Morgunblaðið - 22.03.2002, Page 29
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2002 29
MIKIÐ mótunar-
starf á sér stað um
þessar mundir í
menntamálum. Hið
hagnýta gildi mennt-
unar er stöðugt að
koma betur í ljós og
þekkingariðnaður er
að rísa upp á sviði
hönnunar, tækni og
vísinda. Á Alþingi
liggja fyrir þrjú frum-
vörp um nýskipan vís-
inda- og tæknimála, og
í vikunni (föstud. 22.3.)
fer fram ráðstefnan
Konur í vísindum. Inn-
an háskólakerfisins
fara fram harðar um-
ræður um mismunun hópa og fag-
greina í framgangi og styrkjum, en
grunnur þeirra átaka verður rædd-
ur í þessari grein.
Vissustefnan:
Sögulegur uppruni
Menningar- og vísindastefna nú-
tímans á sér grunn í þeirri hug-
myndafræðilegu byltingu sem átti
sér stað í vestrænum vísindum á
síð-miðöldum. Þrír af öflugustu
mótendunum eru taldir vera New-
ton, Bacon og Descartes.
Sú vísindastefna sem þá varð til,
er á erlendum málum nefnd pósitíf-
ismi. Ensk-íslensk orðabók (Ö&Ö)
skilgreinir hugtakið þannig „...
raunhyggja, raunspeki, vissustefna,
pósitífismi, heimspekikenning (sem)
... hafnar allri frumspeki og vill að-
eins byggja á rannsóknaraðferðum
raunvísinda“.
Þessi vísindastefna hefur leitt til
þess, að huglægir og þverfaglegir
þættir, sem erfitt er að mæla, hafa
átt mjög erfitt uppdráttar innan nú-
tíma vísinda, og fer stöðugt versn-
andi. Um allan heim geisar nú
styrjöld þar sem menn berjast gegn
því að láta þessa vélrænu hugsun
ná yfirhöndinni innan háskóla og
styrkjakerfa. Er t.d. skeleggur mál-
flutningur Paul Feyerabend þekkt-
ur í þessu sambandi.
Ísland er á eftir
Eins og svo oft er með lítil lönd,
berast erlendar þróanir þangað
seinna. Hin stranga hólfun í fag-
deildir er þannig t.d.
meira ríkjandi innan
HÍ en víða annars
staðar, jafnvel þó að
menn viti að flest við-
fangsefni samfélagsins
eru þverfagleg, og ef
menn ætla sér að
koma þar til hjálpar
verður að móta um
það þverfagleg verk-
efni, sem vissufræð-
ingum mörgum þykja
oft æði ómerkileg.
Líklega er það
vegna óöryggis og
minnimáttarkenndar
hins smáa sem menn
hér á landi reyna að
hengja sig á það, sem er klippt og
skorið, og hægt að mæla.
Sinnum íslenskum
verkefnum
Í lögunum um Háskóla Íslands
segir í 1. grein um hlutverk skól-
ans, að hann eigi að „veita þjóð-
félaginu þjónustu í krafti þekkingar
sinnar“.
Þessu ákvæði er oft flaggað þeg-
ar beðið er um auknar fjárhæðir
eða bætta aðstöðu, jafnvel þótt
pósitífisminn, sem miðar frekar að
því að þjóna alþjóða vísindasam-
félaginu en Íslandi, hafi orðið ofan á
í allri helstu stefnumótun um há-
skólastarfið.
Þetta kemur t.d. fram í því að í
matsreglum Kjaranefndar eru ein-
ungis gefin 5 stig fyrir ritrýnda
grein í innlendu tímariti en 15 í er-
lendum. Krafan um ritrýningu er
svo kapítuli út af fyrir sig og þekkja
menn það ekki að inngrónir aka-
demíkar hafa oft staðið á móti birt-
ingu á frumlegum hugmyndum og
orðið seinni til að skilja þær en aðr-
ir?
Þær íslensku faggreinar sem
hafa ekki ritrýnd tímarit hér á
landi, greinar eins og t.d. arkitektúr
og skipulag, koma sérstaklega illa
út úr ritrýningarkröfunni. Í þessum
greinum eru dagblöð oft eini rétti
vettvangurinn, ef þessar faggreinar
vilja hafa það að markmiði að þjóna
þörfum þjóðfélagsins. Samkvæmt
reglum Kjaradóms má engin stig
gefa fyrir slíkar greinar, og er þar
Lesb. Mbl. sérstaklega nefnd, sem
þó til skamms tíma var virkur vett-
vangur þessarar umræðu.
