Morgunblaðið - 23.04.2002, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 23.04.2002, Qupperneq 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Ford Expedition Eddie Bauer 5400 V8, f.skr.d. 25.11.1998, ek. 91 þús. km., 5 d., sjálfsk., leður o.fl. Verð 3.980.000. Nánari upplýsingar hjá Bílaþingi. Opnunartímar: Mánud.-föstud. kl. 10-18 og laugard. kl. 12-16. Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is Netfang: bilathing@hekla.is SAMNINGUR milli frú Auðar Sveinsdóttur Laxness og ríkisins um kaup ríkisins á íbúðarhúsinu á Gljúfrasteini í Mosfellsdal, heimili Laxnesshjónanna og vinnustað nóbelsskáldsins Halldórs Kiljan Laxness, var undirritaður á sunnudag. Samkvæmt samn- ingnum kaupir ríkið einnig lista- verk sem prýða húsið. Kaupverð hússins er 35 milljónir króna og listaverkanna 31 milljón. Við sama tækifæri afhenti Auður Laxness Davíð Oddssyni forsætisráðherra gjafabréf, en samkvæmt því færir hún íslenska ríkinu að gjöf allt innbúið á Gljúfrasteini, lausamuni alla, bóksafn Halldórs Laxness og fjölda handrita og minnisbóka, sem skáldið notaði við skrif sín. Davíð Oddsson forsætisráðherra undirritaði kaupsamninginn fyrir hönd ríkisins og sagðist að und- irritun lokinni fagna því að slíkur atburður hefði gerst og ætti Auð- ur Laxness og fjölskylda þakkir skildar fyrir ákvörðun sína. Við sama tækifæri undirrituðu menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich og bæjarstjóri Mosfells- bæjar, Jóhann Sigurjónsson, yf- irlýsingu um samráð í málefnum er varða safn Halldórs Laxness að Gljúfrasteini og fræðasetur til- einkað skáldinu, sem bæjarfélagið hyggst koma á fót. Er stefnt að því að safnið verði opnað næsta vor en ekki hefur verið ákveðið hvenær fræðasetrið tekur til starfa. Tóm- as Ingi Olrich menntamálaráð- herra sagði að mikilvægt væri að verk og umfjöllun um verk Hall- dórs Laxness fengi góða umgjörð. Mikill menningarviðburður „Þessi viljayfirlýsing um samráð og atburðurinn í heild sinni í dag er mikill menningarviðburður, en það fer ekki á milli mála að Hall- dór Laxness ber höfuð og herðar yfir önnur skáld og rithöfunda á 20. öld. Þá eiga verk hans ekki síð- ur erindi við nútímann eins og þau áttu erindi við fólk á síðustu öld. Það er því mikilvægt að búa verk- um hans og umfjöllun um verkin góða umgjörð,“ sagði mennta- málaráðherra. Tómas Ingi benti á að fræða- setrið yrði á hinn bóginn að skapa eigin sérstöðu. „Þar verður eflaust efnt til þinga og ráðstefna um verk Halldórs Laxness. Einnig má búast við því að þar verði haldnar ítarlegar sýningar sem tengjast skáldinu og verkum hans. Þessir staðir verða því tveir pólar í um- fjöllun um verk Halldórs og áhrif hans á íslenska menningu og sam- félag,“ sagði Tómas Ingi. „Afskaplega gott að vera hérna“ Auður Laxness, sem hyggst flytja af Gljúfrasteini á þessu ári, eftir rúmlega hálfrar aldar bú- setu, sagðist í samtali við Morg- unblaðið ekki sjá eftir því að flytja frá Gljúfrasteini. „Ég er búin að vera hérna í 56 ár og það bíður enginn eftir mér hérna lengur, enda er ég bara ein,“ sagði Auður. „Það var afskaplega gott að vera hérna og maður vissi það ekki fyrr en löngu seinna hvað Halldór hef- ur valið vel, því það er fallegt út- sýni úr öllum gluggum hérna,“ sagði Auður. Hún mun flytja í íbúð á dval- arheimili aldraðra í Mosfellsbæ í síðasta lagi um áramótin næstu. Þess skal getið að hátíðardag- skrá sem flutt var í kjölfar undir- ritunarinnar, verður endurflutt kl. 20 í kvöld, þriðjudagskvöld, 23. apríl, á afmælisdegi Halldórs Lax- ness, en hann hefði orðið 100 ára í dag. Dagskráin verður flutt í Hlé- garði og er aðgangur ókeypis. Meðal þeirra sem fram koma eru Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran, Ólafur Kjartan Sigurðsson barí- ton, Ingvar E. Sigurðsson leikari og Skólakór Kársness. Auður Laxness selur Gljúfrastein og flyst þaðan á árinu eftir 56 ára búsetu Jóhann Sigurjónsson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, og Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra undirrituðu yfirlýs- inguna um samráð í málefnum er varða Laxnesssafn og fræðasetur tileinkað skáldinu. Davíð Oddsson forsætisráðherra og Auður Laxness, ekkja Halldórs Laxness, virða fyrir sér staðhætti í nágrenni Gljúfrasteins. Heimili og vinnustaður nóbelsskáldsins komin í eigu íslenska ríkisins Morgunblaðið/Sverrir Auður Laxness