Vísir - 03.06.1980, Síða 1

Vísir - 03.06.1980, Síða 1
Helgi Pétursson, rit- stjóri Vikunnar, kvaðst i samtali við Visi i morgun hafa farið þess á leit við ríkissaksókn- ara, að kannað verði með hvaða hætti nokkrar siður úr Vik- unni voru sérprentaðar og þeim dreift i hús án vitundar hans. Á þessum siðum úr Vik- unni var gerð grein fyrir forsetaframboði Alberts Guðmunds- sonar i myndum og máli. „Ég er ábyrgðarmaður Vik- unnar” sagði Helgi, „og tel þvi hiklaust um brot að ræða varð- andi þessa sérútgáfu, þó svo fjármálavald þessa blaðs hafi gefið samþykki sitt fyrir útgáfu- unni og selt stuðningsmönnum Alberts umræddar siður. En til min var aldrei leitað.” Helgi sagði, að sér skildist, að litgreiningar hefðu verið seldar stuðningsmönnum Alberts með samþykki eigenda Vikunnar. „Ég vil fá að vita, hvernig þetta er tilkomið og hver gaf þetta út”, sagði Helgi. Ritstjórinn vildi taka fram, að ósk um rannsókn á tilurð þessa sérrits væri á engan hátt beint gegn framboði Alberts Guðmundssonar. I morgun tókst ekki að ná tali af Sveini Eyjólfssyni, stjórnar- formanni Hilmis hf. útgáfu- félags Vikunnar. —Gsal. Halldór Reynisson, blaðamaöur Visis, var á dögunum I Teheran, höfuðborg trans, og kom þá m.a. að bandariska sendiráðinu þar. a myndinni sést hann ræða við iranskan borgara fyrir framan sendiráðsgiröinguna, en þar fyrir innan má sjá áróðursspjöld af ýmsu tagi. Nánar segir frá ferðinni til irans I opnu Visis i dag. 1 ýj 1 1— Í3S|É| fr í ‘ vljgjB iffÍElilHÍipy . 'j ^■1ií#pp mM, gfsgp. js- • 1 " * > ^ IfeaalP? & „MIKIL FYLGIS- AUKNING HJÁ MER - segír Pétur Thorsteinssen um skoöanakönnun Vísís „Ég hef ekki haft mikinn tima til að skoða niðurstöður könn- unarinnar, en mér sýnist hinir frambjóðendurnir standa i stað meðan mikil fylgisaukning er hjá mér,” sagði Pétur Thorsteinsson i morgun, er Visir náði tali af honum i Þorlákshöfn og bað um álit hans á niðurstöðum skoðana- könnunar Visis, er birt var i gær. „Ég hef þvi miður ekki haft neinn tima til að lita á þetta og get þvi ekki tjáð mig um könnunina frekar,” sagði Pétur. „Ég er nú eiginlega varla búinn að sjá niðurstöðurnar, en miðað við það sem ég hef heyrt af könn- uninni, koma mér tölurnar ekki á óvart,” sagði Guðlaugur Þor- valdsson við Visi i morgun, er til hans náðist á Þingeyri. Vigdis Finnbogadóttir kvaðst i morgun ekki hafa séð könnunina og gæti þvi ekki tjáð sig um hana. Ekki tókst að ná i Albert Guðmundsson i morgun. Sjá einnig bls. 3. Gsal. ROSALYNN CARTER í SAMTALI VIÐ BLAÐAMANN VISIS: „Ekki í vafa um sigur Jimmys” Frá Þóri Guömunds- syni, fréttamanni Visis i Bandarikjunum, i morgun: „Ég er mjög stolt af Jimmy”, sagði Rosalynn Carter, er blaðamaður Visis hitti hana á kosningaferðalagi i Providence i Rhode Island-ríki I Bandarikj- unum i gær, og var ekki annað að heyra en hún væri viss um, að hann sigraði i forsetakosn- ingunum i haust. Rosalynn hefur verið á fleygi- ferð um Bandarikin að undan- förnu og þó að brosið sé farið að stirðna á andliti hennar var ekki að sjá að öðru leyti að hún væri þreytt á álaginu. „Ég er ekki i neinum vafa um að Jimmy sigrar Kennedy núna i forkosningunum”, sagði eigin- kona Bandarikjaforseta enn- fremur. Hver sem úrslitin verða i dag er enginn vafi á að hún hefur smalað miklum fjölda kjósenda i kjörklefana, og fólk er hrifið af henni. Dæmi um það var, þegar hún var að fara inn i bil hér i borginni i gær, þá vék ein viðstaddra kvenna sér að blaðamanni Visis og sagði: „Æ, hún er svo yndisleg”. Á meðan þessu fer fram gerir Ted Kennedy úrslitatilraun til þess að stöðva Carter á sigur- göngu hans. Kennedy hefur kallað daginn i dag „sup- er-þriðjudag”, enda fara nú fram forkosningar i sjö rikjum Bandarikjanna. Hvetur hann fólk til þess að nota daginn til þess að sýna Carter hvað þvi finnist um hann. Það geri kjósendur best með atkvæði sinu. A fundi sem Kennedy hélt, þar sem blaðamaður Visis var við- staddur, kom glöggt fram, að Kennedy er orðinn mjög bitur i garð Carters, ekki sist vegna þess, að Carter hefur þvertekið fyrir að taka þátt i sjónvarps- kappræðum við Kennedy. Um það mál sagði Chip, sonur forsetans, við blaðamann Visis i gær: „Hvers vegna ætti forset- inn að fara út i kappræður við frambjóðanda, sem búinn er að tapa fyrir honum?”. Sjá einnig bls. 5. -ÞG, Providence.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.