Morgunblaðið - 26.04.2002, Page 30

Morgunblaðið - 26.04.2002, Page 30
MINNINGAR 30 FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Jón Jóhannssonfæddist á Hnappavöllum í Öræfum 6. apríl 1921. Hann lést á hjúkrunardeild Heil- brigðisstofnunar Suðausturlands 16. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Jóns- dóttir og Jóhann Ingvar Þorsteinsson. Jón var annar í röð þriggja bræðra, þeirra elstur var Þorsteinn, bóndi og kennari í Svínafelli í Öræfum, hann er nú látinn. Yngstur er Sig- urður, fyrrv. bóndi á Hnappavöll- um, búsettur á Höfn. Jón kvæntist 2. nóvember 1951 Guðlaugu Gísladóttur, f. 6. febr- úar 1920. Foreldrar hennar voru hjónin Gísli Bjarnason, bóndi á Hnappavöllum, og Ingunn Þor- steinsdóttir. Börn Jóns og Guð- laugar eru: 1) Ingunn f. 31.7. 1951, búsett í Akurnesi í Horna- firði, maki Ragnar Jónsson. Börn þeirra eru: a) Vigdís, maki Jó- hannes Hjalti Danner, börn þeirra: Ragnar Ingi, Kristján Már og Sigríður, b) Nanna Dóra, maki Grétar Már Þorkels- son, barn þeirra: Þorkell Ragnar, c) Hulda Rós, d) Berg- þóra, unnusti Jón Bjarnason, e) Helgi, f) Anna Lilja, g) Sveinn Rúnar, h) Birgir Freyr, i) Sig- urður. 2) Guðrún Jó- hanna, f. 26.6. 1954, búsett í Reykjavík, dóttir hennar er Guðlaug Erla Hall- dórsdóttir, maki Guðlaugar Erlu er Kjartan Helgason. 3) Gísli Sigurjón, f. 15.8. 1955, búsettur á Hnappa- völlum í Öræfum, dóttir hans er Þóra Björg, móðir hennar er Kol- brún Þorsteinsdóttir. 4) Krist- björg, f. 9.7. 1958, búsett á Höfn, maki Bjarni Þór Jakobsson. Börn þeirra: a) Jón Atli, b) Baldur, c) Sólveig. Jón var bóndi á Hnappavöllum til ársins 1997 að þau hjónin fluttu til Hafnar í Hornafirði. Útför Jóns fer fram frá Hofs- kirkju í Öræfum í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Það er með sárum söknuði sem ég kveð þig, elsku afi minn. Það er erfitt að hugsa til þess að geta ekki séð hann afa og rætt við hann framar, einkum þar sem það er svo stutt síðan mér hefði ekki komið til hugar að hann væri að fara að kveðja þennan heim. Hann sem oftast hafði notið góðrar heilsu og alltaf verið svo kátur og glettinn á svip. Það var ekki fyrr en nú allra síðustu vikur sem við gerðum okk- ur grein fyrir því að hann átti við erfiðan sjúkdóm að etja, sem sigr- aði að lokum. Það eru svo margar góðar minn- ingar sem ég á um hann afa. Ég ólst upp á heimili hans og ömmu og var búin að ræða um allt milli him- ins og jarðar við hann, bæði í gamni og alvöru. Oft vorum við að tala um kindurnar og hestana sem hann hafði alltaf svo gaman af, og honum þótti sérstaklega gaman að labba með mér um fjárhúsin og sýna mér allar kindurnar sem ég átti. Einnig fannst honum gaman að fylgjast með því sem ég var að læra og vildi að ég væri dugleg við það, hvort sem það voru biblíusög- urnar í barnaskólanum, tungumál eða annað sem ég hef lært. Hann las mikið sjálfur og hefur alltaf haft áhuga fyrir því að aðrir öfluðu sér fróðleiks eins og hann gerði sjálfur með lestrinum. Sérstaklega er ég þakklát fyrir hvað afi var þolinmóður og góður við mig þegar ég var barn. Hann sýndi mér alltaf væntumþykju og vildi alltaf allt fyrir mig gera en ætlaðist ekki til mikils í staðinn, en þannig var hann afi. Ég man t.d. þegar ég var lítil stelpa og langaði til að taka þátt í því að smala, að ég fékk að fara með honum á hesti á móti smalamönnunum og ,,hjálpa“ til við að reka féð heim. Líklega hefur nú fyrirhöfnin verið meiri en gagnið sem af mér hlaust, en ekki lét hann mig finna fyrir því. Mér finnst afi hafa reynst öllum vel sem hann þekkti. Hann var stoltur af þeirri stóru fjölskyldu sem hann eignaðist og hann