Morgunblaðið - 11.05.2002, Síða 12
FRÉTTIR
12 LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GÍSLI Már Gíslason, formaður
Þjórsárveranefndar, segir að verði
Norðlingaölduveita að veruleika,
verði rennsli í fossinum Dynk 60–
70% minna en upprunalegt rennsli
fossins. Þegar sé búið að skerða
náttúrulegt rennsli um 40% og segir
Gísli Már að fossinn verði ekki svip-
ur hjá sjón verði ársmeðalrennsli
skert um 34 m³/sek. til viðbótar, eins
og stendur til að gera með gerð
Norðlingaölduveitu. Yfir veturinn
verði rennslið einungis það sem
seytli úr þveránum að vestan í far-
veg Þjórsár. Í matsskýrslu um fram-
kvæmdina kemur fram að mánuðina
desember til apríl verði rennslið um
20 m³/sek., sem kemur allt úr þver-
ám. Í dag er rennslið um 40 m³/sek.
þessa mánuði.
Hafa verður upprunalegt
rennsli í huga
Gísli Már gagnrýnir hvernig
matsskýrslan, sem Skipulagsstofnun
hefur nú til umfjöllunar, er sett
fram. Þar er vitnað í rit Náttúru-
verndarráðs um fossa á Íslandi eftir
Sigurð Þórarinsson frá árinu 1978
þar sem segir að æskilegt sé að
Dynkur verði friðaður. Gísli bendir á
að búið sé að skerða rennsli í foss-
inum um 40% síðan Sigurður setti
þessa skoðun sína fram, með kvísl-
árveitum 1–5 sem komu til sögunnar
á árunum 1981–1996. Nú eigi að
skerða rennslið enn frekar, þannig
að það verði um 30–40% af uppruna-
legu rennsli.
„Þá verður búið að minnka vatns-
magnið í fossinum mjög mikið og
fossinn verður ekki svipur hjá sjón ef
þessi framkvæmd kemur til,“ segir
Gísli Már. Hann segir að því sé ekki
rétt að segja í matsskýrslunni að
fossinn haldi einkennum sínum, hafa
verði upprunalegt rennsli í huga.
37. grein laga um náttúruvernd
kveður á um að fossar séu vistkerfi
og jarðmyndanir sem njóti sérstakr-
ar verndunar og að forðast beri
röskun á þeim eins og kostur er. Í
matsskýrslunni kemur fram að það
sé mat Landsvirkjunar að fram-
kvæmdin brjóti ekki í bága við 37.
grein náttúruverndarlaga þar sem
verulega hafi dregið úr áhrifum á
fossana þrjá í ánni með því að lækka
hæð lónsins úr 581 m.y.s. í 575 m.y.s.
og auka þannig rennsli á yfirfalli.
Gísli Már er ósammála þessari full-
yrðingu.
Hann segir að sem formaður
Þjórsárveranefndar verði hann að fá
réttar upplýsingar um hvaða afleið-
ingar verði af framkvæmdinni. „Ég á
ekki að þurfa alltaf að hlaupa í frum-
skýrslur og skoða hvað hefur verið
gert. Höfundar skýrslunnar eiga að
skýra rétt frá og ekki bera saman
epli og appelsínur,“ segir Gísli.
Formaður Þjórsárveranefndar gagnrýnir gerð matsskýrslu um Norðlingaölduveitu
Rennslið í Dynk
verður 30–40%
af uppruna-
legu rennsli
Morgunblaðið/RAX
SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur
skipað starfshóp til að fjalla um sam-
göngur til Vestmannaeyja, með þarf-
ir fólks og atvinnulífs í huga, og koma
þar með tillögur til úrbóta. Hópurinn
kom saman til fyrsta fundar í gær en
formaður hans er Kristján Vigfússon
hjá Siglingastofnun.
Auk Kristjáns eiga sæti í starfs-
hópnum Gísli Viggósson frá Siglinga-
stofnun, Kristín H. Sigurbjörnsdótt-
ir frá Vegagerðinni, Haukur Hauks-
son frá Flugmálastjórn, Arnar Sig-
urmundsson frá Samtökum atvinnu-
lífsins, Guðjón Hjörleifsson frá Vest-
mannaeyjabæ og Sigmar Georgsson
frá Þróunarfélagi Vestmannaeyja og
Ferðamálasamtökunum þar í bæ.
Hópnum er ætlað að skila af sér
úttekt í október í haust á ýmsum
kostum sem mögulegir eru til flugs
og siglinga milli lands og Vest-
mannaeyja. Má þar nefna hugmynd-
ir um uppbyggingu í Bakkafjöru og
rekstur svifnökkva eða annarra
nýrra aðferða. Starfshópnum er
einnig ætlað að gera frumrekstrar-
áætlun fyrir þá kosti sem vænlegast-
ir geta talist.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra sagðist í samtali við Morgun-
blaðið binda miklar vonir við starf
þessa hóps. Annars vegar ætti að
skoða sjóflutningana, og hvort aðrir
kostir en ferðir Herjólfs kæmu til
greina, og hins vegar að skoða flug-
leiðina. Miklu skipti að tryggja góðar
samgöngur milli lands og Eyja,
þannig að Eyjamenn fengju það á til-
finninguna að af hálfu stjórnvalda
væri leitað allra leiða til úrbóta í
þessum málaflokki.
