Morgunblaðið - 24.03.2002, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 24.03.2002, Blaðsíða 34
SKOÐUN 34 SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÉG GET ekki orða bundist vegna þeirra undarlegu fréttamennsku upp á síðkastið um dagvistun á einkaheimilum. Mér finnst málið vera mér afar mikilvægt, því til margra ára má segja að ég og stjórn mín hafi lagt nótt við dag til að reyna að fá sett lög og reglugerð um þessa mikilvægu starfsemi. Ég tók við formennsku í Samtökum dagmæðra árið 1984. Þá strax var leitast við að koma á einhverjum lagalegum reglum um stéttina. Í þá daga flokkuðust störf dagvistunar á einkaheimilum undir barnaverndar- nefnd, undir liðnum fósturheimili. Umsjónarfóstrurnar voru sem sagt starfsmenn barnaverndarnefndar og unnu ekki í samráði við dagvist- unarheimilin. Barnaverndarnefnd bar alla ábyrgð á framkvæmd mála, við mjög erfið skilyrði, þar sem ekki var nein sérreglugerð um þetta starf. Mikils misskilnings gætti hjá sumum umsjónaraðilum, þar sem þeir héldu að þeir gætu ráðið yfir þessari daggæslu. Aðrir voru mjög góðir og gerðu sér grein fyrir að starf þeirra var eingöngu að gæta þess að aðstaða barnanna væri góð og allur stuðningur við dagmóður og heimili hennar væri besti kosturinn til að allt færi vel fram. Ég persónulega ber mikinn hlýhug til minnar umsjónarfóstru í gegnum árin. Allir hlökkuðu til heimsóknar hennar. Á þessum tíma var leitast við að halda góð námskeið en ekki var skylda að sækja þau. Þær ábyrgð- armeiri sóttu allt sem hægt var að notfæra sér í þessum efnum. Síðar var það tekið upp að um- sjónarfóstrurnar fengu inni hjá Dagvist barna í Reykjavík. Það var að mínu mati afar ruglingslegt. Ennþá tilheyrði starfið barnavernd- arnefnd en framkvæmdastjóri dag- vistunar virtist vera framkvæmda- stjóri dagvistunar í heimahúsum. Ég held að ég fari rétt með að hann var samt ekki starfsmaður barna- verndarnefndar. Ég spurði einu sinni hvort skrifleg beiðni væri frá barnaverndarnefndinni um að hann tæki yfir framkvæmd á eftirliti dag- vistunar á einkaheimilum en fékk það svar, að svo væri ekki. Þetta var ekki rétt að farið, að mínu viti. Við hjá Samtökum dagmæðra gerðum okkur ljóst að þetta var ófremdarástand. Ég, sem forsvars- maður, gekk frá Heródesi til Pílatusar til að gengið væri í að koma þessum málefnum á lagaleg- an grundvöll. Farnar voru t.d. margar ferðir niður í þinghús til að fá frammámenn til að gefa þessu gaum. Félagsmálaráðherrar komu og fóru en ekki tókst að ná eyrum þeirra fyrr en Jóhanna Sigurðar- dóttir settist í ráðherrastól félags- málaráðuneytisins. Lög voru sett á alþingi aðeins fyrr, þar sem leik- skólar voru settir undir mennta- málaráðuneytið, en eins og ég skildi það, átti dagvistun á einkaheimilum og gæsluvellir ekki samleið með svo merkum stofnunum svo þau voru sett undir félagsmálaráðuneytið. Skilst mér, að öll dagvistun í ná- grannalöndum okkar séu undir sama ráðuneyti. Nefnd var stofnuð á vegum ráðuneytisins til að gera þá reglugerð sem hefur verið um þessa starfsemi. Í nefndinni var unnið mjög gott starf undir forustu Braga Guðbrandssonar, sem nú er forstöðumaður Barnaverndarstofu. Samtök dagmæðra höfðu unnið, eins og sagt var áður, í mörg ár að þessu marki. Þar á meðal hafði ég farið á ráð- stefnu í Svíþjóð ásamt Emilíu Júlíusdóttur fóstru en það var fyrsta Norðurlanda- ráðstefna um dagvist- un á einkaheimilum. Emilía var einnig í þessari nefnd. Einnig hafði ég og Anna K. Jónsdóttir, formaður Dagvistarstjórnar Reykjavíkur, farið til Belgíu til að sitja þar fyrstu Evrópuráð- stefnuna um þennan málaflokk. Gögnin frá þessum tveimur ráð- stefnum komu sér afar vel þegar vinnan við reglugerðina hófst. Reglugerðin kom út fullsköpuð 1992. Sjá má að mörg árin fóru í að berjast fyrir henni. Það gerði eng- inn nema dagmæður sjálfar. Hvernig hefur svo tekist til að fara eftir þessari góðu reglugerð? Því miður alls ekki nógu og vel. Við hvern er að sakast? Ég svara hik- laust fyrst og fremst sveitarfélög- unum. Enn í dag gætir þess mjög víða að eftirlitsaðilar sinna ekki því starfi sem þeim er ætlað og félags- málanefndir, að minnsta kosti sum- ar hverjar, bera ekki næga virðingu fyrir hlutverki sínu. Ég ætla að vitna í reglugerðina til útskýra mitt mál. Reglugerð no. 198/1992 II. kafli. 