gladd- ist yfir öllu sem vel gekk og reynd- ist alltaf traustur fjölskyldufaðir. Hann var alltaf svo góður við barnabörnin og börnin sem voru í sveit hjá honum í Hjáleigunni, og ég veit að þau meta það mikils. Skemmtilegast þótti honum ef hann gat komið börnunum til að hlæja. Hann var ömmu traustur eig- inmaður og félagi og mér finnst aðdáunarvert hversu samhent þau voru alltaf og ekki síst þegar árin færðust yfir. Ég kveð með miklum söknuði, en þakka fyrir að hafa fengið að njóta þess að kynnast svo vel þeim góða og glaðlega manni sem afi minn var, og ég þakka honum fyrir allar minningarnar sem ég geymi um hann. Við fjölskyldan höfum öll misst mikið en mest hefur amma misst og bið ég Guð að vera með henni og styrkja hana. Guðlaug Erla Halldórsdóttir. Okkur langar hér með fáeinum orðum að minnast afa okkar, Jóns Jóhannssonar, afa í Öræfunum eins og við kölluðum hann alltaf. Þær voru ekki þéttar ferðinar sem farn- ar voru að Hnappavöllum en þær voru mikið tilhlökkunarefni enda voru móttökurnar eftir því góðar. Framan af voru þessar ferðir nán- ast okkar einu kynni af afa því hann kom ekki oft austur en þessi kynni voru góð. Það var gaman að spjalla við afa því hann var við- ræðugóður og alltaf í góðu skapi. Hann var glettinn og gat oft séð spaugilegu hliðarnar á hlutunum. Afi var hæglátur maður sem vann sín verk af áhuga, hann var fæddur og uppalinn á Hnappavöllum þar sem hann varð bóndi í félagi við foreldra sína og bróður og síðar einnig son sinn. Eins og aðrir af hans kynslóð lifði afi mikið fram- faraskeið í sögu landbúnaðar þar sem vélvæðingin tók við af hand- verkfærum og á þessum tíma byggði afi ásamt þeim hinum upp á jörðinni af myndarskap bæði fyrir menn og skepnur. Afi hafði alla tíð gaman af búskap og hirti um skepnurnar af natni og samvisku- semi. Hann gekk til sinna verka fram til þess tíma að hann og amma fluttu austur á Höfn árið 1997. Þá var heilsu ömmu þannig komið að hún þurfti að vera undir læknishendi. Á Höfn bjuggu afi og amma sér fallegt heimili við Vík- urbraut 26. Þar reyndist afi stoð og stytta ömmu í veikindum hennar og kom það í ljós sem oft endranær hversu auðvelt hann átti með það að sýna öðrum umhyggjusemi og eftir að hún var komin á hjúkr- unardeildina heimsótti hann hana hvern einasta dag og stundum tvisvar og hefur það sennilega ver- ið meira af vilja en mætti undir það síðasta. Við viljum hér að lokum senda ömmu okkar dýpstu sam- úðarkveðjur. Elsku afi við þökkum þér þær samverustundir sem við áttum með þér. Guð geymi þig. Vaktu, minn Jesú, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki, þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgrímur Pétursson.) Systkinin í Akurnesi. JÓN JÓHANNSSON ✝ Sigríður Þórðar-dóttir fæddist á Siglufirði 2. janúar 1917. Hún lést á elli- og hjúkrunarheim- ilinu Eir 20. apríl síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Þórunn Ólafsdóttir, f. 14. apríl 1884, d. 28. nóv. 1972, og Þórður Jóhannesson smiður, f 13. júlí l890, d. 15. mars 1978. Systkini Sigríðar eru Björn, f. 19. september 1913, Davíð, f. 29. september 1915, Jóhannes, f. 29. september 1919, og Nanna, f. 30. apríl 1923. Eiginmaður Sigríðar var Lúð- vík Guðmundsson, f. 2. desember 1889, d. 25. apríl l968, foreldrar hans voru Stefán Guðmundsson og Andrea Weywadt. Dóttir Sig- ríðar og Lúðvíks er Þórunn, f. 4. júní 1953, gift Ásgeiri Gunn- laugssyni, f. 8. október 1952. Börn þeirra eru: Sigríður, f. 18. janúar 1970, gift Gesti Þór Ósk- arssyni, f. 26. september l974, sonur þeirra er Daníel Þór, f. 11. nóvember 1999. Lúðvík, f. 15. nóvember 1975, kvæntur Heiðbjörtu