Vísir - 25.04.1980, Blaðsíða 1
Skosku hálöndin
eru stórlengleg
vjy
Býr „Nessie” I myrku dlúpinu?
vZ/
Á leigusnekklu um völnln blá
Hringlerö um Great Glen-svæðið
/T}\
Avlemore lerða- mannamlðsiððin
r»\
Ky
Jölasvelnaiandlð lundið I Aviemore
viz/
Manveriar sioltlr
al norrænum arli
vy
Samgöngur vlð Brelland
rt?\
KZf
Ekið wniskyieið- ina í Skotiandi
Ferðamenn flykkjasi I sólina á Jersey
/?n\
Dagslerðlr irá London
/?3\
um 70 pús. Djór- krár í Breliandl
.Æ\
w
Kastalinn í Inverness, höfuðborg skosku hálandanna. Fyrir utan hann er stytta af Floru McDonald, sem fræg
er í sögu hálandanna fyrir að hafa bjargað Karli prins undan Englendingum eftir að tilraun hans til að hljóta
konungdóm hafði mistekist. Vísismynd: ESJ.
Bretiand er fjölbreytilegt og skemmiliegi heim að sækja:
Vísir kynnir skosku há-
löndin, Jersey 09 Mön
1 tilefni af „Bresku vikunni", sem hefst á Hótel
Loftleiðum i dag, gefur Vísir út þetta aukablað um
ýmsa þá möguleika, sem Bretland hefur uppá að
bjóða fyrir ferðamenn. Tilgangurinn er fyrst og
fremst að benda á, að Bretland — sem landfræðilega
er nærri okkur— er mjög f jölbreytílegt og skemmti-
legt land heim að sækja.
íslendingar hafa á undanförn-
um árum fariö i hópum til Bret-
lands. Aætlaö er, aö um 25 þús-
und íslendingar komi þangaö
árlega. En alltof margir hafa
einungis fariö til London og
Glasgow, en litt feröast um
landiö. Vonandi veröa þær upp-
lýsingar, sem birtast i þessu
aukablaöi, tii þess aö fleiri is-
lenskir feröamenn en áöur leiti
út fyrir stórborgirnar og kynnist
stórbrotnu landslagi, sögufræg-
um stööum og eftirminnilegum
atburöum sem viöastum landiö.
Mörgum stöðum ekki
gerð skil
Eins og gefur aö skilja eru
engin tök á því aö gera skil öllu
þvi, sem feröamönnum stendur
til boöa f Bretlandi, í aukablaöi
sem þessu.
Hér er megináhersla lögö á
frásagnir af skosku hálöndun-
um, sem er stórbrotin en um
leiö aögengileg veröld, og ey-
rikjunum Mön I írlandshafi og
Jersey i Ermarsundi, en einnig
er fjallaö nokkuö um London og
þá möguleika, sem eru á dags-
feröum þaöan til nálægra staöa.
Ekki eru hins vegar tök á þvf
hér aö fjalla um marga vinsæla
feröamannastaöi, sem ekki eru
siöur skemmtilegir, svo sem
Wales eöa Vatnahéruöin.
Aflið upplýsinga
Þeir feröamenn, sem hyggj-
ast skipuleggja feröir sfnar
sjálfir, ættu aö hyggja aö þvf aö
afla sem bestra upplýsinga
fyrirfram um þá landshluta, er
þeir ætla aö heimsækja.
1 þvf efni er lang-skynsamleg-
ast aö hafa i tfma samband viö
feröamálaráö þess landshluta,
sem ætlunin er aö fara til, og
óska eftir upplýsingabækling-
um. Feröamálaráöin gefa út
marga ágæta bæklinga, þar sem
er aö finna allar nauösynlegar
upplýsingar um hugsanlegar
feröaáætlanir, verölag og annaö
þess háttar.
Þessa bæklinga er hægt aö fá
annaö hvort frá BRITISH
TOURIST AUTHORITY, 239
Old Marylebone Road, London
NWl 5QT, eöa frá feröamála-
ráöum einstakra landshlusta,
þ.e.: ENGLISH TOURIST
BOARD, 4 Grosvenor Gardens,
London SWIW ODU, SCOTTISH
TOURIST BOARD, 23 Ravel-
ston Terrace, Edinburgh EH4
3EU, og WALES TOURIST
BOARD, 3 Castle Street, Cardiff
CFl2RE.
Þeir, sem veröa i höfuöborg-
inni um helgina og hyggja á
Bretlandsheimsókn, ættu aö
fara á HÓTEL LOFTLEIÐIR,
þar sem ýmsir helstu
bæklingarnir um feröamögu-
leika i Bretlandi veröa á boö-
stólum.
Pöntun gistingar
A mesta feröamannatimanum
getur oft veriö erfitt aö fá gist-
ingu, hvort sem fólk hyggst
dvelja á hótelum, gistiheimilum
eöa öörum gististööum. Þess
vegna er skynsamlegt aö panta
gistingu fyrirfram, ef þess er
kostur, annaö hvort fyrir milli-
göngu feröaskrifstofu hér heima
eöa beint.
Þeir, sem eru andvfgir slfku
skipulagi og vilja láta feröina
ráöast, geta leitaö til upp-
lýsingaskrifstofa feröamála-
ráöanna, en þær eru f flestum
bæjum Bretlands. Þessar skrif-
stofur aöstoöa yfirleitt viö út-
vegun gistingar hver á sfnum
staö.
En eins og áöur segir, þá er
skynsamlegra, ef feröast er á
mesta feröamannatimanum, aö
panta gistingu fyrirfram, svo
ekki þurfi aö eyöa löngum tfma
á hverjum degi i aö útvega sér
næturstaö. Og almennt séö eru
likur á, aö þvi betur, sem ferö er
undirbúin, þeim mun betur
muni hún heppnast.
GÓÐA FERÐ! —ESJ.
Elías Snæland Jónsson,
ritstjórnarfulltrúi, hefur
skrifað þetta aukablað
um ferðalög í Bretlandi.
Hann fór í ferð til Bret-
lands í efnisöflun fyrr í
þessum mánuði, og
ferðaðist þar víða, m.a.
um skosku hálöndin, til
Manar, um suðurhluta
Englands og til Jersey,
sem er skammt frá
strönd Frakklands.
Ferðaáætlunin var skipu-
lögð af breska ferða-
málaráðinu, British
Tourist Authority, ferða-
málaráðum þeirra staða,
sem heimsóttir voru, og
Highlands and Islands
Development Board í
Skotlandi, og kann Vísir
þeim öllum bestu þakkir
fyrir veitta aðstoð.