Morgunblaðið - 26.04.2002, Side 49

Morgunblaðið - 26.04.2002, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 49 Hverfisgötu  551 9000 Síðast barðist hann við mestu óvini sína. Nú munu þeir snúa bökum saman til að berjast við nýja ógn! Ótrúlegar tæknibrellur og brjálaður hasar!!! Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára Sýnd kl. 6, 8 og 10.  kvikmyndir.com  MBL DV Sýnd kl. 10.15. B.i 16. 1/2Kvikmyndir.com 1/2HJ. MBL RadioXÓ.H.T. Rás2 Yfir 3 0.000 áhorf endu r Sýnd kl. 6. Ísl. tal. FRUMSÝNING www.regnboginn.is Til að eiga framtíð saman verða þau að takast á við fortíð hennar Ýmislegt á eftir að koma honum á óvart Mögnuð mynd með hinni frábæru Nicole Kidman Ef þú fílaðir American Pie og Road Trip þá er þetta mynd fyrir þig! Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 5.45 og 8. Sýnd kl. 10. B.i.16. Vit 366. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 367.Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i.12 ára Vit nr. 376. ANNAR PIRRAÐUR. HINN ATHYGLISSJÚKUR. SAMAN EIGA ÞEIR AÐ BJARGA ÍMYND LÖGREGLUNNAR  kvikmyndir.is Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 338 DV Sýnd kl. 6 og 8. Vit 357. Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit nr. 358. „Splunkunýtt framhald af ævintýri Péturs Pan!“ HL. MBL Sýnd kl. 10. Vit . 351 ÓSKARSVERÐLAUNAMYNDIN Jim Broadbent hlaut að auki Golden Globe verðlaunin fyrir besta aukahlutverk karla. Óskarsverðlaunahafinn Judi Dench ("Shakespeare in Love") og Kate Winslet ("Sense & Sensibility", "Titanic") voru báðar tilfnefndar til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sín í "Iris enda sýna þær stjörnuleik í myndinni. Hér er á ferðinni sannkölluð kvikmyndaperla sem enginn má missa af. Sýnd kl. 6 og 8. Vit 357. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 357. Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.12. Vit nr. 356 Eitt magnaðasta ævintýri samtímans eftir sögu H G Wells Frábær grín/spennumynd með þeim Eddie Murphy, Robert De Niro og Rene Russo í aðalhlutverki. Hérna mætast myndirnar “Lethal Weapon” og “Rush Hour” á ógleymanlegan hátt. Ekki missa af þessari! Epísk stórmynd byggð á sannsögulegum atburðum með Óskarsverðlaunaleikkonunni, Hilary Swank („Boys Don’t Cry“). Frá leikstjóra „Father of the Bride.“ FRUMSÝNING DV „Stórkostleg mynd“ FYRSTU kynni mín af dívunni berfættu voru fyrir allnokkrum ár- um er ég til skamms tíma starfaði sem gengilbeina á Café Sóloni Ís- landusi. Þá átti samstarfsfólk mitt til að spila hljómdiskana hennar og eins og fleiri heillaðist ég strax af sérstakri söngrödd Cesariu og takt- fastri og munúðarfullri tónblönd- unni þar sem afrískra áhrifa gætir í suðrænu sveiflunni. Hins vegar áttu starfsfélagarnir það til að spila ekk- ert nema Cesariu allan daginn út og inn, og þegar stuttum starfsferli mínum lauk á kaffihúsinu, gat ég ekki heyrt hennar seiðandi söng- rödd án þess að finna lykt af flötum bjór eða heyra frekjuóp frá íslensk- um fyllibyttum. Það var því löngu kominn tími til að taka Cesariu aftur í sátt, og það ákvað ég að gera síð- asta vetrardag. Ég sit spennt í sætinu mínu á 9. bekk í stúku. Tónleikarnir byrja. Fyrst kemur hljómsveitin hennar og spilar eitt fínt lag. Gaman. Síðan birtist hún í kastaraljósinu á sviðinu, berfætta dívan. Og byrjar að syngja. Það er alveg gaman. Tónlistin er ljúf og falleg, ég þekki sum lögin, ekki önnur. Uppi við sviðið hefur strax myndast hópur af fólki sem getur ekki annað en hrifist með tónlistinni og dansar. Þar á meðal virðast vera samlandar hennar frá Grænhöfða- eyjum sem veifa fána sínum. Ég vildi að ég væri að dansa. Lögin líða hjá og ég horfi á Ces- ariu sem einhvern veginn er ekkert dívuleg. Tilfinningaleg túlkun er í lágmarki. Eins og hún sé svo óör- ugg. Hún dansar heldur ekki. Það er eins og hún sé hissa á því að vera þarna. Að tilviljun ein hafi ráðið því að hún er söngkona sveitarinnar en ekki konan sem býr við hliðina á henni. Ég verð að sjá hana betur. Ég verð líka að dansa. Það er mun líflegri stemning niðri og ég geng á milli borða og upp að sviðinu. Eiginlega alveg upp að Ces- ariu. Og það fyrsta sem mér dettur í hug, þegar ég sé hana standa þarna, vel greidda og syndsamlega hóg- væra í allri sinni framkomu er: „Hæ, amma!“ Hún er svo vel til höfð með fínu armböndin sín á sverum hand- leggjunum. Ef þeir hefðu verið nokkrum þrepum ljósari, hefðu þeir alveg eins getað verið að steikja kleinur, eins og að halda á hljóð- nemanum sem hún syngur í og heillar alla heimsbyggðina. Nú er gaman. Og drengirnir hennar eru í sól- skinsskapi, meira en til í að skemmta Íslendingum og færa þeim sumarið með bros á vör og hnykk í mjöðmum. Þetta er tónlist til að finna í öllum líkamanum, ekki bara til að heyra. Ég dansa við alla í kringum mig og við alla í hljómsveit- inni. Amma er hins vegar að sinna löndum sínum sem nú eru komnir upp á svið til hennar í hita leiksins. Rétt eins og þau væru öll stödd á aðalkránni í Praia. Á sjálfumglaðri tölvuöld á tónlist- arfólk til að kúra yfir tölvum á sviði, reka framan í mann rassinn og reykja meðan á tónlistarflutningi stendur. Líka leika tónlist þar sem allt felst í svo djúppersónulegri tján- ingu að enginn nema flytjandinn skilur neitt, hvað þá heyrir lag. Þá er yndislegt að fara á tónleika þar sem tónlistin er ennþá ætluð áheyr- endum, og tónleikarnir eru fyrir þá. Ég nýt þess til hins ýtrasta. Þvílík leið til að kveðja veturinn! Manni hitnar í maganum, eins og sólin sé strax komin þangað. Hún sendir geisla upp í hjartað sem sér um að dæla þeim út um allan líkamann. Ahhhh... Þetta er æðislegt. Mér líð- ur vel, það er gaman, ég er svo glöð. Elsku amma Cesaria! Þú þarft ekkert að vera svo hissa á þessu öllu saman. Þú ert bara alveg dásamleg. Komdu aftur til okkar. Þín einlæg. Hæ, amma! Morgunblaðið/Ómar Cesaria Evora – berfætta dívan frá Grænhöfðaeyjum – í Laug- ardalshöllinni með hljóðnema í hendi en ekki að steikja kleinur.Hildur Loftsdóttir Tónlist Laugardalshöllin Tónleikar síðasta dag vetrar, 24. apríl, með Cesaria Evora frá Grænhöfðaeyjum og hljómsveit hennar. Geirfuglarnir hit- uðu upp. Cesaria Evora

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.