Gunn- ólfsdóttur, f. 17. maí 1977, börn þeirra eru: Krist- ófer, f. 7. septem- ber 1997, Ásgeir, f. 10. september 1999, og Þórunn, f. 22. júní 2001. Vilborg, f. 27. apríl 1977, gift Eyþóri Bjarna- syni, f. 6. ágúst 1972, börn þeirra eru Arna Sif, f. 11. mars l998, og Stef- án Orri, f. 1. júlí 2000. Sigríður ólst upp á Siglufirði en fluttist síðar til Reykjavíkur þar sem hún nam kjólasaum og hlaut hún meistararéttindi í kjólasaumi árið 1949. Hún starf- aði síðan sjálfstætt sem kjóla- meistari fram til ársins 1968. Eftir það stundaði hún ýmis störf, t.d. í Björnsbakaríi, var verkstjóri í fatagerð Leifs Mull- ers en síðustu starfsár sín vann hún á kvöldvakt í eldhúsi Land- spítalans þar til hún varð að hætta störfum sökum sjúkdóms þess er síðar leiddi hana til dauða. Útför Sigríðar fer fram frá Garðakirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. Elsku mamma mín, loksins kom hið langþráða kall sem batt enda á langa þrautagöngu þína og harða baráttu sem var fyrirfram töpuð. Þar sem ljóst var um langt skeið hvert stefndi töldum við að við vær- um undirbúin þegar kallið kæmi, en svo var þó ekki, dauðinn virðist koma manni í opna skjöldu, hversu langur sem aðdragandinn hefur ver- ið. Það er svo margt sem virðist ósagt og sárt að aldrei skyldi gefast tími til að kveðja og þakka fyrir allar þær ljúfu stundir sem við áttum saman. Þú hafðir ávallt verið heilsuhraust þar til fyrir um það bil 16 árum, þá fór að bera á minnisbrestum hjá þér, í fyrstu ekki svo mjög alvarlegum, þannig að oft var gert góðlátlegt grín af þeim, ekkert okkar gerði sér grein fyrir né hafði heyrt talað um hinn hræðilega sjúkdóm sem nefnd- ur er Alzheimer. Þú, elsku mamma, sagðist vera farin að kalka þar sem aldurinn væri að færst yfir. En alltaf ágerðist minnistapið, og árið 1990 kom síðan greiningin, þú varst með Alzheimer. Líðan þín versnaði stöðugt, hræðilegt var að horfa upp á kvalir þær sem þú leiðst þar sem þú varst þér mjög meðvit- andi um minnistapið í fyrstu. Það kom að því að þú þurftir að hætta að vinna og fjarlægðist stöð- ugt raunveruleikann. Ástandið versnaði stöðugt en þú varst heppin og komst í dagvistun á Hlíðarbæ. Nokkrum árum síðar stóðum við frammi fyrir sárustu ákvörðun sem við þurftum að taka en það var í apríl 1994 þegar ekki varð umflúið að þú flyttist frá heimili okkar sem jafn- framt var þitt að Hjúkrunarheim- ilinu Eir. Hægt er að fara mörgum orðum um þennan hörmulega sjúkdóm sem ógerningur er að forðast, og engin lækning finnst við, þessar fáu ljóð- línur lýsa betur en nokkur orð því sem gerist: Þú hvarfst þér sjálfum og okkur hvarfst inn í höfuð þitt dyr eftir dyr luktust og gátu ei opnast á ný. Þú leiðst hægt á brott gegnum opnar bakdyr bústaður sálarinnar er hér enn en stendur auður sál þín er frjáls líkami þinn hlekkjaður við líf sem ekki er hægt að lifa. Þú horfir framhjá mér tómum augum engin fortíð engin framtíð engin nútíð við fengum aldrei að kveðjast. (Þýð. Reynir Gunnlaugsson.) Já, það er sárt að hafa ekki fengið tækifæri til að kveðjast. En allar þær góðu minningar sem þú skilur eftir þig eru gulls ígildi. Við bjuggum saman alla tíð, faðir minn lést 25. apríl 1968 eftir langvar- andi veikindi og vorum við þá bara tvær einar eftir. Þegar ég síðan kynntist manni mínum bjuggum við fyrstu árin hjá þér, ykkur kom alla tíð ótrúlega vel saman, var eins og þið hefðuð þekkst alla tíð. Þegar svo kom að því að við flyttum í okkar eig- ið húsnæði kom aldrei annað til greina en þú flyttir með okkur, þú varst alltaf ein af fjölskyldunni. Þú varst börnunum okkar þrem ómet- anleg amma, alltaf til staðar og alltaf