Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 40
MINNINGAR 40 FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ Mig langar að minn- ast tengdaföður míns og vinar, Ingvars Jó- hannssonar, sem lést óvænt mánudaginn 18. mars síðastliðinn. Það var fyrir rúmum 30 árum er við Hildur dóttir Ingvars hófum samband okkar að ég kynntist hon- um. Var það á Hlíðarvegi 3 í Ytri- Njarðvík, þar sem Ingvar og Halla höfðu byggt sér og dætrum sínum, Auði, Hildi, Björgu og Rósu, fallegt heimili. Frá fyrsta degi kynna okkar Ingvars reyndist hann mér hinn besti félagi. Á byrjunarárum bú- skapar okkar Hildar var Ingvar allt- af boðinn og búinn til að rétta okkur hjálparhönd. Voru meiningar hans oft meiri en okkar, því Ingvar var mikill kappsmaður og var þá mæst á miðri leið. Ingvar Jóhannsson var ákaflega jákvæður og drífandi mað- ur, dreif hann margan manninn með sér til góðra verka og fór kapp hans og forsjón þar fyrir. Er ég hugsa til baka yfir farinn veg minnist ég margra góðra stunda með góðum dreng sem ég unni mjög. Öll jólin og áramótin á Hlíðarvegi 3 og heimili okkar Hildar, páskar og sumardagar í Álftavík í Þrastarskógi þar sem tengdafaðir minn undi sér alltaf best úti í náttúrunni við veiðar og útiveru. Sá er sameinar karlmennsku og kvenlega blíðu mun verða eins og breitt fljót sem allar lindir renna til, hann mun verða sem lítið barn. Hvíl í friði, kæri vinur. Leifur Vernharð Eiríksson. Jæja, afi, það er skrítið að kveðja þig nú. Þegar við hittumst síðast, helgina sem ég fór út, ræddum við um að þú skrifaðir mér annað bréf, þar sem þú héldir áfram frá fyrra bréfi sem þú skrifaðir mér fyrir nokkrum árum og gera grein fyrir ættartré okkar. Við höfum átt frábærar samræður INGVAR A. JÓHANNSSON ✝ Ingvar Aðal-steinn Jóhanns- son fæddist í Reykja- vík 26. maí 1931. Hann lést á heimili sínu í Árskógum 8 í Reykjavík 18. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Ytri-Njarðvíkur- kirkju 27. mars. í gegnum tíðina, þar sem við höfum farið vítt yfir sviðið, rætt stjórn- málin sem okkur voru hugleikin, lífið og til- veruna. Þú vildir alltaf fá að vita hvað ég var að brasa, hvert ég stefndi og það gaf mér mikið að deila því með þér. En af öllu því sem við ræddum voru það samt stjórnmálin sem við höfðum mest gam- an af. Þau fékk ég í vöggugjöf frá þér. Að sjálfsögðu vorum við sammála í öll- um grunnþáttum en deildum í mörg- um hversdagsmálum enda gat það ekki verið öðruvísi, það varst þú sem kenndir mér að vera sjálfstæðismað- ur. Í einhverju útvarpsviðtali fyrir mörgum árum var ég spurður hvort ég væri ekki „pabba-pólitíkus“. Ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um og svaraði að ég væri svo sannarlega uppalinn sjálfstæðismaður og því er ég þér innilega þakklátur. Þú kennd- ir mér að það að vera sjálfstæðis- maður snerist um annað og meira en hversdagspólitík. Það snerist um lífsviðhorf. Og margir höfðu skoðan- ir á því hvernig líf þú valdir þér. En milli okkar ríkti sá skilningur sem þú kenndir mér. Við förum þá leið sem við trúum á, þá leið sem við veljum og ætlum okkur að gera vel. Og það gerðir þú svo sannarlega. Veistu, afi, að það hugrekki og þann drifkraft sem þú áttir, gafstu mér og mörgum öðrum. Þá gjöf mun ég ávaxta vel fyrir mig og þig. Og þú kenndir mér að það sem við tökum okkur fyrir hendur gerum við vel og leggjum okkur fram við að ná þeim árangri sem við stefnum að. En minni mitt nær ekki aftur til þess tíma er þú hófst að benda mér á ein- földustu og flóknustu hluti. En ég man hvernig ég átti að hlúa að trénu sem þið amma gáfuð mér og ég pissa ennþá á það og ég mun kenna Knúti að hlúa að því áfram. Ég man líka að það má taka fram úr á brotalínu en ekki heilli, en þá sá ég bara aldrei þessar brotalínur í rafmagnslínun- um. Svo þegar ég var búinn að ná samningum um kaup á mótorhjólinu í Sandgerði og þú skutlaðir mér út- eftir til þess að ná í það. Þegar við komum á staðinn hafði eigandinn fengið í millitíðinni hærra tilboð og selt það. Þessi vinnubrögð líkaði þér ekki og útskýrðir fyrir fyrrverandi eiganda og mér að óheiðarleiki kæmi aftan að mönnum. Seinna um kvöldið hringdir þú og bauðst mér vinnu og ég átti að mæta á hádegi