Morgunblaðið - 23.04.2002, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2002 11
NÍU frumvörp urðu að lögum
á Alþingi í gær. Þar á meðal
frumvarp til laga um breyt-
ingu á almennum hegningar-
lögum og lögreglulögum. Með
samþykkt frumvarpsins bætt-
ist m.a. við ný grein í hegn-
ingarlögin sem veitir aukna
refsivernd fyrir ógnun eða
valdbeitingu gagnvart erlend-
um sendierindrekum hér á
landi svo og fyrir eignaspjöll-
um sem unnin eru á sendi-
ráðssvæði eða hótunum um að
fremja slík eignaspjöll. Einnig
var með samþykkt frumvarps-
ins bætt við nýju ákvæði í lög-
reglulögin til þess að auka
heimildir lögreglu til að
„halda uppi allsherjarreglu á
opinberum fundum,“ eins og
það er orðað í athugasemdum
frumvarpsins. „Ef uggvænt
þykir að óspektir verði á mót-
mælafundi, í kröfugöngu eða á
annarri slíkri samkomu á op-
inberum stað er lögreglu
heimilt að banna að maður
hylji andlit sitt eða hluta þess
með grímu, hettu, málningu
eða öðru þess háttar sem er
til þess fallið að koma í veg
fyrir að kennsl verði borin á
hann,“ segir í nýja laga-
ákvæðinu.
Þá bætist við lögreglulögin
ákvæði sem kveður á um að
starfslokaaldur lögreglu-
manna verði lækkaður í 65 ár.
Er breytingin gerð í samræmi
við samkomulag sem náðist
við gerð kjarasamninga við
lögreglumenn síðasta sumar.
Níu
frum-
vörp að
lögum
ALÞINGI samþykkti fimmtán
þingsályktunartillögur á þing-
fundi á laugardag. Flestar snúa
þær að alþjóðamálum, þ. á m.
má nefna ályktun um að Al-
þingi heimili að Ísland gerist
aðili að Kýótó-bókun við
rammasamning Sameinuðu
þjóðanna um loftslagsbreyting-
ar sem gerð var hinn 10. des-
ember 1997. Markmið Kýótó-
bókunarinnar er að minnka út-
streymi gróðurhúsalofttegunda
sem hefur, að því er fram kem-
ur í greinargerð þingsályktun-
artillögunnar, aukist undanfar-
in 150 ár, fyrst og fremst í
iðnríkjum.
Ályktun Alþingis
Ísland gerist
aðili að
Kýótó-bók-
uninni
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst
kl. 10 í dag en þá verður frum-
varp ríkisstjórnarinnar um rík-
isábyrgð til handa Íslenskri
erfðagreiningu m.a. tekið til
annarrar umræðu. Eldhús-
dagsumræðunni sem vera átti í
dag, skv. starfsáætlun þingsins,
verður hins vegar frestað til
morguns. Enn er ekki vitað
hvenær þingfrestun verður en
upphaflega var stefnt að því að
þing færi í sumarfrí á morgun,
miðvikudag. Ljóst er að það
næst ekki og er talað um að svo
geti farið að þingið fari ekki í
sumarfrí fyrr en í næstu viku.
Það mun hins vegar skýrast í
lok vikunnar.
ÆTTINGJAR og vinir Jóns Múla Árnasonar útvarps-
þular kvöddu hann í Salnum í Kópavogi sl. laugardag,
en Jón Múli lést 1. apríl sl. 81 árs að aldri. Meðal þeirra
sem fluttu minningarorð voru Ögmundur Jónasson, al-
þingismaður og formaður BSRB, og dóttir Jóns Múla,
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir. Við athöfnina var flutt
tónlist eftir Jón Múla. Meðal flytjenda voru Steinunn
Birna Ragnarsdóttir píanóleikari, Guðmundur Jónsson
óperusöngvari og félagar úr sönghópi Ríkisútvarpsins,
en hann skipuðu Eyþór Gunnarsson, Óskar Gíslason og
Sif Ragnhildardóttir. Fyrir athöfnina lék Skólahljóm-
sveit Kópavogs undir stjórn Össurar Geirssonar.