2. gr. Félagsmálanefnd/ félagsmálaráð í hverju sveitarfélagi ber almenna ábyrgð á velferð barna í sveitarfélaginu og skal sjá til þess að aðbúnaði barna sé ekki áfátt, sbr. 1. mgr. 31.gr. laga um fé- lagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/ 1991. 3. gr. Félagsmálanefnd/félags- málaráð, eða önnur sú nefnd sem sveitarstjórn ákveður, hér eftir nefnd í reglugerð þessari félags- málanefnd, veitir leyfi til daggæslu barna í heimahúsi gegn gjaldi. Óheimilt er að taka barn í slíka gæslu án þess leyfis. Því miður hefur þetta alls ekki verið alls staðar virt. T.d. í Reykja- vík hefur sú nefnd sem hefur verið skipuð til að fara með þessi mál í dag ekki unnið að þeim að mínu mati löglega. Það er Leikskólaráð Reykjavíkur. Virðist mér að þessi nefnd hafi sett öll völd í hendur um- sjónaraðila og hefur hann tekið á móti umsóknum, farið í eftirlit og afgreitt einhliða leyfið. Það hlýtur að vera alfarið á ábyrgð nefndar- innar þó svo að hún líti aldrei á plöggin. Ég hef grun um að ekki einu sinni hafi þetta verið gert með skriflegu umboði nefndarinnar. Þegar svo málefni þessarar dagvist- unar kemur í fjölmiðla eru formað- ur nefndarinnar látinn mæta og framkvæmdastjóri Leikskóla Reykjavíkur en hvergi bólar á þeim aðila sem hefur unnið öll verkin, að mínu viti fyrir utan lög og reglur. Mikið lagði ég áherslu á að umsjón- araðili ætti ekki og gæti ekki haft svona völd í starfseminni. Spurning vaknar í huga mér hver fær svo greidd laun fyrir þessi verk? Er það nefndin sem á að sjá um þessi verk eða er umsjónaraðila umb- unað aukalega fyrir þessi aukastörf? Borg- arlögmaður sagði í bréfi nýlega að Bergur Felixson, fram- kvæmdastjóri Leik- skóla Reykjavíkur, veitti dagvistarleyfin en enginn hefur séð dagvistarleyfi undir- skrifað af honum. Hann getur heldur aldrei flokkast undir nefnd. Reglug. III. Kafli 9. gr 7. liður. Heimilt er að leita umsagnar heil- brigðisnefndar, hvað húsnæði varð- ar. Þetta ákvæði er komið út í al- gjöra vitleysu að mínu mati. Ef tveir dagforeldrar vinna saman í húsnæði, á að kalla á matsmenn varðandi húsnæðið og fá umsögn um að það fylgi öllum skilyrðum. Ég skildi þetta svo að þessir mats- menn skiluðu svo sínu mati til nefndar og hún ein gæfi leyfi til starfsins. Nú koma stormandi, í tíma og ótíma, konur inn á heimilin, til að taka þau út, án þess að nefnd- in hafi gefið tilnefningu þar um. Heilbrigðiseftirlitið hefur sett upp gjald fyrir þetta eftirlit en hvergi kemur það fram á hvaða forsend- um. Þetta er hár útgjaldaliður en hvergi hefur verið sett fram við dagforeldra eftir hvaða reglum þetta er gert. Í Reykjavík í dag gef- ur líka heilbrigðiseftirlitið sjálft út leyfi til dagvistunarinnar. Þeir taka gjald fyrir það en ekki Leikskólar Reykjavíkur. Þeir sem taka þetta húsnæði út nú eru konur, en gaman væri að vita hvaða menntun þær hafa í að yfirfara öryggisatriði varðandi húsnæði. Það þarf að gæta að því að þessi starfsemi fer fram á einkaheimilum. Það verður að vernda þau fyrir óþarfa yfirgangi og gæta þess vel að ekki sé farið út fyrir lagarammann. Enginn á erindi inn nema hafa til þess skýra heim- ild. Útgjaldaliðinn þarf að skýra. Hver kom þessum lið á og