Vísir


Vísir - 29.05.1980, Qupperneq 1

Vísir - 29.05.1980, Qupperneq 1
Flugumferoarsllorar hóia yfirvinnuhanni! „Við höfum dregið strik við næstu mánaða- mót og tilkynntum sam- gönguráðuneytinu i gær, að eftir þann tima sé yfirvinna okkar ekki til sölu nema á einum og sama taxta”, sagði Baldur Ágústsson, for- maður Félags flugum- ferðarstjóra, i samtali við Visi i morgun. Flugumferðarstjórar hafa boð- að yfirvinnubann um næstu mán- aðamót, fallist ráðuneytið ekki á þá kröfu þeirra, að sömu greiðsl- ur komi fyrir alla yfirvinnu, hvort sem hún er til komin vegna veik- inda, orlofs eða aukinnar þjón- ustu. Hingað til hafa komið hærri greiðslur fyrir aukavinnu sem stafar af veikindum eða orlofi og vilja flugumferðarstjórar nú að sú viðmiðun gildi fyrir alla auka- vinnu. Yfirvinnubann hefði strax þau áhrif á innanlandsflugið, að fella yrði niður kvöldferðina til Akur- eyrar. Auk þess verða strax mikl- ar truflanir á einka- og kennslu- flugi. „Mér finnst óllklegt að þetta komi til með að hafa strax mikil áhrif á millilandaflugið, en auð- vitað verða truflanir á þvi flugi komi til veikinda flugumferðar- stjóra meðan á yfirvinnubanninu stendur því ekki verður um neina afleysingaþjónustu að ræða”, sagði Baldur Agústsson. „Það er þannig með vinnu flug- umferðarstjóra, að hún er miklu meiri á sumrin en veturna og þeir hafa notað þá staðreynd sem vopn til að krefjast hærri launa fyrir þá vinnu, en venjulegir samningar segja til um”, sagði Ölafur Steinar Valdimarsson, skrifstofustjóri i samgönguráðu- neytinu, i samtali við Visi i morg- un. „Það hefur aldrei komið til greina af hálfu ráðuneytisins að láta þær greiöslur koma jafnt fyr- ir alla yfirvinnu allan ársins hring og við höldum fast við þá stefnu. Við höfum gert flugum- ferðarstjórum tilboð um að hafa sama hátt á i sambandi við greiðslur fyrir afleysingar i sum- ar og gert var i fyrra, en ef þeir fara út i þessar aðgeröir núna munum við að sjálfsögðu draga það tilboð til baka”, sagði Ólafuir Steinar I morgun. —P.M. Sólin hefur leikiö við landsmenn siðustu dagana. Þessi mynd er frá Akureyri, en norðanmenn hafa feng- ið riflegan sólarskammt það sem af er sumrinu. Fleiri myndir frá Akureyri eru á bls. 15. Vísismynd: GS/Akureyri. Spinnpækiissíid notuð í gaffalbita? „Þaö hefur ekkert leyfi veriö gefiö til hess” - segir Jóhann Guðmundsson. Framleiðsiueftiniti sjðvarafurða ,,Það hefur ekkert leyfi verið gefið fyrir þvi að spinnpækilssildin verði notuð i gaffal- bita”, sagði Jóhann Guðmundsson, forst.ióri Framleiðslueftirlits sjá- varafurða, i samtali við Visi. Eins og fram kom i Visi i gær eru um 600 tunnur af sild, sem saltaðar voru fyrir K. Jónsson á Akureyri, stórskemmdar af svo- kölluðum spinnpækli og grunur leikur á að sömu sögu sé að segja um að minnsta kosti 4000 tunnyr til viðbótar. Að sögn Jóhanns Guðmunds- sonar er mjög sjaldgæft að spinn- pækill finnist i sild, en þess væru dæmi að slik sild væri seld, en þá eingöngu með skriflegu samþykki kaupandans þess efnis að hann keypti vöruna i þvi ásigkomulagi sem hún væri. 1 tilefni fréttarinnar I Visi i gær, hafði Björn Dagbjartsson, for-. stöðumaður Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, samband við blaðið og vildi koma þvi opinber- lega á framfæri, að fréttin hafi ekki komið upphaflega frá honum eða hans stofnun. Hins vegar hafi honum alltaf þótt óskynsamlegt að neita aö svara spurningum blaðamanna eða ljúga i þá. Visi er það ánægja að staðfesta að umrædd frétt var ekki komin frá Birni Dagbjartssyni eða Rannsóknarstofnun fiskiðnaðar- ins. Sjá nánar um málið á blsi 8. —P.M Jarðgöng gegnum Múiann: Kosta eina Borgar- fjarðarbrú i opnu Visis I dag er fjallað um veginn um ólafsfjarðar- múla, sem er lifæð ibúanna I Ólafsfirði. Hann hefur valdið mönnum erfiöleikum og oft hefur staöiö tæpt, að þar yrðu slys vegna skriöufalla og snjó- flóða. Þess vegna hafa heima- mcnn mikinn áhuga á fram- búöarlausn vegamálanna. Draumur þeirra er. að gerð verði jarðgöng gegnum Múl- ann og scgir Valdimar Stein- grimsson, eftirlitsmaður með Múlaveginum, að sllk göng kosti sennilega eins og ein Borgarfjarðarbrú. Nánar scgir Gisli Sigur- geirsson, blaðamaður Visis á Akureyri, frá Múlaveginum i máli og myndum i opnunni i dag. „Aflafé rlthöf- unda verður ekKl blandað saman við listamanna- launin...” Sjá hls. 9 Vinnlngar í sumar- gelrauninni Dregiö hefur verið I fyrsta sinni I sumargetraun Visis úr réttum lausnum við spurning- unni, scm birtist i blaðinu 12. mai s.l. Verðlaun hlutu: Bosch-borvél CSB 450 E að verðmæti 76.500 krónur: Birgitta Hlin Gunnarsdóttir, Suðurgötu 29, Akranesi. Bosch-hjólsög, PKS 46, að verðmæti 77.000 krónur: Gyða Valdimarsdóttir, Hliðavegi 33, Siglufiröi. Verðlaunin eru frá Gunnari Asgeirssyni h.f.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.