Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 38
MINNINGAR 38 FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Ísleif IngibjörgJónsdóttir fædd- ist 9. júní 1910 á Borgareyrum og ólst þar upp. Hún lést á Dvalarheimilinu Lundi á Hellu, mið- vikudaginn 20. mars síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Jón Ingvarsson, f. 28.9. 1872, d. 9.3. 1950, og Bóel Sigurleif Er- lendsdóttir, f. 1.11. 1878, d. 21.10. 1960, en þau bjuggu á Borgareyrum í V- Eyjafjallahreppi. Systkini Ísleifar Ingibjargar eru Júlíus, f. 15.7. 1902, d. 20.7. 1902; Guðmundur Júlíus, f. 6.1. 1904, d. 16.1. 1989; Markús, f. 6.3. 1905, d. 28.7. 1988, og Sigríður, f. 19.9. 1911. Ísleif Ingibjörg giftist 1931 Árna Kristni Sigurðssyni, f. 20.12. 1902, d. 11.11. 1983. Þau bjuggu á Bjarka- landi, V-Eyjafjalla- hreppi. Börn Ísleifar Ingibjargar og Árna Kristins eru: 1) Sig- urður, f. 26.4. 1932; 2) Unnur, f. 25.11. 1934, d. 23.10. 1935; 3) Trausti, f. 2.8. 1936, kvæntur Ernu Markúsdóttur, f. 9.8. 1947. Börn Trausta og Ernu eru Edda, f. 10.6. 1979, og Árni, f. 5.1. 1984; 4) Bragi, f. 14.6. 1938; og 5) Valdimar, f. 27.3. 1946, d. 30.6. 2000, kvæntur Þórnýju Guðna- dóttur, f. 17.2. 1963. Útför Ísleifar Ingibjargar fer fram frá Stóra-Dalskirkju í V- Eyjafjallahreppi laugardaginn 30. mars og hefst athöfnin klukkan 14. „Ég hef augu mín til fjallanna hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni skapara himins og jarðar.“ Þetta er upphafið á einu þeirra ljóða sem kennt er við Davíð konung og eru gyðingum og kristn- um mönnum meðal kærustu sálma. Talið er að þetta sé meðal þeirra sálma sem pílagrímar hafi sungið þegar hillti undir fjöllin umhverfis borgina helgu, Jerúsalem. Þegar ég hugleiði þennan sálm kemur bærinn Bjarkaland í Vestur- Eyjafjallahreppi í huga minn og fjallahringurinn sem umvefur þá fögru sveit með Eyjafjallajökul sem gnæfir tignarlegur í austri, Fljóts- hlíðina í norðri og Vestmanneyjar sem blasa fagurbláar við í suðri. Öll þessi fagra umgjörð var stór hluti bernsku minnar og bróður míns Sigurjóns en þar vorum við mörg sumur í sveit hjá heiðurshjón- unum Árna Kr. Sigurðssyni og Ís- leifu Jónsdóttur sem nú hefur kvatt þennan heim eftir starfsaman og innihaldsríkan ævidag nánar tiltekið 20. mars síðastliðinn en Árni lést ár- ið 1983. Í bernskuminningunni fær hin fagra sveit sitt innihald og litróf í þeim kærleika og þeirri hlýju sem við bræður nutum svo ótæpilega af hálfu hjónanna Ísleifar og Árna og sona þeirra Valdimars, Sigurðar, Braga og Trausta þau sumur sem við dvöldum þar. Ísleif var einstök kona, hún var ljúf, dugleg og áræðin. Hún sinnti heimilinu af miklum myndarskap og var hún eins og sönn eiginkona og móðir, hjarta síns heimilis. Það fór enginn bónleiður til búðar þegar komið var á Bjarkaland, rausnar- skapur og elskulegheit mættu hverj- um ferðalangi sem þar bar að garði. Það var okkur bræðrum mikil gæfa að fá að dvelja á Bjarkalandi og margs að minnast er ævi Ísleifar Jónsdóttur hefur runnið sitt skeið. Minningar um sterka návist þeirra hjóna, umhyggju og þær heillagjafir sem þeim fylgdu og við fengum svo vel að njóta. Eftir standa fagrar minningar og dýrmæt reynsla sem við bræður munum ávallt búa að. Nú er þökkin efst í huga, þökkin til Guðs fyrir þá gjöf sem þau hjónin Ísleif Jónsdóttir og Árni Kr. Sig- urðsson voru okkur til handa. Að lokum biðjum við Guð að blessa og styrkja alla afkomendur og ástvini þeirra hjóna. Í niðurlagi þess Davíðssálms sem ég hóf þessa grein á segir: „Drottinn mun varð- veita útgöngu þína og inngöngu héð- an í frá og að eilífu.