Vísir - 30.06.1980, Blaðsíða 31

Vísir - 30.06.1980, Blaðsíða 31
vtsm Mánudagur 30. júnl 1980. Sjónvarp mánudag ki. 22.25: Bíómynd í léttum dúr Dr. Magni Guðmundsson hag- fræöingur talar um daginn og veginn I útvarpinu í kvöld. A siöasta útsendingardegi sjón- varps fyrir sumarleyfi veröur sýnd breska gamanmyndin „The Ladykillers” eöa „Konumorö- ingjarnir”. Myndin, sem er frá órinu 1955, segir frá fjórum mönnum, er fremja lestarrán. Þeir komast undan meö fjárfúlguna, en lifiö er ekki dans á rósum þrátt fyrir þaö hjá fjórmenningunum, þvi eldri frú sér peningana, sem þeir hafa undir höndum. Þaö er þvi ekkert annaö fyrir vinina aö gera nema losa sig viö kellu og gengur myndin siöan út á þaö, hvernig þeim tekst til i þeim tilraunum. Meö aöalhlutverk fara stór- stirnin Alec Guinness, Peter Sell- ers, Katie Jonson og Cecil Park- er. Leikstjóri er Alexander Mac- kendrick. Hann er breskur og fæddur áriö 1912. Meöal annarra mynda, sem hann hefur leikstýrt, má nefna „The Man in the White Suit,” „Mandy,” „Sweet Smell of Success” og „Sammy Going South.” Myndin er um einnar og hálfrar klukkustundar löng. —K.Þ. útvarp Mánudagur 30. júni 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. 7.10 Leikfimi. Umsjónar- menn: Valdimar örnólfsson leikfimikennari og Magnús Pétursson pianóleikari. (Slöasti dagur fyrir sumar- leyfi þeirra félaga). 7.20 Bæn. Séra Lárus Halldórsson flytur. 7.25 Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 8.00 Fréttir 8.15 Veöurfregnir. Forustugr. landsmálabl. (útdr.). Dagskrá. Tónleik- ar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: Guðrún Asmundsdóttir leikkona lýkur lestri á „Frásögnum af hvutta og kisu” eftir Josef Capek I þýöingu Hallfreös Arnar Eirikssonar (9). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 9.45 Landbúnaöarmái. Usjónarmaöur: Öttar Geirsson. Rætt viö Bjarna Guömundsson kennara á Hvanneyri I sláttarbyrjun. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Morguntónieikar 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikasyrpa. leikin léttklássisk lög, svo og dans- og dægurlög. 14.30 Miödegissagan: „Söngur hafsins” eftir A. H. Rasmussen. Guömundur Jakobsson þýddi. Valgerður Bára Guömundsdóttir les sögulok (10). 15.00 Popp. Þorgeir Astvalds- son kynnir. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15 Veöurfregnir. 16.20 Sfödegistónleikar 17.20 Sagan „Brauö og hunang” eftir Ivan Southall Ingibjörg Jónsdóttir þýddi. Hjalti Rögnvaldsson leikari les (6). 17.50 Tönleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.35 Mælt málBjarni Einars- son flytur þáttinn. 19.40 Um daginn og veginnDr. Magni Guömundsson hag- fræöingur talar. 20.00 Viö, — þáttur fyrir ungt fólk Umsjönarmaöur: Arni Guömundsson. 20.40 Lög ungafólksins Hildur Eiriksdóttir kynnir. 21.45 Ötvarpssagan: „Fugla- fit” eftir Kurt Vonnegut Hlynur Arnason þýddi. Anna Guömundsdóttir les (12) 22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.35 Raddir af Vesturlandi Umsjónarmaöur þáttarins, Arni Emilsson I Grundar- firöi, talar viö vöruflutn- ingabilstjóra um störf þeirra. 23. Tónleikar 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp Mánudagur 30. júní 1980. 20.00 Fréttir og veöur. 20.45 Auglýsingar og dagskrá. 20.55 Tommi og Jenni. 21.00 Iþróttir. Umsjónarmaður Jón B. Stefánsson. 21.35 Sumarfrl.LÖg Og létt hjal umsumariðog fleira. Meöal þeirra, sem leika á létta strengi, eru félagar úr Köpavogsleikhúsinu. Þeir flytja atriöi úr Þorláki þreytta. Umsjónarmaöur Helgi Pétursson. Stjórn upptöku Andrés Indriðason. 22.25 Konumoröingjarnir. (The Ladykillers). Bresk gamanmynd frá árinu 1955. Aöalhlutverk Alec Guinness, Katie Johnson, Peter Sellers og Cecil Parker. Fjórir menn fremja lestarrán og komast undan meö stóra fjárfúlgu. Roskin kona sér peningana, sem þeir hafa undir höndum, og þeir ákveöa aö losa sig viö hættulegt vitni. Þýöandi Dóra Hafsteinsdóttir. 23.55 Dagskrárlok. 