Morgunblaðið - 26.03.2002, Blaðsíða 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2002 41
Elsku Einar okkar.
Það er ótrúlegt að þú sért farinn.
Svo stutt er síðan þú varst hér hjá
okkur fullur af lífsgleði og orku. En
svona er litla lífið, við vitum aldrei
hvenær tilvist okkar hér á jörðu lýk-
ur og ný hefst í öðrum heimi.
Þú varst alveg einstakur maður.
Svo góður, svo jákvæður og að maður
tali nú ekki um svo skemmtilegur.
Þú varst alltaf tilbúinn til að takast
á við það sem þú vissir að geta þín
leyfði. Að vísu áttir þú það til að van-
treysta þér og lýstir því þá yfir að þú
gætir ekki.
Það sem okkur fannst svo
skemmtilegt var þegar þú sagðir af
þér stórkarlasögur, ekki endilega lík-
ar þeim sem kynbræður þínir segja,
heldur eingöngu þær sem þér einum
var lagið. ,,Þú varst stundum að nið-
urlotum kominn þegar þú komst til
okkar eftir hádegið á daginn, því þú
hafðir haft svo mikið að gera heima.
Þú varst stundum búinn að taka hús-
ið í gegn allt frá rjáfri ofan í gólf.
Eins kom það fyrir að þú varst
mjög þreyttur þegar þú fórst frá okk-
ur héðan úr Hæfingarstöð, þegar
starfsfólkið nennti ekkert að gera og
lét þig nudda á sér fæturna.“
Það skarð sem myndaðist með
brotthvarfi þínu verður vandfyllt. Þín
er sárt saknað bæði af notendum og
starfsfólki.
Saman bjugguð þú, Esther og
Heiða til ykkar eigin ævintýraheim
þar sem gleðin réð ríkjum. Það hefur
skapast tómarúm í þeim ævintýra-
heimum.
Síðustu vikur hafa verið þungbær-
ar. Við vissum ekki hvert þessi erfiðu
veikindi þín myndu leiða þig. Þegar á
leið virtist ljóst hvert stefndi. Hlut-
verki þínu hér á meðal okkar var að
ljúka. Þín biðu önnur störf í nýrri til-
veru.
Kæri vinur, nú skiljast leiðir. Við
erum þakklát fyrir að hafa átt þig að.
Þú hefur gefið okkur mikið.
Af alhug þökkum við þér fyrir sam-
veruna.
Einhversstaðar
einhverntíma
mun slóðin mín þangað liggja
hugurinn strjúka hæðirnar,
opna steinana,
telja stráin
og staðnæmast undir regnboganum
(Þórdís Jónsdóttir.)
Elsku Anna Bryndís, Árni, Guð-
mundur Árni og fjölskyldan ykkar
öll, kæru vinir í sambýlinu í Hafn-
arstræti 16, megi almættið vaka yfir
ykkur og styrkja í sorg ykkar.
Dýrmætar minningar um þig,
elsku Einar, geymum við í hjörtum
okkar.
Megi góður Guð geyma þig.
Þínir vinir í Hæfingarstöðinni við
Skógarlund,
starfsfólk og notendur.
Nú er sál þín rós
í rósagarði Guðs
kysst af englum
döggvuð af bænum
þeirra sem þú elskaðir
aldrei framar mun þessi rós
blikna að hausti
(Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir.)
EINAR BREIÐFJÖRÐ
MAGNÚSSON
✝ Einar BreiðfjörðMagnússon fædd-
ist 27. nóvember
1967. Hann lést 15.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hans eru
Anna Bryndís Árna-
dóttir og Magnús
Einarsson. Bróðir
Einars er Guðmund-
ur Árni Þorvaldsson.
Útförin Einars fer
fram frá Akur-
eyrarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukk-
an 13.30.
Kæri vinur.
Á þessari kveðju-
stund langar mig að
þakka þér allar góðu
samverustundirnar.
Við gerðum svo margt
skemmtilegt saman og
í þér átti ég góðan vin.
Guð blessi minningu
þína elsku Einar.
Magnús
Jóhannsson.
Ég veit um lind sem ljóðar
svo ljúft að raunir sofna,
um lyf sem læknar sárin
og lætur sviðann dofna.
Um lítið blóm sem brosir
svo blítt að allir gleðjast.
Um rödd sem vekur vonir,
þá vinir daprir kveðjast.
Ég þekki gleði góða,
sem græðir allt með varma
og sælu er svíkur aldrei,
en sefar alla harma.
Ég veit um stjörnu er vakir,
þó vetrarmyrkur ríki,
– um ást sem er á verði,
þó ástir heimsins svíki.
Það allt sem ég hef talið,
er eitt og sama: barnið,
sú guðsmynd björt er gæfan
og græðir jafnvel hjarnið.
