Morgunblaðið - 28.03.2002, Page 1

Morgunblaðið - 28.03.2002, Page 1
73. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 28. MARS 2002 SAUTJÁN manns týndu lífi er mað- ur sprengdi sjálfan sig upp í yfirfullu hóteli í ísraelska bænum Netanya í gær. Meira en 100 slösuðust. Líkur á, að Bandaríkjamönnum takist að koma á vopnahléi milli Ísraela og Pal- estínumanna þykja nú hverfandi og mikil óeining á fundi arabaríkjanna í Beirút hefur ekki orðið til að glæða vonirnar. Maðurinn sprengdi sig upp í veit- ingasal hótels í strandbænum Net- anya en þar hafði fólk safnast saman til að fagna páskahátíðinni. Var sprengingin svo öflug, að veggir sal- arins brotnuðu út. Arabísk sjón- varpsstöð sagði í gær, að hin herskáa Hamas-hreyfing meðal Palestínu- manna hefði lýst verknaðinum á hendur sér. Ísraelsk stjórnvöld sögðu í gær, að Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, bæri ábyrgð á hryðjuverkinu, sem sýndi, að Palestínumenn vildu ekkert vopnahlé. Lítil samstaða Mikil óeining var á leiðtogafundi arabaríkjanna í Beirút í gær og varð það til að draga úr þeim vonum, sem við hann voru bundnar. Aðeins 12 af 22 ráðamönnum í arabaríkjunum sóttu fundinn og hvorki Hosni Mub- arak, forseti Egyptalands, Abdullah, konungur Jórdaníu, né Yasser Ara- fat, leiðtogi Palestínumanna, sem Ísraelar leyfðu ekki að fara. Á fundinum kynnti Abdullah, krónprins í Sádi-Arabíu, tillögur um, að arabaríkin tækju upp eðlileg sam- skipti við Ísraela gegn því að þeir skiluðu öllu arabísku landi og leyfðu flóttafólki að snúa aftur til átthag- anna í Ísrael. Lagði Abdullah til, að tillögurnar yrðu lagðar fyrir örygg- isráð Sameinuðu þjóðanna og skoraði á Ísraela að snúa baki við ofbeldinu. Ísraelar hafa í orði kveðnu fagnað frumkvæði Sádi-Araba en Ariel Sharon, forsætisráðherra landsins, vísaði tillögunum í raun á bug í gær í viðtali við ísraelskt dagblað er hann sagði, að það yrði til að „tortíma Ísr- ael“ að hverfa aftur til landamæranna 1967. Gengu af fundi Palestínumenn gengu út af fund- inum í Beirút er Líbanonstjórn kom í veg fyrir, að Arafat fengi að ávarpa fundinn beint um gervihnött og Sádi- Arabar kröfðust þess þá, að Palest- ínumenn yrðu beðnir afsökunar. Af því varð þó ekki og Líbanar áttu í miklum vandræðum með að skýra út ákvörðunina um Arafat. Hann flutti síðan ávarpið á sjónvarpsstöðinni Al- Jazeera þar sem hann fordæmdi „hryðjuverkastarfsemi Ísraelsríkis“ en fagnaði tillögum Sádi-Araba. Sautján týndu lífi í sjálfsmorðsárás í Ísrael Hryðjuverkið og óeining á araba- fundi draga enn úr friðarlíkum Jerúsalem, Beirút. AP, AFP. MIKIÐ uppnám hefur orðið innan norsku póstþjónust- unnar vegna frímerkis, sem verið er að gefa út í tilefni af 100 ára afmæli norska knattspyrnusambandsins. Á því er mynd af dómara í leik en nú hefur komið í ljós, að hún er ekki af rétta mann- inum og raunar veit enginn hver hann er. Elisabeth Gjølme, blaða- fulltrúi póstsins, sagði í gær, að þetta væri hið mesta vandræðamál en myndina hefði stofnunin keypt í góðri trú. Átti hún að sýna Lars Johan Hammer, 27 ára knattspyrnudómara, en myndin á frímerkinu er ekk- ert lík honum. Hammer segist hafa hlakkað mikið til að sjá frí- merkið en sem