Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 24
LISTIR 24 FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ Það er þjáningin sem verið er að fjalla um íþessu verki,“ sagði Hörður Áskelsson, org-anisti og kórstjóri í Hallgrímskirkju, um Passíu ópus 28 eftir Hafliða Hallgrímsson þegar verkið var frumflutt í Hallgrímskirkju fyrir rúmu ári. Verkið hlaut gríðar góðar viðtökur bæði tón- leikagesta og gagnrýnenda og sögðust margir vart hafa upplifað aðra eins stund í nálægð ís- lenskrar tónlistar. Þessa dagana er verið að hljóðrita Passíu Haf- liða og af því tilefni og vegna þess að Passían er verk föstunnar verður það flutt öðru sinni að kveldi föstudagsins langa kl. 21 í Hallgrímskirkju. Hafliði Hallgrímsson hefur gert nokkrar breyt- ingar á verkinu og þær helstar að nú eru ein- söngvararnir tveir. Í fyrra var einsöngshlutverkið í höndum Mary Nessinger, en nú hefur því verið skipt milli sóprans og tenórs og syngur Garðar Thór Cortes tenórhlutverkið. Stór hljómsveit leik- ur með Mótettukórnum sem er í burðarhlutverki og tveir organistar, Douglas Brotchie og Kári Þormar. Stjórnandinn, Hörður Áskelsson, segir það við- kvæmt verkefni að hljóðrita Passíuna, enda sé tónlistin margslungin og óendanlega margir hlut- ir þurfi að ganga upp. Því fylgi þessu nokkur spenna. „Annars er það mjög gaman að fá að takast á við þetta verk í annað sinn og eitthvað sem maður þyrfti að fá að gera oftar. Þegar búið er að flytja verk einu sinni finnst manni ennþá svo margt ógert. Svo bætist við núna að Hafliði hefur breytt verkinu nokkuð í ljósi frumflutningsins og ég held að ef eitthvað er, þá sé það ennþá markvissara en áður. Það má líkja þessu við málara sem skerpir einstaka línur í verki sínu; Hafliði er búinn að skerpa á nokkrum stöðum í hljómsveitarpartinum og bæta trompet við á einum stað og þannig; þetta eru smáatriði, en góð fyrir heildarsvipinn.“ Hörður segir spennuna núna þó öðru vísi en í fyrra. Þá var það óvissan sem fylgdi því hvernig flutningurinn myndi virka. Núna sé það ekki spurningin, heldur sé spennan meira bundin því að takast ekki síður upp en þá, þegar allt gekk svo vel. „Maður er búinn að upplifa svo mikið með þessu verki og væntingarnar eru miklar. Núna gerir maður ennþá meiri kröfur til sjálfs sín og verksins til að standast þessar væntingar. Ég er þó ekki í nokkrum vafa um að þetta verður mikil upplifun eins og í fyrra og ég er viss um það, að ef okkur tekst líka vel til með upptökuna á verkinu á það eftir að fara víða um heiminn. Verkið er bæði ferskt og persónulegt, en um leið þó alþjóðlegt. Þótt það sé erfitt að setja mælistiku á tónlist finnst mér Passía Hafliða vera af stærðargráðu sem ég finn helst í tónlist Messiaens; það er óskaplega djúpt og kafar dýpra að hjartarótum en svo margt annað sem ég hef verið að gera.“ Tónleikarnir í Hallgrímskirkju á föstudaginn langa hefjast sem fyrr segir kl. 21. Morgunblaðið/Þorkell Mótettukór Hallgrímskirkju, hljómsveit og stjórnandinn Hörður Áskelsson æfa flutning á Passíu eftir Hafliða Hallgrímsson. Djúpt verk og persónulegt Passía eftir Hafliða Hallgrímsson flutt í Hallgrímskirkju á föstudaginn langa SÝNING á vinnuteikningum og smærri hönnunarhlutum eftir arki- tektinn og hönnuðinn Ólaf Þórðarson verður opnuð í sal Hönnunarsafns Ís- lands við Garðatorg í Garðabæ á laugardag kl. 16. Á sýningunni verður einnig hægt að gaumgæfa feril Ólafs af litskyggnum og myndbandi eftir hönnuðinn Joe Chow, auk þess sem leikið verður tónverkið Music for Furniture eftir íslenska djassleikar- ann Skúla