Morgunblaðið - 24.03.2002, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.03.2002, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ Stuðningskennsla í þýsku fyrir framhaldsskólanema Tími: föstudaga kl. 17.30-19.00 og sunnudaga kl. 12.00-13.30, alls 16 stundir Staður: Goethe-Zentrum, Laugavegi 18, 3. hæð Kennari: Guðmundur V. Karlsson Verð: Kr. 14.000 Kennsla hefst föstudaginn 5. apríl kl. 17.30. Hámarksþátttakendafjöldi: 12. Þátttökutilkynningar í síma 551 6061 (þriðjud.-föstud. kl. 15-18, laugard. kl. 14-17) og á netfanginu goethe@simnet.is. Í GOETHE-ZENTRUMNám í meðferð á íslenskum blómadropumog þjálfun blómadropaþerapista Áfangi I, 13.-14. apríl Kennt verður um íslenska blómadropa og verkan þeirra. Hvernig velja á blómadropa fyrir einstaklinga. Tengingu þeirra við orkustöðvarnar og hvernig þeir ryðja burt hindrunum. Samhengi tilfinninga og hegðunar. Kennd verður pendulering. Kundalini innsetning. Heimaverkefni. Áfangi II, 3.–5. maí Kennt verður um orkustöðvarnar og eiginleika þeirra. Hvernig blómadropar notast sem meðferðartæki. Kenndar verða að ferðir til að vinna með hugform, tilfinningar og hvernig þær breyta staðnaðri orku í visku, flæði og frelsi. Hvernig blómadroparnir styðja aukna meðvitund um hver við erum og hvernig þeir styðja okkur áfram á leið hugljómunar og umbreytingar. Heimaverkefni. Veitt verða viðurkenningarskjöl í námskeiðslok frá Kristbjörgu og The Universal Peace Foundation. Nánari upplýsingar veitir Kristbjörg Kristmundsdóttir í síma: 861 1373 eða í tölvupósti: avanika@simnet.is Vitund I Íslenskir blómadropar Kristbjargar með þyrluspaða. Mér var í framhaldi af þessu boðin vinna hjá Sikorsky-verk- smiðjunum í Bandaríkj- unum og hóf þar störf árið 1955 og starfaði þar í eitt og hálft ár. Ég fór með ósköp lélegt módel sem drifið var áfram með teygjuafli og sýndi það sjálfum Sikorsky og nokkrum af hans helstu mönnum. Ég var svo heppinn að þetta lán- aðist mjög vel, módelið tók sig fal- lega upp, lóðrétt, flaug og lenti al- veg rétt á gólfinu dálítið frá. Þá byrjuðu þeir að bjóða mér peninga í þetta, byrjuðu með 300 dollara en ég var eins og Rússarnir, ég sagði nei. Þá buðu þeir 600 doll- ara og ég neitaði aftur. Svo voru boðnir 900 dollarar og enn neitaði Íslendingurinn Einar Einarsson vélstjóri var á flugsýningunni í Farn- borough vorið 1967. Hann hafði smíðað flugmódel sem hann hefur sótt um einkaleyfi á og segir hér Guðrúnu Guðlaugsdóttur frá þessari upp- finningu sinni og einnig frá nýjum nagladekkjum sem hann hefur hannað og senn verður kannski hafin framleiðsla á. MIÐVIKUDAGINN5. apríl 1967 segirMorgunblaðið fráþví á síðu 5 að Ein-ari Einarssyni vél- stjóra, þá starfandi á fraktskipum, hafi verið boðið á hina miklu flug- sýningu í Farnborough í Bretlandi. Hann hafði þá smíðað líkan af flug- vél sem átti að geta hafið sig til flugs beint upp af jörðu án flug- vallar og var þá að reyna að fá einkarétt í Bandaríkjunum og víðar á þessari hugmynd. „Það var rétt, mér var boðið á sýningu í Farnborough. Ég fór þangað og varð svo svo frægur að mér var sýnd Concorde-þotan sem þá var mjög nýleg. Ég fór upp í hana og þótti mikið til koma,“ segir Einar Einarsson vélstjóri sem nú býr í Reykjavík og er hættur störfum sem vélstjóri hjá Teikni- stofu Hitaveitunnar eða Orku- veitunnar sem nú er. Þá byrjuðu þeir að bjóða mér peninga En hvað kom til að Einar smíðaði umrætt líkan? „Frá því ég var polli var að ég að smíða flugmódel,“ segir Einar. „Yf- irmaður á Keflavíkurflugvelli, Corn- oll Baily, hafði samband við mig þegar ég var 25 ára gamall og hafði