knatt- spyrnudómari viti hann, að mönnum geti orðið á mistök. Starfsmenn póstsins gera nú allt til að hafa uppi á manninum á frímerkinu og birtu meðal annars heilsíðu- auglýsingu í því skyni í Ver- dens Gang í gær. Komið hafa fram vísbendingar um, að hann sé þýskur og hafi dæmt á meistaramóti yngri flokkanna. Hvernig sem allt fer verða frímerkin gefin út 12. apríl og Gjølme kvaðst vona, að maðurinn á mynd- inni gerði sig ánægðan með það, hver sem hann væri. Hver er mað- urinn? Ósló. AP. MARGIR eftirskjálftar töfðu veru- lega fyrir björgunarstarfi á jarð- skjálftasvæðunum í Afganistan í gær. Ollu þeir skriðuföllum, sem lokuðu vegum og komu í veg fyrir flutning á hjálpargögnum. Um 20.000 manns misstu heimili sitt í hamförunum á mánudag en tölur um látna eru enn mjög á reiki. Segja sumir um 1.000 en afganskir embættismenn telja, að allt að 3.000 manns kunni að hafa farist. Starfsmenn hjálparstofnana draga það þó í efa. Talsmaður Sameinuðu þjóðanna sagði í gær, að sex bæir hefðu hrunið alveg til grunna. Kom það í ljós er flogið var yfir þá en akstur á þessu svæði er mjög vara- samur vegna mikils fjölda jarð- sprengna. Á þessum slóðum var lengi helsta víglínan milli Norður- bandalagsins og talibanahersins. Þrátt fyrir erfiðleikana var al- þjóðleg aðstoð farin að berast fólk- inu. Hamid Karzai, forsætisráð- herra bráðabirgðastjórnarinnar í Afganistan, kom á jarðskjálfta- svæðin í gær og reyndi að stappa stálinu í íbúana, sem hafa liðið fyr- ir stríðsátök í áratugi, vegna þurrka í nokkur ár og hafa nú misst allt í hamförum náttúrunnar. Á myndinni má sjá unga stúlku, sem æpir af skelfingu í fangi föður síns, er einn eftirskjálftanna reið yfir og þyrlaði upp rykinu frá hrundum húsum. Reuters Eftirskjálftar tefja hjálparstarf  Þúsundir/20 VERIÐ er að undirbúa harðar að- gerðir gegn farsímafyrirtækjum innan Evrópusambandsins, ESB, og þá með það fyrir augum að neyða þau til að lækka ákveðin gjöld. Breska blaðið Financial Times skýrði frá þessu í gær og sagði, að framkvæmdastjórn ESB hefði gengið frá drögum að tillögum um hvernig neyða skuli farsímafyrir- tækin til að lækka þau gjöld, sem þau taka fyrir að tengja notanda í fastlínukerfinu við farsímakerfið. Í blaðinu segir, að þessi gjöld séu allt að tveimur þriðju kostnaðarins við að hringja úr fastlínukerfinu í farsímanúmer og um leið stór hluti af tekjum farsímafyrirtækjanna. Samkvæmt tillögunum, sem verða kynntar á næstu vikum, verður fjarskiptayfirvöldum heimilað að ákveða þessi gjöld með reglugerð. Er þá litið svo á, að farsímafyr- irtækin hafi einokun hvað þessa gjaldtöku varðar og verði þar með að beygja sig undir opinber af- skipti. Til að tryggja samkeppni Markmið tillagnanna er „að tryggja virka samkeppni til fram- búðar á markaði, sem einkennist af miklum girðingum“ að því er fram kemur í blaðinu. Þar er einnig haft eftir Oftel, sem hefur eftirlit með fjarskiptamálum í Bretlandi, að 3% lækkun fyrrnefndra gjalda myndi spara breskum neytendum 28,4 milljarða ísl. kr. árlega en kosta bresku farsímafyrirtækin fjögur rúmlega 21 milljarð kr. Aðgerðir gegn far- símafyrirtækjum Verða knúin til að lækka gjöld París. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.