Á meðan lífið lifir
það ljós mun aldrei deyja.
Og mannsins björg og blessun
er barnsins stjörnu að eygja.
(Hulda.)
Elsku Einar.
Ekki datt okkur í hug að þú ættir
ekki afturkvæmt þegar þú veiktist og
varst lagður inn á Fjórðungssjúkra-
húsið 26 febrúar. Þú fórst í aðgerð
sem gekk vel og allt leit vel út um
stund. En líkami þinn var veikbyggð-
ur og ekki tókst að snúa vörn í sókn.
Okkur starfsfólkinu í Hafnarstræti
16 langar að rita nokkur þakkarorð
til þín á þessari sorgarstund. Okkur
bar gæfa til að kynnast þér, prúðum
og elskulegum pilti sem öllum vildir
vel og vildir allt fyrir alla gera. Þrátt
fyrir fötlun þína varstu mjög dugleg-
ur að hjálpa til á heimilinu og spar-
aðir okkur oft sporin með sendiferð-
um um húsið. Þú sagðir okkur sögur,
kannski ekki allar sannleikanum
samkvæmar, en hvað með það, góður
sögumaður skreytir alltaf aðeins! Þú
varst duglegur að sækja námskeið á
vegum Hvammshlíðarskóla s.s.
hestanámskeið, sund og fleira og
tókst virkan þátt í ýmsum skemmt-
unum á vegum skólans. Með íþrótta-
félaginu Eik æfðir þú boccia og þær
voru ófáar keppnisferðirnar sem þú
tókst þátt í. Þú undir þér vel á Hæf-
ingarstöðinni, þar vannstu þín verk
af alúð og við vitum að þú gladdir fólk
þar með spaugsömum sögum þínum
af starfsfólkinu í Hafnarstræti. En
allar voru frásagnirnar í góðu og
sagðar af hlýju því aldrei mátti á
neinn halla.
Þér fannst gaman að fara út að
borða og komið gat fyrir að þú fengir
þér smávegis
,,í fótinn“, eins og þú orðaðir það,
en þó einungis með yfirmanninum, að
eigin ósk. Hinir urðu að láta sér gosið
nægja.
Þú áttir einstaklega auðvelt með
að sýna væntumþykju og varst óspar
á hrós. Þú hafðir góða nærveru og oft
var gaman að sitja inni í herbergi hjá
þér og spjalla. Þú hlustaðir mikið á
tónlist en ekki vorum við alltaf sam-
mála um styrkleikann í hljómtækjun-
um, en þá nægði að reka inn nefið og
þá leistu upp og sagðir ,,Fyrirgefðu
elskan,“ og lækkaðir aðeins.
Aðeins hefur brot af minningum
verið sett hér á blað um þig, elsku
vinur. Við söknum þín sárt, bæði
starfsfólk og sambýlisfólk þitt. Eftir
lifir minningin um ljúfan pilt sem gaf
okkur svo mikið með hlýju sinni og
einstökum húmor.
Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki
um lífsins perlu í gullnu augnabliki –
(Tómas Guðmundsson.)
Elsku Anna Bryndís, Árni, Guð-
mundur, Guðlaug og aðrir ástvinir.
Innilegar samúðarkveðjur til ykkar
allra. Einnig vottum við sambýlisfólki
Einars okkar dýpstu samúð því í hon-
um áttu þau sannan vin. Hans verður
sárt saknað.
Guð geymi þig, elsku Einar okkar.
Starfsfólk sambýlisins
Hafnarstræti 16.
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 551 3485 • Fax 568 1129
Áratuga reynsla
í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Vaktsími allan sólarhringinn
896 8284
B2I21=
( 7)!#! )!
/ !#7
0*
-
# 1 -
/
0((
= 03!.(;#$&!
J 3!.(;##% ) * @# #$&!
'# 3!.(;#$&! 2! 89 ##%
/ #! 3!.(;##% / ! ) $&!
) * 3!.(;#$&! 0); $##%
, , % ;;, 0
7
:1/'2
(1# ! )!
# -
, %
/ ! )
% ! * #$< 0
30/ @ # & ;K
7
#
08
-
# : ;- -
/
0)
! ) / '! #$&!
) #$&! % !###%
/!$ #$&! 2! 3 . )'! ##%
#$&! 0 <, ! )##%
&# #$&! ##%
, % , 0
! %
2@=
2=:
#
,
2
(
7# ! !.! ( 0
<
5
#
1B
=
(+ #D7
2 .)G
7 0
)# $ $ 0
6
@ 2=@ '
=
#=!-
#
08
# .
-
" -
>
0*
<
-
#
? -
#=!-
@# ) /# $#$&! / $##%
:0/# $#$&! !#( ##%
/ 0/# $#$&! ); $ ! )##%
@# /# $#$&! ,
.% $ #%
, , % , , , 0