Morgunblaðið - 11.05.2002, Qupperneq 31
Laugardagur 11. maí
kl. 14.00 Anddyri Borgarleikhússins: Setning Listahátíðar í Reykjavík 2002.
Setningarathöfnin verður í beinni útsendingu í sjónvarpinu.
kl. 15.00 Kringlusafn: „… með endalausum himni…“ Laxness fyrir ungu kyn-
slóðina. Dagskrá á vegum Borgarbókasafns og Borgarleikhúss. Sig-
rún Hjálmtýsdóttir syngur ljóð Laxness við undirleik Önnu Guðnýjar
Guðmundsdóttur. Salka Valka, leiklestur undir stjórn Guðjóns Ped-
ersen. Arnaldur: Gísli Örn Garðarsson, Salka Valka: Nína Dögg Filipp-
usdóttir. Aðgangur ókeypis.
kl. 16.00 Borgarleikhúsið, Stóra svið: Salka Valka. Íslenski dansflokkurinn
frumsýnir nýtt dansverk eftir Auði Bjarnadóttur. Tónlist Úlfur Ingi
Haraldsson, leikmynd Stígur Steinþórsson.
kl. 20.00 Þjóðleikhúsið:Hollendingurinn fljúgandi eftir Richard Wagner. Sam-
starfsverkefni Íslensku óperunnar, Þjóðleikhússins, Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands og Listahátíðar. Leikstjóri Saskia Kuhlmann,
leikmyndateiknari Heinz Hauser, stjórnandi Gregor Bühl.
Söngvarar: Esa Ruuttunen, Matthew Best, Antje Jensen, Magnea
Tómasdóttir, Viðar Gunnarsson, Kolbeinn J. Ketilsson, Anna Sigríður
Helgadóttir og Snorri Wium. Kór Íslensku óperunnar, stjórnandi
Garðar Cortes.
Dagskrá um helgina
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2002 31
Ármúla 21,
sími 533 2020
Fagmennirnir þekkja Müpro
Rörafestingar
og upphengi
Allar stærðir og gerðir
rörafestinga og
upphengja
HEILSALA - SMÁSALA
Flugmálastjórn Íslands
Í tengslum við fund utanríkisráðherra Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) Í Reykjavík dagana
13.-16. maí næstkomandi, verður öryggisgæsla og
vopnaleit aukin í áætlanaflugi innanlands um-
rædda daga.
Flugmálastjórn Íslands biður farþega afsökunar á
óþægindum og töfum sem skapast geta vegna
þessa.
Farþegar eru hvattir til að bóka flug sitt tímanlega
og mæta með góðum fyrirvara fyrir brottför á flug-
völlum landsins.
Einnig er fólki bent á að hafa persónuskilríki með-
ferðis og forðast að hafa oddhvassa hluti og hluti
úr málmi í handfarangri sínum.
Flugmálastjórn Íslands - Reykjavíkurflugvelli,
sími: 569 4100
Heimasíða: www.flugmalastjorn.is
LISTASAFN Einars Jónssonar
heldur tónleika í safninu til að
minnast fæðingardags Einars Jóns-
sonar myndhöggvara í dag, laug-
ardag, kl. 17.30. Það er kammerkór
Hallgrímskirkju, Schola cantorum,
sem flytur tónlistina.
Einar var fæddur árið 1874.
Hann var brautryðjandi í íslenskri
höggmyndalist og er safnið, sem
reist var yfir verk hans sem hann
gaf þjóðinni, jafnframt fyrsta lista-
safnið sem opnað var í eigin hús-
næði hér á landi, á Jónsmessu árið
1923.
Á tónleikunum flytur kórinn,
undir stjórn Harðar Áskelssonar,
kórverk eftir sex nútímatónskáld,
þau Atla Heimi Sveinsson, Báru
Grímsdóttur, Hjálmar H. Ragn-
arsson og Jón Ásgeirsson, og enn
fremur Knut Nystedt, Einojuhani
Rautavaara og Trond Kverno.
Listamanns
minnst með
tónleikum
Kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum.
Schola cantorum í Listasafni Einars Jónssonar
Morgunblaðið/Jim Smart
Listasafn Íslands Leiðsögn um
sýninguna Í máli og myndum verð-
ur kl. 14. Rakel Pétursdóttir deild-
arstjóri fræðsludeildar sér um
leiðsögnina. Þá verður Sögustund
og leiðsögn fyrir börn í fylgd
Kjuregej Alexöndru Argunova
fjöllistakonu kl. 15.