Sverrisson, sem samið var sérstaklega fyrir Ólaf. Þá hefur verið gefinn út bæklingur um verk Ólafs á ensku, hannaður af Jim Tait. Þar er m.a. grein eftir Að- alstein Ingólfsson, forstöðumann Hönnunarsafnsins, Lynnette Wid- der, lektor í arkitektúr við Columbia háskóla og höfund ótal greina um hönnun, ítölsku arkitektana Elenu Carlini og Pietro Valle, og Khipru Nichols, forstöðumann iðnhönnunar- deildar Rhode Island School of De- sign. Hannar hús í bland við nytjahluti Ólafur hefur haldið þrjár einkasýn- ingar á hönnun sinni en auk þess hef- ur hann tekið þátt í á þriðja tug sam- sýninga á hönnun, arkitektúr og borgarskipulagi. Fjallað hefur verið um verk hans í fjölda virtra tímarita, bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu, og hann hefur haldið fyrirlestra og námskeið um hönnun við Parsons School of Art, Pratt Institute, Col- umbia háskóla og Rhode Island School of Design. Ólafur er fæddur í Reykjavík árið 1963 og lauk námi í arkitektúr við University of Wisconsin-Milwaukee, Bandaríkjunum, árið 1986. Síðan stundaði hann framhaldsnám við Col- umbia University í New York, m.a. hjá Kenneth Frampton og Steven Holl, og lauk þaðan mastersprófi í arkitektúr árið 1990. Ólafur hóf störf hjá Húsameistara ríkisins árið 1987, en vann síðan á nokkrum stofum bandarískra arki- tekta í New York, m.a. á stofu I.M. Pei. Árið 1990 gekk Ólafur til liðs við hönnuðinn Gaetano Pesce, og hefur allar götur síðan ræktað tengsl við vinnustofu hans. Upp frá því hefur Ólafur fengist æ meir við marghátt- aða hönnun nytjahluta, í bland við hönnun húsa og þátttöku í samkeppni um skipulag byggðar. Ólafur rekur vefsíðuna www.thord- arson.com og vefgalleríið www.das- boot.org, þar sem er að finna verk eft- ir listamenn af ýmsu tagi. Sýningin stendur til 12. maí og er opin alla daga nema mánudaga kl. 14- 18. Morgunblaðið/Kristinn Ólafur Þórðarson, arkitekt og hönnuður. Brot af ferli Ólafur Þórðarson í Hönnunarsafninu JÓN B. Guðlaugsson erþað sem sennilega mákalla þúsundþjalasmið. Hann er fjölmenntaður, starf- ar sem flugþjónn og þýðandi, en sinnir jafnframt ýmsu öðru, svo sem tónlist, útvarps- mennsku og sagnfræði. Þetta þrennt sameinaði hann fyrir tæpum áratug í þáttaröð Rík- isútvarpsins um íslenska söng- lagasmiði á fyrri hluta 20. ald- ar. En nú er Jón kominn af stað aftur með nýja þáttaröð sem helguð verður einu ís- lensku tónskáldi, Inga T. Lár- ussyni. „Ég komst að því að það er afar lítið til af heimildum um þetta ágæta tónskáld. Ég er Seyðfirðingur eins og hann, og þess vegna langaði mig til að gera þetta. Það eru mörg ár síðan ég byrjaði á verkefninu. Ég sendi bréf á alla þá staði sem ég vissi að Ingi hafði dval- ið á, hafði upp á þeim sem ég taldi best til þekkja, og bað fólk að heimsækja þá sem þekktu Inga og töldu sig hafa frá einhverju að segja. Ég bauð fólkinu að senda því spól- ur til að taka efnið upp, en þetta gekk ekki. Ég sá að þetta var eins og hjá litlu gulu hænunni, – ég yrði að gera þetta sjálfur. Ég eyddi ærnum tíma í það að hringja aftur í fólk, og fór svo í tvær pílagríms- ferðir um landið. Ég heimsótti elliheimili, því það er orð- ið svo, að þeim sem þekktu tónskáldið fækkar óðum. Ég sá að þetta var ef til vill síðasta tækifærið til að safna þessum heimildum saman, og þegar upp var staðið var ég kominn með viðtöl við um hundrað manns inn á band hjá mér.