Morgunblaðið - 11.05.2002, Síða 63
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2002 63
SÝNING á handavinnu í fé-
lagsmiðstöðinni í Hraunbæ 105 í
Reykjavík verður opnuð á morgun,
sunnudag. Á sýningunni eru margir
og fjölbreyttir munir sem íbúarnir
hafa unnið að í tómstundastarfinu í
vetur. Myndin var tekin af hluta
handverksfólksins með sýnishorn
verkanna þegar unnið var að upp-
setningu sýningarinnar. Handa-
vinnusýningin verður opin á sunnu-
dag og mánudag, báða dagana frá
kl. 13 til 17. Sýningin er opin öllum
og kaffiveitingar eru á staðnum.
Morgunblaðið/Golli
Sýna handa-
vinnu vetrarins
ALÞJÓÐASAMBAND fótaað-
gerðafræðinga, FIP, með höfuð-
stöðvar í París hefur lýst því yfir
að maí sé alheimsfótaverndarmán-
uður.
Félag íslenskra fótaaðgerða-
fræðinga, FÍF, er meðlimur í FIP
og kallar á athygli almennings um
góða fótaumönnun. „Um 75% Ís-
lendinga fá einhverskonar fóta-
vandamál um ævina. FÍF vill
leggja áherslu á að verkir í fótum
eru ekki eðlilegir og geta minnkað
lífsgæði fólks. Það er nauðsynlegt
fyrir þá sem eru með fótamein að
leita til fótaaðgerðafræðinga,“ seg-
ir í fréttatilkynningu.
Maí er mán-
uður fóta-
umhirðu
VATNSVEITA Hafnarfjarðar,
Staðardagskrá 21 og umhverfis-
nefnd Hafnarfjarðar standa fyrir
degi vatnsins laugardaginn 11.
maí. Í tilefni dagsins er opið hús í
vatnsbólunum í Kaldárbotnum frá
kl. 11–16. Gestum verður veitt
leiðsögn um vatnsbólin og rakin
saga beinnar og óbeinnar vatnsöfl-
unar í 84 ár. Allir eru velkomnir.
Þetta tækifæri er einnig nýtt til
þess að heiðra Jón Jónsson jarð-
fræðing fyrir störf hans að hinni
fyrstu eiginlegu vatnsvernd, sem
sett var á höfuðborgarsvæðinu á
sjöunda áratug liðinnar aldar. At-
höfnin fer fram kl. 11.
Opið hús í
Kaldárbotnum
FRAMBOÐSLISTI Húmanista-
flokksins til borgarstjórnarkosninga
í Reykjavík 25. maí nk. verður skip-
aður eftirtöldum einstaklingum:
1. Methúsalem Þórisson ráðgjafi,
Nóatúni 24
2. Bonifacia T. Basalan húsmóðir,
Torfufelli 27
3. Stefán Bjargmundsson tollvörð-
ur, Kleppsvegi 26
4. André Miku Mpeti viðskipta-
fræðingur, Skúlagötu 30
5. Pauline Scheving Thorsteinsson
meinatæknir, Flétturima 20
6. Þór Magnús Kapor myndlista-
maður, Frakkastíg 12a
7. Birgitta Jónsdóttir ljóðskáld og
útgefandi, Hofsvallagötu 20
8. Áslaug Ólafína Harðardóttir
grunnskólakennari, Norðurási 6
9. Sigurður Þór Sveinsson nemi,
Grettisgötu 4
10. Sigurður Óli Gunnarsson verk-
stjóri, Miðhúsum 21
11. Stígrún Ása Ásmundsdóttir hús-
móðir, Lynghaga 8
12. Anton Jóhannesson sölumaður,
Hringbraut 119
13. Friðrik Valgeir Guðmundsson
blikksmiður, Fellsmúla 12
14. Erla Kristjánsdóttir húsmóðir,
Hjallalandi 22
15. Júlíus K. Valdimarsson ráðgjafi,
Austurbergi 32
16. Sveinn Jónasson sölumaður,
Gautavík 9
17. Inga Laufey Bjargmundsdóttir
húsgagnasmiður, Tröllaborg-
um 25
18. Jón Tryggvi Sveinsson bóka-
safnsfræðingur
Framboðslisti
Húmanista-
flokksins
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun:
„Aðalfundur Félags eldri borgara
á Akranesi og nágrenni skorar á
ríkisstjórnina að beita sér nú þegar
fyrir eftirfarandi:
Að grunnlífeyrir hækki til sam-
ræmis við þær hækkanir sem átt
hafa sér stað á verkamannalaunum
frá 1995 til 2001 og fylgi síðan al-
mennri launavísitölu.
