Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ HARÐVÍTUG forsjárdeila franskra hjóna, sem hafa lengi verið búsett hér á landi, um tveggja ára gamalt stúlkubarn hefur tekið nýja stefnu en móðir stúlkunnar nam hana á brott frá föðurnum á þriðjudag. Að hans sögn var talsverðu ofbeldi beitt, for- eldrar konunnar hefðu tekið þátt í brottnáminu með því að sparka í hann og úða e.k. táragasi framan í hann á meðan konan dró stúlkuna upp í bíl sem ók brott á miklum hraða. Konan hringdi í gær í Dögg Páls- dóttur hrl., lögmann sinn í forsjár- deilunni, og sagðist hafa tekið stúlk- una af föðurnum en engu ofbeldi hefði verið beitt. Maðurinn og konan eru bæði frönsk en þau settust að hér á landi árið 1995. Óskað var eftir skilnaði í fyrra og hófst þá deila um það hvort fengi forsjá með stúlkunni. Með úr- skurði Héraðsdóms Reykjavíkur fékk konan forsjána til bráðabirgða. Maðurinn krafðist þá farbanns yfir stúlkunni og féllst dómurinn á þá kröfu. Að sögn Daggar braut mað- urinn gegn þessu farbanni, sem hann hafði sjálfur krafist, þegar hann fór með stúlkuna til Frakklands í byrjun september sl. í óþökk móðurinnar. Síðan þá hefði konan reynt að fá dótt- ur sína til baka með aðstoð dóms- málaráðuneytisins en það hefði ekki tekist þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Dögg telur ekki að frönsk yfirvöld muni hafast að í málinu þrátt fyrir að óhefðbundnum aðferðum hafi verið beitt við að koma barninu í hendur konunnar. „Kjarni málsins er sá að hún er löglegur forsjáraðili barnsins og það er maðurinn sem hefur haldið því frá henni með ólögmætum hætti,“ segir Dögg. Hún sagði að Frakkland og Ísland væru aðilar að alþjóðasátt- málum sem kveða skýrt á um að börn skuli vera hjá því foreldri sem hafi forsjána. Þá gildi íslensk lög og lög- saga í málinu enda voru þau bæði bú- sett hér á landi þegar þau ákváðu að skilja. Dögg segist ekki vita hvar konan er niðurkomin eða hvað hún ætlast fyrir. Líklegast sé þó að hún komi aftur til Íslands enda er hún bú- sett hér. Ofbeldisfullt brottnám Faðir stúlkunnar sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann liti svo á að íslenskir dómstólar hefðu ekki lögsögu í forsjárdeilunni. Skv. frönskum lögum bæri að flytja slík mál fyrir dómstólum í Frakklandi þegar í hlut ættu franskir borgarar. Því væri úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur um að bráðabirgðafor- ræðið væri hjá konunni ekki gildur. Þegar forræðisdeilan hófst hefði hann leitað upplýsinga hjá franska sendiráðinu og þar hefði honum verið tjáð að íslenskir dómstólar ættu að fara með málið. Hann hefði því ekki talið sig eiga annan kost en að koma fyrir dóm hér á landi. Héraðsdómur hefði síðan algjörlega hundsað fram- burð vitna, um að barninu liði illa hjá móður sinni og að hún hefði beitt dóttur sína ákveðnu harðræði, og veitt henni bráðabirgðaforsjá. Eftir þann úrskurð hefði hann haft sam- band við frönsk stjórnvöld sem hefðu upplýst hann um að málið félli undir franska lögsögu. Á þeim forsendum hefði hann ákveðið að fara með dótt- ur sína til Frakklands í september sl. Hann hefði boðið móður hennar að umgangast barnið reglulega en hún hefði ekki sinnt því þar til fyrir skömmu. Þá hefði hann krafist þess að það yrði á heimili sínu þar sem hann vildi tryggja að stúlkan yrði örugg. Að þessum heimsóknum hefðu verið óháð vitni. Konan hefði tekið þessu illa og krafist þess að hitta stúlkuna utandyra, á kaffihús- um eða í almenningsgörðum. Það hefði hann fallist