Morgunblaðið - 26.04.2002, Síða 42

Morgunblaðið - 26.04.2002, Síða 42
DAGBÓK 42 FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Gud- run kemur í dag. Mána- foss fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Ljósafoss fór í gær. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 leikfimi og vinnustofa, kl 12.45 dans, kl 13 bók- band, Bingó fellur nið- ur. Leikhópurinn á sen- unni undir stjórn Felix Bergssonar flytur leik- og söngskemmtunina. Ég bíð þér dús mín elskulega þjóð. Til að heiðra minningu Hall- dórs Kiljans Laxness á Aflagranda kl.14.30 Árskógar 4. Bingó kl. 13.30 smíðastofan. Allar upplýsingar í síma 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böðun, kl. 9–12 bók- band, kl. 9–16 handa- vinna, kl. 10–17 fótaað- gerð, kl.13 frjálst að spila. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudög- um kl. 13–16.30, spil og föndur. Kóræfingar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mosfellsbæ á Hlaðhömrum fimmtu- daga kl. 17–19. Les- klúbbur kl. 15.30 á fimmtudögum. Jóga á föstudögum kl. 11. Púttkennsla í íþrótta- húsinu kl. 11 á sunnu- dögum. Uppl. hjá Svan- hildi í s. 586 8014, kl. 13–16. Uppl. um fót-, hand- og andlitssnyrt- ingu, hárgreiðslu og fótanudd, s. 566 8060 kl. 8–16. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 9 opin handa- vinnustofan. Félagi eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10-13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Sunnu- dagur: Félagsvist kl. 13.30. Dansleikur kl. 20. Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur: Brids kl. 13. Dans- kennsla framhald kl. 19 og byrjendur kl. 20.30. Söguslóðir á Snæfells- nesi og þjóðgarðurinn Snæfellsjökull 3 daga ferð 6-8 maí gisting á Snjófelli á Arnarstapa, farið verður á Snæfells- jökul, leiðsögn Valgarð Runólfsson. Skráning hafin á skrifstofu FEB. Baldvin Tryggvason verður til viðtals mið- vikudaginn 8. maí nk. um fjármál og leiðbein- ingar um þau mál á skrifstofu FEB panta þarf tíma. Silfurlínan er opin á mánu-og mið- vikudögum frá kl. 10– 12. sími 588-2111. Skrif- stofa félagsins er flutt að Faxafeni 12 sama símanúmer og áður. Fé- lagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsibæ. Upp- lýsingar á skrifstofu FEB. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30, bingó kl 14. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 10– 12 verslunin opin, kl. 13. „Opið hús“ spilað á spil. Vorbasarinn verð- ur 4. og 5 maí. Tekið á móti basarmunum frá 29. apríl til 3. maí. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Myndlist og brids, kl. 13.30. Morgungangan á morg- un laugardag 27. apríl, farið frá Hraunseli kl 10. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 myndlist og rósamálun á tré, kl. 9–13 hár- greiðsla, kl. 9.30 göngu- hópur, kl. 14 brids. Opið alla sunnudaga frá kl. 14–16 blöðin og kaffi. Gerðuberg, félagsstarf. Í dag kl. 9–16.30 vinnu- stofur opnar, frá hádegi spilasalur opinn. Upp- lýsingar um starfsem- ina á staðnum og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.30 málm- og silf- ursmíði, kl. 9.15 rammavefnaður, kl. 13 bókband, kl. 13.15 brids. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 10 glerlist, bingó kl. 14. Hraunbær 105. Kl. 9– 12 baðþjónusta, kl. 9–17 hárgreiðsla og fótaað- gerðir, kl. 9 handa- vinna, bútasaumur, kl. 11 spurt og spjallað. