að nú þegar áformaðri leið einka-
væðingar Landssímans hefði verið
slegið á frest vaknaði spurningin um
hvort skoða ætti aðra leið í þeim efn-
um. „Í viðræðum fulltrúa Íslandssíma
við einkavæðingarnefnd, fyrir einka-
væðingu Landsímans, setti undirrit-
aður fram þá skoðun að ástæða væri
til að kanna betur þá leið að bjóða út
fastlínustarfsemina, farsímastarf-
semina og fjárfestingastarfsemina
sem aðskildar einingar og halda
grunnnetinu sér og jafnvel bjóða út
starfsemi þess í formi leigu til tiltek-
ins tíma. Þessi leið hefur að mínu mati
ýmsa kosti umfram heildarútboð á
öllu félaginu. Má þar fyrst nefna sam-
keppnissjónarmiðin. Einnig er hugs-
anlegt að þessi leið geti skilað hærri
fjárhæð í ríkissjóð eins og staðan á al-
þjóðlegum fjárfestingamarkaði í fjar-
skiptum er í dag.“
Páll sagði einnig mikilvægt sam-
keppninni að þjónusta Landssímans
væri ekki seld undir kostnaðarverði,
eins og vísbendingar væru um að gert
hefði verið. Sagði hann jafnframt að
vinnubrögð Landssímans væru ger-
samlega óþolandi vegna misbeitingar
hans á markaðsráðandi stöðu sinni.
Grundvallaratriði væri að fara að lög-
um og reglum og stjórnvöld yrðu að
stórefla eftirlitsaðila á borð við Póst-
og fjarskiptastofnun. Á þann hátt
yrðu hagsmunir neytenda og sam-
keppnisaðila best tryggðir.
Óskar Magnússon, forstjóri Ís-
landssíma, fjallaði einnig um sam-
keppnina í erindi sínu. Telur hann að
nú hljóti ríkið að hefja útboð á fjar-
skiptaþjónustu við ríkisstofnanir.
„Sáralítið hefur gerst í þeim efnum
hingað til enda eflaust verið að verja
verðmæti stóra bróður í söluferlinu.
Nú þegar fyrir liggur að ekki verði af
sölu í bráð hlýtur þjónusta ríkisins á
þessu sviði að verða boðin út.“
Þarf að standast freistingarnar
Óskar sagði mikilvægt að Íslands-
sími einbeitti sér að kjarnastarfsemi
sinni á komandi mánuðum. „Við meg-
um ekki láta skemmtileg tækifæri,
sem alltaf koma upp, afvegaleiða okk-
ur. Það er einfaldlega svo, að við höf-
um ekki efni á því að beygja neitt af
leið þótt tækifærin kunni að vera
freistandi. Einu freistingarnar sem
falla má fyrir eru þær sem samræm-
ast aðalstarfsemi okkar, annað verður
því miður að bíða. Í þessu skyni eig-
um við reyndar ónýtta heimild hlut-
hafafundar til aukningar hlutafjár um
100 milljónir að nafnverði.
Það var haft eftir mér fyrir fáeinum
dögum að við mundum ekki leita til
hluthafanna eftir frekara fé á þessu
ári. Þarna var reyndar heldur meira
sagt en ég sagði sjálfur en vissulega
er það mjög markviss stefna okkar að
þurfa ekki að grípa til þess ráðs enda
hafa hluthafar staðið mjög þétt við
bakið á félaginu og sett í það umtals-
vert fé eða um 3 milljarða króna á
mjög stuttum tíma.“
Stefán Héðinn stjórnarformaður
Páll Kr. Pálsson upplýsti á aðal-
fundinum að hann gæfi ekki kost á sér
til áframhaldandi stjórnarfor-
mennsku en hann situr þó áfram í
stjórn. Þær breytingar urðu á stjórn-
inni að Friðrik Jóhannsson var kosinn
í aðalstjórn félagsins og Eyþór Arn-
alds í varastjórn. Stefán Héðinn Stef-
ánsson tók við stjórnarformennsku.
Ákveðið var að þóknun stjórnar
yrði í formi hlutafjár í félaginu. Þókn-
un fyrir árið 2001–2002, sem greidd
var eftir aðalfundinn, var til almennra
stjórnarmanna 350 þúsund hlutir í Ís-
landssíma og formanns 700 þúsund
hlutir. Varamenn fengu 100 þúsund
hluti. Jafnframt var ákveðið að sami
háttur yrði á greiðslu þóknunar 2002–
2003 nema hvað varamenn fá 17,5
þúsund hluti fyrir hvern fund, þó
aldrei meira en nemur þóknun al-
menns stjórnarmanns. Hlutabréfin
verða afhent að loknum aðalfundi
2003.
Miðað við gengið 1,5 á hlutabréfum
Íslandssíma samsvarar greiðsla til al-
menns stjórnarmanns því 525 þúsund
króna stjórnarlaunum á ári eða tæp-
um 44 þúsund krónum á mánuði.
Fjarskiptafyrir-
tækin of mörg
Morgunblaðið/Ásdís
Páll Kr. Pálsson, fráfarandi stjórnarformaður Íslandssíma, telur ástæðu til
að kanna betur þá leið að bjóða út fastlínu-, farsíma- og fjárfestinga-
starfsemi Landssíma Íslands sem aðskildar einingar.