á en eftir á að hyggja hefðu það verið mistök. Á þriðjudag hefði hann hitt konuna ásamt dóttur sinni í almenningsgarði. Einnig hefðu foreldrar hennar verið viðstaddir auk kunningja mannsins. Skyndilega hefði bíl verið ekið að þeim og hemlað skyndilega. Hurðinni hefði verið hrundið upp og konan ýtt stúlkunni harkalega upp í bílinn. Á meðan hefði faðir konunnar sparkað í hann og úðað eins konar táragasi framan í hann. Móðir konunnar hefði einnig beitt úða auk þess sem hún hefði bitið og sparkað. Allt þetta hefði gerst mjög skyndilega og hefði hvorki hann né kunningi hans komið vörnum við. Íslensk lög gilda Skv. upplýsingum frá dómsmála- ráðuneytinu gilda íslensk lög um forsjá með börnum um alla þá sem búsettir eru hér á landi, þ.m.t. erlend- ir ríkisborgarar. Héraðsdómur hefði metið það svo að málið ætti að reka fyrir íslenskum dómstólum. Þá væru Frakkland og Ísland bæði aðilar að samningi um viðurkenningu og fulln- ustu ákvarðana varðandi forsjá barna. Að kröfu dómsmálaráðuneyt- isins fól franska dómsmálaráðuneytið saksóknara í Lille í Frakklandi að reka mál til að gera föður stúlkunnar að afhenda hana móðurinni. Á þetta féllst héraðsdómur en þar sem fað- irinn áfrýjaði dómnum hafa frönsk stjórnvöld ekki treyst sér til þess að framfylgja úrskurðinum. Nam dóttur sína á brott í Lille í Frakklandi Faðirinn kveðst ekki viðurkenna lögsögu íslenskra dómstóla ÍSLENSK stjórnvöld hafa bætt sig verulega við að staðfesta tilskipanir sem samþykktar hafa verið á Evr- ópska efnahagssvæðinu, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Fríversl- unarsamtaka Evrópu – EFTA. Í lok ársins 2001 hafði Ísland samþykkt 97,9% tilskipana EES. Til saman- burðar hafði Lichtenstein samþykkt 97,6% tilskipana EES og Noregur 97,8% tilskipana. Í skýrslunni kemur fram að Ísland hafi bætt sig töluvert í þessum mál- um miðað við árið 2000. Sömu sögu er að segja af Lichtenstein og Noregi. Staðfesting á tilskipunum EES Íslensk stjórn- völd bæta sig SÍÐASTI áfanginn í sjötindaleið- angri Haralds Arnar Ólafssonar hefst í dag, skírdag, þegar hann heldur áleiðis til Nepal til að klífa hæsta hæsta fjall heims, Everest (8.850 m). Búist er við að leiðang- urinn taki tvo mánuði og gangi allt að óskum ætti Haraldur að komast á tindinn í síðasta lagi fyrir maílok. Haraldur flýgur í dag til Lund- úna og þaðan í tveimur áföngum til Katmandú, höfuðborgar Nepal. Frá Katmandú liggur leiðin flugleiðis til fjallaþorpsins Lukla, þaðan sem ganga eftir fjallaslóðum upp í grunnbúðir hefst. „Það tekur um átta daga að ganga upp í grunn- búðir og meðal þess sem er spenn- andi á þeirri leið er Namche Bazar, höfuðstaður Sérpanna,“ segir Har- aldur. „Á þessum tíma ársins er ennþá vetur á þessum slóðum og því er algengt að stígarnir teppist vegna snjóa.“ Grunnbúðirnar eru í rúmlega 5 þúsund metra hæð og gerir Har- aldur ráð fyrir að fara í a.m.k. þrjár hæðaraðlögunarferðir frá búð- unum áður en hann leggur á sjálfan tindinn. Það er þó ekki alltaf tekið út með sældinni að komast upp í grunnbúðir og ekki óalgengt að menn séu orðnir æði slappir þegar þangað er komið. „Grunnbúðirnar á Everest eru víst mikið pestarbæli. Það er mjög algengt að menn fái lungnakvef og magakveisu og það eru víst fáir sem sleppa alveg við veikindi þar. Eitt aðaláhyggjuefnið er einmitt hættan á að veikjast á fjallinu.