„Meðal þess sem starfshópnum er
ætlað að kanna er hvort eða hvernig
hægt er að bæta þjónustuna í fluginu
og lækka fargjöldin. Kvartað er und-
an því að flugið sé dýrt. Einnig er
hópnum ætlað að líta til framtíðar og
hvernig hægt er að stytta siglinga-
leiðina upp að Bakkafjöru,“ sagði
Sturla.
Samgöngur milli lands og Vestmannaeyja
Starfshópi ætlað að koma
með tillögur til úrbóta
Morgunblaðið/Ásdís
Starfshópurinn á fundi með samgönguráðherra í Siglingastofnun, f.v.: Kristján Sveinsson, starfsmaður hóps-
ins, Gísli Viggósson, Kristín H. Sigurbjörnsdóttir, Jón Baldvin Pálsson, varamaður Hauks Haukssonar, Guðjón
Hjörleifsson, Sturla Böðvarsson, Arnar Sigurmundsson og Kristján Vigfússon. Sigmar Georgsson komst ekki.
EINAR Kristján Ein-
arsson gítarleikari lést
á Landspítalanum mið-
vikudaginn 8. maí.
Einar Kristján fædd-
ist á Akureyri 12. nóv-
ember 1956. Hann var
sonur hjónanna Guð-
rúnar Kristjánsdóttur
og Einars Kristjánsson-
ar rithöfundar frá Her-
mundarfelli.
Einar Kristján lauk
stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Ak-
ureyri 1976. Hann nam
gítarleik við Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar og lauk
burtfararprófi árið 1982. Þá tók við
framhaldsnám í Manchester á árun-
um 1982–1988 og sótti hann auk þess
námskeið hjá þekktum kennurum.
Einar Kristján lauk einleikara- og
kennaraprófi frá Guildhall School of
Music 1987 og hóf kennslu í gítarleik
við Tónskóla Sigursveins og Tónlist-
arskóla Kópavogs haustið 1988.
Einar Kristján kom fram á tónleik-
um í Svíþjóð, Englandi og á Spáni.
Hann hélt ótal einleiks-
tónleika hér á landi og
kom fram við margvís-
leg tækifæri. Hann lék
með Caput-hópnum og
kom fram sem einleik-
ari með Kammersveit
Akureyrar, Kammer-
sveit Reykjavíkur og
Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands svo fátt eitt sé
nefnt. Auk þess starfaði
hann sem tónlistarmað-
ur við Þjóðleikhúsið,
Leikfélag Akureyrar,
Alþýðuleikhúsið og
fleiri leikhús. Einar
Kristján gaf út einleiksdisk árið 1998
með verkum eftir Agustín Barrios,
Fernando Sor, Francisco Tárrega,
Karólínu Eiríksdóttur og J. S. Bach.
Diskurinn var tilnefndur til Íslensku
tónlistarverðlaunanna. Þá var hann
hljómsveitarstjóri hinnar vinsælu
hljómsveitar Rússíbana og hljóðritaði
ásamt félögum sínum í hljómsveitinni
fjóra geisladiska.
Einar Kristján var kvæntur Önnu
Ellen Douglas.
Andlát
EINAR KRISTJÁN
EINARSSON
Morgunblaðið/Jim Smart
SKIPVERJAR af þýska
skólaskipinu Gorch Fock
gengu í gær heiðurs-
göngu að grafreit þýskra
hermanna sem fórust hér
við land í seinni heims-
styrjöldinni. Hér sést
hvar sendiherra Þýska-
lands á Íslandi, dr. Hend-
rik Dane og Michael
Brün, skipstjóri og sjó-
liðsforingi á Gorch Fock,
leggja blómsveig að
minnismerki um þá sem
létust.
Þýskra
her-
manna
minnst
TRYGGINGASTOFNUN rík-
isins kærði í gær og óskaði eftir
opinberri rannsókn á reikn-
ingsfærslum og meintu skjala-
falsi tannlæknis, sem grunaður
er um að hafa dregið sér fé úr
almannatryggingakerfinu.
Kært var til ríkislögreglu-
stjóra vegna ákveðinna atriða
og er jafnvel talið að fleiri atriði
eigi eftir að koma í ljós í þessu
máli, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins.
Ekki liggur fyrir um hvað
háar upphæðir er að ræða eða
hvort fleiri læknar liggi undir
grun. Ákveðin athugun hefur
verið í gangi hjá Trygginga-
stofnun varðandi hugsanleg
tryggingasvik, en samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er
ekki um skipulagða herferð að
ræða heldur er þetta hluti af
innra eftirliti stofnunarinnar.
Tannlækn-
ir kærður
Tryggingastofnun
ríkisins