hvenær? Reglugerð. V. kafli 19. gr. Dag- móðir skal kaupa slysatryggingu vegna barnanna. Spurning er í huga mér. Hafa umsjónaraðilar gætt þess nógu vel að gera dagforeldrunum þetta ljóst? Fá allir sem sækja um dag- vistun á einkaheimilunum reglu- gerðina þegar sótt er um dagvist- unina? Er hún útskýrð vel fyrir dagvistaraðilum?. Áður en reglugerðin var gerð hafði forystan í Samtökum Dag- mæðra komið því á að hóptrygging var gerð fyrir félagsmenn. Það er þakklæti í huga mér til trygginga- félaganna sem studdu okkur og leiddu okkur inn á þennan veg. Enn voru það dagmæður sem komu í framkvæmd öryggisatriðum en ekki ríki eða bær. Það hefur komið í fréttum að dagforeldrar hafi ekki skilað inn sakavottorði. Ef svo er, er það al- farið á ábyrgð sveitarfélagsins en ekki dagforeldrisins. Aldrei á að ganga frá leyfi nema öll gögn liggi fyrir. Skyldi það vera, að ekki hafi verið beðið um öll gögnin? Reglug. 111. Kafli 9. gr. 5. liður. Sakarvott- orð. VI. Kafli 21. gr. Ákvörðun um vistun barns er ætíð á ábyrgð for- eldra. Gerum okkur að fullu ljóst að foreldrar eiga að vera vel vakandi yfir því að barn þeirra sé aldrei í umsjón neins sem ekki sýnir fulla ábyrgð, í hvaða umsjón sem það er. VII. Kafli 22. gr. Eftirlit með starfsemi dagmæðra. umsjónarað- ilar. Félagsmálanefnd getur ráðið sér- stakan umsjónaraðila sem hefur með höndum undirbúning leyfis- veitinga, eftirlit með starfsemi dag- mæðra, auk þess að veita dagmóður ráðgjöf og stuðning. að öðrum kosti er eftirlitið í höndum félagsmála- nefndar eða annarrar þeirrar nefndar í sveitarfélaginu sem fer með málefni dagmæðra. Við ráðningu í starf umsjónar- aðila skal ráða fólk með sérþekk- ingu á uppeldi barna, svo sem fóstr- ur og annað uppeldismenntað fólk. Nánar tiltekið er verksvið umsjón- araðila eftirfarandi. Að hafa umsjón með gæslu barna hjá dagmæðrum. Stuðlað skal að því að umsjónin sé í formi stuðn- ings, fræðslu og ráðgjafar eftir því sem kostur er. Umsjónin skal vera mjög virk fyrsta árið, en síðar dregið úr henni smátt og smátt miðað við aðstæður eftir mati um- sjónaraðila. Að halda reglulega fræðslufundi með dagmæðrum og/eða stuðla að samstarfi dagmæðra sín á milli. 3. Að halda fundi með foreldrum barnanna og dagmóður eftir því sem umsjónaraðili telur þörf á. Fréttamenn ynnu verðugt verk, ef þeir hefðu löngun og dug í sér, að rannsaka hvernig til hefur tekist að fara eftir þessum reglum. Á mín- um tíma, var gert svo vel við dag- foreldra í Reykjavík, að þeir áttu kost á 60 tíma námskeiði, 70 tíma og 100 tíma. Nú er aðeins boðið upp á 60 tíma sem eru skilyrði til að mega hefja starfsemina. VIII. Kafli. Ýmis atriði. 28. gr. Fái félagsmálanefnd upp- lýsingar um að börn séu tekin í gæslu í atvinnuskyni án leyfis skal hún láta málin til sín taka. Það þarf að grandskoða hvernig tekið er á þessum málum í dag. Ég persónulega hef grun um að þetta hafi verið gróflega hunsað. Þegar upp var staðið við gerð þessarar reglugerðar var ég ekki fyllilega ánægð með einstaka atriði. Ég á mjög bjarta minningu um lokakveðju Braga Guðbrandssonar til mín. Hann sagði „Selma, gerir þú þér grein fyrir hvað þetta er stórkostlegur áfangi? Dagvistun á einkaheimilum er nú lögfest at- vinnugrein.“ Þessi orð þakka ég innilega . Ráðuneytisstjórinn Berglind Ás- geirsdóttir viðhafði þessi orð. „Selma, þetta er frumsmíðin. Eftir svolítinn tíma verður farið yfir reglugerðina og lagað það sem ekki náðist núna.