Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 49
DAGBÓK
föstudaginn 26. apríl hefst
helgarnámskeið í Aromatherapy
Kennarar verða dr. Erwin Haringer læknir
og Margret Demleitner, aromatherapist
frá háskólasjúkrahúsinu í Munchen.
Bæði fara um Evrópu til að kenna
og halda fyrirlestra.
Áframhaldandi nám verður í boði, með útskift
í Aromatherapy (ilmolíufræði)
Upplýsingar í Lífsskólanum
sími 557 7070, fax 557 7011, lifskoli@simnet.is
LÍFSSKÓLINN
ILMOLÍUMEÐFERÐARSKÓLI
Sími 557 7070 - Fax 557 7011 - lifskoli@simnet.is
LÍTT þekkt hollenskt par
fór með sigur af hólmi í
EM-tvímenningnum í Ost-
end, Van Glabbeek og Jan
Maas. Sigur þeirra kom á
óvart, en var mjög sannfær-
andi – þau voru til dæmis
efst fyrir síðustu lotuna og
unnu hana. Fyrirfram voru
Frakkarnir Paul Chemla og
Catherine D’Ovidio talin
sigurstrangleg, en þau end-
uðu í fimmta sæti. Hér er
slemma úr mótinu sem
D́Ovidio spilaði:
Norður
♠ 62
♥ 43
♦ 652
♣ÁG9532
Suður
♠ Á
♥ ÁK109
♦ KG7
♣KD1086
Sex lauf í suður var nið-
urstaðan. Hvernig myndi
lesandinn spila með spaða-
kóng út?
Sagnhafi virðist eiga
tveggja kosta völ – spila
hjarta á tíuna eða tígli á
gosann. Samkvæmt báðum
leiðum þurfa tvö lykilspil að
liggja í austur (DG í hjarta
eða ÁD tígli).
D́Ovidio reyndi að sam-
eina leiðir með því að taka
fyrst ÁK í hjarta og trompa
hjarta, en uppskar ekki
sem skyldi:
Norður
♠ 62
♥ 43
♦ 652
♣ÁG9532
Vestur Austur
♠ KD10983 ♠ G754
♥ 875 ♥ DG62
♦ Á108 ♦ D943
♣4 ♣7
Suður
♠ Á
♥ ÁK109
♦ KG7
♣KD1086
Hún varð að fá niður DG
blankt til að hagnast á
þessari spilamennsku og í
mótsblaðinu er bent á betri
leið – að spila fyrst tígli á
gosann. Ef gosinn heldur er
best að spila á kónginn
næst, en ef vestur drepur
tígulgosann með ÁS má enn
skipta yfir í tvísvíninguna í
hjarta. Þannig eru mögu-
leikarnir betur samnýttir.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert djarfur og tekur
hverri þeirri áskorun sem
lífið færir þér. Árið á eftir að
reynast þér heilladrjúgt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft fyrr eða síðar að
horfast í augu við staðreynd-
ir. Ef þú þarft að láta í minni
pokann skaltu gera það með
reisn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Með sama áframhaldi mun
vinna þín skila þér arði og
ánægju. Farðu samt varlega
því einhver reynir viljandi að
villa þér sýn.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú munt eiga rólegan dag og
gætir fengið óvænta heim-
sókn sem gleður þig. Ekki
hvað síst hversu góðar frétt-
ir þú færð.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þér finnst þú vera að
drukkna í verkefnum en mál-
ið er að þú þarft bara að for-
gangsraða hlutunum og
leysa svo eitt mál í einu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft að finna þér afdrep
til þess að vera einn með
sjálfum þér. Það er hverjum
manni nauðsynlegt að íhuga
málin í algjörum rólegheit-
um.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Nú er þér óhætt að setja
markið hátt ef þú gætir þess
aðeins að ganga ekki fram af
þér. Ekki gleyma að sinna
þeim sem næst þér standa.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vertu óhræddur við að segja
hug þinn því þá munu aðrir
taka mark á þér. Svaraðu
bréfum og skilaboðum strax.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þér verður mikið úr verki í
dag þrátt fyrir mótlæti.
Trúðu á sjálfan þig og hlust-
aðu ekki um of á aðra.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það getur alltaf eitthvað far-
ið úrskeiðis á ferðalögum svo
þú skalt vera við öllu búinn.