Morgunblaðið/Sverrir
Jón Múli Árnason kvaddur
NÍUNDA borgarstjóraráðstefna samtakanna
ECAD, evrópskra borga gegn eiturlyfjum, verður
sett á Grand hóteli í Reykjavík af Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur borgarstjóra sumardaginn fyrsta,
25. apríl. Ráðstefnan stendur yfir í tvo daga og lýk-
ur henni síðdegis á föstudaginn. Um tugur er-
lendra fyrirlesara flytur erindi auk innlendra fyr-
irlesara. Á ráðstefnunni verður sjónum beint að
mannréttindum í samhengi við fíkniefnavandann,
þ.e. rétti fólks til að búa í umhverfi án ólöglegra
fíkniefna, sem byggist á samþykkt Sameinuðu
þjóðanna um baráttuna gegn fíkniefnum.
Melvyn Levitsky, prófessor í almannatengslum
og stjórnsýslu við Syracuse-háskóla, flytur erindi
um alþjóðlegar stefnur og forvarnir, en Levitsky á
baki áratuga langan feril hjá bandarísku utanrík-
isþjónustunni og hefur gegnt sendiherrastöðu í
Brasilíu og Búlgaríu og annast alþjóðleg fíkniefna-
málefni sem aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkj-
anna.
Dr. Torgny Peterson, framkvæmdastjóri
ECAD, hefur verið tíður gestur á Íslandi á liðnum
árum, en hann hefur áratuga reynslu af fíkniefna-
málefnum í Svíþjóð og hefur síðastliðinn áratug
verið framkvæmdastjóri alþjóðlegrar miðstöðvar,
Hassela Nordic Network, sem m.a. veitir ráðgjöf
um stefnur í fíkniefnamálefnum. Peterson flytur
erindi um skipulagða glæpi og hvernig lýðræði
stendur ógn af eiturlyfjahringum.
Tilnefndur til Emmy-verðlaunanna
fyrir sjónvarpsfréttamennsku
Erindi fyrirlesarans Wade West nefnist Nýju
drottnarar heimsins, en West er háskólakennari í
Flórída og er þaulreyndur sjónvarpsfréttamaður
og var einn fárra fréttamanna sem fengu á sínum
tíma að fara inn í kjarnorkuverið í Tsjernóbyl. Hef-
ur West verið tilnefndur til Emmy-verðlaunanna
fyrir sjónvarpsfréttamennsku og hefur ennfremur
starfað á mörgum öðrum sviðum s.s. barist gegn
fíkniefnum innan heilbrigðisgeirans.
Þá flytur Jane Narviliena, þingmaður litháíska
þingsins, erindi um opin landamæri og Lionel
Martijn frá Hollandi um samfélags- og borgarþró-
un, en hann er varaforseti evrópsku samtakanna
Quartiers en Crise.
Þá veltir Malou Lindholm, fyrrum þingmaður
Evrópuráðsins, því upp í erindi sínu hvort ESB
ógni stefnumörkum ríkja í fíkniefnamálum.
Fleiri erlendir gestir taka þátt í ráðstefnunni,
Ingrida Labucka, dómsmálaráðherra Lettlands,
sem ásamt Sólveigu Pétursdóttur dómsmálaráð-
herra ræðir stefnu ríkis síns og verkefni í fíkniefna-
málum. Um sama efni ræðir Kristina Axén Olin,
aðstoðarborgarstjóri Stokkhólms, við Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur og Gábor Demszky, borgar-
stjóri Búdapest, flytur lokaerindi á ráðstefnunni.
Meðal innlendra fyrirlesara má nefna dr. Þórólf
Þórlindsson prófessor, sem ræðir um fíkniefna-
notkun ungmenna í Evrópu. Dögg Pálsdóttir hrl.
fjallar um verkefnið Ísland án eiturlyfja og Guðrún
Agnarsdóttir læknir fjallar um mannréttindi og nú-
tímaþrælahald.
