Morgunblaðið - 26.04.2002, Síða 10

Morgunblaðið - 26.04.2002, Síða 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Á UNDANFÖRNUM árum hafa sveitarfélögin lagt sig fram um að efla baráttu gegn vímuefnaneyslu, ekki síst meðal unglinga, enda hefur á sama tíma orðið æ ljósara um hversu alvarlegt vandamál er að ræða, segir í fréttatilkynningu. Í byrjun árs 1999 stofnaði Kópavogur til sértaks forvarnarhóps sem hefur séð um samhæfingu og hvatningu til aðgerða gegn hvers konar fíkniefn- um. Til að leggja áherslu á þessa bar- áttu hefur Kópavogsbær nú í sam- vinnu við embætti sýslumanns lagt grunn að forvarnarátaki gegn fíkni- efnum í grunnskólum bæjarins. Í þessu skyni verður starfsmaður ráð- inn til Félagsþjónustu Kópavogs, með aðsetur í húsakynnum sýslu- manns. Hann mun beina starfskröft- um sínum að forvörnum innan skól- anna með viðveru, ráðgjöf og eftirliti. Starfsmaðurinn mun jafnframt koma að samhæfingu aðgerða bæj- arins og lögreglunnar gegn fíkni- efnamálum, í þeim tilgangi að ná ár- angri í baráttunni gegn þeirri vá sem þau eru. Með þessu átaki leggur bæjarfélagið áherslu á að grunnskól- ar þess eigi að vera heilbrigðir og öruggir vinnustaðir fyrir börn og starfslið. Átak í for- vörnum í Kópavogi TÓNLEIKAR verða haldnir í Saln- um, tónlistarhúsi Kópavogs, í kvöld föstudaginn 26. apríl, kl. 20, þar verða frumflutt verk nemenda úr tónsmíða- og tónfræðadeild Tónlist- arskólans í Reykjavík. Efnisskrá er einleiksverk fyrir fiðlu, píanó og flautu, kvartett fyrir fiðlu, selló, kontrabassa og píanó og tríó fyrir flautu, klarínettu og bas- saklarínettu. Einnig er verk fyrir átta einsöngvara og raftónlistarverk. Flytjendur eru aðallega hljóð- færa- og söngnemendur Tónlistar- skólans í Reykjavík, en nokkrir gest- ir taka einnig þátt í flutningi. Nemendur úr tónsmíðadeild eru Guðmundur St. Gunnarsson, Kol- brún Hulda Tryggvadóttir, Benedikt H. Hermannsson, Stefán Steinsson og Páll Tómas Viðarsson og úr tón- fræðadeild, Daníel Bjarnason og Kristján Guðjónsson. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill, segir í fréttatilkynningu. Tónleikar nem- enda í Salnum SAMTÖK gegn fátækt halda opinn fund laugardaginn 27. apríl kl. 14.30 í Hallgrímskirkju. Að þinginu standa Samtök gegn fátækt, Laugarnes- kirkja og Hallgrímskirkja. Erindi halda fulltrúar frá: Ör- yrkjabandalagi Íslands, Félagi eldri borgara, Vin, athvarfi Rauða kross Íslands fyrir geðfatlaða og Félagi einstæðra foreldra. Fulltrúar þeirra þriggja lista sem bjóða fram til borgarstjórnar á þessu vori lýsa stefnu sinni og við- horfum. Almennar umræður. Fund- arstjórar verða sóknarprestarnir Sigurður Pálsson og Bjarni Karls- son. Allir velkomnir, segir í fréttatil- kynningu. Málþing um fátækt NÝTT íþróttahús fimleikafélags- ins Bjarkanna í Hafnarfirði var formlega tekið í notkun í gær að viðstöddu fjölmenni, en húsið er sérstaklega hannað fyrir fim- leika. Húsið er reist í einka- framkvæmd, en það er Nýsir hf. sem er eigandi hússins. Fram- kvæmdir hófust í október í haust, en það er Ístak sem byggði húsið. Fimleikafélagið Björk varð 50 ára á síðasta ári og var þá tekin fyrsta skóflustungan að húsinu. Við opnunina í gær færði Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri, Þor- gerði M. Gísladóttur, einum af stofnendum félagsins og braut- ryðjanda í fimleikum, Önnu Maríu Valtýsdóttur, formanni félagsins, og Hlín Árnadóttir, aðalþjálfara, þakkir fyrir þeirra framlag til fimleika í Hafnarfirði.Morgunblaðið/Golli Nýtt íþróttahús Bjarkanna SJÓMANNAFÉLAG Reykjavíkur hyggst hindra vöruafgreiðslu úr hollenska skipinu Estime, sem Atl- antsskip eru með á leigu, verði laun skipverja um borð ekki hækk- uð. Stefán Kjærnested, fram- kvæmdastjóri Atlantsskipa, segir laun skipverjanna vera samkvæmt alþjóðlegum stöðlum sem Hollend- ingar fari eftir. Atlantsskip fari eftir íslenskum lögum og vilji menn breyta lögunum sjái Alþingi um það. Stefán