Morgunblaðið - 11.05.2002, Side 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isStoke-feðgar tilbúnir í
slaginn í Cardiff / B4
KA Íslandsmeistari í hand-
knattleik í annað skipti / B1
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r11.
m a í ˜ 2 0 0 2
HÓPUR kínverskra munka er
staddur hér á landi til að sýna í
Laugardalshöll. Þeir eru nefndir
Shaolin-munkar og eru orðlagðir
fyrir næstum yfirnáttúrlegan and-
legan og líkamlegan styrk. Hafa
þeir m.a. náð fágætum tökum á
kung fu-sjálfsvarnarlistinni.
Í fyrstu var ætlunin að þeir héldu
tvær sýningar í Laugardalshöll í
dag kl. 16 og 20. En vegna mikillar
eftirspurnar var einni sýningu bætt
við. Verður hún kl. 20 á morgun,
sunnudag. Hér stilla þeir sér upp
fyrir ljósmyndara Morgunblaðsins í
Bláa lóninu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Shaolin-
munkar í
Bláa lóninu
RÚMLEGA tvítug íslensk kona bú-
sett í Noregi er undir lögregluvernd
þar sem kúrdískur barnsfaðir hennar
hefur hótað henni lífláti, en forræð-
isdeila yfir þriggja ára dóttur þeirra
stendur yfir fyrir norskum dómstól-
um. Konan komst heim til Íslands
með dóttur sína árið 2000, að sögn
móður hennar, en neyddist til að fara
aftur til Noregs þar sem Hæstiréttur
úrskurðaði að hún yrði að snúa aftur
þangað þar eð norskir dómstólar ættu
að fjalla um málið. Úrskurðurinn
grundvallaðist á Haag-samningnum
sem fjallar m.a. um forsjá barna og af-
hendingu brottnuminna barna.
Líf konunnar hefur, að sögn móð-
urinnar, verið algjört víti frá því þau
eignuðust barnið saman. Hún segir að
barnsfaðir hennar hafi gjörbreyst við
fæðingu barnsins. „Þá fór hann að
berja hana, jafnvel nauðga henni og
sagði að ef hún færi myndi hann kála
henni,“ segir móðirin sem óttast mjög
um afdrif dóttur sinnar og dótturdótt-
ur. Hún segir að maðurinn hóti barns-
móður sinni fyrir framan dóttur
þeirra.
„Hún er búin að sitja heilu næturn-
ar með sax í höndunum og hefur ekki
þorað að kíkja út um gluggana,“ segir
móðir konunnar og segir að maðurinn
verði handtekinn komi hann nálægt
húsinu þar sem dóttir hans og barns-
móðir búa. Lögreglan keyri reglulega
fram hjá húsinu hennar, þekki bíl
barnsföðurins og um leið og konan
hringi sé lögreglan komin. Bróðir
hennar er nýfluttur til mæðgnanna og
segir amman að henni líði mun betur
að vita af þeim saman. Þó sé hún mjög
óttaslegin þegar hann þurfi að fara
burt í langan tíma, en hann vinnur á
olíuborpöllum í Norðursjó.
Hundruð kvenna í
sömu aðstöðu í Noregi
Móðir konunnar segir að hundruð
kvenna í Noregi séu í svipaðri aðstöðu
og nýlega hafi norsk kona í nákvæm-
lega sömu aðstöðu og dóttir hennar
verið myrt fyrir utan lögreglustöðina
í Kristiansand. „Við erum logandi
hrædd meðan hún stendur í þessari
forræðisdeilu. Maður verður hrædd-
ari og hræddari, þetta eru þvílíkar
hótanir og þetta endar með ósköpum,
við vitum það,“ segir hún.
Í dag eru foreldrarnir með sameig-
inlegt forræði yfir stúlkunni, en vilja
bæði fullt forræði. Móðir konunnar
segir að málið geti verið í 3–4 ár í rétt-
arkerfinu áður en endanleg niður-
staða fæst og á meðan eigi dóttir
hennar og dótturdóttir eftir að lifa í
stöðugri ógn.
