Morgunblaðið - 30.04.2002, Blaðsíða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 2002 25
KRÖFU dauðvona konu um að fá
að binda enda á lífið með hjálp eig-
inmanns síns var hafnað í gær fyrir
Mannréttindadómstóli Evrópu. Var
niðurstaðan sú, að breskir dóm-
stólar hefðu í engu brotið gegn
Mannréttindasáttmála Evrópu með
því að neita konunni um þessa ósk.
Diane Pretty, breska konan, sem
um ræðir, er 43 ára og lömuð frá
hálsi og niður. Fær hún næringu
um slöngu og getur aðeins tjáð sig
með hjálp tölvu. Höfðaði hún málið
á síðasta ári og hélt því fram, að
yfirvofandi dauði hennar yrði henni
og ástvinum hennar „mjög erfiður
og niðurlægjandi“. Vegna lömunar-
innar yrði hún hins vegar að fá
hjálp við að kveðja jarðlífið með
reisn.
Mona Arshi, lögfræðingur Pretty
og bresku borgararéttindasamtak-
anna Liberty, kvaðst vera mjög
vonsvikin með úrskurðinn. Sagði
hún, að Mannréttindadómstóllinn,
sem hefur ekki áður dæmt í máli af
þessu tagi, hefði átt að nota tæki-
færið til að bæta réttarstöðu
Pretty og þeirra, sem eins væri
ástatt um.
Brian, eiginmaður konunnar,
sagði í gær, að heilsu hennar hefði
hrakað að undanförnu, meðal ann-
ars vegna álagsins samfara mála-
ferlunum. Á fréttamannafundi, sem
þau hjónin efndu til í London í
gær, sagði Pretty, að hún væri
ákaflega vonsvikin. Sér fyndist sem
hún hefði verið svipt öllum rétt-
indum sem manneskja.
Lávarðadeildin, æðsta dómstig í
Bretlandi, úrskurðaði í nóvember,
að Brian gerðist sekur um glæp
hjálpaði hann konu sinni að deyja
og gæti þá átt yfir höfði sér 14 ára
fangelsi. Pretty vísaði þá málinu til
Strassborgar og hélt því fram, að
rétturinn til að deyja með reisn
með annars hjálp væri nátengdur
réttinum til lífsins. Vísaði hún
einnig til þess, að í Mannréttinda-
sáttmálanum væri ómannúðleg og
niðurlægjandi meðferð bönnuð.
Dómararnir sjö höfnuðu samt
öllum röksemdum hennar.
Samkvæmt breskum lögum frá
1961 er sjálfsvíg ekki afbrot en í
Bretlandi eins og í öðrum ríkjum,
sem undirritað hafa Mannréttinda-
sáttmálann, er það glæpur að
hjálpa fólki við að stytta sér aldur.
Neitað um hjálp
við að deyja
Mannréttindadómstóllinn hafnar
kröfu lamaðrar og dauðvona konu
Strassborg. AFP.
AP
Diane Pretty ásamt Brian, eig-
inmanni sínum, er þau komu
fyrir Mannréttindadómstólinn í
Strassborg í mars síðastliðnum.
PERVEZ Musharraf hershöfðingi
og forseti Pakistans sagði í gær, að
hann ætlaði að virða í einu og öllu
niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu,
sem fram fer í dag um áframhald-
andi völd hans.
Í sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar
fullvissaði Musharraf landa sína um
að kosningarnar færu heiðarlega
fram en þær snúast um það hvort
hann skuli fá umboð til að stjórna
landinu í fimm ár enn. Hefur hann
ekki til þessa viljað taka af skarið
um það hvort hann segði af sér ef
hann tapaði kosningunum auk þess
sem andstæðingar hans hafa sakað
hann um að beita brögðum.
Musharraf hrifsaði völdin í sínar
hendur árið 1999 og skipaði sjálfan
sig forseta í júní á síðasta ári. Hét
hann að uppræta spillingu og kveða
niður óöldina innanlands og efna
síðan til lýðræðislegra kosninga í
október á þessu ári.
Lofar að virða úrslitin
Islamabad. AFP.
Reuters
Félagar í Samtökum um endurvakningu lýðræðis héldu útifund í gær og andmæltu setu Musharrafs á forsetastóli.