færði íslenska ríkinu að gjöf allt innbú á Gljúfrasteini, þar á meðal fjölda handrita gengins eiginmanns síns og minnisbóka, sem Davíð Oddsson forsætisráðherra gluggar hér í. MORGUNBLAÐIÐ hefur í sam- starfi við Símann tekið í notkun þjónustu sem gerir lesendum þess kleift að kaupa stakar greinar í Greinasafni blaðsins með aðstoð GSM-síma. Þjónustan nær til far- símanúmera í fastri áskrift hjá Sím- anum. Kaupferillinn er með þeim hætti að þegar smellt er á tengilinn „Kaupa grein“, sem finna má fyrir neðan hverja grein, er notanda gef- inn kostur á að kaupa greinar með tvennum hætti. Annars vegar með greiðslukorti og hins vegar með að- stoð GSM-síma. Sé síðari leiðin valin slær kaupandi inn símanúmer sitt og smellir á hnappinn „Áfram“. Í framhaldi fær hann sent lykilnúmer með SMS-skilaboðum til að fá að- gang að greininni. Kaup greina eru gjaldfærð á símareikning viðkom- andi. Hafi notandi áður beðið um sundurliðaðan reikning, kemur fram fjöldi greina og númer þeirra hjá mbl.is. Ekki er hægt að nýta þjón- ustuna í tengslum við t.d. Frelsis- númer og fyrirtækjasíma nema þess sé sérstaklega óskað, landlínunúmer eða farsíma hjá öðrum fyrirtækjum. Þar til kaupandi lokar vafranum getur hann lesið greinar í Gagna- safninu með því að smella á „Meira“ undir greininni. Ekki er nauðsyn- legt að smella á „Kaupa grein“. Lesnar greinar verða þá sjálfkrafa skuldfærðar á farsímareikning við- komandi. Þá er hægt að skoða keyptar greinar oftar en einu sinni innan sólarhrings án þess að það kosti aukalega. Ef meira en hálftími líður án þess að grein hafi verið les- in rennur aðgangur sjálfkrafa út. Notandi þarf þar af leiðandi að gefa aftur upp farsímanúmer sitt og biðja um lykilnúmer. SMS-skeytin með lykilnúmerum eru ókeypis, slíkum sendingum fylgir enginn kostnaðar- auki. Verð hverrar greinar er kr. 150. Kaup á stökum greinum með greiðslukorti eru þegar þekkt hjá Morgunblaðinu og sú þjónusta hefur verið boðin um alllangt skeið. Verð hverrar greinar er það sama, 150 krónur. Hægt er að fylgjast með fjölda keyptra greina óháð því hvaða greiðslumáti er valinn. Þær upplýs- ingar er að finna undir hausnum „Notkun“ í vinstra dálki og birtast þegar grein er skoðuð í heild sinni. Ný tækni við kaup efnis á Netinu Sú þjónusta sem Morgunblaðið hefur tekið í notkun byggist á tækni sem nefnist Vefgreiðslur. Magnús Salberg Óskarsson, vörustjóri yfir virðisaukandi þjónustu hjá Síman- um, segir að slík tækni muni gera viðskiptavinum fyrirtækisins kleift að kaupa óáþreifanlega vöru og þjónustu í gegnum vefsíður fyrir- tækja og láta skuldfæra þjónustuna á GSM-símreikninginn sinn. „Sím- inn notar víðtækt innheimtu- og reikningakerfi til þess að samnýta símreikninga með Vefgreiðslum við- skiptavinum til hagsbóta. Hægt er að sjá fyrir sér að fólk muni nota slíka þjónustu til þess að kaupa ým- iss konar þjónustu af Netinu, svo sem fjármálaupplýsingar, blaða- greinar, hugbúnað, leiki, ráðgjöf, tónlist og myndbönd, svo dæmi séu tekin.“ Magnús segir að fjarskiptafyrir- tæki víða um heim hafi um skeið horft til tækninnar sem byggist á Vefgreiðslum en bendir á að Ísland hafi orðið meðal fyrstu landa í heimi til þess að taka slíka tækni í notkun. „Reikningakerfið á Símanum, sem nefnist Infranet og tekið var í notk- un fyrir tveimur árum, gerir fyr- irtækinu kleift að auðkenna notend- ur og athuga stöðu viðskiptavinar í rauntíma.“ Hann kveðst eiga von á að fleiri fyrirtæki hyggist nýta sér Vef- greiðslur, miðað við þann áhuga sem hann hefur orðið var við. „Ef marka má spurningakönnun sem Síminn lét gera fyrir sig meðal fyrirtækja, sem halda úti vefsíðum, kom í ljós að 80% fyrirtækja telja að slíka þjón- ustu vanti. Þá sögðust 70% fyrir- tækja ætla að notfæra sér Vef- greiðslur fyrir þá þjónustu sem þau bjóða á Netinu. Við höfum trú á að Vefgreiðslur í gegnum GSM-síma muni koma að notum í auknum mæli í viðskiptum á Netinu því fyrirtæki hafa stundum lent í erfiðleikum með að innheimta fyrir þjónustu sína. Þá eru notendur í sumum tilvikum tregir að gefa upp greiðslukorta- númer um Netið. Með Vefgreiðslum þurfa notendum einungis að slá inn GSM-númerið sitt. Þeir fá til baka lykilorð sem auðkennir notandann og þjónustan er gjaldfærð á sím- reikninginn,“ segir Magnús Salberg. Greiða má efni úr gagna- safni blaðsins með GSM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.