Morgunblaðið - 22.03.2002, Qupperneq 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2002 39
✝ Sveinn Björns-son fæddist á Fá-
skrúðsfirði 13. ágúst
1938. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi miðviku-
daginn 6. mars síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru hjónin
Björn Ingi Stefáns-
son, f. 10. nóvember
1908, d. 31. janúar
2000, og Þórunn
Sveinsdóttir, f. 12.
desember 1913, d. 1.
ágúst 1999. Systkini
Sveins eru: 1) Stefán
sölumaður, f. 28. október 1934,
kvæntur Gyðu Guðbjörnsdóttur
skrifstofumanni. 2) Helga versl-
unarmaður, f. 2. febrúar 1937,
gift Stefáni Ágústssyni iðnrek-
anda. 3) Örn útibússtjóri, f. 9.
apríl 1943, kvæntur Þórdísi Vil-
hjálmsdóttur snyrtifræðingi. 4)
Jón verslunarmaður, f. 15. jan-
úar 1949, kvæntur
Svönu Júlíusdóttur.
5) Þórdís, snyrti-
fræðingur og mót-
tökuritari, f. 19. jan-
úar 1950, í sambúð
með Stefáni Sæ-
mundssyni flug-
manni. Systkina-
börn Sveins og
afkomendur þeirra
eru 51 talsins.
Sveinn átti heima
á Fáskrúðsfirði
fyrstu æviárin en
flutti með foreldr-
um sínum til
Reykjavíkur árið 1946. Hann var
vistmaður á Sólheimum í Gríms-
nesi um tólf ára skeið en frá 1965
var hann til heimilis á sambýlinu
í Kópavogi, síðustu árin í „Hús-
inu“, Kópavogsbraut 9.
Útför Sveins fer fram frá
Kópavogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Af og til stöndum við frammi fyrir
því óumflýjanlega. Ástvinur er í burtu
kvaddur. Það er eitt af því óhjá-
kvæmilega í þessu lífi. Á þeim stund-
um fara ótal minningar með leiftur-
hraða gegnum hugann.
Ég á erfitt með að lýsa tilfinningum
mínum þegar ég nú kveð vin minn og
mág Svein Björnsson, Svenna, sem
vegna fötlunar sinnar varð ekki sá
þátttakandi í mannlegu samfélagi
sem við hin erum flest. En kannske
var hann öfundsverður af því að vera
ekki sér jafnmeðvitandi um allt sem
gerist í kringum okkur hin.
Það fyrsta sem í hugann kemur í
minningunni um Svenna er hinn óum-
ræðilegi og fölskvalausi kærleikur
sem hann bar til allra og sýndi öllum
sem í nærveru hans voru. Í fyrsta Jó-
hannasarbréfi Biblíunnar segir að
kærleikurinn sé frá Guði kominn og
hver sem elski sé af Guði fæddur og
þekki Guð. Þessu trúum við sem
þekktum Svenna. Fyrir stuttu heyrði
ég sagt um hann að ef allir væru eins
og hann væri heimurinn betri. Svenni
var vinmargur enda afvopnaði hann
alla með kærleika sínum, hlýju og
þakklæti sem hann var fljótur að sýna
væri eitthvað fyrir hann gert.
Ég met það sem viss forréttindi að
hafa kynnst og umgengist Svenna,
það var svo margt í fari hans og við-
móti sem hægt var að taka til fyr-
irmyndar. Hann var oft gestur á
heimili okkar Helgu og svo sannar-
lega aufúsugestur. Ég minnist nýárs-
dags sl. er ég sótti hann og áttum við
þrjú góða dagstund saman. Og fyrir
nokkru kom hann í heimsókn ásamt
félögum sínum í Húsinu við Kópa-
vogsbraut og starfsstúlkum. Af því
tilefni eigum við nokkrar ljósmyndir.
Svenni hafði ekki áhyggjur af ver-
aldarvafstri og er ekki laust við að ég
hafi öfundað hann af því. Mér er einn-
ig mjög í minni sú umhyggja og atlæti
sem foreldrar hans ávallt sýndu hon-
um og hann kunni svo vel að meta
enda fundum við vel hvað hann sakn-
aði þeirra þótt um það væri hann allt-
af fáorður, en hann hafði þann ein-
stæða hæfileika að geta ýtt út úr
umræðunni öllu sem honum fannst
erfitt eða leiðinlegt. Ég gat ekki ann-
að en dáðst að því hve hann var snjall
og fljótur að beina umræðum inn á
nýjar og jákvæðar brautir ef eitthvað
bar á góma sem honum var ekki að
skapi.
En nú er komið að leiðarlokum og
ég trúi því að Svenni hafi nú samein-
ast foreldrum sínum að nýju.