“ Líkurnar á því að fjallgöngu- mönnum takist að ná tindinum eru um 30% en margt getur gert vonir manna um að ná tindinum að engu. Loftþynningin og veikindi af völd- um hennar auk mannskaðaveðurs eru ofarlega í hugum allra þeirra sem freista uppgöngu og langflestir þurfa að játa sig sigraða að lokum. Frostið ofarlega á fjallinu getur farið í 40 stig og þunna loftið sem inniheldur aðeins 30% af súrefn- ismagni lofts við sjávarmál veldur fjallgöngumönnum sífelldri mæði. Hefur áhrifunum af loftþynning- unni verið líkt við það ef menn ættu að gera sér að góðu að anda í gegn- um sogrör dag og nótt heima hjá sér. Haraldur er sér meðvitandi um mótlætið en lætur það ekki aftra sér frá því að ná takmarki sínu og setja þar með heimsmet, sem felst í að ganga á hátindana sjö og báða pólana á minna en fimm árum. Hann segir að þótt hugurinn sé við veðrið og möguleg veikindi megi það ekki spilla tilhlökkuninni við að fara í leiðangur sem þennan. „Það að koma til Nepal og kynnast menn- ingu og náttúru landsins er víst al- veg gríðarleg upplifun. Öllum þeim sem ég hef rætt við og hafa komið inn á þetta svæði ber saman um að það sé gríðarlega mögnuð lífs- reynsla að takast svona leiðangur á hendur.“ Síðasti áfanginn í sjötindaleiðangrinum Everest-leiðangur Haralds hefst í dag Morgunblaðið/Þorkell Haraldur Örn í Útilífi í gær. ♦ ♦ ♦ HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær gæsluvarðhald yfir manni sem var nýlega framseldur frá Svíþjóð vegna gruns um stór- felld fjársvik og skjalafals hér á landi. Hann er grunaður um að hafa tekið þátt í því að svíkja um 77.000 pund, um 11 millj- ónir króna, út úr breskum bönkum. Þáttur mannsins mun hafa falist í því að leggja til reikn- inga sem féð var millifært á. Eftirlýstur frá því 12. október sl. Hann hafi síðan tekið pen- inga út og afhent þá samverka- manni sínum. Maðurinn hefur verið eftirlýstur frá 12. október en hann var handtekinn í Växjö í Svíþjóð 15. mars. sl. Efnahagsbrotadeild ríkislög- reglustjóra taldi nauðsynlegt að maðurinn sætti gæsluvarð- haldi til að tryggja að hann tor- veldaði ekki rannsókn málsins. Eins var talin hætta á að hann yfirgæfi landið en maðurinn er frá Kamerún. Á þessa kröfu féllst Hæstiréttur. Gæsluvarðhald staðfest Lagði til reikninga og tók pen- ingana út SJÁLFSTÆÐISMENN kynntu á Hótel Borg í gær stefnuskrá D- listans fyrir komandi borgarstjórnar- kosningar. Er í henni m.a. lögð áhersla á „menntun og framtíð barnanna í borginni, trausta fjár- málastjórn, verulega lækkun skatta sérstaklega fyrir eldri borgara og endurreisn miðborgarinnar,“ eins og Björn Bjarnason, borgarstjóraefni sjálfstæðismanna, orðaði það í sam- tali við Morgunblaðið í gær. „Stefnu- skráin okkar er ítarleg og vonandi eiga allir borgarbúar eftir að kynna sér hana í heild og átta sig á því hvað við höfum fram að færa.“ Björn kvaðst í samtali við Morgunblaðið vera bjartsýnn, þrátt fyrir skoðana- kannanir, og sagðist sannfærður um að hann hefði góðan málstað og gott samferðafólk. „Og nú heiti ég á stuðn- ing fólks við þennan góða málstað og þessa góðu frambjóðendur.“ Sjálfstæðismenn segja í stefnuskrá sinni að það ætti hvergi að vera betra að búa en í Reykjavík. „Reykjavík á að vera í fyrsta sæti en hefur um stundarsakir tapað forystuhlutverki sínu. Því vilja allir Reykvíkingar breyta,“ segir í stefnuskránni. Boða verulega skattalækkun Morgunblaðið/Kristinn Björn Bjarnason, borgarstjóraefni sjálfstæðismanna, kynnir stefnuskrá D-listans ásamt frambjóðendum flokksins í Reykjavík. Sjálfstæðismenn kynna stefnuskrá sína  Ætlum/30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.