gátu allir leitað til þín, þú brást aldr- ei. Það er dýrmætasta gjöfin sem börn okkar hlutu að fá tækifæri til að alast upp með þér, elsku mamma mín. Þessa dýrmætu gjöf kunnu þau svo sannalega að meta og sýndu það í hugsun og verki til hinstu stundar. Aldrei var farið í sumarfrí hvorki innanlands né erlendis nema þú fær- ir með og eigum við öll ógleyman- legar minningar frá þeim stundum en allar minningar okkar úr fortíð- inni eru tengdar þér, þú varst með okkur alla tíð og megna engin orð að þakka það. Elsku mamma mín, þín er sárt saknað, en minningin um þig gleym- ist aldrei hún lifir í hjarta okkar. Hvíl í friði. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði’ er frá. (V. Briem.) Starfsfólki á Hlíðarbæ og Hjúkr- unarheimilinu Eir deild 2N færum við fjölskylda Dídíar okkar innileg- ustu þakkir fyrir frábæra umönnun og aðhlynningu. Þórunn Lúðvíksdóttir. Heimsins besta amma. Nú ertu farin frá okkur, elsku besta amma okkar, loksins fékkst þú hvíldina eftir mjög langa og erfiða baráttu við þann illvíga sjúkdóm Alzheimer, þú varst alltaf svo rosa- lega sterk og kveinkaðir þér aldrei sama þótt þú værir handleggsbrotin eða jafnvel mjaðmagrindarbrotin og því var enn sorglegra að þú þyrftir að glíma við þennan hræðilega sjúk- dóm en við fengum það sem aðrir krakkar fá ekki að njóta því þú bjóst alltaf hjá okkur því finnst okkur eins og við höfum átt tvær mömmur, þú kenndir okkur að prjóna – sauma krosssaum, leggja kapal, fórst með okkur í göngutúra með nesti að ógleymdum sumarfríum til útlanda því aldrei kom annað til greina þegar verið var að ákveða sumarfrí að þú kæmir með því við vorum jú ein fjöl- skylda. Alltaf varstu heima þegar við komum heim úr skólanum og tókst jafnvel á móti okkur með nýbökuð- um kleinum, þú varst alltaf til staðar ef eitthvað bjátaði á, alltaf svo glað- leg, með bros á vör og skiptir aldrei skapi. Í apríl fyrir 8 árum fluttist þú á Hjúkrunarheimilið Eir vegna Alz- heimer og var það okkar erfiðasta ákvörðun sem við höfum þurft að taka í gegnum tíðina en þá ákvörðun varð að taka þó sérstaklega þín vegna, en við létum það ekki á okkur fá og var alltaf farið í helgarbíltúr að heimsækja ömmu, því þá var komið að okkur að hugsa um þig, elsku besta amma okkar, enda áttir þú það og gott betur skilið, einnig er það ómetanlegt hvað mamma og pabbi hugsuðu vel um þig í gegnum öll ár- in. Það sem okkur þykir einna verst er að makar okkar og börn fengu ekki tækifæri á að kynnast þér, en við létum það ekki aftra okkur með að taka allan skarann með okkur að heimsækja þig allar helgar og aðra frídaga, en þrátt fyrir þessi miklu veikindi þín geislaði alltaf af þér og vildu barnabarnabörnin alltaf kyssa langömmu sína bless. Höggvið hefur verið stórt skarð í okkar daglega líf og fá engin orð í hugum okkar lýst hve söknuðurinn er mikill, aðalmálið er þó að þú, elsku amma, átt fastan stað í hjörtum okkar allra. Við kveðjum þig með þessum orð- um og þótt við grátum þig þá vitum við að þér líður vel. Hvíl í friði. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þótt svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Elsku mamma og pabbi við viljum þakka ykkur að það hafi aldrei verið annað í umræðunni en að amma byggi hjá okkur og við fengið að njóta hennar til fulls. Sigríður (Dídí), Lúðvík (Lúlli) og Vilborg (Lilla). SIGRÍÐUR (DÍDÍ) ÞÓRÐARDÓTTIR EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: Í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. Í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. Skilafrestur minning- argreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.