2. Að frítekjumörk almannatrygg-
inga og skattleysismörk verði alltaf
látin fylgja launaþróun í landinu.
3. Að afnema nú þegar eignaskatt
á íbúðir sem eigendur búa í.
4. Að hækka aldursskilyrði fyrir
úthlutun á styrkjum til bifreiða-
kaupa fyrir hreyfihamlaða.
Greinargerð: Í Staðtölum Trygg-
ingastofnunar ríkisins fyrir árið
2000, má sjá hvernig röskun á
greiðslum almannatrygginga (ellilíf-
eyris og tekjutrygginga) miðað við
lágmarkslaun verkamanna án ein-
greiðslna hefur orðið 1993. Á ár-
unum 1993 og 1994 eru lífeyris-
greiðslur í takt við launaþróunina,
en við lagabreytingar í desember
árið 1995 þegar almannatryggingar
voru teknar úr sambandi við
launaþróunina varð breyting til hins
verra.
Ef þessu hefði ekki verið breytt
hefðu meðalgreiðslur lífeyris al-
mannatrygginga á mánuði árið
2000, þegar þessi skýrsla er gerð
verið kr. 61.658 í staðinn fyrir kr.
47.846. Enn hafa kjörin rýrnað.
Skerðingaráhrif á bætur al-
mennatrygginga er mikil vegna
lágra frítekjumarka. Ellilífeyrisþegi
með kr. 21.000 á mánuði í tekjur frá
lífeyrissjóði hefur aðeins kr. 3.500
meiri ráðstöfunartekjur en sá sem
ekkert fær úr lífeyrissjóði.
Eignaskattur hefur hækkað í
kjölfar hækkaðs fasteingaverðs
undanfarið. Þessar hækkanir eru í
engu samræmi við þá yfirlýstu
stefnu alþingismanna að gera eldra
fólki kleift að búa í eigin húsnæði
eins lengi og því er fært, því álögur
hækka langt umfram hækkun líf-
eyris. Þá er það erfitt að þola það
misrétti á úhlutun bifreiðakaup-
styrkja, að lækka aldursmörk úr 75
ára niður í 70 ára, þar eða hreyfi-
hömlun batnar yfirleitt ekki með
hækkandi aldri.“
Vilja að grunn-
lífeyrir hækki
SUNNUDAGINN 12. maí verður
genginn Ketilstígur, forn leið milli
Seltúns og Móhálsadals sem endar á
Höskuldarvölllum. Um 3-4 klst.
ganga. Ekið verður að Seltúni í
Krýsuvík og þar er gengið upp á
Sveifluhálsinn. Eftir Ketilstíg og
niður af hálsinum aftur um Ketilinn,
sem stígurinn er nefndur eftir. Því-
næst er gengið yfir Móhálsadal í átt-
ina að Hrútafelli með Fíflavallafjalli
að Hörðuvallaklofa. Síðan er farið
um Dyngjuháls að Jónsbrennu og
Höskuldarvöllum þar sem rútan
sækir fólk í ferðalok. Fararstjóri er
Jónatan Garðarsson. Verð kr. 1.500/
1.800. Brottför frá BSÍ kl. 10.30 með
viðkomu í Mörkinni 6 og austan við
kirkjugarðinn í Hafnarfirði.
Gönguferð
um klettastíg
HIÐ árlega Neshlaup Trimmklúbbs
Seltjarnarness fer fram laugardag-
inn 11. maí kl 11. Hlaupið er frá
Sundlaug Seltjarnarness.