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun, leikfimi og postulín, kl. 12.30 postulín. Fótaaðgerð, hársnyrting. Allir vel- komnir. Leikhúsferð sunnudaginn 5. maí verður farið að sjá Kryddlegin hjörtu í Borgarleikhúsinu. Skráning á skrifstof- unni og í s. 588 9335 Norðurbrún 1. Kl. 9–13 tréskurður, kl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 10 boccia. Félagsstarfið er opið öllum aldurs- hópum, allir velkomnir. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15 handa- vinna, kl. 13.30 sungið við flygilinn, kl. 14.30 kaffi og dansað í að- alsal. Fulltrúar R- listans koma í heimsókn kl. 15, ásamt Jónu Ein- arsdóttur sem tekur lagið á harmonikku. Góðar kaffiveitingar. Farið verður á mynd- listarsýningu, Erlu Sig- urðardóttur á Lista- setrinu Kirkjuhvoli, Akranesi. Þriðjudaginn 30. apríl kl.13. Kaffi- veitingar, skoðunarferð um Akranesbæ undir leiðsögn Bjarnfríðar Leósdóttur. Upplýs- ingar og skráning í s. 562 7077. Athugið tak- markaður sætafjöldi. Allir velkomnir. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 9.30 bókband og morg- unstund, kl. 10 leikfimi og fótaaðgerðir, kl. 12.30 leirmótun, kl.13.30 bingó. Bridsdeild FEBK Gjá- bakka. Brids kl. 13.15 í dag. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan verður á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13, kl. 10 á laug- ardögum. Ungt fólk með ungana sína. Hitt húsið býður ungum foreldrum (ca. 16–25 ára) að mæta með börnin sín á laug- ard. kl.15–17 á Geysir, Kakóbar, Aðalstræti 2 (Gengið inn Vest- urgötumegin). Opið hús og kaffi á könnunni, djús, leikföng og dýnur fyrir börnin. Samtökin gegn fátækt halda opinn fund laug- ardaginn 27. apríl kl. 14.30 í Hallgrímskirkju. Umræður: Frambjóð- endur borgarstjórn- arkosninganna mæta. Allir velkomnir. Minningarkort Minningarsjóður Krabbameinslækninga- deildar Landspítalans. Tekið er við minning- argjöfum á skrifst. hjúkrunarforstjóra í síma 560 1300 alla virka daga milli kl. 8 og 16. Utan dagvinnutíma er tekið á móti minning- argjöfum á deild 11-E í síma 560 1225. Hranfkelssjóður (stofn- að 1931) minningarkort afgreidd í símum 551- 4156 og 864-0427. Minningarkort Minn- ingarsjóðs Maríu Jóns- dóttur flugfreyju eru fáanleg á eftirfarandi stöðum: Á skrifstofu Flugfreyjufélags Ís- lands, s. 561-4307/fax 561-4306, hjá Halldóru Filippusdóttur, s. 557- 3333 og Sigurlaugu Halldórsdóttur, s. 552- 2526. Minningarkort Minn- ingarsjóðs hjónanna Sigríðar Jakobsdóttur og Jóns Jónssonar á Giljum í Mýrdal við Byggðasafnið í Skógum fást á eftirtöldum stöð- um: Í Byggðasafninu hjá Þórði Tómassyni, s. 487-8842, í Mýrdal hjá Eyþóri Ólafssyni, Skeiðflöt, s. 487-1299, í Reykjavík hjá Frí- merkjahúsinu, Laufás- vegi 2, s. 551-1814 og hjá Jóni Aðalsteini Jónssyni, Geitastekk 9, s. 557-4977. Slysavarnafélagið Landsbjörg, Stangarhyl 1, 110 Reykjavík. S. 570 5900. Fax: 570 5901. Netfang: slysavarna- felagid@landsbjorg.is Í dag er föstudagur 26. apríl 116. dagur ársins 2002. Kóngsbænadag- ur. Orð dagsins: Ofmetnaður hjart- ans er undanfari falls, en auðmýkt er undanfari virðingar. (Orðskv. 18, 12.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 löngu liðni tíminn, 8 hárflóki, 9 barefli, 10 kvendýr, 11 skjóða, 13 rifrildi, 15 svínakjöt, 18 ussa, 21 tryllt, 22 nálægð dauðans, 23 hlífum, 24 fagnaðar. LÓÐRÉTT: 2 angist, 3 hafna, 4 hárk- nippis, 5 blóðsugan, 6 ríf, 7 aula, 12 blóm, 14 eiga sér stað, 15 planta, 16 mannsnafn,17 smáseiðið, 18 hrædd, 19 uppgerð veiki, 20 sárt. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 slétt, 4 fúlar, 7 feita, 8 liðug, 9 fól, 11 rauk, 13 krás, 14 ýtinn, 15 flór, 17 átök, 20 enn, 22 styrk, 23 alkar, 24 aftra, 25 glati. Lóðrétt: 1 sefar, 2 élinu, 3 traf, 4 féll, 5 lúður, 6 regns, 10 Óðinn, 12 kýr, 13 kná, 15 fossa, 16 ólykt, 18 tukta, 19 korði, 20 ekla, 21 nagg. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Ekki gott kerfi ÉG var staddur úti á landi fyrir stuttu og þurfti að ná sambandi við lögreglu stað- arins vegna óhapps við þjóðveginn. Ég hringdi á næstu lögreglustöð en fékk samband við neyðarlínuna. Ég bað neyðarlínuna um að gefa mér samband við lög- reglu staðarins en varð fyrst að segja starfsmanni neyðarlínunnar frá atvik- um. Þá loksins fékk ég sam- band við lögreglu staðarins þar sem ég varð að endur- taka söguna í annað skiptið. Heyrt hef ég af fólki sem hefur þurft að tala við þrjá aðila til að fá afgreiðslu í svipuðum málum. Finnst mér þetta ekki nógu gott kerfi – að það þurfi jafnvel þrjú samtöl til að ná tali af réttum aðila. Borgari. Það vantar ekki grjót á Íslandi Í ÞÆTTINUM Silfri Egils sl. sunnudag var það dálítið spaugilegt þegar Árni Þór Siguðsson spurði Ingu Jónu Þórðardóttur hvar hún ætlaði að taka grjót í hafnarmannvirkin í Kolla- firði. Þeir sem til þekkja vita að norðurhlutinn á Álfsnes- inu, sem liggur að Kolla- firði, er að stórum hluta tveggja til þriggja mann- hæða háir sjávarhamrar. Þarna eru ábyggilega þrír ferkílómetrar af grjóti. Þótt R-listinn tæki allt fyll- ingarefnið í landfyllinguna umdeildu við Eiðisgranda þarna væri samt nóg eftir í hafnargarða í Kollafjarðar- höfn. Það vantar sannarlega ekki grjót á Íslandi. Ég skora á Reykvíkinga að stöðva landspjöllin í Geldinganesi með því kjósa Ingu Jónu Þórðardóttur, áttunda mann D-listans í Reykjavík. H.Í. Tapað/fundið Myndavél í óskilum MYNDAVÉL er í óskilum á barnaskemmtistaðnum Veröldin okkar í Smára- lind. Þeir sem kannast við vélina geta haft samband í síma 544 2220. Eins er því komið á fram- færi að mikið er af óskila- fatnaði á staðnum. Svört hliðartaska týndist STÓR, svört hliðartaska týndist við þjónustuíbúðir á Dalbraut 27, Reykjavík, mánudagskvöldið 15. apríl. Skilvís finnandi vinsamlega hafið samband við Sóley í síma 564 2478 eða 568 5377. Dýrahald Kókó er týnd KÓKÓ sem er tveggja ára læða er týnd. Hún er svar- brún, loðin og eyrna- merkt. Hún hvarf 17. apríl sl. frá Grænukinn 5, Hafn- arfirði. Þeir sem hafa orðið hennar varir hafi samband í síma 555 1958 eða 891 8658. Páfagaukur týndist GULUR páfagakur týndist frá Fellsmúla sl. sunnudag. Þeir sem hafa orðið hans varir hafi samband í síma 698 3626. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Víkverji skrifar... VÍKVERJI las í blaði nýstofnaðsAlþjóðahúss fyrir skömmu, að framkvæmdum við endurnýjun hús- næðis þess á Hverfisgötu hefði verið hætt vegna þess að kostnaður hefði verið kominn fram úr fjárheimildum. Þess vegna stendur húsnæðið að sumu leyti hálfkarað. Það er auðvitað slæmt, en Víkverja finnst þó til fyr- irmyndar að stjórn Alþjóðahúss skuli hafa tekið í taumana og stöðvað framkvæmdirnar. Menn eiga því nefnilega ekki endilega að venjast, þegar um peninga skattgreiðenda er að ræða, að þeir sem með þá fara taki svona ákvarðanir. Yfirleitt kemur bara í ljós eftir á að kostnaður við verkið fór langt fram úr áætlun og fjárheimildum og svo sitja skatt- greiðendur uppi með reikninginn. Hins vegar vonar Víkverji auðvitað að peningar finnist til að ljúka fram- kvæmdum við Alþjóðahúsið, því að bæði er húsið glæsileg