Morgunblaðið - 23.04.2002, Side 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2002 27
Tilboðið gildir á höfuðbor-
garsvæðinu, Akranesi og Selfossi.
Á meðan birgðir endast.
Verð 498
PTP
Hágæða hársnyrtivörur
Verð 920
Áður 1.150
Wella Viva
Topp litir fyrir vandláta
Verð 589
Áður 752
E-vítamín 200 a.e.,
80 hylki- styrkir ónæmiskerfið
SÓSÍALISTAFLOKKURINN í
Ungverjalandi bauð í gær Bandalagi
frjálsra demókrata til formlegra við-
ræðna um stjórnarmyndun, en sós-
íalistar fengu 178 þingsæti í kosning-
unum er fram fóru í landinu um
helgina. Bandalagið fékk 20 sæti.
Alls þarf 194 sæti til að hafa meiri-
hluta á þingi, þar sem 386 þingmenn
sitja. Sameiginlegur listi flokkanna
sem sátu í stjórn, Fidesz-ungverska
borgaraflokksins og Ungverska
demókratasambandins, fengu 188
sæti, en þeir útiloka samstarf við
Bandalag demókrata.
Þótt Fidesz og demókratarnir hafi
verið bandamenn í kosningunum
1990 hafa leiðir þeirra skilið. Und-
anfarinn áratug hefur Fidesz skipt
út flestum frjálslyndari viðhorfum
sínum og tekið upp íhaldsstefnu í
staðinn og verið eindreginn and-
stæðingur kommúnisma. Frjálsir
demókratar líta aftur á móti á sig
sem eina frjálslynda flokkinn í Ung-
verjalandi og lögðu andstöðu sína við
kommúnisma til hliðar til að geta
starfað með Sósíalistaflokknum, sem
varð til úr leifum Kommúnista-
flokksins sáluga.
Sósíalistar og demókratar voru í
samsteypustjórn 1994–98 og tóku oft
höndum saman á lokastigum barátt-
unnar fyrir kosningarnar nú. Engu
að síður segir leiðtogi demókrata,
Gabor Kuncze, að hann reikni með
að stjórnarmyndunarviðræðurnar
muni standa í allt að tvo mánuði.
„Við viljum fá fram eins mikið af
stefnumálum okkar og mögulegt er,“
sagði Kuncze, og bætti við, að skatta-
lækkanir, endurbætur á heilbrigðis-
kerfinu og aðgerðir gegn spillingu
væru fremst í forgangsröðinni hjá
flokknum.
Þótt demókratarnir hafi með
naumindum náð fimm prósenta lág-
marksfylginu sem þarft til að fá
þingsæti er flokkurinn í sterkri
stöðu í stjórnarviðræðunum, því án
þeirra geta sósíalistar ekki myndað
stjórn. Ferenc Madl forseti verður
að kalla saman nýtt þing innan mán-
uðar eftir að kosningar fara fram og
tilnefna síðan forsætisráðherraefni
er myndar nýja stjórn, samþykki
þingið hann. Forsætisráðherraefni
sósíalista er Peter Medgyessy og
meðal kosningaloforða sem þeir gáfu
var hækkun launa kennara um 50%,
70 þúsund króna eingreiðsla til eft-
irlaunaþega og afnám skatta á mán-
aðartekjur lægri en 18.500 kr.
Ríkisstjórn Ungverjalands beið ósigur í þingkosningum
Sósíalistar og demókrat-
ar hefja stjórnarmyndun
Búdapest. AP.
ÖFLUG bílsprengja sprakk í Madrid í gær og er bask-
neska hryðjuverkahreyfingin ETA grunuð um að bera
ábyrgð á henni. Olli hún allmiklu eignatjóni, meðal
annars á tuttugu bílum, en engu beinu manntjóni. Einn
mann varð þó að flytja undir læknishendur vegna
hjartaáfalls og þrír fengu vægt taugaáfall. Kemur
sprengingin í kjölfar þeirrar ákvörðunar spænsku rík-
isstjórnarinnar að banna með lögum Batasuna, stjórn-
málaarm ETA. Hér eru lögreglumenn að skoða bílflak-
ið eftir sprenginguna.
Reuters
Öflug sprenging í Madrid