Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 14
AKUREYRI 14 FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ Allt til fermingar sími 462 2900 Blómin í bænum ATVINNUÁSTANDIÐ á Akureyri hefur verið frekar slæmt í vetur og heldur verra en und- anfarin tvö ár. Þó fækkaði heldur á atvinnuleys- isskránni í bænum milli síðustu tveggja mánaða. Þá eru þeir verkalýðsforkólfar sem Morgunblaðið ræddi við frekar bjartsýnir á að atvinnuástandið eigi eftir að batna á næstu mánuðum. Guðmundur Ómar Guðmundsson, formaður Félags bygginga- manna í Eyjafirði, sagði að eitthvert atvinnuleysi hefði verið á meðal sinna félagsmanna í vetur og að lítið hefði verið að gera hjá minni fyrirtækj- unum. Hann sagði að eitthvað hefði verið um upp- sagnir í byggingageiranum í vetur en að eingöngu hluti þeirra hefði komið til framkvæmda. Menn aðeins náð að halda í horfinu Hákon Hákonarson formaður Félags málmiðn- aðarmanna sagði atvinnuástandið hjá sínum fé- lagsmönnum hafa verið viðkvæmt í vetur án þess þó að atvinnuleysi hafi verið í greininni. „Það hef- ur verið lítið um að vera, menn aðeins náð að halda í horfinu en ekki komið til uppsagna. Ástandið virðist vera alveg þokkalegt og eins er með útlitið framundan. Það er allavega ekkert sem bendir til þess að þetta sé ekki í lagi en það má lítið út af bera. En það er ekki mikil eft- irspurn eftir iðnaðarmönnum hér á þessu svæði,“ sagði Hákon. Þorsteinn Arnórsson, þjónustufulltúi hjá Ein- ingu-Iðju, sagði atvinnuástandið alls ekki gott um þessar mundir og að ekki væri að sjá að breyting yrði þar á í augnablikinu. „Ástandið nú er verra en síðustu tvö ár en þetta er þó alls ekki það versta sem við höfum séð. Við viljum þó sjá betra atvinnuástand.“ Töluverð fjölgun hjá Skinnaiðnaði Þorsteinn sagðist hvorki hafa heyrt af upp- sögnum að undanförnu eða að fyrirtæki væru að bæta við sig fólki. Þó hefur fjölgað hægt og hljótt hjá Skinnaiðn- aði eftir gjaldþrot fyrirtækisins og þar starfa nú um 70 manns, að sögn Þorsteins, eða helmingi fleiri en eftir gjaldþrotið. Guðmundur Ómar sagði nokkuð bjart útlit framundan í byggingageiranum en að það réðist að stórum hluta til af því hversu vel gengi að selja íbúðarhúsnæði í bænum. Þá eru í gangi stór verk- efni á vegum opinberra aðila og önnur að fara í gang. „Ég er því ekkert svartsýnn á sumarið og ef áfram verður þörf fyrir nýtt íbúðarhúsnæði verður ástandið gott næsta árið.“ Eftir frekar magran febrúarmánuð er verk- efnastaða Slippstöðvarinnar með allra besta móti og útlitið framundan gott. Hluti starfsmanna vinnur á vöktum og aðrir vinna fram á kvöld og á laugardögum. Hjá fyrirtækinu starfa 110 manns. Slæmt atvinnuástand í vetur og heldur verra en undanfarin tvö ár Bjartsýni ríkjandi um að ástandið fari batnandi Morgunblaðið/Kristján Slippstöðin hefur lokið smíði á 75.000 lítra mjólk- urtanki fyrir Norðurmjólk og var hann fluttur á staðinn á vörubíl í gær í lögreglufylgd. HINN stóri og stæðilegi Snæ- finnur snjókarl, sem stendur á miðju Ráðhústorgi á Akureyri, hefur heldur betur orðið fyrir barðinu á skemmdarvörgum að undanförnu. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið um miðbæinn í gær leit Snæfinnur heldur illa út. Búið var að fjar- lægja augu hans, nef og munn og þá var trefillinn stóri sem hann bar um hálsinn einnig horfinn. Það eru nemendur Myndlista- skólans á Akureyri, í samvinnu við starfsmenn bæjarins, sem byggðu snjókarlinn nú sem endranær fyrir páska og hefur Búnaðarbankinn styrkt verkefnið. Helgi Vilberg skólastjóri Mynd- listaskólans var nánast orðlaus yfir meðferðinni á snjókarlinum – sem hafi verið byggður fyrst og fremst til að gleðja fólk. Snæfinnur fyrir barðinu á skemmd- arvörgum Morgunblaðið/Kristján Aðeins hatturinn situr eftir á Snæfinni snjókarli á Ráðhústorgi, en búið er að fjarlægja nefið, munninn, augun og trefilinn. LAUGARDAGINN 30. mars nk. kl. 20 verður Clapton-kvöld í Sjallanum á Akureyri með Páli Rósinkranz og hljómsveitinni Deadline, í samvinnu við Flugfélag Íslands. Flutt verða bestu lög Clapton eins og Layla, Lay Down Sally, Tears in Heaven og mörg fleiri, auk laga sem hann hefur gert vinsæl eftir aðra listamenn. Liðsmenn Deadline eru Matthías Stefánsson, gítar, Jóhann Ásmunds- son, bassi, Óskar Einarsson, hljóm- borð, og Ingvi Rafn Ingvason, trommur, en hann er jafnframt hljómsveitarstjóri. Miðaverð á tón- leikana er 1.800 krónur og er forsala í Pennanum-Eymundssyni. Clapton-kvöld í Sjallanum HAGNAÐUR Sparisjóðs Svarfdæla á árinu 2001 nam 50,8 m.kr. saman- borið við 10,7 m.kr. árið áður, skv. frétt frá sparisjóðnum. Reiknaður tekjuskattur nemur 16,2 m.kr. en áhrif lækkunar á tekjuskattshlutfalli úr 30% í 18% nema 15,0 m.kr. sem færð eru til tekna. Arðsemi eigin fjár var 17,4%. Í tilkynningu frá sparisjóðnum segir m.a.: „Vaxtatekjur sparisjóðs- ins á árinu 2001 námu 258,3 m.kr. og vaxtagjöld 136,8 m.kr. Hreinar vaxtatekjur námu því 121,5 m.kr. samanborið við 95,8 m.kr. á árinu 2000. Vaxtamunur, þ.e. hreinar vaxtatekjur í hlutfalli af meðalstöðu fjármagns, var 6,3% á móti 5,7% á árinu 2000. Aðrar rekstrartekjur voru 70,7 m.kr. á árinu og hækka um 38,5 m.kr. frá fyrra ári, sem stafar af söluhagnaði af hlutabréfum í Kaup- þingi hf. og Frjálsa fjárfestingar- bankanum hf. en hann nam 58,7 m.kr.“ Hagnaður Spari- sjóðs Svarfdæla nam 50,8 milljónum PASSÍUSÁLMAR Hallgríms Pét- urssonar verða lesnir í Akureyrar- kirkju föstudaginn langa, 29. mars, og hefst lesturinn kl. 13. Björn Steinar Sólbergsson organisti leikur á orgel kirkjunnar áður en lesturinn hefst og svo á heila tímanum þar til lestri lýk- ur, en áætlað er að það verði um kl. 18. Boðið er upp á kaffisopa í safn- aðarheimili meðan á lestri stendur. Akureyrarkirkja Passíusálm- arnir lesnir ÁGÚST Bragi Björnsson sigraði í unglingaflokki á Akureyrarmóti yngri flokka í skák og hann gerði gott betur: sigraði líka í unglingaflokki á hraðskákmóti Akureyrar. Ragnar Heiðar Sigtryggsson varð annar í unglingaflokki á Akureyrarmótinu og Hjálmar Freyr Valdimarsson þriðji. Tveir keppendur urðu efstir og jafnir í drengjaflokki á Akureyrar- mótinu, Davíð Arnarson og Siguróli Magni Sigurðsson og þurfa að tefla einvígi um sigurinn. Í þriðja sæti varð Jón Heiðar Sigurðsson. Í