Ekki verður skilið við þessa grein
án þess að minnast þeirrar alúðar og
umhyggju sem systkini hans öll sem
eitt ávallt sýndu honum og hann mat
svo mikils. Hafðu þakkir fyrir allt
Svenni og farðu í Guðs friði.
Stefán Ágústsson.
Sveinn Börnsson var þriðja barn
þeirra hjóna Björns Inga Stefánsson-
ar kaupfélagsstjóra á Fáskrúðsfirði
og konu hans Þórunnar Sveinsdóttur.
Eldri systkini Sveins eru Stefán og
Helga, en hin yngri Örn, Jón og Þór-
dís. Sumarið 1946 flutti fjölskyldan að
austan til Reykjavíkur. Foreldrar
Sveins eru bæði látin, Þórunn and-
aðist sumarið 1999 en Björn í janúar
árið 2000.
Fyrstu ár Sveins austur á Fá-
skrúðsfirði eru þeim sem þessar línur
ritar minnisstæð. Hvorutveggja er að
byggðarlagið var ekki fjölmennt, svo
og hitt að ég var að miklu leyti heima-
gangur á heimili Björns og Þórunnar.
Mun það einkum hafa verið vegna
jafns aldur míns og Stefáns að við
héldum okkur mikið saman við leiki,
sem einkenndust mjög af störfum
þeim í atvinnulífinu sem við töldum
okkur þekkja til. Sveinn tók þátt í
umsýslunni með okkur eftir því sem
efni stóðu til, en takmarkaðist einkum
af aldursmun þótt ekki væri hann
mikill.
Á fyrstu æviárum Sveins fór að
bera á því að hann mundi ekki ná full-
um þroska sem svo er kallað. Andleg
vanheilsa hans hefur eflaust verið
nánasta fólki hans mikið áhyggjuefni.
Ég er ekki grunlaus um að ástæða
þess að foreldrar hans fluttu suður til
Reykjavíkur hafi að hluta til verið sú,
að vera nær læknum ef efla mætti
heilsu hans að þessu leyti.
Til fyrirmyndar var hve foreldar-
arnir létu sér annt um velferð hans í
hvívetna og systkinin eftir að þau
féllu frá. Fyrstu áratugina bjó Sveinn
alfarið í foreldrahúsum en síðar að
nokkru leyti á stofnunum fyrir ör-
yrkja. Má þar nefna Sólheima í
Grímsnesi og sambýli Landspítalans í
Kópavogi. Það heyrði þó til undan-
tekninga ef Sveinn var ekki heima hjá
foreldrum sínum um helgar og hátíð-
isdaga. Að sumrinu til dvaldi hann
einnig í sumarbústaðnum við Þing-
vallavatn þar sem hann undi hag sín-
um vel í kyrrð og fegurð íslenskrar
náttúru og fór gjarnan í gönguferðir
einn, eða í hópi félaga. Bústaðurinn
var seldur þegar eigendurnir fundu
fyrir hárri elli. Þetta skildi Sveinn
ekki nógu vel og lét í ljósi vanþóknun
á því að geta ekki dvalið þar eins og
verið hafði.
Þótt Sveinn væri að vissu leyti
hnepptur í fjötra og skorti sumt af því
sem aðrir hafa, bætti hann það upp
með öðru. Aldrei sást hann skipta
skapi þannig að hann væri argur.
Hann var sífellt með bros á vör og í
vinahópi lék hann á als oddi.
Eitt atvik er mér öðru fremur
minnisstætt, en það var er við hitt-
umst óvænt á Hornafirði. Sveinn var
þar á ferðalagi ásamt félögum sínum.
Við rákumst hvor á annan á hótelinu
og borðuðum við sama borð. Á þetta
minntist hann ævinlega er leiðir okk-
ar lágu síðar saman.
Næstsíðast frétti ég af Sveini á
jólasamkomu hjá þeim fyrirmyndar-
og mannræktarsamtökum Félagi
austfirskra kvenna. Þarna var hann í
fylgd tveggja systra sinna. Mér þykir
ljóst að áður fyrr hafi hann verið
kunnugur á þessum slóðum í fylgd
foreldra sinna sem á dvalartíma
þeirra fyrir austan og alla tíð síðan
sýndu Austfirðingum og málefnum
þeirra sérstaka ræktarsemi.
Fyrir fáum dögum barst mér and-
látsfregnin.
Sveinn var dvalarmaður á sambýli
Landspítalans í Kópavogi. Þar naut
hann frelsis framyfir suma aðra.
Hann átti það til að fara í gönguferðir,
en gerði sér oft ekki grein fyrir tíma-
mun dags og nætur. Morgun einn lá
hann mjaðmagrindarbrotinn í rúmi
sínu.
