Morgunblaðið - 26.04.2002, Side 15

Morgunblaðið - 26.04.2002, Side 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 15 Skeifan 8, sími: 568 2200 www.babysam.is Nýr vörulisti ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S B BS 1 74 53 0 4/ 20 02 • Vörukynningar • Sam mætir í eigin persónu og skemmtir börnunum • Gjafir me› vi›skiptum • Freistandi tilbo› • Veitingar, kaffihorn og leikhorn • LEGO-BabySam-keppnin 2002 „Listahát훓 BabySam kl. 10 - 16 á morgun Kl. 13-14: „Örugg börn“: A›ili frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg lei›beinir vi›skiptavinum um öryggisvörur. Arnhei›ur Sigur›ardóttir hjúkrunarfræ›ingur og brjóstagjafalei›beinandi kynnir Lansinoh vörur. Anna Lísa Gunnarsdóttir kynnir Chicco snu›. Kl. 14-15: Kynning á hinum fl‡sku Teutonia vögnum og kerrum. Kynning á hágæ›a bílstólum frá Römer. Taktu flátt í LEGO-BabySam-keppninni. Heppinn flátttakandi fær helgarfer› fyrir 2 fullor›na og 2 börn í Legoland í bo›i Plúsfer›a og LEGO á Íslandi. Einnig ver›ur dreginn út flátttakandi í hverjum mánu›i sem fær í vinning skemmtilegt leikfang frá Lego. BabySam kynnir n‡jan vörulista 2002 á „Listahát훓 í Skeifunni 8 á morgun, laugardaginn 27. apríl, kl. 10 til 16. Veri› velkomin! FULLTRÚAR japanskra stjórn- valda lýstu yfir því í gær að Jap- anir hygðust áfram hundsa alþjóð- leg mótmæli vegna hvalveiða þeirra. Áfram yrði unnið að því af fullum krafti að fá hnekkt banni við hvalveiðum í ábataskyni. Þetta kom fram er fundur Al- þjóða hvalveiðiráðsins hófst í Shimonseki í Japan. Shimonseki er hafnarborg og hefur um aldabil verið helsta miðstöð hvalveiða Jap- ana. Veitingastaðir hafa hvalkjöt á boðstólum en Japanir stunda hval- veiðar í vísindaskyni og eru afurð- irnar seldar til neyslu. Þykir ekki að undra að Japanir skuli hafa ákveðið Shimonseki sem stað fyrir ársfund Alþjóðahval- veiðiráðsins. Ráðstefnan sem hófst í gær stendur í mánuð en talsmenn jap- anskra stjórnvalda lýstu strax í upphafi hennar yfir því að afstaða Japana væri óbreytt. „Við höfum á ári hverju þrýst á um að banni við veiðum í ágóðaskyni verði aflétt og menn geta verið vissir um að svo mun verða áfram,“ sagði Toshih- aru Tarui, embættismaður í utan- ríkisráðuneytinu. Engin rök fyrir banninu Formaður japösnku sendinefnd- arinnar sagði að engin frambæri- leg vísindaleg rök væru fyrir banninu. Japanir sættu að ósekju gagnrýni sökum þess að þeir vildu að það yrði afnumið. Á sama tíma leyfðist frumbyggjaættbálkum í Bandaríkjunum og víðar að veiða hvali í ábataskyni. „Rússar eru hvalveiðiþjóð. Bandaríkjamenn eru hvalveiðiþjóð og það eru Kanada- menn líka. En Japanir eru teknir fyrir. Þarna er á ferðinni menning- arlegt fyrirbrigði sem nær aftur til níunda áratugarins þegar í tísku var að tala illa um Japani,“ sagði Joji Morshita, formaður vísinda- nefndar Japana, á fundi Hvalveiði- ráðsins. Ólíklegt þykir að horfið verði frá banninu á fundinum. Hvalveiðiráðið fundar í Japan Shimonoseki. AP. Japanar boða framhald á baráttu gegn banni við ágóðaveiðum BERTIE Ahern, forsætisráð- herra Írlands, gekk í gær á fund Mary McAleese forseta og til- kynnti henni að hann hefði ákveð- ið að boða til kosninga eftir þrjár vikur, eða 17. maí nk. Búist er við að Ahern kynni stefnuskrá flokks síns, Fianna Fáil, á næstu dögum og að aðrir flokkar muni fylgja í kjölfarið. Í frétt dagblaðsins The Irish Times segir að líklegt sé að í kosningabaráttunni verði tekist á um efnahagsmál en ýmis teikn þykja vera á lofti um að verð- bólga fari vaxandi á Írlandi á næstu mánuðum. Stafar það m.a. af því að bæði verkalýðs- félög og vinnuveitendur hafa látið hafa eftir sér að ólíklegt sé að aðilar vinnumarkaðar end- urnýi samkomulag sín á milli um launakjör. Ríkisstjórn Aherns hefur set- ið við völd í fimm ár, en síðast var kosið á Írlandi vorið 1997. Auk Fianna Fáil, sem er stærsti stjórnmálaflokkurinn á Írlandi, á flokkur Framsækinna demó- krata aðild að ríkisstjórninni en flokkurinn varð til við klofning úr Fianna Fáil á níunda ára- tugnum. Óvíst er hins vegar hvort stjórnarflokkarnir muni hljóta áframhaldandi umboð kjósenda og gagnrýndi Michael Noonan, leiðtogi Fine Gael, sem er stærsti stjórnarandstöðu- flokkurinn, ríkisstjórnina á þriðjudag fyrir að hafa eytt um efni fram. Játning dreg- in til baka RAHMI Sahindal, faðir Fadime Sahindal, dró í gær til baka þá játningu sína að hann hefði myrt dóttur sína. Lögfræðingur Rahmis Sahindals greindi frá þessu í gær en faðirinn viður- kenndi í janúarmánuði að hafa myrt hina 26 ára gömlu dóttur sína sökum þess að hún átti í sambandi við sænskan mann. Það þótti föðurnum ekki sæma múslímastúlku þótt þau byggju í Svíþjóð. Að sögn lögmanns föð- urins verða engin ný gögn lögð fram í málinu önnur en þau sem lúta að því að Rahmi Sahindal tekur játningu sína til baka. Hættir hjá Bush KAREN P. Hughes, náinn ráð- gjafi George W. Bush Banda- ríkjaforseta, hefur sagt af sér embætti og kveðst ætla að flytja með fjölskyldu sína heim til Texas. Hughes hefur náð meiri frama en nokkur önnur kona innan Hvíta hússins. Hughes hefur verið yfirmað- ur samskiptadeildar, ræðu- skrifa og fjölmiðlaskrifstofu for- setaembættisins og þannig haft mikil áhrif á stefnu forsetans. Ástæðan sem Hughes gaf fyrir brottför sinni – að hún vildi eyða meiri tíma með fjölskyldu sinni – var af fréttamönnum í Wash- ington ekki túlkuð sem hefð- bundið yfirvarp, heldur tekin trúanleg og sögð til marks um þá erfiðleika sem konur ættu við að etja þegar þær reyndu að sinna starfi sínu jafnframt því að reka heimili. STUTT Kosið á Írlandi Bertie Ahern

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.