Vegalengdir eru 3,5 km, 7,5 km
og 15 km. Aldursflokkaskipting er
hjá körlum og konum og tímataka
fyrir 7,5 km og 15 km. Hjólastóla-
fólk er hvatt til þess að taka þátt í
3,5 km.
Skráningargjald er 500 kr. fyrir
fullorðna, 200 kr. fyrir 15 ára og
yngri. Hámarks gjald á fjölskyldu
er 1.000 kr. Skráning er á staðnum
frá kl. 9–10.45. Allir fá hressingu í
lok hlaups og Seltjarnarnesbær
býður þátttakendum frítt í Sund-
laug Seltjarnarness.
Neshlaupið
í dag
NÝTT byrjendanámskeið hefst í aik-
ido-sjálfsvörn 13. maí. Æft verður
þrisvar í viku, á mánudögum og mið-
vikudögum klukkan 18:00-19:15 og á
laugardögum klukkan 11:00-12:15.
Frír reynslutími er í boði.
Æft er í nýju húsnæði félagsins í
Faxafeni 8.
Framhaldsnámskeið hefst einnig í
maí. Allar nánari upplýsingar á
heimasíðunni http://here.is/aikido.
Verð námskeiðsins er 9.500 krón-
ur og stendur það út ágúst.
Námskeið
í sjálfsvörn
NÚ liggur fyrir til umfjöllunar í
landbúnaðarráðuneytinu umsókn
um leyfi til innflutnings á krókódíl-
um af tegundinni Alligator missis-
ippiensis til Húsavíkur.
Vegna þessarar umsóknar vill
Samband dýraverndunarfélaga Ís-
lands taka fram eftirfarandi.
„Það hefur alltaf verið stefna
dýraverndarsamtaka á Íslandi að
vernda villt dýr gegn hvers konar
föngun og innilokun sem stríðir
gegn eðli þeirra og þörfum. Engu
breytir það þótt dýrin komi úr ein-
hvers konar dýragörðum þar sem
þeim hefur verið haldið föngnum í
nokkrar kynslóðir því hinu villta
eðli þeirra verður ekki breytt og
dýrin hljóta að þjást hversu gott
„atlæti“, sem þau kunna að fá á
okkar mælikvarða. Jafnframt er það
staðreynd að frelsisþörf dýranna er
svo sterk að ekki hefur enn tekist
að koma í veg fyrir að þau sleppi út
í náttúruna með hörmulegum afleið-
ingum fyrir villt íslenskt fugla- og
dýralíf, eins og t.d. í minkaeldinu.
Jafnframt skal hér bent á að
áhyggjur fara víða vaxandi vegna
innflutnings á hinum svokölluðu
„exotisku“ dýrum, svo sem slöng-
um, eðlum, krókódílum og þess
háttar, sem verið er að flytja inn
sem gæludýr og hafa Danir t.d. hert
mjög allt eftirlit með innflutningi á
þessum dýrum. Og í vorhefti 2001
blaðsins Animal life sem hið virta
breska dýraverndarfélag „The Roy-
al Society for the Prevention of
Cruelty to Animals RSPCA“ gefur
út er sagt frá herferð, sem hafin er í
Bretlandi til að herða lagaákvæði
um eftirlit með sölu og eignarhaldi á
hættulegum villtum dýrum, þar
með töldum hinum svokölluðu „ex-
otisku“dýrum, þar sem eigendur
vita ekkert um þau eða þarfir þeirra
og afleiðingarnar geta orðið skelfi-
legar.
Samband dýraverndunarfélaga
Íslands vill eindregið vara við fram-
angreindum innflutningi á krókódíl-
um sem er mjög óvenjulegur og
vanhugsaður og líklegur til að valda
þessum dýrum alvarlegum þjáning-
um.“
Varar við innflutningi
á krókódílum
RISAURRIÐI veiddist í Minni-
vallalæk í Landsveit fyrir fáum
dögum, Þar var á ferðinni 14 punda
hængur veiddur á straumfluguna
Black Ghost í Stöðvarhyl, sem er
aðalveiðistaður árinnar. Urriðinn
var 83 sentimetrar. Vaninn er að
öllum fiski sé sleppt í Minnivalla-
læk, en undantekningar eru gerðar
þegar þvílík eintök koma á land.