Við kennslu sína í skipulagsfræði
í Háskólanum þarf undirritaður að
miðla fræðilegri þekkingu sinni, en
ekki síður reynslu af vinnu við
skipulagsverkefni. Samt fær hann
ekki einn einasta punkt í matskerf-
inu fyrir þau, sem laun, vinnumat,
framgangur og styrkmöguleikar
miðast þó einnig við. Þannig er
einnig með marga aðra þá reynslu,
sem menn flytja með sér inn í há-
skólana úr þjóðfélaginu; hún er að
engu metin í hinu pósitífíska og vél-
ræna matskerfi.
Hin kvenlegu fög í háskólanum,
eins og t.d. hjúkrunarfræði, ljós-
móðurfræði og sjúkraþjálfun, koma
mjög illa út úr þessu kerfi, enda
sitja konurnar flestar alla tíð í
lægstu launa- og framgangsþrep-
unum. Einnig eiga þær erfitt með
að fá laun úr Vinnumatssjóði og fé
til rannsókna.
Starfsemi
vísindasjóðanna
Úthlutunarreglur vísindasjóð-
anna eru mótaðar af grunnreglum
vissufræðanna; þar hefur það for-
gang sem hægt er að mæla með
vissu, hefur á sér stíft vísindalegt
snið og er auðvelt að skilgreina í
smáatriðum. Augljóst er að þetta
nýtist vel umsækjendum í þröngum
sérsviðum, en þeir sem vinna með
þverfagleg- eða hönnunarverkefni,
eiga mjög erfitt með að fá styrk úr
þessum sjóðum. Enda gerist það
sárasjaldan, bæði hjá Rannsóknar-
sjóði HÍ og Rannís.
Nú má spyrja: Hvers vegna læt-
ur fagfólk í þverfaglegum greinum
þetta viðgangast? Svarið er, að
pósitífistarnir hafa haft yfirhöndina
í mótun reglnanna um þessa sjóði
og telja sig sjálfkjörna til setu í út-
hlutunarnefndunum því fræðilegi
þátturinn í starfi þeirra er að jafn-
aði meiri en hinna.
Ný lagafrumvörp
Nýlega voru lögð fram á Alþingi
þrjú frumvörp um nýskipan vís-
inda- og tæknimála á Íslandi. Þar
er um mörg merk nýmæli að ræða,
t.d. verður ofríki harðlínuvísinda-
manna gagnvart hagnýtri tækni
minnkað, með því að þessir tveir
þættir verða aðgreindir.
Eftir sem áður er þó ljóst, að
þverfaglegar greinar, á borð við
hönnun og skipulag, munu áfram
eiga mjög erfitt uppdráttar innan
þessa lagaramma, ef breytingar
verða ekki gerðar.
Opinberir aðilar hafa þó á síðustu
misserum verið að öðlast aukinn
skilning á mikilvægi skipulags og
hönnunar fyrir íslenskt samfélag og
atvinnulíf. Kemur þetta m.a. fram í
stofnun Borgarfræðaseturs HÍ og
Reykjavíkur, upphafi BS-náms í
umhverfisskipulagi á Hvanneyri
haustið 2001, upphafi náms í arki-
tektúr við LHÍ næsta haust og
styrkingu skipulagsfræði innan HÍ.
Ef þetta akademíska starf á að
ná að blómstra, verður Alþingi að
sjá til þess að nýju lögin um vísindi
og tækni búi til leið framhjá vissu-
fræðingunum, t.d. með stofnun sér-
stakrar sjóðdeildar og fagráðs fyrir
hönnun og skipulag.
Harðlínustefna
í menntum á Íslandi
Trausti
Valsson
Mennt
Huglægir og þverfag-
legir þættir, segir
Trausti Valsson, hafa
átt mjög erfitt upp-
dráttar innan nútíma
vísinda.
Höfundur er prófessor í skipulags-
fræði við HÍ.