Málið verður á næstunni tekið fyrir
á fyrsta dómsstigi af þremur í Noregi,
en sálfræðingur sem fylgdist með
barninu bæði hjá móðurinni og föð-
urnum að ósk dómara, úrskurðaði að
best væri ef stúlkan kæmi sem minnst
nálægt föður sínum. Faðirinn fékk
rétt til að hafa telpuna eina helgi á sex
vikna fresti. Sætti hann sig við þá nið-
urstöðu yrði móðir barnsins í Noregi
en hann hefur nú farið fram á fullt for-
ræði. Til að koma óorði á móður
barnsins hefur hann, að sögn ömm-
unnar, klagað barnsmóður sína við
barnayfirvöld. Hann hefur m.a. sagt
að barninu hafi verið misþyrmt og lát-
ið stunda vændi; einnig hafi hann
rænt öllum fötum af dóttur sinni og
leikföngum hennar meðan mæðgurn-
ar voru í fríi á Íslandi. Síðan tilkynnti
hann yfirvöldum að barnið ætti engin
föt eða leikföng.
Aðspurð hvort öll úrræði hér heima
hafi verið reynd, segist móðir kon-
unnar ekki vita hvað hún geti gert.
Mikið hafi gengið á og það hafi kostað
þau hjónin morð fjár að reyna að
bjarga henni. „Ég hugsa stöðugt um
þetta. Það fyrsta sem ég hugsa um
þegar ég vakna á morgnana er hvað
ég geti gert,“ segir hún.
Íslensk kona undir lögregluvernd í Noregi vegna hótana barnsföður
Lifa í stöðugri ógn
TALSVERÐAR skemmdir
urðu á einbýlishúsi við
Brúnastaði í Reykjavík en
þar var mikill eldur þegar
bílar frá Slökkviliði höfuð-
borgarsvæðisins komu á vett-
vang rétt fyrir klukkan 15 í
gær.
Börn sem voru
heima komust sjálf út
Börn sem voru heimavið
voru þá komin út úr húsinu.
Slökkvistarf gekk vel og var
húsið reykræst að því loknu.
Bílar frá tveimur stöðvum
liðsins voru sendir á vett-
vang.
Mikill eld-
ur í ein-
býlishúsi
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands vestra hefur fellt
úr gildi úrskurð yfirkjörstjórnar Blönduóssbæjar
og Engihlíðarhrepps um að taka lista bæjarmála-
félagsins Hnjúka ekki gildan í komandi sveitar-
stjórnarkosningum. Lagt er fyrir yfirkjörstjórn að
taka listann til skoðunar eins og hann hefði borist
fyrir klukkan 12 hinn 4. maí sl.
Ákvæði laga um kosningar til sveitarstjórna eru
skýr og ótvíræð hvað varðar tímafrest við að skila
framboði til sveitarstjórna en þar segir að öll fram-
boð skuli tilkynnt skriflega til yfirkjörstjórnar eigi
síðar en kl. 12 á hádegi þann dag þegar þrjár vikur
eru til kjördags. Framboðlisti Hnjúka barst hins
vegar 11 mínútum of seint umræddan dag. Af þess-
um sökum ákvað yfirkjörstjórn Blönduóssbæjar og
Engihlíðarhrepps að taka listann ekki gildan. Þetta
kærðu Hnjúkamenn og féllst Héraðsdómur Norð-
urlands vestra á þeirra sjónarmið.
Stuttur tími til að skila framboðum
Bæjarmálafélagið Hnjúkar bauð fyrst fram vorið
1998 og fékk þá 30% atkvæða. Í niðurstöðum dóms-
ins segir að það sé óumdeilt að bæjarmálafélagið
Hnjúkar hafi undirbúið framboð sitt fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar í vor. Félagið hafi gengist
fyrir skoðanakönnun vegna vals framjóðenda á lista
og birt auglýsingar varðandi fyrirhugað framboð og
gefið út fréttabréf og bæklinga. Þá féllst dómurinn
á ábendingu Hnjúka um að yfirkjörstjórn hefði aug-
lýst að tekið væri á móti framboðum síðustu
klukkustund framboðsfrestsins. Segir í dómnum að
klukkustund til að taka á móti framboðum sé ekki
langur tími.
Með hliðsjón af þessu og anda laga um kosningar
til sveitarstjórna og þess að augljóslega hafi verið
um mannleg mistök að ræða þóttu hagsmunir kjós-
enda á Blönduósi og í Engihlíðarhreppi ganga fyrir
ákvæði um tímafrest til að skila framboðslista. Hall-
dór Halldórsson dómstjóri kvað upp dóminn.
Yfirkjörstjórn á að taka lista bæjarmálafélagsins Hnjúka til skoðunar
Úrskurður yfirkjörstjórn-
ar felldur úr gildi í gær