borgarprýði og starfsemin einkar mikilvæg. x x x VÍKVERJI var að sópa stéttinaframan við hús sitt og tína upp rusl einn góðviðrisdaginn fyrir skömmu, þegar að bar gamlan mann, sem hafði á orði að ef allir höguðu sér svona væri öðruvísi um að litast í Reykjavík. Víkverja þótti hólið nátt- úrlega gott og hugsaði með sér að kannski væri nú sitthvað til í þessu. Ef allir húseigendur sópuðu t.d. þann gangstéttarbút, sem liggur meðfram þeirra lóðarmörkum væri borgin áreiðanlega snyrtilegri. En gang- stéttirnar eru auðvitað í eigu borg- arinnar og flestir húseigendur bíða frekar eftir götusópnum en að ómaka sig við þetta sjálfir. Vandamálið er bara að götusópurinn heitir líklega Godot og lætur aldrei sjá sig, heldur bíða menn eftir honum endalaust. Sumar gangstéttir og stígar í Reykjavík eru aldrei sópaðar. Marg- ir mánuðir eru síðan Víkverji hafði samband við embætti gatnamála- stjóra og benti á að gangstígur í hverfinu hans hefði ekki verið sóp- aður í a.m.k. þrjú ár, sem hefur þær afleiðingar að laufið, sem fellur á stíginn á hverju hausti, breytist óáreitt í mold eins og náttúran ætlaði því. Moldin og laufið er á góðri leið með að þekja stíginn algerlega enda er þarna skjólgott og norðanáttin vinnur ekki verkin fyrir borgar- starfsmenn. Það vantaði ekki að Vík- verja væri tekið elskulega af starfs- manninum, sem tók við ábendingu hans. Hins vegar gerðist ekki nokkur skapaður hlutur í málinu. x x x Í SAMA símtali benti Víkverji á að ígötunni hans væru tvær brotnar niðurfallsristar, sem þýðir að lauf, drulla og rusl skolast ofan í holræsin og getur stíflað þau. Þessari ábend- ingu var sömuleiðis elskulega tekið, en aftur gerðist ekki nokkur skap- aður hlutur fyrr en Víkverji rakst á starfsmenn holræsadeildar borgar- innar í hverfinu einn morguninn, dró þá á staðinn og sýndi þeim ristarnar ónýtu. Þeir brugðu skjótt við og skiptu um ristar. Þannig réð tilviljun ein því að bætt var úr – en kerfið virkar ekki. Um leið og Víkverji óskar lesend- um sínum gleðilegs sumars lætur hann í ljós þá ósk að betur verði sóp- að í Reykjavík á þessu kosningavori en undanfarin vor og brugðizt við ábendingum borgarbúa um lagfær- ingar, sem eru á ábyrgð borgarinnar. AÐ undanförnu hafa menn farið mikinn í umfjöllun um hugsanlega aðild Ís- lendinga að Evrópusam- bandinu. Samkvæmt könnun Gallup og PWC eru svo og svo margir sagðir með eða á móti aðild. Þegar rýnt sé í niðurstöðurnar á þennan máta eða hinn, sé samt ljóst eins og sagt var t.d. í DV sl. laugardag; „jafn- margir hlynntir ESB“. Auðvitað hefði blaðamað- urinn líka getað sagt; jafn- margir á móti ESB. Þeir sem fá ekki út úr svona könnun svör sem þeir vænta eða vilja segja gjarnan að ekki sé rétt spurt. Sannleikurinn kæmi þó trúlega í ljós ef könn- uðirnir spyrðu fyrst: Hef- ur þú þá þekkingu á Evr- ópusambandinu að þú getir gert þér grein fyrir afleiðingum inngöngu í það fyrir Íslendinga? Ef viðkomandi svaraði þess- ari spurningu játandi væri rétt að koma með spurn- inguna: Ert þú hlynntur aðild Íslendinga að ESB? Í persónulegri könnun og eftir að hafa beðið við- komandi að svara að vand- lega yfirveguðu ráði varð niðurstaðan sú að 100% svöruðu neitandi, enginn óákveðinn né neitaði að svara. Niðurstaða mín er því sú að kannanir Gallup og PWC séu afar ónákvæmar, jafnvel óvandaðar og harla léttvægar og lítt mark takandi á þeim um þetta deilumál. Kristinn Snæland. Rétta spurningin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.