EINS og kunnugt er
birtu Samtök iðnaðar-
ins nýverið Gallup-
könnun sem samtökin
létu gera þar sem fram
kom að 91% lands-
manna vilja að Ísland
hefji samningaviðræður
við Evrópusambandið
um aðild að samband-
inu. Í sömu könnun kom
fram að um 52% lands-
manna telja að Ísland
eigi að ganga inn í Evr-
ópusambandið. Niður-
stöður þessarar könn-
unar hafa ekki aðeins
vakið athygli innan
lands heldur hafa tíð-
indin borist til Noregs og hleypt nýju
lífi í Evrópuumræðuna þar í landi, því
Norðmenn átta sig á því að verði Ís-
lendingar til þess að sækja um aðild
að ESB á undan þeim, geti það gert
stöðu þeirra mun flóknari gagnvart
sambandinu.
Hræðsluáróðurinn
virkar ekki
Niðurstaða könnunarinnar hlýtur
að vera reiðarslag fyrir þá sem hafa
haft uppi þann málflutning að aðild að
ESB sé óhugsandi fyrir Íslendinga,
þjóðin er greinilega á allt annarri
skoðun. Málstaður þeirra sem hafa
fullyrt að með aðild að ESB myndi Ís-
land missa fullveldið, missa sjálf-
stjórn í efnahags- og sjávarútvegs-
málum, verða leppríki í ríkjablokkinni
– hann hefur ekki náð eyrum fólks.
Og viðbrögð forkólfa nei-manna á Ís-
landi hafa ekki látið á sér standa. For-
maður vinstrigrænna lét að því liggja
í Kastljóssþætti að þeir sem vildu inn
í ESB hefðu beitt þjóðina bellibrögð-
um með því að telja henni trú um að
menn gætu bara prófað að sækja um
og hætt svo við, annaðhvort sæktu
menn um af alvöru eða ekki! Eins og
einhver hefði haldið öðru fram. En
það verður líklega að skoða þessa
framsetningu í ljósi þess að rökþrota
menn grípa til margvíslegra ráða.
Aðferð Davíðs ósmekkleg
En þó keyra viðbrögð Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra í frétt-
um nýverið fram úr öllu velsæmi. Þar
ræðst forsætisráðherra með ótrúlega
ósmekklegum hætti að
Samtökum iðnaðarins,
boðbera tíðindanna sem
staðfesta að þjóðin
hafnar röksemdum for-
sætisráðherra í Evr-
ópumálunum. Og það
verður að segjast eins
og er að aðferð ráð-
herrans er ótrúleg þeg-
ar hann heldur því fram
að fyrirkomulag á inn-
heimtu iðnaðarmála-
gjalds sé líklega ólög-
leg. Hvernig getur
ráðherra rökstutt það
að gjald sem skv. lögum
frá Alþingi er innheimt
af tiltekinni atvinnu-
grein, sem hann greiddi sjálfur at-
kvæði sitt á sínum tíma, sem skv.
dómi Hæstaréttar frá 1998 stenst
fyllilega stjórnarskrá og alþjóða-
samninga – sé ólögmætt?
Davíð skuldar Alþingi, þjóðinni og
ekki síst Samtökum iðnaðarins skýr-
ingu á þessu frumhlaupi sínu, að ekki
sé nú minnst á skilaboðin sem felast í
aðdróttuninni sem slíkri, að efast um
lagagrundvöll gjaldsins um leið og
skilaboðin eru send samtökunum um
Evrópusambandsumræðuna. For-
sætisráðherra hefði kannski verið
hollara að beita meiri rökvísi og mál-
efnalegri framsetningu í umræðunni
um aðild að Evrópusambandinu.
Hver veit nema málstaður hans ætti
þá meira fylgi meðal landsmanna.
Ráð rökþrota
manna
Bryndís
Hlöðversdóttir
Höfundur er formaður þingflokks
Samfylkingarinnar.
ESB
Forsætisráðherra hefði
kannski verið hollara,
segir Bryndís Hlöðvers-
dóttir, að beita meir
rökvísi og málefnalegri
framsetningu í um-
ræðunni um aðild að
Evrópusambandinu.