Leyfðu þér samt að njóta
þess sem í boði er.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þrátt fyrir að vinnan geti
verið krefjandi í dag, er mik-
ilvægt að hugsa um heimilið
og fjölskylduna.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú skalt vera varkár í um-
ferðinni í dag. Láttu það
ekki fara í skapið á þér þó
allt gangi ekki eins og þú
óskir.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Gættu þess að lenda ekki í
skugganum af mönnum og
málefnum. Tryggðu þér sæti
í fremstu röð, þar sem menn
veita þér og þínum málum
nægilega athygli.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
90 ÁRA afmæli. Laug-ardaginn 30. mars
verður níræður Jón Óskar
Guðmundsson, Langholts-
vegi 44, Reykjavík. Eigin-
kona hans er Sigurbjörg
Ingvarsdóttir. Í tilefni af af-
mælinu taka þau á móti ætt-
ingjum og vinum í Safnaðar-
heimili Áskirkju á
afmælisdaginn kl. 15–18.
80 ÁRA afmæli. Laug-ardaginn 30. mars er
áttræður Eiríkur Örn Gísla-
son, Hamrabergi 38,
Reykjavík. Eiríkur tekur á
móti gestum á heimili sínu
og dóttur sinnar milli kl. 15
og 17 á afmælisdaginn.
50 ÁRA afmæli. Laug-ardaginn 30. mars
nk. er fimmtugur Þ. Steinar
Viktorsson sölustjóri, dag-
skrárgerðarmaður og
hljóðfæraleikari, Laufrima
24, Reykjavík. Eiginkona
hans er Jórunn Andreas-
dóttir. Steinar, ásamt fjöl-
skyldu og nánustu vinum,
heldur upp á afmælið í Ás-
byrgi Broadway laugar-
dagskvöldið 30. mars eftir
kl. 20.
LJÓÐABROT
HIN MIKLA GJÖF
Hin mikla gjöf, sem mér af náð er veitt
og mannleg ránshönd seint fær komizt að,
er vitund þess að verða aldrei neitt.
Mín vinnulaun og sigurgleði er það.
Margt getur skeð. – Og nú er heimsstríð háð,
og hönd hvers manns er kreppt um stál og blý.
En eitt er til, sem ei með vopni er náð,
þótt allra landa herir sæki að því.
Það stendur af sér allra veðra gný
í annarlegri þrjózku, veilt og hálft,
með ólán sitt og afglöp forn og ný,
hinn einskisverði maður: Lífið sjálft.
Steinn Steinarr
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6
4. Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3
Bd6 7. O-O O-O 8. c4
c6 9. cxd5 cxd5 10.
Rc3 Rxc3 11. bxc3
Bg4 12. h3 Bh5 13.
Hb1 Dd7
Hvítur á leik
Staðan kom upp á
Íslandsmóti skák-
félaga sem haldið
var í húsakynnum
Brimborgar. Björg-
vin Jónsson (2.360)
hafði hvítt gegn Har-
aldi Baldurssyni
(1.935). 14. Bxh7+!
Kxh7 15. Rg5+ Kg6
16. g4 Bxg4 17. hxg4
f5 18. He1 f4 19. Re6 He8
20. Dd3+ Kf7 21. Hxb7! og
svartur gafst upp enda verð-
ur hann mát eftir 21... Dxb7
22. Rg5+ Kf8 23. Df5+ Kg8
24. Hxe8+.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Ég er konan þín, hálf-
viti. Ég sagði þér að
setja upp gleraugun.
Smælki
FRÉTTIR
11-11 búðirnar
Gildir til 2. apríl nú kr. áður kr. mælie.
Reyktur lax, 25% afsl. á kassa ................ 1.649 2.199 1.649 kg
Grafinn lax, 25% afsl. á kassa ................ 1.649 2.199 1.649 kg
SS koníakslegnar grísalundir, 20%
afsl. á kassa .........................................
1.599 1.999 1.599 kg
Kjúklingalæri, 30% afsl. á kassa ............. 559 799 559 kg
Kjúklingavængir, 30% afsl. á kassa ......... 599 799 599 kg
Kjúklingalæri m/legg, 30% afsl. á kassa.. 476 680 476 kg
Appelsínur ............................................ 125 229 125 kg
Klementínur .......................................... 139 298 139 kg
Helgartilboð féllu niður
Eldri verðupplýsingar frá 11-11 birtust að hluta í tilboðsramma á neyt-
endasíðu í gær.
Hér á eftir fylgja tilboðin sem í gildi eru í verslunum til 2. apríl.