daginn eft- ir. Þegar ég mætti tókstu mig í Reykjavík þar sem við keyptum nýtt hjól úr kassanum, skutlaðir mér svo til vinnu og gafst mér færi á að byrja að vinna fyrir því. Aðeins ein af þeim kennslustundum sem þú veittir mér. Og skólinn var þér hugleikinn. Fyrsta spurningin var iðulega, hvernig gengi og eftir henni fylgdi lexía um mikilvægi skólagöngunnar, verðmæti hennar og gildi fyrir fram- tíðina. Þú barst ómælda virðingu fyrir menntun og sagðir mér oft frá því hvernig þínum menntavegi var háttað og hvernig við gætum nýtt okkur þína reynslu í þeim efnum. Svo endaði lexían oftast á spurning- unni: Hvað er hálfu sinnum hálfur? Og það var alltaf jafngaman að svara henni. Á milli okkar hefur mér alltaf fundist svo skemmtilegt jafnvægi í kynslóðabilinu okkar. En þegar kom að ástamálunum vandaðist málið heldur. Við ræddum oft um konur og ég fékk margar útskýringar hjá þér sem ég í raun skildi ekki þá. Í þeim málum voru línurnar þínar skýrar eins og í öðrum. Forgangsröðin var skýr. Hana varðveiti ég enn. En það var í raun Magga sem fékk að finna fyrir kynslóðabilinu. Þú varst fljótur að samþykkja hana þegar þú heyrðir föðurnafnið hennar. En þú varst líka fljótur að byrja að leggja henni regl- urnar. Við vorum ekki nema 15 ára þegar hún fékk fyrst að heyra hvern- ig hún ætti að styðja mig í gegnum námið, sagðir okkur frá því hvernig amma vann fyrir ykkur meðan þú lærðir og hvernig í sameiningu við gætum komið okkur áfram. Svo þroskaðist sambandið og þú skildir ekkert í því af hverju það væri ekki kominn krógi, og bentir Möggu á að forgangsröðunin yrði að vera rétt. Og svo þegar við komum frá Akur- eyri með Knút litla þá sagðir þú okk- ur samviskusamlega að loksins vær- um við komin á beinu brautina. Í framhaldinu buðuð þið amma okkur með ykkur á Landsfundardansleik- inn sem er kvöld sem okkur Möggu er ógleymanlegt. Það var hreinlega frábært og hófst með því að þú bauðst okkur upp á fordrykk og það runnu tvær grímur á Möggu þegar hún heyrði þig biðja þjóninn um fjóra tvöfalda í kók. Svo voru málin rædd og farið vítt yfir sviðið og við enduðum með því að skála fyrir framtíðinni, með fordrykknum Stórvirki þín eru mikilfengleg. Allt umhverfi þitt ber þess merki. Það verður ekki gerð grein fyrir þeim í fáum orðum. Framkvæmdir þínar tala sínu máli en það voru ekki þær sem gerðu þig að stórmenni. Þau stórvirki sem þú reistir í okkur sem fengum þann heiður, eru þau sem gerðu þig að stórmenni. Það eru þau sem við munum halda áfram að byggja við og betrumbæta á traust- um grunni frá þér. Afi, ég ætla ekki að sakna þín. Vegna þess að þig er að finna í mér og öllum þeim sem þú reistir stór- virki þín í. Þar getum við alltaf fund- ið þig og þannig getum við áfram notið leiðsagnar þinnar. Við munum öll sameinast í að veita ömmu öryggi, skjól, ást og um- hyggju þótt ég viti að ekkert, ekkert kemur í staðinn fyrir þig. Og við munum áfram byggja á þeim grunni sem þú lagðir. Þinn Ingvar.  Fleiri minningargreinar um Ingvar A. Jóhannsson bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. " ! ,  -     <A /) A< /   & ' &    3 %%  ,   11   + ,       (    )    1 %" (-&,     $$ %  ++ . - " A< I>& ! 897!% +:4  $72D #     1   + ,    )   1 %"4 9$ >8+ . A     )      )    /    '    &/ &      ' ,        "  ,          7     A </ .A </0/  $ "'2  ! %. 4! 5% 984 % + 4! 5% 0$  % + +  % + !,. 5 ' 9  7  % + 4   +'  %E  ! ' ) $ ?$  ! + +$4' 9  %:+ + ) $*+ 984 % 0$ ' '$ . (   /K/  )/  # 6 7        1   + ,               ,+ ! A '$9+:! 5% .     &,                ,   ,      , )/ A9 /A ! 8 ! %  #  ,    11         (   )   1 %" >      9  ,    4 %"  .      &   7 (#      B&  '  9$   + +"  .5:' ' $ %   + +1 $ %' $ *  + 9 7  E:' '$! 7  .              ,0    4$L=   45         )    1 %"  ! $ %' 9$ 1  +$ %' &5) $*+     6  67 '$6  6  67 . C    )     )    /    '         ' ,  !     "  ,     ,          7   & / A 0/ A!2M   45. #   )           @2 $  %"   6  ' &' ( $"  5 + %: &  ' 1"' @"  A &  + /6 ":  $ +&  ' $ * 45%+ $ + % ' A &  + %:  !' 1 5 ++  '$6  67 . (  7  9/ /A  9/0 " $! E%$ )8 $722   45 #    :  $  %"   6 7  >  , &    "-) -  6"9 + "':  '$ "8 . Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.