nýlega smíðað teygjumódel sem sannaði þá hugmynd að hægt væri að smíða flugvél sem hæfi sig lóð- rétt upp frá jörðu án þess að vera ég. Ég neitaði líka þegar þeir buðu mér 2.000 dollara og það endaði með að þeir hættu á 5.000 dollurum – sem ég neitaði einnig. Ég er með bréf um þetta hér heima hjá mér. Eftir að hafa starfað hjá Sikorsky- verksmiðjunum í eitt og hálft ár stakk kunningi minn, sem ég vann með, sem sagt upp á að við sæktum um störf hjá Republich Aircraft á Long Island, sem væri að leita eftir fólki. Við vorum að fara í sumarfrí og við lögðum inn umsóknir áður en við fórum. Smíðaði tvö módel í fullri stærð Þegar við komum til baka hafði ég fengið vinnu við að hanna her- þotur sem börðust í Víetnam en kunningi minn fékk hins vegar ekki vinnu þarna, sem mér þótti leið- inlegt af því þetta var góður náungi. Ég var hjá Republich Aircraft í þrjú og hálft ár en þá fór ég heim til Ís- lands og byrjaði að vinna hjá Hita- veitu Reykjavíkur. Ingólfur ráð- herra frá Hellu var spenntur fyrir því sem ég var að gera og hann hafði forgöngu um að ég fengi pen- inga til að smíða alvöru módel hér á landi. Ég smíðaði tvö módel í fullri stærð, annað þeirra lyfti 760 kg beint upp en hitt 350 kg einnig beint upp. Ég hafði vinnuaðstöðu í bragga á Reykjavíkurflugvelli. Flugmálastjóri vildi síðan ekki hafa þessa starfsemi mína þarna og ég var látinn fara og í framhaldi af því seldi ég mótorana í umræddum módelum. Grindurnar voru rifnar og þeim hent.“ En hvernig hefur gengið að fá einkaleyfi á flugvélunum sem Morg- unblaðið sagði frá 5. apríl 1967? „Ég er búinn að margbæta hug- myndina og eiginlega „kúvenda“ henni og á blaðinu er þetta orðið mjög fallegt tæki. Einkaleyfislög- fræðingur í Bandaríkjunum telur að ég geti náð einkaleyfi á umræddri hugmynd innan skamms tíma. Þessi vél sem Morgunblaðið sagði frá 1967 var frumgerð og sem fyrr sagði hafa orðið á henni verulegar miklar framfarir síðan og gæti hún nú orðið grundvöllur að framleiðslu flugvélar sem gæti hafið sig lóðrétt á loft án þess að nota venjulega þurluspaða. Ég vil hins vegar bíða þar til ég fæ fullgilt einkaleyfi á þessari hug- mynd áður en ég leita hófanna um frekari aðgerðir.“ Naglar sem spæna ekki upp göturnar Ertu með fleiri uppfinningar í farvatninu? „Já, ég hef gert hjólbarðanagla sem eru til skoðunar hjá fyrirtæki sem er að hugsa um framleiðslu á þeim. Þessir hjólbarðanaglar hafa það sér til ágætis að spæna ekki upp göturnar eins og þeir hjól- barðanaglar gera sem nú eru í notk- un. Vegagerðin lét athuga þetta í Finnlandi og það kom í ljós að það er hægt að koma í veg fyrir 90% af skemmdunum sem venjulegir nagl- ar valda og samt bremsa þessir nýju naglar mun betur en þeir, sem nú eru í notkun, gera. Iðntækni- stofnun og Vegagerðin hér eru að aðstoða mig við þessar athuganir og á svelli í Skautahöllinni kom í ljós að venjulegir naglar þurftu 17 metra til að stoppa en mínir 11 metra. Enginn hávaði er af mínum nögl- um af því þeir brjóta ekki malbik götunnar upp. Ef mínir naglar væru notaðir þyrfti ekkert salt, þeir bremsa betur á saltlausum fleti. Þetta gæti að mínu mati verulega dregið úr slysahættu og öllum þess- um saltaustri á götur sem veldur skemmdum á bílum og götum.“ Morgunblaðið/Golli HVAR ERU ÞAU NÚ? Enginn hávaði af mínum nöglum Hjólbarðanaglar sem spæna ekki upp göturnar og flugvélar sem geta hafið sig lóðrétt upp frá jörðu eru meðal uppfinninga Einars. C vítamín 400 mg með sólberjabragði Bragðgóðar tuggutöflur. Eflir varnir. Nýtt frá Biomega Fæst í apótekum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.