Vísir - 17.07.1980, Page 1
Seðlabanklnn innheimllr 74,5% yiirdráttarvextl af viðskiptahönkunum:
Skuida ivo milljaröa i
refsivextl frð áramólum
Viðskiptabankarnir skulda
Seðlabankanum vegna refsi-
vaxta frá 20. des. s.l. til 20. júni
rúma tvo milljarða króna.
Bankarnir borga 74.5% vexti
af yfirdrætti sinum hjá Seöla-
bankanum en sú tala innifelur
4.75% dráttarvexti á mánuði og
siðan vaxtavexti um hver mán-
aðamót.
Hinn 1. júni var staða all-
flestra viðskiptabankanna mjög
slæm gagnvart Seðlabankanum
en langverst þó hjá Útvegs-
bankanum sem þá hafði fyri-
dregið um 6.675 milljónir. Um
1500 milljónir af þvi eru frá þvi
um slðustu áramót. Siðastliöinn
mánuð og það sem af er þessum
mánuði hefur staöa viðskipta-
bankanna enn versnað gagnvart
Seðlabankanum. Einu bankarn-
ir sem hafa jákvæða stöðu eru
Búnaðarbankinn um 4.721
milljón og Samvinnubankinn
um 30 milljónir.
Eirikur Guðnason hjá Hag-
fræöideild Seðlabankans, sem
veitti blaðinu þessar upplýsing-
ar sagði, að það væri ekki
óvenjulegt aö bankarnir væru
með yfirdrátt en á þessum tima
væri það óeðlilegt. Eirikur sagði
rétt að benda á, vegna hinnar
háu refsivaxtatölu, að ekki væri
svo aö bankarnir væru að kasta
öllu þessu fé á glæ þvi megniö af
þvi lánuðu þeir aftur og fengu
þar einhverja vexti upp i þetta.
Hann gat þess einnig, að útlán
hefðu verið meiri en hóflegt gæti
talist og væru þessir vextir háir
til að þeir verkuöu sem bremsa
á seðlaprentun. —ÓM
1 gærdag tóku börn úr leikskólanum Grænuborg fyrstu skóflustunguna að nýrri Grænuborg, sem risa á við Eiriksgötu. Reyndar urðu skóflu-
stungurnar fleiri en ein og fleiri en tvær, þar sem hinir ungu borgarar virtust óþreytandi. Fljótiega rann þó upp fyrir þeim, að verkið myndi
sækjast seint á þennan hátt, svo þau drógu sig i hlé, en létu þess I staö skurðgröfu eftir verkiö og horfðu sjálf opinmynnt á.
______________ (Visism. GVA) — K.Þ.
ALSÆLIR
PUÐARAR
Magnús Blarnfreðs-
son skrifar
- hls. 8
Rætt við
Má Elísson
- sjá opnu
Popparar
hjá Guðrúnu
Á. Símonar
- blS. 22
Fréitaaukl um deiiur ráðuneyta um iiugumferðarstjórn á Kefiavíkurfiugveiii
„oiaiur segir pao
striða gegn lögum”
- segir Steingrímur Hermannsson um núverandi fyrírkomulag
„Lögin um flugmálastjórn
eru ákaflega skýr. Þar segir að
stjórn flugmála sé I höndum
flugráðs, sem er undir stjórn
ráöherra og framkvæmdastjóri
flugmála hér á landi er flug-
málastjóri. Og þar er engin
undantekning gerö með Kefla-
vikurflugvöll,” sagði Stein-
grimur Hermannsson sam-
gönguráðherra I morgunsam-
tali við VIsi. Hann hefur sem
kunnugt er af fréttum VIsis
krafist þess i bréfi til utanríkis-
ráðuneytis, að öll málefni varð-
andi flugumferðarstjórn verði
sett undir embætti flugmála-
stjóra, en varnarmáladeild
utanrikisráðuneytis hefur i þrjá
áratugi farið með þessi mál eins
og flest málefni er snerta Kefla-
vikurflugvöll.
„Það er til ákaflega athyglis-
verð álitsgerö um þetta mál,
sem Ólafur Jóhannesson utan-
rikisráöherra hefur skrifaö,”
sagði Steingrimur. „Hann
kemst að þeirri niðurstööu að
núverandi fyrirkomulag striöi
algerlega gegn lögum.”
Utanrikisráðuneytið hefur
enn ekki svaraö umræddu bréfi
samgönguráðherra, en aö sögn
Helga Ágústssonar deildar-
stjóra I varnarmáladeild utan-
rikisráðuneytis hefur verið unn-
ið að svari siöustu daga. Margt
bendir til að erindinu verði
hafnaö en engu að slður biða
menn þess meö óþreyju að svar
berist frá þeim utanrikisráð-
herra, sem sjálfur hefur sagt
núverandi skipan mála striða
gegn lögum.
Páll Magnússon blaðamaður
hefur fariö i saumana á þessu
máli og kynnt sér bréfaskipti
milli ráðuneyta og annarra er
þetta mál snertir sérstaklega.
Sjá bls. 9. — Gsal
Nýjustu tölur úr Reykjanesi:
KlaiiaraaikvæO-
in breyttu engu
Hafnfirsku kjallaraat-
kvæðin í forsetakosningun-
um voru talin í gær og
skiptust þau þannig milli
frambjóðendanna:
Vigdis halut 81 atkvæöi, Guð-
laugur 76, Albert 32 og Pétur 15. 1
atkvæði var ógilt. Samtals voru
þetta 205 atkvæöi.
Þessar tölur raska i engu röð
frambjóðenda en heldur hefur
dregið saman með Guðlaugi og
Vigdisi i þessu eina kjördæmi,
Reykjaneskjördæmi. — OM