Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Gjafabréf Íslandsbanki –flar sem gjafirnar vaxa! Framtí›arreikningur Íslandsbanka Fermingargjöf er framtí›arsjó›ur Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga VEGURINN milli Reykjavíkur og Borgarness var lokaður í hátt í fjóra tíma í gær vegna óveðurs og blindu undir Hafnarfjalli og víðar. Var nokkuð um að öku- menn keyrðu út af vegna lélegs útsýnis og þurftu lögregla og björgunarmenn að koma fjöl- mörgum til hjálpar. Að sögn lög- reglunnar í Borgarnesi var tölu- vert um að ökumenn stöðvuðu bifreiðir sínar, bæði vegna þess að ekkert sást út og í sumum til- fellum drapst á bílunum. Var veginum lokað laust fyrir klukk- an eitt í þeim tilgangi að minnka umferðarálagið, losa um þá um- ferðarstíflu sem var á leiðinni og koma í veg fyrir að fleiri lentu í svipuðum aðstæðum. Var veg- urinn opnaður aftur um fjög- urleytið að sögn lögreglu. Björgunarsveitarmenn frá Borgarnesi voru kallaðir til að aðstoða við að flytja fólk úr kyrr- stæðum bílum en engin slys urðu á fólki. Lægja tók síðan um eft- irmiðdaginn og var orðið skap- legt veður á þessum slóðum um kvöldmatarleytið. Morgunblaðið/RAX Vegurinn norður lokaður  Þúsundir/6 RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að lækka bensíngjald um 1,55 krónur, eða úr 10,50 kr. í 8,95 krónur á hvern bensínlítra. Þetta mun hafa í för með sér rúmlega 1,90 króna lækkun á út- söluverði bensíns. Morgunblaðið fékk staðfest hjá olíufélögunum þremur í gær að þau munu ekki hækka verð á bensíni nú um mánaðamótin þrátt fyrir hækkun á heimsmarkaði. Lækkun bensíngjaldsins kostar ríkissjóð 80 milljónir Ákvörðun ríkisstjórnarinnar gildir til júníloka og er áætlað að lækkun bensíngjaldsins muni kosta ríkissjóð um 80 milljónir króna. Í frétt frá forsætisráðuneytinu í gær segir að ríkisstjórnin telji mik- ilvægt að allir leggi sitt af mörkum til þess að tryggja áframhaldandi stöð- ugleika á vinnumarkaði. Ákvörðun um lækkun bensíngjalds sé tekin í trausti þess að olíufélögin leggi jafn- framt sitt af mörkum til þess að tryggja verðlagsmarkmið kjarasamn- inganna þannig að ekki komi til bens- ínverðhækkunar um næstu mánaða- mót. Taka þátt í þjóðarátaki með ríkisstjórn, SA og ASÍ Olíufélögin munu ekki hækka verð á bensíni nú um mánaðamótin en ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um verð á öðrum olíutegundum hjá OLÍS og ESSO. Hjá Skeljungi hefur verð- inu verið breytt með tilliti til breyt- inga sem orðið hafa á heimsmarkaði. Verð á dísilolíu hækkar um 3 krónur og 50 aura lítrinn og gasolía og skipa- gasolía hækkar um 3,50 kr. lítrinn og lítrinn af svartolíu um fimm krónur. Einar Benediktsson, forstjóri OL- ÍS, segir að þrátt fyrir um fjögurra króna hækkunarþörf að mati félags- ins, muni það ekki láta sitt eftir liggja hvað varðar ákvörðun um bensínverð og ekki hækka verðið um mánaða- mótin. „Við erum fyrir okkar leyti mjög fúsir að taka þátt í þessu þjóðar- átaki sem er í gangi en hvað aðrar tegundir varðar munum við gefa það út um mánaðamótin.“ Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs, segir ástæðuna fyrst og fremst vera þá að ríkisstjórnin hafi lýst því yfir að hún ætli að lækka vörugjald á bensíni og hafi jafnframt beint þeim tilmælum til olíufélaganna að þau taki þátt í því að reyna að halda bensínverðinu eins lágu og hægt er. „Við höfum í sjálfu sér lækkað verðið nú þegar í reynd og verðið hefði þurft að hækka um fimm til sex krónur miðað við þróun heims- markaðsverðs frá áramótum. En rík- isstjórnin,“ segir Kristinn, „hefur lýst því yfir að hún sé tilbúin að lækka vörugjaldið sem nemur helmingi þessarar tölu og við ætlum, í trausti þess að verð á heimsmarkaði hækki ekki á næstunni, að taka þátt í þess- um slag með Alþýðusambandinu, Samtökum atvinnulífsins og ríkis- stjórninni.“ Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Ol- íufélagsins/ESSÓ, segir að félagið hafi ákveðið að hækka ekki verð á bensíni hjá sér að sinni í trausti þess að olíuverð á heimsmarkaði muni ekki hækka eða haldast óbreytt. „En auð- vitað höfum við þegar lækkað verðið óbeint frá áramótum og líklega um einar fjórar krónur,“ sagði hann. Ríkisstjórnin lækkar bensíngjald um 1,55 kr. á hvern lítra Olíufélögin hækka ekki bensínverðið VIÐSKIPTABANKARNIR, Landsbanki, Búnaðarbanki og Íslandsbanki, tilkynntu í gær frekari lækkun óverðtryggðra vaxta af inn- og útlánum. Ákvarðanir þessa efnis koma í kjölfar ákvörðunar bankastjórn- ar Seðlabankans um 0,5% lækk- un stýrivaxta og koma til fram- kvæmda um næstkomandi mánaðamót. Lækkun bankanna nú er viðbót við áður tilkynntar vaxtalækkanir þeirra um 0,25– 0,4% frá síðustu viku. Lækkun óverðtryggðra útlána bankanna er á bilinu 0,6–0,9% en innlánsvextir lækka hins vegar minna. Um hvort vænta megi lækk- unar á verðtryggðum vöxtum segir Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, að þeir lækki í raun ekki nema ávöxtunarkrafa verðtryggðra skuldabréfa lækki á markaði. Bankinn hafi spáð því að með lækkandi skammtímavöxtum og auknu jafnvægi eigi í framhald- inu að geta komið til einhverrar lækkunar á verðtryggðum vöxt- um á markaði. Minnkandi verð- bólga minnki greiðslubyrði verð- tryggðra lána og komi þannig skuldurum til góða. Bankarnir ákveða frekari vaxtalækkun  Frekari/B12 MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út á páskadag, sunnudag- inn 31. mars nk. Fréttaþjón- usta verður á fréttavef Morg- unblaðsins, mbl.is, alla páska- helgina. Þar er einnig að finna minnisblað lesenda og upplýs- ingar um kirkjustarf. Fréttaþjón- usta um páska STEINPLATAN undir Íslandi er þykkust undir Austurlandi – rösk- lega 100 km þykk. Næstþykkust er platan undir Norðvesturlandi og Vestfjarðakjálka, um 75 km þykk, en undir miðju Íslands og norður-gos- beltinu er steinplatan 65 km þykk. Dr. Ingi Þorleifur Bjarnason jarð- eðlisfræðingur segir þykkt plötunn- ar undir Austurlandi koma á óvart. „Ein tilgáta mín er sú að undir Aust- urlandi sé í raun „meginlandsflís“ af Grænlandi af sama toga og er í Jan Mayen-hryggnum,“ segir hann. Ingi segir að þetta gæti aukið líkur á að olíu væri að finna á land- grunninu utan Austurlands. Steinar Guðlaugsson, jarðeðlis- fræðingur hjá Orkustofnun, segir að það sé raunhæfur möguleiki að Jan Mayen-hryggurinn teygi sig inn á landgrunn Íslands. „Mín fyrstu við- brögð eru því þau að það er engin ástæða til að ætla að við getum borað á landi eftir olíu. En hins vegar er þetta vísbending um að Jan Mayen teygi sig langt í suður sem við vissum ekki áður. Það getur hvatt menn til að stunda olíuleitina sunnar á hryggnum en menn ætluðu sér í upp- hafi.“ Tilgáta um „meginlandsflís“ af Grænlandi undir Íslandi 100 km þykk steinplata  Eldhjartað/B1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.