“ Nú er loksins komið að því eftir 10 ár. Það er nú eins og ávallt fyrr að það eru dagmæðurnar sjálfar sem hafa beðið félagsmálaráðuneytið um að fara ítarlega yfir allar þær framkvæmdir sem hafa verið gerð- ar á vegum sveitarfélaga í málum dagvistunar á einkaheimilum. Þar er víða pottur brotinn. Einnig hefur Barnavistun, félag dagforeldra, far- ið fram á að reglugerðin sé endur- unnin og bætt. Það ríkti mikið traust til þeirra sem fara með þessi mál í ráðuneytinu, þegar þessi mál voru lögð fyrir. Ráðuneytið er jú sá aðili sem á að vernda reglugerð sína og þar með hag allra sem und- ir hana heyra. Það var því mikið áfall þegar félagsmálaráðherra kom fram í fjölmiðlum og flutti mál sitt á þann veg að ásökun beindist að dagforeldrum í staðinn fyrir að hún beindist að réttum aðilum innan sveitarfélaganna. Ég vona innilega að félagsmálaráðherra okkar líti aftur á málin og biðji dagforeldra afsökunar á að hann hafi komið svona að málunum. Hann væri meiri maður fyrir. Öllum getur orð- ið á. Það er alvarlegt ef óvarleg orð skaði stétt sem er innan ráðuneyt- isins. Sérstaklega ef börn eru á ábyrgð þessarar stéttar. Nú kem ég að fréttamennsku þessa lands. Ég hef talið að hún væri byggð á skynsemi, réttlæti og ábyrgð. Því miður hefur það alls ekki verið nú í öllum tilfellum með þessi mál. Þau þekki ég og veit hvað er rétt og rangt. Sárindi mín og hryggð beinist fyrst og fremst að ríkissjónvarpinu. Það hefur hælt sér af að vera með ábyrgan frétta- flutning. Ábyrgur fréttaflutningur er að bjóða öllum aðilum sem koma að málum að svara um það. Þegar talað var við ráðherra var ekki haft samband t.d. við stjórnendur í fé- lögum dagforeldra. Kastljós er í miklu uppáhaldi hjá mér, en því miður voru afar óvönduð vinnu- brögð hjá þeim þegar þau tóku við- tal við Berg Felixson framkvæmda- stjóra og Kristínu Blöndal formann Leikskólaráðs um málefni dagvist- unar á einkaheimilum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem dagforeldrum er sýnd svo mikil óvirðing að þeir fá ekki að svara um eigin atvinnu- rekstur en opinberir eftirlitsaðilar leika einleik í þeirra málum. Þau voru spurð hvort þau færu eftir reglugerðinni. Þau sóru og sárt við lögðu að þar væri ekki út af brugð- ið. Góður fréttamaður hefði spurt hinn aðilann líka sem átti allt sitt undir að rétt væri með farið. Vona ég að þetta góða fólk bæti fyrir þetta og bjóði fulltrúum dagfor- eldra sem eru inni í þessum málum að koma fram á sama vettvangi með sína hlið á málinu. Það eru þeir sem hafa orðið fyrir barðinu á því að eftirlitsaðilar hafa ekki farið eft- ir reglugerðinni. Aðrir fjölmiðlar flestir höfðu einnig samband við dagmæður og fengu þeirra hlið á málunum. Hættum að hengja bakara fyrir smið Það er eitt enn sem brennur í vit- und minni. Er ekki komin ástæða fyrir löngu að dagvistun á einka- heimilum sé ekki undir sömu stjórnun og dagvistanir sveitarfé- laga. Þetta eru tvímælalaust sam- keppnisaðilar. Það er ótrúlegt að samkeppnisstofnun skuli líða það vald sem sveitarfélögin beita þessa starfsemi. Ég trúi ekki að í lýðræð- isríki sé þetta lögum samkvæmt. Á meðan þetta viðgengst er þessi dagvistun undir hælnum á ráða- mönnum leikskóla, reknum af sveit- arfélögum. Sést vel nú hversu lítil virðing er sýnd þessum einka- rekstri í skugga leikskólanna. Það er líka brýnt að fréttamenn fái réttar og fullkomnar upplýsing- ar um fjölda barna á hverja starfs- manneskju innan leikskólanna. Það eiga að vera sömu réttindi og skyldur yfir það hjá öllum dagvist- unum. Ég óska öllum sem bera ábyrgð á börnum okkar, hvort sem það er á heimilum eða stofnunum, velfarn- aðar í starfi. DAGVISTUN Á EINKAHEIMILUM Selma Júlíusdóttir Það eru dagmæðurnar sjálfar, segir Selma Júlíusdóttir, sem hafa beðið félagsmála- ráðuneytið um að fara ítarlega yfir allar þær framkvæmdir sem hafa verið gerðar á vegum sveitarfélaga í málum dagvistunar á einkaheimilum. Þar er víða pottur brotinn. Höfundur er skólastjóri Lífsskólans og fyrrverandi formaður Samtaka dagmæðra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.