Vísir - 16.06.1980, Page 1

Vísir - 16.06.1980, Page 1
r GaröaT sígurOsson, Tormaður pingfararkaupsneTndar?"1 „Þeir fengu að vita betta ailt saman" „Þingfararkaupsnefnd gerði bókun um þetta, sem visaði til þess, þegar þingmenn voru settir í þennan ákveðna launaflokk, ásamt mörgum starfsmönnum rikisins og þessir menn hafa fyrir mörgum árum fengið greidda ómælda yfirvinnu, 20% eða meira, aðrir hafa hækkað um flokka eða farið út úr launaflokkakerfinu. Ég tók aldrei eftir þvi, að neinn hávaði væri, þegar þessir aðilar fengu hækkun á launum,” sagði Garðar Sigurðsson, form. þingfarar- kaupsnefndar, er Visis náði sambandi við hann um borð í Gullberg- inu frá Vestmannaeyjum. Garðar var spurður að þvi, hvort honum þætti ekki óeðliíegt að þingmenn í'ái 20% launa- hækkun, þegar opinberum starfsmönnum væri boðin 0.37-1.98% hækkun, nánast á sama tima. „Eru það ekki opin- berir starfsmenn sem eru i þessum launaflokki með okkur. Þetta er ekki nein ákvörðun, sem tekur mið af aðstæðum núna og ekki neinni þróun, sem orðið hefur nýverið, siður en svo. Það er alveg rangt og alveg út i hött, einungis til þess að gera þetta tortryggilegt og æskilegt að bera þessa saman við einhverja nýja kjarasamn- inga við BSHB.” „En er ekki ljóst, að þetta muni hafa siæm áhrif á samn- ingamálin aimennt?” „Það má vel vera, aö þetta hafi slæm áhrif á fólk, en ég veit ekki, hvort þetta hefur slæm áhrif á þá, sem eru með okkur i launaflokki. Þingmenn eru ekki kröfuharðir i launamálum. sem sést best á þvi, að á s.l. ári voru laun alþingismanna 6.5 milljónir.” „Nú samþykktir þú hækkun- ina i þingfararkaupsnefnd i blóra við þinn þingflokk, sam- kvæmt þvi sem formaöur hans helur látið hafa eftir sér.” „Var það? Ég ber ekki ábyrgð á þvi hvaö þessir ágætu menn segja. Þeir fengu að vita þetta allt saman. Og ég veit ekki til þess, að l'yrir liggi neinar samþykktir þingflokk- anna i þessu efni, þó að þessi mál séu aðsjálfsögðu rædd þar, þannig að þeir þurla ekkert að verða mjög hissa. Þeir glima við stóru vandamálin, enda sér maður góðarúrlausnir blasa við i þeim efnum, ekki satt?” sagði Garðar Sigurðsson að lokum. —Gsal. Launahækkun frestað til fundar á fimmtudaginn „Ég er búinn að boða fund á fimmtudagsmorgun með forset- um, og þá fæ ég jafnframt for- menn þingflokkanna á fund”, sagði Jón Helgason. forseti Sameinaðs þings, er Vísir leitaði til hans vegna beiðni frá for- mönnum þingflokks Alþýöu- bandalags og Framsóknarflokks um, að breyting þingfararkaups- nefndar á mánaðarlaunum alþingismanna komi ekki til framkvæmda. En i lögum um þingfararkaup alþingismanna er kveðið á um, að skjóta megi úr- skurði þingfararkaupsnefndar til forseta Alþingis, sem felli endan- legan úrskurð. „Það eina.sem ég hef i höndun- um.er simskeyti frá Ragnari Arn- alds um það,aö þessu verði frest- að og um það fjöllum við á fimmtudaginn”. A.S. Forsetinn í næst elsta bíl landsins: „Mikið ævintýri” „Þetta var niikiö ævintýri og sérstaklega ánægjuleg ökuferð”, sagði dr. Kristján Eldjárn, forseti tslands, þegar hann, ásamt frú Halldóru konu sinni og Tryggva Gislasyni, skólameistara, steig út úr næstelsta bil landsins á hlaði heimavistar Menntaskólans á Akureyri eftir ökuferð frá flug- vellinum snemma i gærmorgun. Bifreiðin er af gerðinni Dixie Flyer og er enn i fullkomnu lagi, lék m .a. stórt hlutverk i myndinni Land og synir. ökumaður bifreiö- arinnar i myndinni og einnig i ökuferðinni i gær var Steindór G. Steindórsson, formaður Bila- klúbbs Akureyrar, en á morgun stendur klúbburinn fyrir veglegri bilasýningu við Oddeyrarskól- ann. Forsetahjónin eru nyrðra i tilefni af 100 ára afmæli Mennta- skólans á Alíureyri og sjást hér i gamla bilnum. GS-Akureyri/IJ » var hafnað í hingfiokknum segir filalur Ragnar Grfmsson um alstöðu AlDíðubandalagsins - Garðar var ekki á bingflokkslundinum » „Við höfum ekkert komið saman siðan þetta birtist, en ég ákvað eftir viðræður við þing- menn og formann þingflokks Framsóknarflokksins, að við myndum beita þessu ákvæði i lögunum um þingfararkaup, sem yfirleitt hefur ekki verið beitt, að skjóta þessum úrskurði þingfararkaupsnefndar til for- seta Alþingis”, sagði Ólafur Kagnar Grimsson form. þing- flokks Alþýðubandalagsins við Visi i ntorgun. ólafur sagði að málið væri þar með úr höndum þingfarar- kaupsnefndar, en tilmæli þing- flokksformannanna beggja heföu veriö þau að ákvörðunin yrði felld úr gildi. Ólafur kvaðst fyrst hafa heyrt af umræddri hækkun þing- mannalauna á fundi formanna þingflokkanna, þar sem Sverrir Hermannsson hefði kynntþessa hugmynd. „Ég vildi fá það kannað i þingflokkunum”, sagöi Ólafur, „hvort hljómgrunnur væri fyrir þvi að framkvæma hana og ég kynnti það i minum þingflokki og þvi var algjörlega hafnað. Þá tilkynnti ég Sverri Hermannssyni, sem var tillögu- maðurinn, aö þingflokkurinn hefði lagst gegn þessu. Garðar Sigurðsson var ekki á þeim fundi, þar sem hugmynd Sverris var rædd”. Ólafur kvaðst hafa oröið var við það á siðustu tveimur árum sérstaklega að þorri nýrra alþingismanna sem komið hafa úr hinum ýmsu störfum i þjóð- félaginu, hafi lækkað i launum viö að fara inn á þing og þvi væri vaxandi kurr meðal þingmanna um launamál. „Hvaða milliliður á ég að vera?” „Nokkru áður en að þetta var ákveöiö, þá oröaði Ólafur Ragn- ar þaö svo við mig að þetta mál væri mjög þungt fyrir i sinum flokki og að hann væri svart- sýnn á framgang þess. En formaöurinn er úr hans flokki og hvaða milliliður á ég að vera i þvi?” sagði Sverrir Hermannsson er Visir leitaði eftir þvi hvort rétt væri að Ólaf- ur Ragnar heföi tilkynnt Sverri um það að Alþýöubandalgið væri á móti. ,-Siðast þegar þetta kom fyrir, þá virtist þetta renna ofan i alla vegna þess að þetta var sam- þykkt samhljóða”. Gsal/AS i

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.