Vísir - 21.04.1980, Síða 1
UNGIR BOLVIKINGAR DROGU UPP BYSSU:
MWUBU A LÖGREGLUNA
OG FRELSUOU FANGANN
- Allt lögreglullð Isafjarðar kallað til hjálpar
Nokkrir unglingar gerðu siðastliðinn sunnu-
dagsmorgun árás á lögreglustöðina á Bolungar-
vik og tókst að hleypa út einum félaga sinna, sem
settur hafði verið inn sakir ölvunar. ógnuðu þeir
lögreglumönnum með byssu, sem siðar reyndist
vera loftrifill, og hurfu siðan á braut.
Samkvæmt upplýsingum, sem lingarnir á aldrinum 16-17 ára og
Vlsir hefur aflaö sér, voru ung- voru þeir 3 talsins, og allir
ölvaöir. Einn félagi þeirra haföi
sem áöur segir veriö handtekinn
vegna ölvunar og fóru þeir þá
heim til eins þeirra og sóttu loft-
rifil. Var þetta um sex-sjöleytiö
um morguninn-
Unglingarnir héldu slöan aö
lögreglustööinni og bönkuöu þar á
dyrnar og þegar opnaö
var, ógnuöu þeir lögreglu-
manni meö loftbyssunni. Annar
lögregluþjónn kom skömmu siöar
á staöinn og létu þeir undan slga,
þar eö þeir héldu vera um raun-
verulega byssu aö ræöa.
Unglingarnir tóku slöan fangann
úr vörslu lögreglunnar og fóru
siöan brott.
Eftir þennan atburö var allt
lögregluliöiö á Isafiröi kallaö til
hjálpar kollegum slnum á
Bolungarvík og voru lögreglu-
mennirnir vopnaöir byssum.
Einn unglinganna náöist stuttu
slöar, en hinir ekki fyrr en seinna.
Samkvæmt upplýsingum
Halldórs Kristinsscnar, bæjar-
fógeta á Bolungarvík, er mál
þetta enn I rannsókn og eru
menn frá Rannsóknarlögreglu
rikisins komnir til Bolungarvlk-
ur til aöstoöar.
-IJ.
Lánstjáráætlun ríkisstjórnarinnar:
Rúmlega 160 mllljarðar
RíRÍSsíjórain hefur enn ekki
lagt fram lánsfjárdxtlun sfna, en
þessa dagana standa yfir funda-
höld á vegum Seölabankans viö
forsvarsmenn bankastofnana,
lifeyrissjóöa og tryggingarfélaga
varöandi hlut þeirra f áætluninni.
Samkvæmt áreiöanlegum
heimildum mun niöurstööútala
áætlunarinnar vera komin
yfir 160 milijaröa króna. Sam-
kvæmt uppgjöri siöasta árs var
sambærileg tala 106 milljaröar og
er þetta 54% hækkun.
Gert er ráö fyrir, aö erlendar
lántökur nemi rúmlega 97
milljöröum króna, en innlend
fjármögnun 67 milljöröum. Hug-
myndir eru uppi um þaö, aö hlut-
deild banka, llfeyrissjóöa og
tryggingarfélaga i f jármögnun á-
ætlunarinnar veröi verulega auk-
in frá þvi áöur hefur veriö.
Þaö skal tekiö fram, aö af rúm-
lega 160 milljaröa fjármögnun
Iánsfjáráætlunar,nemur eigið
framlag rlkissjóös, markaöir
t.ekjustofnar o.fl., rúmlega 20
milljöröum, þannig aö skulda-
söfnun rikissjóös á þessu ári nem-
urrúmlega 140 millj. kr. og 120-
130 milljöröum, ef sparisklrteini
eru frátalin.
ðvissan um skattsiigann:
Ulvarpsumræöum freslað aflur
Útvarpsumræöunum um
skattamálin, sem frestaö var I slö
ustu viku en áttu aö fara fram í
kvöld, hefur enn veriö frestaö um
óakveöinn tima.
Samkvæmt heimildum VIsis
mun ástæöan vera sú, aö ríkis-
stjórnin hefur ekki enn tekiö á-
kvöröun um, hvemig brugöist
skuliviö þeim upplýsingum um á-
hrif nýja skattstigans, sem bárust
I siöustu viku, en þá kom fram,
samkvæmt útreikningum rikis-
skattstjóra, aö um verulega
skattahækkun yröi aö ræða hjá
einstaklingum og einstæöum for-
eldrum.
Ekki tókst aö ná sambandi viö
Ragnar Arnalds fjármálaráö-
herra I morgun, en hann mun
hafa ætlaö aö leggja fram tillögur
um þessi mál á rikisstjórnarfundi
nú fyrir hádegiö.
—P.M.
Flugráð ð móll flugmálasijóra
A slöasta fundi Flugráös var Eins og Vlsir greindi frá á sln- voru alþingismennirnir Albert
samþykkt aö beina þeim tilmæl- um tlma, voru flestir flugráðs- Guömundsson og Skúli Alex-
um til samgönguráöuneytisins, manna mjög andvlgir þessum anderssonþeireinuiflugráöisem
aöekki veröi fariö aö tillögu flug- fyrirætlunum Agnars Kofed-Han- greiddu tillögu flugmálastjóra at-
málastjóra þess efnis aö láta sen.meöal annars á þeim forsend- kvæöi sitt, aörir voru á móti.
bandariskt fyrirtæki, Safe Flight um að umrædd úttekt heföi þegar Þess ber aÖ geta, aö Flugráö er
International, framkvæma úttekt verið gerö og þvl yröi aöeins um einungis umsagnaraöili I þessu
á öryggismáium islenskra flug- óþarfa endurtekningu aö ræöa. máli, en samgönguráöuneytiö
valla. Samkvæmt heimildum VIsis tekur endanlega ákvörðun. -P.M.
GIFURLEG AÐSOKN AD
TÓNLEIKUM RERROFFS
Gifurleg aðsókn hefur
verið i miða að tónleikum
bassasöngvarans Ivans
Rebroff og hef ur orðið að
skipuleggja ferna auka-
tónleika í Reykjavík. Re-
broff kom til landsins í
gær og lék á als oddi
þegar hann hitti blaða-
menn að máli. Hann virt-
ist þekkja talsvert til
íslands og íslendinga og
hafði ekki hvað sístan á-
huga á íslenskum mat.
Hann brá á leik í gær með
myndavél, en í Ijós kom
að hann vissi varla hvað
sneri fram og hvað aftur
á slíku verkfæri. Sjá bls.
2.
—IJ.
\5