barnaflokki sigraði Alexander Arnar Þórsson en Siguróli Magni sigraði í drengjaflokki á hraðskákmótinu. Guðmundur Gíslason sigraði í flokki fullorðinna á hraðskákmóti Ak- ureyrar, hlaut 17 vinninga af 18 mögulegum. Ólafur Kristjánsson varð annar með 15,5 og Björn Ívar Karlsson þriðji með 14,5. Þór Valtýs- son varð öruggur sigurvegari á mars- mótum SA, bæði tíu og fimmtán mín- útna mótum. Í dag, skírdag kl. 20, hefst hjá SA sveitakeppni „Akureyr- ardeild“ þar sem tefldar eru 20 mín. skákir og hraðskákir. Páskahrað- skákmót 15 ára og yngri er á laug- ardag kl. 13.30 en mót þeirra eldri fer fram annan í páskum og hefst kl. 20. Páskaegg í verðlaun. Öllum er heimil þátttaka en teflt er í Íþróttahöllinni. Ágúst Bragi vann tvö- faldan sigur Skákfélag Akureyrar VALGERÐUR Sverr- isdóttir, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, kveðst vonast til að fyrirtæki á Norðurlandi muni skoða vel þá möguleika sem felast í aðstoð Frumkvöðlaseturs Norðurlands og því tengslaneti sem að baki því stendur. Hún ávarp- aði fund með fulltrúum norðlenskra fyrirtækja sem Frumkvöðlasetrið stóð fyrir nú nýlega. Um þessar mundir er eitt ár liðið frá því form- lega var gengið frá sam- komulagi um rekstur Frumkvöðlaseturs Norðurlands, sem er tilraunaverkefni til fimm ára. Fram kom í máli Valgerðar að þrátt fyrir að eftirspurn hafi orðið minni en búist var við í upphafi telji hún á því eðlilegar skýr- ingar vegna ytri að- stæðna sem erfitt sé að ráða við. Menn hafi haldið að sér höndum frá því um mitt ár 2000 varðandi ný verkefni og fjárfestingar í sprota- fyrirtækjum hafi nánast legið niðri. „Nú virðist aftur á móti heldur vera að rofa til og þótt full ástæða sé til að fara varlega í stórar, áhættumiklar fjárfest- ingar munu hjól efna- hagslífsins ekki stöðv- ast og nýsköpun atvinnulífsins heldur áfram,“ sagði Valgerður og benti á að tilgangur Frumkvöðlaseturs Norður- lands væri að hlú að nýsköpun og stæði það framsæknum frumkvöðlum opið. Frumkvöðlasetur Norðurlands eins árs Eðlilegar skýringar á minni eftirspurn Valgerður Sverrisdóttir HINN landsþekkti skemmtikraftur Jón Gnarr sækir Akureyringa heim um páskana og skemmtir bæjarbú- um og gestum á Græna hattinum. Græni hatturinn er undir Bláu könnunni í Hafnarstræti og verða sýningar Jóns á skírdag, föstudag- inn langa og páskadagskvöld kl. 21 en húsið verður opnað klukkustund fyrr. Jón Gnarr á Græna hattinum Í HRÍSEY er ákjósanlegt svæði til að ganga á skíðum og er svokölluð Hríseyjarnefnd nú að kynna þá kosti sem bjóðast í þeim efnum. Göngufólk getur valið eigin leiðir og eru þær mislangar allt eftir því hvað fólk kýs, frá einum kílómetra upp í fjórtán. „Og það stórkostleg- asta er að þú ert á einni stórri mál- verkasýningu allan tímann sem þú gengur, slíkt er útsýnið,“ segir í frétt frá Hríseyjarnefndinni. „Og eins og gjarnan er á góðri málverkasýningu þar sem maður vill hafa frið til að virða fyrir sér listaverkin, þá er í Hrísey alger þögn, nema ef vera skyldi örlítið öldugjálfur, segir enn- fremur. Tilvalið gönguskíðaland í Hrísey ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.