Borgarstjóraráðstefna Samtaka evrópskra borga gegn fíkniefnum
Rætt um ógnir eiturlyfja-
auðhringa og mannréttindi
VEGNA frásagnar í Morgun-
blaðinu sl. laugardag af vinnu-
staðafundi Sjálfstæðisflokksins
í Húsasmiðjunni vill Björn
Bjarnason, oddviti listans,
árétta að sjálfstæðismenn vilji
ekki setja upp fjórar fræðslu-
skrifstofur í Reykjavík, líkt og
skilja hefði mátt af frásögn
blaðsins, heldur skipta borginni
upp í fjögur eða fimm skóla-
hverfi með skólaráðum og
hverfa þannig frá einu fræðslu-
ráði þar sem væri einn áheyrn-
arfulltrúi fyrir meira en 30 þús-
und foreldra í Reykjavík.
„Við höfum jafnframt boðað
breytingar á fræðslumiðstöð-
inni en aldrei minnst á það einu
orði að setja upp fjórar
fræðsluskrifstofur. Þvert á
móti viljum við sameina skrif-
stofuhald fyrir leikskóla og
grunnskóla,“ segir Björn.
Sjálfstæðisflokk-
urinn í Reykjavík
Vill skipta
borginni
upp í skóla-
hverfi
F-LISTINN, framboð Frjálslyndra
og óháðra, opnaði kosningaskrifstofu
í Aðalstræti 9, Miðbæjarmarkaðn-
um, í Reykjavík á laugardag. Fyrst
um sinn verður skrifstofan opin frá
kl. 16–18 virka daga en kl. 13–18 um
helgar.
Margir lögðu leið sína á skrifstof-
una á laugardag. Efstu sæti listans
skipa Ólafur F. Magnússon borgar-
fulltrúi, Margrét Sverrisdóttir fram-
kvæmdastjóri og Gísli Helgason, for-
maður Blindarfélagsins. Stefnuskrá
framboðsins var kynnt en þar segir
m.a. að F-listinn vilji sinna málefn-
um sjúkra, aldraðra, öryrkja og
barnafjölskyldna. Lýst er andstöðu
við þátttöku Reykjavíkurborgar í
Kárahnjúkavirkjun en Reykjavík á
45% hlut í Landsvirkjun.
Morgunblaðið/Sverrir
F-listinn opnar
kosningaskrifstofu
UTANRÍKISMÁLANEFND Al-
þingis hefur lagt fram á þingi tillögu
til þingsályktunar um deilur Ísraels
og Palestínumanna. Samstaða náðist í
nefndinni um að leggja tillöguna fram
og hefst hún á þessum orðum: „Al-
þingi lýsir áhyggjum sínum af því
ófriðarástandi sem nú ríkir fyrir botni
Miðjarðarhafs og fordæmir það of-
beldi sem þar á sér stað. Alþingi legg-
ur áherslu á að öryggi óbreyttra
borgara sé tryggt og alþjóðleg mann-
réttindi virt og telur brýnt að send
verði eftirlitsnefnd frá Sameinuðu
þjóðunum á svæðið í samræmi við
ályktun Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna.“
Síðan segir: „Alþingi krefst þess að
öllum ofbeldisverkum linni, þar á
meðal sjálfsmorðsárásum og beitingu
hervalds, að Ísrael dragi herlið sitt til
baka frá sjálfsstjórnarsvæðum Pal-
estínumanna, að deiluaðilar semji um
vopnahlé og að hafnar verði friðarvið-
ræður um sjálfstætt ríki Palestínu-
manna og öryggi Ísraelsríkis innan
alþjóðlega viðurkenndra landamæra í
samræmi við nýjustu ályktanir Ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna.“
Fordæmir of-
beldið fyrir botni
Miðjarðarhafs
EFNAHAGSBROTADEILD ríkis-
lögreglustjóra hefur gefið út ákæru
á hendur þremur erlendum mönnum
á þrítugs- og fertugsaldri fyrir fjár-
svik og skjalafals hér síðasta ár.
Mennirnir eru m.a. sakaðir um að
hafa lagt fram falsaðar millifærslu-
beiðnir í erlendum bönkum og þann-
ig fengið annarra fé millifært inn á
reikninga sína hérlendis. Ákæru-
valdið krefst refsingar yfir mönnun-
um og að þeim verði gert að sæta
upptöku á 5,3 milljónum króna.
Ákærðir fyrir
fjársvik
♦ ♦ ♦