Kjærnested segir að reyni Sjómannafélagið að hindra vöruafgreiðslu úr Estime muni fyr- irtækið fá lögbann á félagið. Í yfirlýsingu Sjómannafélagsins í gær kemur m.a. fram að sam- kvæmt kjarasamningum íslenskra sjómanna við íslenskar kaupskipa- útgerðir gilda íslensk kjör um allar áætlunarsiglingar til og frá Íslandi á vegum þeirra. Í svari Atlants- skipa kemur fram að Atlantsskip eru ekki með neinn samning við Sjómannafélag Reykjavíkur og ber ekki lagaleg skylda til að vera með samning við félagið. Sjómannafélagið segir að kjör meirihluta skipverja um borð í Es- time séu meira en helmingi lakari en kjör íslenskra sjómanna. Atl- antsskip segja að kjör um borð í skipinu séu samkvæmt hollenskum lögum og samningum, þar sem skipið sé skráð. Samkvæmt ís- lenskum lögum megi skip á hol- lenskum fána sigla til Íslands og bent er á að Eimskipafélag Íslands sé með portúgalska skipið Flor- inda á tímaleigu. Skipið sigli milli Íslands og Portúgals og um borð gildi kjör samkvæmt portúgölskum lögum. Sjómannafélagið segist ekki fallast á félagsleg undirboð af þessu tagi, allra síst þegar um sé að ræða sjóflutninga í fastri áætl- un á vegum íslenskra aðila og muni leita allra leiða og eftir víðtækri samstöðu við önnur stéttarfélög í landinu í varnarbaráttu sinni. Atlantsskip svara því til að þau fari í einu og öllu eftir íslenskum lögum og samkvæmt þeim sé heim- ilt að vera með skip á hollenskum fána í áætlunarsiglingum. Það sé grundvallaratriði að fyrirtæki fái að starfa í friði svo lengi sem þau fari eftir þeim lögum sem gildi í samfélaginu. Ísland sé aðili að al- þjóðlegu samfélagi og því sé það mikil þröngsýni hjá Sjómanna- félaginu að halda því fram að ís- lensk kjör eigi að gilda um skip sem sigli milli Íslands og Hollands. Atlantsskipum ber ekki skylda til að vera með samning við Sjómannafélag Reykjavíkur Segja laun skipverja sam- kvæmt alþjóðlegum stöðlum FJÓRTÁN umsóknir bárust Barna- vinafélaginu Sumargjöf um styrki til framhaldsnáms eða rannsókna, en styrkirnir voru auglýstir í jan- úar. Eftir að hafa farið yfir um- sóknirnar var það niðurstaða stjórnar félagsins að veita að þessu sinni þrjá styrki, sem afhentir voru í Grænuborg í gær. Eftirtaldir aðilar hljóta styrkina: Jóhanna Einarsdóttir, dósent í Kennaraháskóla Íslands: Rannsókn á hugmyndum 5 ára barna um grunnskólann. Styrkur: 300.000 kr. Anh-Dao Tran, kennari í Breiða- gerðisskóla, og fleiri: Rannsókn á þáttum sem hafa áhrif á náms- árangur asískra nemenda á Íslandi. Styrkur: 600.000 kr. Gísli Baldursson og Páll Magn- ússon, sérfræðingar hjá barna- og unglingageðdeild Landspítalans o.fl.: Forkönnun á geðheilsu 5 ára barna í Reykjavík. Styrkur: 600.000 kr. Stjórn Barnavinafélagsins Sum- argjafar væntir þess að styrkirnir komi að góðu gagni í því „að stuðla að andlegri og líkamlegri heilbrigði og þroska barna í Reykjavík“, eins og var upphaflegt markmið félags- ins. Barnavinafélagið Sumargjöf var stofnað á sumardaginn fyrsta vorið 1924 og er því 78 ára um þessar mundir. Lengst af sá Sumargjöf um rekstur dagheimila og leikskóla Reykjavíkurborgar, eða allt þar til í ársbyrjun 1978, þegar Reykjavík- urborg yfirtók reksturinn. Á und- anförnum árum hefur Sumargjöf haslað sér völl sem styrktaraðili ýmissa málefna, sem varða heill barna í Reykjavík. Er styrkveit- ingin nú hluti af því starfi. Sumargjöf veitir rann- sóknastyrki Morgunblaðið/Sverrir Frá afhendingu rannsóknastyrkja Barnavinafélagsins Sumargjafar. Frá vinstri: Jóhanna Einarsdóttir, Anh- Dao Tran, Jón Freyr Þórarinsson, formaður félagsins, Gísli Baldursson og Páll Magnússon. FRAMBJÓÐENDUR Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fögnuðu sumri í gær með því að grilla pylsur fyrir borg- arbúa í Austurstræti. Á myndinni má sjá þá Björn Bjarnason og Vil- hjálm Þ. Vilhjálmsson við það tækifæri. Grillað fyrir borg- arbúa Morgunblaðið/Ómar♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.