ÁHUGAVERÐAR
umræður fara nú fram í
Svíþjóð um kosti þess
og galla fyrir Svía að
taka upp evru og gang-
ast undir reglur mynt-
bandalagsins og vald
evrópska Seðlabankans
að fullu. Líkt og í tilviki
Danmerkur áður hafa
skýrslur og úttektir
ýmissa óháðra hag-
fræðinga í Svíþjóð sýnt
að frá efnahagslegu
sjónarmiði séð hafi það
ekki síður mikla ókosti
en kosti í för með sér
fyrir Svía að taka upp
evru. Málið sé því meira pólitískt en
efnahagslegt. Spurningin sé einfald-
lega sú hvort Svíar vilji vera með á
öllum sviðum hins efnahagslega og
pólitíska samruna af pólitískum
ástæðum, þó það hafi ýmsar fórnir í
för með sér.
Rök hagfræðinga gegn því að Sví-
ar taki upp evru hljóma kunnuglega.
Hagsveiflur í Svíþjóð eru ekki endi-
lega í takt við gang mála í hinu stóra
hagkerfi á meginlandi Evrópu. Með
sjálfstæðri peningamálastefnu, eigin
vaxtaákvörðunum og sjálfstæðri
gengisskráningu eru stjórntæki til
staðar til að takast á við hagsveiflur
og tryggja stöðugleika á vinnumark-
aði. Ef Svíþjóð gengur í myntbanda-
lagið, gengst undir peningamála- og
vaxtastefnu Evrópska
Seðlabankans og tekur
upp evru þá tapast öll
þessi stjórntæki úr
landi. Hagsveiflur
munu því hafa tilhneig-
ingu til að leita beint út í
atvinnustigið og búast
má við miklu meiri
sveiflum á vinnumark-
aði.
Boðar andstöðu
Nú síðast hafa fréttir
borist af því að sænsku
verkalýðssamtökin með
sænska Alþýðusam-
bandið í broddi fylking-
ar boði harða andstöðu við það að Sví-
ar taki upp evruna nema komið verði
á fót gríðarmiklum innlendum jöfn-
unarsjóðum til að tryggja stöðug-
leika á vinnumarkaði. LO telur að
slíkir sjóðir þyrftu að vera 75–100
milljarðar sænskra króna eða 3–4%
af landsframleiðslu. Sambærileg tala
íslensk yrði nálægt 25–30 milljörðum.
Þessir fjármunir yrðu notaðir til að
greiða niður launatengdan kostnað á
tímum niðursveiflna í efnahagslífinu
til að forðast fjöldaatvinnuleysi sem
ella væri hætta á. Sjóðirnir yrðu svo
byggðir upp aftur þegar betur áraði.
Þess má geta að Finnar, sem þegar
eru með í myntbandalaginu, hafa
sveiflujöfnunarsjóði að vísu mun
minni að vöxtum en þá sem nú er
rætt um í Svíþjóð. Þessi umræða er
athyglisverð og ætti ekki síst að
vekja þá forsvarsmenn verkalýðs-
hreyfingarinnar hér á landi til um-
hugsunar, sem gert hafa mestar gæl-
ur við Evrópusambandsaðild. Sé
ástæða til að hafa áhyggjur af því að
hið iðnvædda og rótgróna hagkerfi
Svíþjóðar sveiflist öðruvísi en evru-
hagkerfið á meginlandinu, hvað má
þá segja um hið íslenska, grundvallað
að verulegu leyti á þorski? Ef engin
sjálfstæð stjórntæki eru skilin eftir
til hagstjórnar í landi þar sem efna-
hagssveiflur orsakast að meira eða
minna leyti af staðbundnum þáttum
og enginn viðbúnaður uppi hafður að
öðru leyti er það atvinnustigið sem
lætur undan og sveiflurnar leita út-
rásar á vinnumarkaði.
Markmiðunum um fulla atvinnu og
stöðugleika á vinnumarkaði yrði
þannig fórnað á altarið í Brussel.
Evran og atvinnuleysið
Steingrímur J.
Sigfússon
Höfundur er formaður Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs og sit-
ur í utanríkismálanefnd.
ESB
Búast má við, segir
Steingrímur J. Sigfús-
son, miklu meiri sveifl-
um á vinnumarkaði.
KLUKKUR
Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699
Stimpil
Vefsíða: www.oba.is