Hann gekkst undir aðgerð á
sjúkrahúsi. Þetta reyndist honum of-
raun.
Með þessum fátæklegu orðum
kveð ég Svein vin minn og óska hon-
um velfarnaðar í nýjum heimkynnum
þar sem hann dvelur meðal vina sinna
frjáls eins og fuglinn fljúgandi.
Systkinum hans og öðrum aðstand-
endum votta ég mína dýpstu samúð.
Ágúst Karlsson.
Þegar ég með söknuði kveð ein-
stakan dreng, hann Svenna, kemur
mér margt til hugar. Og þá helst
þakklæti fyrir þau forréttindi að hafa
fengið að kynnast þessum öðlingi.
Það má segja að þegar Svenni var
annars vegar voru erfiðleikar og
vandamál dagsins hjóm eitt og við-
kvæðið hjá honum ávallt hið sama:
„Þetta er allt í lagi elskan mín.“ Allt
hjá Svenna var svo gaman og gott að
það gat ekki annað en smitað út frá
sér. Það þurfti mjög lítið til að gera
góðan dag fullkominn í lífi Svenna.
Stuttur bíltúr, súkkulaðibolli með
rjóma, kleinur eða tertur eins og
mamma bakaði. Eða smá hundagæl-
ur. Meira þurfti ekki til og Svenni
ljómaði eins og hann ætti heiminn.
Ég held ég megi segja að það hafi
verið einstakt hvað hugsað var vel um
Svenna af hans fjölskyldu þar sem
Björn og Þórunn fóru fyrir með ein-
stökum kærleika og ræktarsemi og
síðustu árin í „Litla húsinu“, eins og
við kölluðum það á Kópavogsbraut,
þar sem Svenna leið sérstaklega vel.
En núna er Svenni kominn þangað
sem honum ávallt leið best, til
mömmu og pabba.
Ég kveð þig, elsku Svenni minn,
með þessum fátæklegu orðum og bið
guð að varðveita þig og blessa minn-
ingu þína.
„Oddný, sonur hennar Helgu.“
Oddný Halldórsdóttir.
Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann allsherjardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla stund
sem aldrei mun hverfa úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund.
Það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Guðni Þorleifsson.)
Elsku Svenni. Þegar við hugsum
um stundir okkar saman, kemur
strax í hug brosið þitt og ljúf-
mennska. Þú varst alltaf kátur og
stutt í glettnina hjá þér. Þau voru ófá
skiptin sem við sátum saman, spjöll-
uðum og hlógum. Eins fannst þér, nú
mjög gott að sitja inni hjá þér og
spila.
Það var eins og þú vissir þegar
gesta var von, þá talaðirðu um það að
Helga systir eða Stefán bróðir væru
að koma. Oftar en ekki stóðst það og
varð þá að hella upp á kaffi, ekki var
það nú verra ef eitthvert meðlæti var
með. Þú tókst það ekki í mál að nokk-
ur færi án kaffisopans. Þú naust þess
að hafa fólk í kringum þig og þá sér-
staklega systkini þín og fjölskyldu.
Ekkert vissir þú skemmtilegra en að
vera í mannfagnaði. Kemur þá strax
upp í hugann, þegar við fórum á jóla-
hlaðborðið á Broadway og Rolling
Stones sýninguna, þar varst þú í ess-
inu þínu og vildir helst ekki fara heim.
Guð geymi þig.
Við starfsfólkið í Húsinu vottum
systkinum og öðrum aðstandendum
samúð okkar.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
Auður, Birna, Hrafnhildur,
Kolbrún og Ólöf.
SVEINN
BJÖRNSSON ( )
'
30-=3/C
D! ! "B
*
3
* 4
.4
5 * &
-
*
3
6 # %
%
3 8 %
) %
!() %
%()
( ()
$ ( ( () &
( )
=
3
=6':0:0
!+$ >>
$ (D
" .4
*
*
4
.4
#@ !!!%#
. ' %#
()
%() $ ( () &
*
7
7
#
+ &#& + "
"
A6-.A.0.000.:0 &+55 #
1%%
.-
+
3-%
" !5+ A %#
AE AF $
' AF %#
#*# $
!AF $
AF3 !AF $
/ !($ *# %#
!5+
AF3 !
% 1
+
$ . # &
/ "
"
"
=
=0.&=
=0:0
GH
$
,
*
2
..
@I
&!@ % $
*# 8 %#
!8 !@ % %#
6 :&!@ % $
# !@ % %#
%#6 $
!@ %!@ % %#
8 ' $
( () $ ( ( () &
*
)
+
00=
! #
1 5 @
8
*
,&
*
2
.9
/$%
%
$ @@
$ () &