“ Í þeirri von og trú kveðjum við heiðurskonuna Ís- leifu Jónsdóttur. Björn Sveinn og Sigurjón Björnssynir. Hin mikla rausnarkona Ísleif Jónsdóttir, húsmóðir á Bjarkalandi undir Eyjafjöllum, er látin tæplega 92ja ára að aldri. Með þessari mikilhæfu konu er merkasta húsmóðir aldamótakyn- slóðarinnar horfin. En ekki verður Ísleifar svo minnst, að ekki verði sagt með nokkrum orðum frá hinum stórbrotna eiginmanni hennar, Árna Sigurðssyni, sem lést 1983 þá 81 árs. Þau hjónin, Ísleif og Árni, reistu ný- býlið Bjarkaland undir Eyjafjöllum upp úr 1930 þar sem þau bjuggu rausnarbúi til æfiloka. Með þeim við búskapinn hin síðari ár voru þeir synir þeirra, Sigurður, Bragi og Valdimar. Eftir fráfall Árna bjó Ís- leif áfram með sonum sínum sama rausnarbúinu að Bjarkalandi. Einn sonur Árna og Ísleifar, Trausti, er búsettur í Reykjavík. Fyrir um ári síðan varð Ísleif fyrir því mikla áfalli, að missa yngsta son sinn, Valdimar, en hann var þá ný- kvæntur, Valdimar var einstakur at- gervismaður – virtur og dáður af öll- um, sem hann þekktu. Sorgin við fráfall hans var því þungbær, ekki síst fyrir móðurina öldruðu og eig- inkonuna ungu, Þórnýju Guðnadótt- ir. Stúlkubarn misstu þau hjónin á Bjarkalandi í frumbernsku. Við hjónin, sem þessar línur rit- um, vorum þess láns aðnjótandi, að tveir sona okkar dvöldust mörg sumur hjá þessari mikilhæfu og gæskuríku fjölskyldu. Þarna var hinn besti skóli fyrir drengina okk- ar, enda hafa þeir báðir haft á orði hvílíkrar gæfu þeir hafi orðið aðnjót- andi við kynnin af þessum góðu hjónum og sonum þeirra. Þarna lærðu þeir góða siði og virðingu fyrir öllum mönnum lágum sem háum. Þarna var öllum vel tekið, með alúð og hlýju, enda var Bjarkalandsheim- ilið orðlagt fyrir gestrisni og mynd- arbrag. Bæði voru þau hjón, Ísleif og Árni, góðum gáfum gædd og var Árni skáld gott – þó að lítt flíkaði hann kveðskap sínum. Þá var lestur góðra bókmennta iðkaður og saga þjóðarinnar í hávegum höfð. Trúrækni var mikil með fjölskyld- unni á Bjarkalandi og skal þess get- ið, að Árni söng í kirkjukór sóknar sinnar árum saman. En nú eru þessi elskulegu hjón horfin yfir móðuna miklu. Við Sigríður og fjölskylda okkar öll þökkum vináttu og velgjörðir Bjarkalandshjónanna og biðjum góðan Guð að varðveita þau og blessa um alla ókomna tíð. Sigríður og Björn Önundarson. ÍSLEIF INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR                !  " ##                   $ % &  ' ('( $&  '  &  '   ) *+ ,+ - % +    + &   '. !   "       /,0   1*  23   45 # $  %"  &  ' &' "( )   *   + , &    "-) -  &   .,      /   ' '6 7 ' !89 : ' $ * . '6+ ) $* '  ) $*' 4 1 ) $*+ ) 5 9) $*+ 7 /  18 ' / ! 5% 9 !;+ + . 0                      ,0 )<0 6 %  +:   &$ %=   45 #   $  %"    (   )    12    $! 5% >? + 4 4+ 1  +" ' ,' :+% 4' 4' $ * 4' 1 5 % + 1 5. @  ': @  $ 5% .  "'+ .' '6 ' 97 % $4' 6  67 '$6  6  67 . 0             9A /  $ 4$BC 1+# 4'$ #   "   $  %"   " 3%     14   7 ) $*' / $  !+  ) $*' %-9$   + / ) $*+ 9 ) $*+ ,+ ' 9$ ' 9 7 5) $*+ 97' 4  ) $*' 9 ! * 5%+ 6  67 '$6  6  67 . 0                /1A& A % 452D ' $  8% ":89'!4  $72=   45       5           %- % ++ 9 + 1.1  8' $  % +' ) 5 /'+ 9+:! 5%  +"   % ++ + % $' 6  67 '$ $7::67 . 0      "      9/1  )8B % 6E # $  %"   6 7     1   + ,       ("  " 8 - "      %" 5       )    )      &   7 # 9    42::21 A  +'  $ % A + 9:  ' + A '  A + %: /  &4 '  $  9: ' A 9 !9: '. 0             & & /0 ! 4.! :4E:  + 8/     4$BF )'!6E # )   12   + ,&   (        %"4 1 5+: + ) $ ?&  + & &  '   4+ /% &  + / ,+ 5&  + ! '" ' '$! 7  . !       <A 9/  ! 87$ 6 59 * ! % 7$"5%2F   45 # $  %"   6 7      1;   9 + >8' 7 $ 45%+ >8>8' % *) $ ?>8+ 9 G $$ 4  5  45% 1 1 5 1 +! >8'$ 45%H  .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.