“ Það hefur tekið Jón B. Guðlaugsson drjúgan tíma að vinna úr heimildum sínum, og hann komst að ýmsu for- vitnilegu. „Ég ætla að spila öll lög Inga í þáttunum. Það hlýtur að teljast forvitnilegt að ég fann tæpan tug laga sem eru óþekkt með öllu, þar af eitt sem aðeins hefur varðveist í munnlegri geymd. Ég fékk Jón Þórarinsson og Hákon Leifsson tónskáld sem báðir eru Seyðfirð- ingar að ætt og upp- runa til að útsetja lög- in, og svo var ákveðið að hljóðrita þau sér- staklega fyrir þætt- ina. Óskar Ingólfsson tónlistar- stjóri fékk Þórunni Guð- mundsdóttur til að syngja, en kórlögin fengum við Karlakór Ís- lands og nágrennis, sem Jón Stefánsson stjórnar, – til að syngja, karlakórslögin. Ingi var alla tíð mjög hrifinn af karlaröddum og samdi meira fyrir þær en kvenraddirnar.“ Jón segir að tímabært hafi verið að vinna þetta verkefni. Fólk í dag þekki aðeins fá laga Inga T. „Hann er náttúrlega ekki punktur-is, og fólk sem er yngra en kynslóð Óskalaga sjúklinga þekkir ekki lög hans sem mörg hver eru frábær. Eldra fólk þekkir Ég bið að heilsa við ljóð Jónasar og jafnvel Ó blessuð vertu sumarsól. Það er varla meira en það. En laga- safn Inga er mjög fjölbreytt og þar leynast margar perlur.“ Ingi T. Lárusson var fjölhæfur tónlist- armaður þótt tónlistarmenntun hans hafi ver- ið lítil sem engin. Hann lék á öll þau hljóðfæri sem hann komst í tæri við og vann ötullega að hvers konar tónlistarstarfi hvar sem hann var. Hann fæddist og bjó fyrir austan framan af en bjó síðar bæði í Reykjavík og á Akranesi. Hann var lengi sím- stöðvarstjóri og póstmeistari á Austfjörðum og segir Jón að enn séu til símskeyti frá Inga, en þau skrautritaði hann afar fallega. Þættirnir verða sjö talsins og bera yf- irskriftina Í fótspor Inga Lár. Þeir spanna ævi Inga og störf og tónlistin gegnir veigamiklu hlutverki, en sem fyrr segir verða öll lög Inga sem kunn eru leikin. Jón styðst við þær rituðu heimildir sem til eru um tónskáldið auk þess efnis sem hann safnaði á ferðum sínum um landið. Fyrsti þátturinn um Inga T. Lárusson og tónlist hans verður á dagskrá Rásar eitt kl. 15.00 annan dag páska. Í fótspor Inga Lár Ingi T. Lárusson tónskáld Skraut- skrifað símskeyti tón- skáldsins. Listasafn Reykjavíkur Öll hús Listasafns Reykjavíkur, Ásmundarsafn, Kjarvalsstaðir og Hafnarhús, verða opin á hefð- bundnum opnunartíma yfir páskana en leiðsögn færist frá sunnudegi til mánudags. Ásmundarsafn er opið frá kl. 13- 16, Kjarvalsstaðir kl. 10-18. Leið- sögn verður á mánudag kl. 15. Hafn- arhús er opið frá kl. 11-18, skírdag kl. 11-19. Leiðsögn verður þriðju- daginn 2. apríl kl. 16. Á annan dag páska, 1. apríl, eru sýningarlok á sýningu Hannesar Lárussonar, Hús í hús, á Kjarvalsstöðum. Listasafn Íslands Listasafn Ísland er lokað föstu- daginn langa, páskadag og annan í páskum. Opið er í dag, skírdag og á laugardag, kl. 11-17. Gerðarsafn Gerðarsafn er lokað föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum. Opið er í dag, skírdag og laugardag, kl. 11-17 en þá lýkur sýningu Ljós- myndarafélags Íslands og Blaða- ljósmyndarafélags Íslands. Hafnarborg Í Hafnarborgar standa nú yfir sýningarnar Svifið seglum þöndum og Hjörtur Hjartarson, Nýjar myndir. Safnið er opið alla daga, nema þriðjudaga, kl. 11-17, lokað föstudaginn langa og páskadag. i8, Klapparstíg 33 i8 er lokað fram til 8. apríl en hægt er að skoða gólfverk eftir Kristján Guðmundsson frá götunni á meðan lokað er. Hörður Ágústsson sýnir nú í galleríinu. Listasafn ASÍ Listasafn ASÍ, Freyjugötu er opið alla daga frá kl. 14-18. Einnig er opið í dag, skírdag, föstudaginn langa og páskadag en þá lýkur sýningu Hjartar Marteinssonar. Páskaopnanir safnanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.