Tónlistarskóli Garðabæjar Vor-
tónleikaröð skólans hefst kl. 11 og
kl. 13 með forskólatónleikum. Þá
keppa þrír af nemendum skólans
um starfslaun sumarið 2002 en það
er nýjung hjá Garðabæ að veita
tveim efnilegum nemendum sum-
arlaun svo þeir geti einbeitt sér að
tónlistariðkun í sumarfríinu.
Keppnin hefst kl. 14.30 í sal skól-
ans. Þátttakendur eru þær Ás-
gerður F. Bjarnadóttir, sem leikur
á píanó, Huld Hafsteinsdóttir,
fiðlu, og Rannveig Káradóttir,
þverflautu.
Þær munu hver um sig leika 10
mínútna efnisskrá og verða úrslit
tilkynnt að því loknu.Vortónleikar
hljóðfæranema verða á mánudag
kl. 17.30 og verða þeir daglega
fram á fimmtudaginn 16. maí.
Selfosskirkja Þingeyingakórinn
heldur vortónleika kl. 17. Á efnis-
skrá eru ma. negrasálmar og létt
dægurlög. Stjórnandi er Kári
Friðriksson, einsöngvari er Þor-
bergur Skagfjörð og undirleikari
er Arngerður María Árnadóttir.
Einnig heldur kórinn vortónleika í
Fella- og Hólakikju á morgun,
sunnudag, kl. 16.
Stykkishólmskirkja Söngfuglar,
Kór aldraðra, Vesturgötu 7 í
Reykjavík, halda tónleika kl. 17.
Kórinn er skipaður körlum og kon-
um. Söngstjóri er Sigurbjörg
Hólmgrímsdóttir. Ókeypis aðgang-
ur er á tónleikana.
Í DAG
SIGURÐUR Geirdal, bæjarstjóri
Kópavogs, vígir nýtt húsnæði Bóka-
safns Kópavogs og Náttúrufræði-
stofu Kópavogs í Hamraborg 6a í
dag, laugardag, á afmælisdegi Kópa-
vogsbæjar. Athöfnin hefst kl. 14 í
Salnum þar sem tilkynnt verður um
val á heiðurslistamanni Kópavogs og
úthlutun listamannastyrkja. Um kl.
14.30 verður hið nýja húsnæði opnað
með formlegum hætti. Að vígslu lok-
inni verður opið hús og býður starfs-
fólk stofnananna almenningi leið-
sögn um húsið kl. 16–18 í dag og á
sunnudag kl. 13–17.
Í tilefni af opnuninni mun hópur
fólks úr Bókmenntaklúbbi Hana-nú
ásamt Bókasafni Kópavogs standa
fyrir dagskrá tengdri Halldóri Lax-
ness á morgun, sunnudag, kl. 15.
Dagskráin er byggð á verkinu Að
heiman ég fór en það er sú bók sem
skráð er bók númer 1 í Bókasafni
Kópavogs.
Bókasafn
Kópavogs í
nýtt húsnæði
LISTAHÁSKÓLI Íslands opnar
hina árlegu Útskriftarsýningu list-
nema í dag, laugardag, kl. 14. Eins
og undanfarin ár verður sýningin
haldin í húsnæði skólans að Laug-
arnesvegi 91 í Reykjavík. Þetta er
þriðja árið sem Listaháskóli Íslands
útskrifar nema með BA-gráðu og
munu gestir sjá verk 61 nemanda,
bæði frá hönnunar- og myndlistar-
deild og gefur að líta innsetningar,
myndbandsverk, málverk, skúlptúr,
ljósmyndir, leirlist, textíl, grafík og
grafíska hönnun.
Í tilefni sýningarinnar hefur verið
litprentuð sýningarskrá með textum
frá nemendum og myndum af verk-
um þeirra. Alla daga sýningarinnar
verða nemendur á staðnum og veita
leiðsögn um sýninguna, kl. 17 virka
daga og kl. 14 um helgar og tekur
leiðsögnin um eina klukkustund.
Sýningin stendur til 20. maí og er
opin daglega kl. 13–18.
Sýning 61
nýs lista-
manns
Listaháskóli Íslands
HÁRIÐ, það fræga stykki, er nú á
fjölunum á Sólheimum í Grímsnesi
og hefur uppsetning þess vakið
töluvert mikla athygli.
