Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 31
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 31 Gjafapakkning Vantar þig gjöf? • Gefðu þá Trind gjafapakkninguna (3 tegundir í boði) • Tilboðsverð • Með Trind næst árangur Fæst í apótekum og snyrtivöruverslunum um allt land Ath. naglalökk frá Trind fást í tveimur stærðum Allar leiðbeiningar á íslensku Fást í apótekum og snyrti- vöruverslunum um land allt. Me ð næ rðu ára ngr i Með því að nota TRIND naglanæringuna færðu þínar eigin neglur sterkar og heilbrigðar svo þær hvorki klofna né brotna. handáburðurinn með Duo-liposomes. Ný tækni í framleiðslu húðsnyrtivara, fallegri, teygjanlegri, þéttari húð. Sérstaklega græðandi. EINSTÖK GÆÐAVARA = Dreifing: S. Gunnbjörnsson ehf. Sími 565 6317 - www.trind.com Frábærar vörur á frábæru verði. Gerið verðsamanburð. Nýjung Ný ju ng Vatnsþynnanlegt vax- og hitatæki til háreyðingar. Vaxið má einnig hita í örbylgjuofni. Einnig háreyðingarkrem, „roll-on“ eða borið á með spaða frá Nýjar handsnyrtivörur frá Ekki síður fyrir táneglur. er í forystu við framleislu á handsnyrtivörum. Íslenskar leiðbeiningar. Nýtt Nail Balsam (naglanæring) Nærir og styrki neglurnar, viðheldur og eykur rakann á milli naglalaganna. Cuticle Balsam (naglabandanæring) Nærir og græðir. Nýtt Ekta augnhára- og augnabrúnalitur, er samanstendur af litakremi og geli sem blandast saman, allt í einum pakka. Mjög auðveldur í notkun. Fæst í þremur litum og gefur frábæran árangur. Hver pakki dugir í 20 litanir. Útsölustaðir: Apótek og snyrtivöruverslanir Þýskar förðunarvörur skráður 14.09.1999 Tiptronic skipting. Ekinn: 11.000 km Með öllum aukahlutum. Verð 5,5 millj. Upplýsingar í síma 894 5800 Porsche Boxter til sölu Við ætlum að leggja rækt við gróskumikið starf í listum og menningu og skapa starfsaðstöðu fyrir einstaka listamenn og hópa, til dæmis á svæðinu í kringum gamla Slippinn og í Dugguvogi. Við ætlum að virkja krafta lista- manna í þágu leik- og grunnskóla, auk þess sem skipulega verði stað- ið að listskreytingum í skólum. Við ætlum að nýta menningarsögu- lega arfleifð Reykjavíkur sem best með góðu aðgengi að fornleifum við Aðalstræti, öflugu starfi í Við- ey undir forystu staðarhaldara og áherslu á menningartengda ferða- þjónustu. Við ætlum að gera átak í að merkja sögulega staði og ör- nefni í öllum hverfum borgarinn- ar. Við ætlum að vinna að nýrri heildarstefnumótun í málefnum Árbæjarsafns. Við ætlum að halda menningarnótt sem árvissum viðburði. Betra íþrótta- og æskulýðsstarf Sjálfstæðisflokkurinn vill efla íþróttastarf í Reykjavík og virkja sem flesta til þátttöku með aukinni samvinnu við íþróttafélögin í borg- inni. Við ætlum að koma á laggirnar ár- legum Reykjavíkurleikum í frjáls- um íþróttum. Við ætlum að leggja mikla áherslu á eflingu grasrótarstarfs íþrótta- félaganna í borginni. Við ætlum að tryggja að starf þeirra verði sam- bærilegt við það sem best gerist í öðrum sveitarfélögum og enn- fremur viljum við bæta fræðslu- kerfi þeirra. Við ætlum að auðvelda íþróttafélög- um að ráða menntað fólk til að þjálfa börn og unglinga og ætlum að koma á fót íþróttaskólum í hverfum borgarinnar í samstarfi við grunnskólana. Við ætlum að vinna að því að kraftar íþróttahreyfingarinnar verði sam- einaðir og forvarnir verði efldar í því sambandi. Við ætlum að leggja áherslu á að starf félagsmiðstöðva og íþrótta- félaga verði samtvinnað í ríkari mæli og að samið verði við ein- staka íþróttafélög um að taka að sér rekstur félagsmiðstöðva. Við ætlum að byggja upp fullkomin keppnissvæði á 4-5 stöðum í borginni, sem verða samnýtt af hverfafélögunum og móta heild- arstefnu í uppbyggingu sund- lauga borgarinnar. Við ætlum að fjölga opnum svæðum í borginni fyrir íþróttaiðkun barna og unglinga, ekki síst á auðum svæðum í eldri hverfum borgarinnar. Við ætlum að láta styrki til íþrótta taka mið af fyrirfram ákveðnum gæðastöðlum og íþróttafélög sem setja upp slíka staðla njóti þess með sérstökum stuðningi. Við ætlum að tryggja að í Laugar- dal verði 50 metra innisundlaug og aðstaða til knattspyrnuiðkun- ar, sem stenst alþjóðlegar kröfur. Betri löggæslu og öryggi Sjálfstæðisflokkurinn vill gera Reykjavík að öruggri borg fyrir alla íbúa hennar. Við ætlum að tryggja öryggi borg- aranna og gera löggæsluna sýni- legri, meðal annars með þjón- ustusamningi við ríkið um löggæslu í borginni. Við ætlum að setja á laggirnar mið- borgardeild í samvinnu við lög- regluyfirvöld, félagasamtök og hagsmunaaðila. Við ætlum að efla löggæslu í út- hverfum borgarinnar í samvinnu við lögregluyfirvöld, íbúa og aðra hagsmunaaðila í hverfunum. Við ætlum að leggja sérstaka áherslu á að uppræta fíkniefna- vandann. Betri samgöngur og greiðari umferð Sjálfstæðisflokkurinn vill að um- ferð í borginni sé greið og borgararn- ir geti ferðast innan hennar með þeim hætti sem þeir helst kjósa. Við ætlum að beita okkur fyrir því að fyrsta áfanga Sundabrautar ljúki. Við ætlum að láta umferðaröryggi ráða ferðinni þegar fjármagni er ráðstafað til vegamála og leggja áherslu á mislæg gatnamót á fjöl- förnum stöðum, svo sem við Stekkjarbakka og á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrar- brautar. Við ætlum að beita okkur fyrir lagn- ingu Skerjabrautar í framhaldi af Suðurgötu yfir á Álftanes um göng eða brú eftir því hvort reynist hag- kvæmari kostur. Við ætlum að kanna hagkvæmni þess að tengja Sæbraut við Örfirisey með brú. Betra ástand umhverfismála Sjálfstæðisflokkurinn vill hlúa að umhverfi borgarinnar og tryggja að íbúarnir geti notið náttúru hennar sem víðast. Við ætlum að hreinsa til í borginni og bæta umhirðu í hverfum hennar með markvissu hreinsunarstarfi. Við ætlum að styrkja og efla útivist- arsvæði borgarinnar og stuðla að því að borgarbúar njóti þeirra. Við ætlum að vernda og endurlífga lífríki Elliðaánna og skipa sér- staka stjórn um þær. Við ætlum að leggja grunn að heil- steyptu samgöngukerfi göngu-, hjólreiða- og hestastíga. Við ætlum að ljúka hreinsun strand- lengjunnar, því verki sem við hóf- um. Við ætlun að vernda Laugardalinn og tryggja að hann verði áfram gott útivistarsvæði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.