Urriðinn verður stoppaður upp.
Að sögn Þrastar Elliðasonar
leigutaka Minnivallalækjar hefur
veiði verið mjög góð síðan vertíðin
hófst 1. maí og heildarveiðin heldur
meiri en í fyrra og fleiri stórfiskar.
„Fyrir utan 14 punda fiskinn er
einn 12 punda kominn á land og
talsvert af 5 til 8 punda fiskum, en
alls eru komnir 85 urriðar á land í
dag“ sagði Þröstur í gær.
Þröstur sagði ennfremur að
menn biðu spenntir eftir því hvort
einhverjum tækist að töfra á land
risafisk sem liggur við Viðarhólma.
„Menn sjá hann mjög vel, þeir eru
tveir saman og sá smærri hefur
náðst og var áætlaður 8 pund.
Hann er eins og seiði við hliðina á
hinum og við erum alveg handvissir
um að þetta er að minnsta kosti 20
punda fiskur,“ bætti Þröstur við.
Fín skot víða
Ágæt skot hafa verið víða í
bleikjuvötnum, t.d. Vífilsstaðavatni
og Hlíðarvatni í Selvogi. Í Hlíðar-
vatni hafa menn verið að fá allt að 3
til 4 punda bleikjur, en fiskur er
ívið smærri í Vífilsstaðavatni. Góð
veiði hefur einnig verið í Elliða-
vatni, mest urriði, en bleikjan er
aðeins að gera vart við sig þessa
síðustu daga. Í Þingvallavatni hafa
verið góð skot, einn fékk t.d. 12
bleikjur á einni morgunstund, 1–3
punda fiska og var allan tímann á
Öfugsnáða. Annar var með átta
stykki á skömmum tíma á Lamb-
haga.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Rafn Alfreðsson veiddi urriðann í Minnivallalæk, 14 punda hæng.
12 og 14
punda urrið-
ar úr Minni-
vallalæk
SAMVERUSTUND eldri félaga
Samfylkingar í Hafnarfirði verður
sunnudaginn 12. maí kl. 14–16 í Al-
þýðuhúsinu.
Dagskrá: Músík, Þórður leikur á
nikkuna, Stígur leikur á saxófóninn,
söngur, ljóðalestur, gamanyrði og
Lúðvík Geirsson flytur kosninga-
fréttir. Kaffi og meðlæti.
Samveru-
stund hjá
Samfylkingu
Dálkar víxluðust
í helgartilboðum
Dálkar víxluðust hjá Samkaupum-
Úrvali í helgartilboðum á neytenda-
síðu á fimmtudag, þar sem verð nú
var sagt hærra en verð áður. Til-
boðsverðið átti að vera lægra verðið.
Beðist er velvirðingar á þessu.
Lyst varð list
Í frétt um málverkasýningu á
Café Présto í Hlíðasmára 15 í Kópa-
vogi var sýningin sögð heita Matar-
list. Rétt er að hún heitir Matarlyst.
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.
Vín varð Genf
Í leiðara blaðsins sl. miðvikudag
var talað um Genfarsáttmála um al-
þjóðlega samninga. Þar var að sjálf-
sögðu átt við Vínarsáttmálann um
sama efni frá 1969. Beðizt er velvirð-
ingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Í TILEFNI af afmæli Kópavogs-
bæjar og komandi sveitarstjórnar-
kosningum ætla Freyjukonur að
gera sér glaðan dag.
Konum í Kópavogi er boðið að
mæta á Digranesveg 12 laugardag-
inn 11. maí á milli klukkan 17 og 19.
Allar konur í Kópavogi eru velkomn-
ar á meðan húsrúm leyfir.
Siv Friðleifsdóttir flytur ávarp.
Skemmtiatriði verða í boði. Boðið
verður upp á léttar veitingar. Veislu-
stjórar verða: Ingibjörg Ingvadóttir
og Linda Bentsdóttir.
Freyjukonur
halda
skemmtun