„Það hefur verið troðfullt á sex
sýningar og er að seljast upp á
hinar fjórar sem eftir eru,“ sagði
Edda Björgvinsdóttir leikari, sem
er leikstjóri umræddrar sýningar.
Hún var spurð hvað hún hefði
haft að leiðarljósi við uppsetningu
þessa verks á Sólheimum.
„Ég hafði að leiðarljósi við upp-
setningu Hársins að allir þorpsbú-
ar að Sólheimum gætu tekið þátt –
þeir sem vildu. Boðskapur verksins
er sáraeinfaldur og á alltaf við,“
svaraði Edda.
„Ekki síst á hann við núna, en
það er auðvitað friðarboðskapurinn
sem ég er að tala um.
Ástæðan fyrir því að ég er að
leikstýra þarna er ekki þörf mín til
að leikstýra yfir höfuð, ég hef eng-
ar leikstjóra-„ambitionir“, heldur
hitt, að þetta leikfélag er svo ein-
stakt.
Mig hefur langað í mörg ár að
vinna með þessu fólki. Þarna eru
fatlaðir og ófatlaðir á aldursbilinu
frá 3 mánaða og upp í 69 ára og af
ýmsu þjóðerni að starfa saman hlið
við hlið á jafnréttisgrunni. Við er-
um sem sagt með „allan heiminn“,
þarna í hnotskurn.
Þarna var ég með 53 leikara og
einlægni þeirra og gleðin við að
leika færði mig nær kjarnanum í
því sem við köllum leiklist.“
Hvernig gekk þér að koma öllu
þessu heim og saman?
„Ég vann ofboðslega mikið út frá
tónlistinni. Ég endurskrifaði leik-
ritið þannig að textinn varð sáralít-
ill og tónlist er auðvitað alheims-
tungumál – allir geta nálgast hana
– börn, gamalmenni, heilbrigðir,
fatlaðir – þetta er „tungumálið“.
Þess vegna er svo rakið að taka
söngleiki fyrir þennan hóp. Í fyrra
var sett upp verkið Jesú Kristur
súperstjarna, svo sem kunnugt er.
Það stóðu allir ofsalega vel við
bakið á okkur við þetta starf. Þýð-
endurnir, Baltasar og Davíð Þór,
gáfu okkur afnot af þýðingunni og
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ,
ásamt Þorvaldi Bjarna Þorvalds-
syni tónlistarmanni, gáfu okkur
allt undirspilið. Búningar og leik-
myndir eru unnir af hinu yndislega
og óeigingjarna starfsfólki Sól-
heima, sem er alltaf reiðubúið að
fórna tíma sínum fyrir leiklistina –
og ekki síst að gera því fatlaða
fólki kleift að taka þátt í sýning-
unni, sem ella ætti þess ekki kost.
Nú hefur það styrka hönd og öxl
að hjálpa sér í gegnum leikritið.“
Heilt ævintýri að
heimsækja Sólheima
Hvernig gekk að skipa í hlut-
verk?
„Það var einstaklega gaman því
þau hlutverk, sem við getum kallað
aðalhlutverk, voru þannig skipuð
að þau léku bæði fatlaður og ófatl-
aður einstaklingur, þ.e. sama hlut-
verkið.
Það eru í rauninni forréttindi að
fá að vinna með svona leikhóp.
Ég segi því við alla landsbúa:
Það er heilt ævintýri að heimsækja
Sólheima, sem er afar sérstakt
samfélag, svo ekki sé meira sagt.
Og það er upplagt að nota tæki-
færið núna, þegar Hárið er í sýn-
ingu, að koma og heimsækja okkur
að Sólheimum, fá sér kaffi í Kaffi-
húsinu og kíkja í Listhúsið, það er
alltaf opið í kringum sýningar.
Sýningarnar sem eftir eru, eru
núna í dag og á morgun og næstu
helgi, allar sýningarnar eru klukk-
an fjögur síðdegis.“
Allir gátu tekið þátt í
sýningunni – sem vildu
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Aðstandendur sýningarinnar Hárið á Sólheimum í Grímsnesi.
Hárið er nú sýnt á Sól-
heimum í Grímsnesi og
hefur uppsetningin vak-
ið athygli. Guðrún Guð-
laugsdóttir ræddi við
Eddu Björgvinsdóttur
leikstjóra um sýninguna
og verkið.
í ReykjavíkListahátíð