Vísir - 30.06.1980, Page 32
AAánudagur 30. jOnl 1980,
sí minn er86611
Veðurspá
dagsins
Um 450 kilómetra suð-suð-
austur af landinu er 1010 mb.
lægð sem þokast austur, en
1020 mb. hæð milli íslands og
Grænlands. Skammt suövest-
ur af Hvarfi er 990 mb.
viðáttumikil lægð, sem þokast
noröaustur. Hiti breytist lftið.
Suðurland: Hægviðri og létt-
skjijað og gengur i suövestan
kalda og siöar stinningskalda
og þykknar upp I kvöld.
Faxaflói og Breiöafjörður:
Austan gola og skýjað fyrst og
gengur I suðaustan og sunnan
golu. Léttir til þegar liöur á
daginn.
Vestfirðir: Hægviöri, léttskýj-
að inni á fjörðum
Austfirðir: Austan gola og
viða súld framan af degi en
léttir til með hægvirði i kvöld.
Suðausturland: Hægviðri og
léttskyjað fyrst gengur i sunn-
an golu eða kalda og þykknar
upp i nótt.
Veðriö hér
09 har
Klukkan sex ( morgun:
Akureyri, alskýjaö 7, Bergen
léttskýjað 13, Helsinki skýjaö
17, Kaupmannahöfn vantar,
Osld skýjað 14, Reykjavík
þoka i grennd 9, Stokkhólmur
léttskýjaö 14, Þórhöfn skýjað
6.
Klukkan átján i gær:
Aþena heiðskýrt 25, Berlin
skúr á slðustu klukkustund 15,
Chicago vantar, Feneyjar
skýjað 21, Frankfurt skúr á
siðustu klukkustund 14, Nuuk
skýjaö 10, London skýjaö 17,
Luxemburg hálfskýjaö 11, Las
Palmas skýjað 22, Mallorca
léttksýjað 22, Montreal vant-
ar, New York alskýjað 24,
Paris léttskýjaö 18, Róm létt-
skýjað 22, Malaga heiðrikt 22.
Loki
segir
Tvisýnni kosninganótt er lokiö
með sigri Vigdisar Finnboga-:
. dóttur . Loki óskar henni til
hamingju með sigurinn.
„EG OSKA ÞJÚÐIHHI TIL
HAMINGJU MEB VIGDfSI'
- SAGÐI QUBLAUQUR ÞORVALDSSON ER SÝNT VAR AÐ VIGDÍS
FÆRI MEÐ SIGUR AF HÚLMI f FORSETAKOSNINGUNUM
„Ég vil óska Vigdisi til
hamingju og þjóðinni til
hamingju með Vigdisi,”
sagði Guðlaugur Þor-
vaidsson eftir að úrslit
urðu ljós i morgun.
Guðlaugur sagöi aö úrslitin
kæmu ekki á óvart. ,,Ég hef alltaf
sagt aö það yrði afskaplega mjótt
á mununum á milli okkar Vigdis-
ar' Ég hef alltaf verið þeirrar
skoðunar að heildarniöurstaöan i
skoðanakönnunum hafi veriö
nokkuö marktæk. Vigdis vinnur
þetta meö mjög litlum mun og
þaö er eins og ég spáði.”
Guölaugur sagðist vilja færa
stuðningsmönnum sinum sér-
stakar þakkir þeirra hjónanna
fyrir allt sem þeir hefðu gert.
,,Við erum afskaplega róleg
hérna hjónin,” sagði hann,” og
Páll Magnússon, blaöamaöur, ræðir við Guðlaug Þorvaldsson I nótt.
mér liöur bara vel.
Ég vona að þjóðin standi aö
baki Vigdisi og ég mun gera mitt
til þess.”
SÞ
utaf viö
Gufunesveg
Lögreglan i Reykjavik hafði
ekki mikið að gera i nótt, enda
þótt kunnugir segi að sjaldan hafi
sést annað eins annríki I „rikinu”
og var á föstudaginn.
Rétt fyrir kl. 6 i morgun varö
einum góöglööum það á að aka af
staö úr borginni, og fór greitt.
Rétt við Gufunesveginn fór hann i
loftköstum útaf veginum, vinstra
megin, eyðilagði bilinn en slapp
sjálfur með skrámur.
Annars var allt rólegt.
sv
jek hessu
meö lafn-
aöargeði,’
- sagöi Albert
Guömundsson,
forsetaframbjóðandi.
i morgun
„Ég tók það ekki sem sjálfsagð-
an hlut að ég ynni kosninguna,
þegar ég fór út I baráttuna.
Menn þurfa að kunna að tapa,
engu sfður en menn þurfa að
kunna að sigra og þar af leiö-
andi tek ég þessu með jafnaöar-
geði,” sagði Albert Guðmunds-
son I samtali við Vfsi um fimm-
Ieytið I morgun, þegar sýnt var,
að hann yrði f þriðja sæti.
„Það litur út fyrir, að Vigdis
komi best. út, en ég bjóst ekki við
þvi, að hún næði kosningu,”
sagði Albert. „Ég sjálfur bjóst
við að vera i kringum 25%,
þannig að þetta er örlltiö
minna.”
„Meira hef ég ekki um þetta
að segja nema það, að ég er
þakklátur öllum þeim, sem
studdu mig og kusu,” sagði Al-
bert Guðmundsson að lokum.
-K.Þ.
„OSKA A0 ÞJ0GIH SAM-
EIHIST UM FURSETANN"
- sagðf Pétur Thorstelnsson í morgun
„Ég hef sagt þaö áður
og segi það enn, aö hver
sem verður forseti
islands þá óska ég þess að
þjóðin megi sameinast
um hann og standa með
honum", sagði Pétur J.
Thorsteinsson þegar
Vísir hafði samband við
hann um fimmleytið í
morgun. Þá var orðið
Ijóst að hann hafði beðið
ósigur í þessum forseta-
kosningum og jafnframt
að Vigdís Finnbogadóttir
næði kjöri sem næsti for-
seti lýðveldisins.
„Ég vii þakka öllum þeim
sem hafa sýnt mér það traust aö
kjósa mig og sérstaklega öllum
þeim sem hafa unnið gifurlega
mikið og fórnfúst starf i sam-
bandi við mitt framboð”, sagði
Pétur.
Hann sagöist ennfremur hafa
búist við meira fylgi en raun
varð á, sérstaklega með tilliti til
þeirra hreyfinga sem hann hafði
oröiö var við siðustu daganna.
„En þetta er það sem þjóðin
vill og við þvi er ekkert aö
segja”, sagði Pétur.
Um ástæðumar fyrir þessum
úrslitum kvaðst Pétur ekki vilja
tala i bili, — sagöist kannski
mundi koma aö þeim siöar.
—P.M.