1 útvarpinu I kvöld kl. 22.35 er þáttur, sem nefnist „Raddir af Vesturlandi.” Umsjónarmaöur er Arni Emllsson I Grundarfiröi og ætlar hann aö tala um lif og störf vörubllstjóra. Þátturinn er 25 mlnútna langur. Sðlumennsku I siað sjálfsánægju Um helgina barst hingaö til lands athyglisverö frétt, sem ættl aö vekja til frekari umhugsunar um stööu sjávarút- vegsins og framtiöarhorfur. Frá þvi var skýrt, aö Matvæla- og landbúnaöarstofnun Sameinuöu Þjóöanna, FAO, haföi gefiö út skýrslu, þar sem fram kæmi, aö eftirspurn eftir fiskafuröum til manneldis væri mun meiri en framboöiö. Jafnframt var þvi spáö I þessari skýrslu, aö biliö á milli framboös og eftirspurnar ætti eftir aö breikka verulega á næstu árum og áratugum, og voru þjóöir heims þvi hvattar til þess aö efla sjávarútveg sinn eftir þvl sem tök væru á. FAO er virt stofnun á slnu sviöiog þvi ástæöulaust aö ætla, aö I skýrslum hennar um þessi mál sé fariö meö fieipur. Þess vegna er hér um mjög athyglis- veröa frétt aö ræöa fyrir tslend- inga, sem búa viö óvenjulegt ástand Isjávarútvegi um þessar mundir eins og áöur hefur veriö rakiö á þessum staö. Birgöir af frystum fiski hrannast upp hjá frystihúsum hérlendis og er jafnvel svo komiö hjá sumum þeirra, aö þau eru farin aö leita eftir geymslúrými I öörum löndum. Viöbrögö viö þessum tlöindum hafa veriö mjög á tvo vegu. Rlkisstjórnin hefur gert samþykkt þess efnis, aö gert skuli átak til þess aö finna nýja markaöi fyrir islenskan fisk, og hefur reyndar þegar fengiö Rússa til aö jafna örlltiö viö- skiptajöfnuöinn viö Sovétrikin meö auknum fiskkaupum. Þar er aö visu ekki um stórvægilega breytingu aö ræöa, en þó byrjun. Aörir hafa tekiö þessum staö- reyndum mjög á annan veg. Þeirra á meöal eru sumir þeir aöilar, sem stjórna sölustofn- unum islenskra frystihúsa I Bandartkjunum. Einn þeirra lýsti þvl yfir I blaöaviötali um helgina, aö þaö sé „barna- skapur aö tala um aö leita nýrra markaösmöguleika”. Hann heidur þvl fram, aö birgöavand- inn sé fyrst og fremst tilkominn vegna of mikillar veiöi fyrstu mánuöi ársins, og svo nokkurs samdráttar i matarkaupum Bandarikjamanna almennt. Útaf ryrir sig er ýmislegt rétt I þeirri gagnrýni, sem fram hefur veriö sett á stjórnun fisk- veiöa hér viö land, þ.e. aö fisk- inum er mokaö upp á stuttum tima en fiskveiöar stöövaöar aö mestu á öörum árstlmum. Þaö ætti aö hafa veiöarnar jafnari. Hlns vegar hljóta yfirlýsingar þessa útvaröar okkar I sölu- málum I Bandarlkjunum um markaösmálin aö hljóma undarlega I eyrum. Þegar full yrt er, aö I sölumálum okkar sé „þegar búiö aö reyna allar leiöir”, aö þaö séu I þeim efnum „engir felustaöir til I heim- inum”, og þvl „barnaskapur aö. tala um aö leita nýrra markaös- möguleika”, hljóta margir aö gapa af undrun. Ef sllk viöhorf heföu alltaf ráölö I markaös- málum tslendinga, sem og ann- arra þjóöa sem auövitaö lifa á þvl aö selja framleiöslu slna, þá væri ástand mála ööruvisi en þaö er I dag. Auövitað voru allir þeir markaöir, sem viö seljum nú fisk á, einhvern tlma „nýir” I þeim skilningi, aö á tilteknum tlma byrjuöum viö fyrst aö selja okkar vörur þar. Og markaöur er slöur en svo eitthvert fast, afmarkaö hugtak, þar sem engin breyting veröur. Þvert á móti eru alltaf aö veröa umfangsmiklar breytingar 1 markaðsmálum. Sumir vinna aukna hlutdeild i markaöinum, en aörir fara halloka, og svo eru ailtaf aö koma til nýir aöilar, nýjar vörur, ný vörumerki. Sölumennska er aö sjálfsögöu ekki staönaö fyrirbrigöi, heldur starf þar sem alltaf er veriö aö leita nýrra leiöa til aö selja meira en áöur. Eitt þaö mikil- vægasta, sem einkennir góöan sölumann, er trúin á aö hann geti alltaf selt meira og meira. Sölumaöur, sem er ánægöur meö þaö, sem hann hefur gert, mun uppgötva þaö einn góöan veöurdag, aö framsæknir keppi- nautar hans hafa skiliö hann eftlr I fúafeni eigin sjálfs- ánægju. Vonandi er sú afstaða, sem fram hefur komiö hjá þessum oddvita okkar I sölumálum undanfariö, á misskilningi byggö. Ekki veröur ööru trúaö en aö allir sameininst um aö efia sölu Islenskra afuröa hvar sem hægt er aö finna markaöi fyrir þá, og tölur FAO sýna greinilega, aö nægur markaöur er fyrir hendi. Þaö, sem þarf, er hörö sölumennska en ekki stöönun sjálfsánægjunnar. Svarthöföi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.